Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN Afmæli MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Í dag, mánudag- inn 24. febrúar 2014, er Karl Jón- atansson tónlist- armaður níræður. Ég kynntist Karli á níunda áratugnum eftir að ég hafði í boði kunningja míns hlustað með frænda mínum, Hákoni Heimi Kristjónssyni, á æf- ingu hljómsveitar Harmonikkufélags Reykjavíkur í kjallara Thors Jensens-hússins á Fríkirkjuvegi 11, en hljóm- sveitinni stjórnaði Karl af festu og lipurð. Eftir æfinguna ákváðum við frændurnir að reyna að komast í tíma til Karls til að læra á þetta merkilega hljóðfæri, sem ég hafði ungur dáðst að á jólatrésböllum í Keflavík, en þar lék oft fyrir dansi Baldur, faðir þjóðkunna tónlistar- mannsins Þóris Baldurssonar. Það var eitthvað við þetta hljóm- fagra, skrautlega og glitrandi hljóðfæri sem seiddi mann að sér og fyllti mann aðdáun og forvitni. Karl tók okkur frændunum vel og kenndi okkur undirstöðuatriði fingrasetningar, belgstjórnunar og tónfræði svo að fljótlega vorum við farnir að leika einföld lög eftir nótum, handskrifuðum af Karli. Þegar fram í sótti fengum við flóknari lög, gjarnan samin af Karli og útsett í tveimur röddum. Þegar svo enn lengra kom setti Karl okkur ásamt fleiri nemend- um í fimm manna hóp, sem æfði flóknari lög og þá gjarnan í þrem- ur til fimm röddum skrifuðum af meistaranum, sem oft var þá jafn- framt höfundur laganna. En Karl setti ekki eingöngu saman raddir, heldur hafði hann lag á að velja saman í hóp fólk, sem átti lund saman. Þannig mynduðust í mín- um hópi ævarandi vináttutengsl. Þegar þessi kvintett okkar átti að koma fram opinberlega og ein- hver kvíði sótti að okkur sagði Karl gjarna við okkur svo heim- spekilega: „Hafið ekki þessar áhyggjur. Þetta getur ekki farið nema á tvo vegu, annaðhvort vel eða illa.“ Og áhyggjurnar dvín- uðu, þegar maður hugsaði út í, að enginn heimsendir yrði þótt eitthvað mistækist. Leiðin lá svo í hljómsveit Harm- onikkufélags Reykjavíkur, sem óx og efldist með hverju árinu, og var gjarnan kölluð Stórsveitin. Þegar hæst lét skipuðu hana yfir fimmtíu hljóðfæraleikarar, þar af tæplega fimmtíu harmon- ikkur auk túbu og öflugrar hryn- sveitar. Og þessi hljómsveit náði því að spila í Glassalen í Tívolíinu í Kaupmannahöfn löngu á undan Stuðmönnum! Stórsveitin spilaði m.a. klassísk verk í allt að 7-8 harmonikkurödd- um, sem allar voru handskrifaðar af meistaranum góða. Á æfingum var Karl vanur að segja, þegar eitthvert lag var að verða fullæft: „Nú, þetta er nú bara að verða Vigdísarfært.“ Þessi viðmiðun Karls leiddi svo til þess að Stór- sveitin brá sér í heimsókn að Bessastöðum og spilaði þar fyrir forsetann góða, frú Vigdísi Finn- bogadóttur. Úsetningar Karls voru yfirleitt alger snilld, sem fáir ef nokkrir gátu skