Morgunblaðið - 24.02.2014, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar, Reykjanesbæ, 420 0400 – Bílasalan Bílás, Akranesi, 431 2622 – Bílasala Akureyrar, Akureyri, 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands, Egilsst., 470 5070 – IB ehf., Selfossi, 480 8080
ATVINNUBÍLL MEÐ
ÖLLUM BÚNAÐI
• Rennihurð á báðum hliðum
• Topplúga að aftan
• Skilrúm með glugga
• Niðurfellanlegt farþegasæti
• Útvarp með USB og AUX tengi
• Handfrjáls símabúnaður
• Hæðarstilling á bílstjórasæti ásamt hitara
• Loftkæling (AC)
www.renault.is
RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR.
Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá
Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
15
5
1
*Miðað við uppgefnar tölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
P
FRÍTT Í
STÆÐI!
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
RENAULT KANGOO II, DÍSIL
Verð:2.541.833 kr. án vsk.
3.190.000 kr. m. vsk.
1,5 dísil – 90 hestöfl
Eyðsla 4,5 L/100 km*
Saksóknarar í Egyptalandi hafa
ákært Mohammed Morsi, sem var
steypt af stóli forseta í fyrra, fyrir
að hafa lekið ríkisleyndarmálum til
íranska Byltingarvarðarins. Sak-
sóknari segir að markmiðið hafi
verið að koma á óstöðugleika í
Egyptalandi en þetta kom fram í
réttarhöldum yfir Morsi sem sak-
aður er um njósnir.
Saksóknarar saka Morsi og 35
aðra, m.a. leiðtoga Bræðralagsins,
um að hafa starfað með erlendum
samtökum og ríkjum, m.a. palest-
ínsku Hamas-samtökunum og Írön-
um, í þeim tilgangi að grafa undan
stöðugleika í Egyptalandi
EGYPTALAND
AFP
Ásökun Mohammed Morsi sakaður um
njósnir og að leka ríkisleyndamálum.
Saka Morsi um að
leka leyndarmálum
Slagsmál brutust
út við Parken,
íþróttaleikvang-
inn í Kaup-
mannahöfn, að-
faranótt sunnu-
dags. Þrír voru
fluttir á slysa-
deild með hníf-
stungusár og
sem þeir hlutu í
slagsmálunum.
Lögreglan segir að skothylki hafi
fundist á vettvangi en enginn hafi
hlotið skotsár í slagsmálunum. Mál-
ið er í rannsókn hjá lögreglu.
DANMÖRK
Þrír slasaðir eftir
hópslagsmál
Kaupmannahöfn.
Anders Fogh
Rasmussen,
framkvæmda-
stjóri Atlants-
hafsbandalagsins
(NATO), hrósaði
í gær úkraínska
hernum fyrir að
hafa ekki skipt
sér af stjórn-
málakreppunni
sem ríkir í land-
inu.
„Það er mikilvægt að sú verði
áfram raunin,“ sagði hann í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér.
NATO
Nato hrósar úkra-
ínska hernum
Anders Fogh
Rasmussen
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Oleksandr Túrtsjínov, hægri hönd
Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi for-
sætisráðherra Úkraínu, var kjörinn
forseti úkraínska þingsins á laugar-
daginn. Í kjölfarið samþykkti þingið
að koma Viktor Janúkóvitsj, forseta
landsins, frá völdum en forsetinn
hafði áður lýst því yfir í sjónvarps-
ávarpi að hann myndi ekki segja af
sér þrátt fyrir kröfur stjórnarand-
stöðunar og mótmælenda um afsögn
hans. Einnig var samþykkt að flýta
forsetakosningum í landinu og eiga
þær að fara fram 25. maí næstkom-
andi.
Sakar þingið um valdarán
Þing Úkraínu hefur útnefnt nýja
þingforsetann, Oleksander Túrtsj-
ínov, forseta landsins til bráðabirgða
og segir hann að fyrsta verk sitt sé
að kom á samsteypustjórn í landinu
innan tveggja daga.
Viktor Janúkóvitsj hefur lýst
ákvörðunum þingsins sem valdaráni
og segist enn vera við völd en forset-
inn fyrverandi hefur yfirgefið Kænu-
garð og ekki er vitað hvar hann er
niðurkominn. Mótmælendur mættu
engri mótspyrnu þegar þeir gengu
inn á skrifstofu forsetans og í for-
setahöllina á laugardaginn. Fregnir
herma að Janúkóvitsj hafi flúið til
Kharkiv, sem er borg nálægt landa-
mærum Úkraínu og Rússlands þar
sem hann á fjölmarga bandamenn.
Tímósjenkó sleppt úr haldi
Mótmælendur fögnuðu ákaft Júlíu
Tímósjenkó, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, á Sjálfstæðistorginu í
Kænugarði þegar hún mætti til höf-
uðborgarinnar í gærkvöldi. Tímósj-
enkó var forsætisráðherra Úkraínu
á árunum 2007 til 2010. Eftir að Vikt-
or Janúkóvítsj var kjörinn forseti
var hún ákærð fyrir að hafa misbeitt
valdi sínu í tengslum við gassamning
sem hún gerði við rússnesk stjórn-
völd árið 2009. Hún var dæmd í sjö
ára fangelsi árið 2011 en laga- og
mannréttindanefnd Evrópuráðs-
þingsins gerði alvarlegar athuga-
semdir við málareksturinn gegn
henni. Tímósjenkó ávarpaði mót-
mælendur í gær en hún segist ekki
vera að sækjast eftir því að verða
forsætisráðherra landsins á ný.
Forsetaskipti í Úkraínu
Úkraínska þingið samþykkti um helgina að koma Viktor Janúkóvitsj frá völdum
Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra, sleppt úr fangelsi
Mótmæli Fagnað var þegar úkraínska þingið kom Viktor Janúkóvitsj, forseta landsins, frá völdum um helgina.
AFP
Frjáls Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra, laus úr fangelsi.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Gífurlegur fjöldi fólks safnaðist sam-
an á götum úti í Venesúela um
helgina, bæði til að mótmæla og lýsa
yfir stuðningi við sósíalistastjórn
Nicolas Maduros, forseta landsins.
Mótmælin hafa staðið yfir síðan 4.
febrúar síðastliðinn og hafa hundruð
þúsunda tekið þátt í þeim. Venesúela
stendur frammi fyrir töluverðum
efnahagsvanda og ríkir almenn
óánægja í landinu vegna þess. Þrátt
fyrir að Venesúela eigi miklar olíu-
birgðir standa
landsmenn
frammi fyrir
skorti á nauð-
synjavörum og
óðaverðbólgu.
Íbúar landsins
virðast þó vera
klofnir í afstöðu
sinni til forsetans
og safnast fólk
saman bæði til að
mótmæla forsetanum og lýsa yfir
stuðningi við hann. Að minnsta kosti
50.000 stjórnarandstæðingar hópuð-
ust saman á götum úti í Caracas í
dag í kjölfar ákalls Henriques Capri-
les, leiðtoga stjórnarandstöðunnar.
Hann tapaði naumlega fyrir Maduro
í forsetakosningunum í fyrra.
Fordæma viðbrögð stjórnvalda
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fordæmir óviðun-
andi valdbeitingu stjórnvalda gegn
mótmælum stjórnarandstæðinga í
Venesúela. Í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér segir að valdbeiting
stjórnvalda og refsihótanir gagnvart
óbreyttum borgurum og stjórnmála-
mönnum, sem séu einungis að mót-
mæla á friðsælan hátt, séu óviðun-
andi og muni aðeins auka líkurnar á
ofbeldi. Kerry bendir einnig á að
stjórnvöld hafi sett háskólafólk og
stjórnarandstæðinga í fangelsi.
Einnig fjallaði hann um að stjórn-
völd í Venesúela hefðu hótað að vísa
fréttamönnum bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar CNN úr landi og
slíkt líðist ekki í lýðræðisríkjum.
Kerry hvatti svo venesúelsk
stjórnvöld til að leysa þá mótmæl-
endur sem hafa verið settir í fangelsi
úr haldi.
Klofningur íbúa Venesúela
Mótmælendum er mætt með valdi í Venesúela Háskólanemar og stjórnar-
andstæðingar hafa verið fangelsaðir Bandarísk stjórnvöld fordæma Venesúela
Nicolas
Maduros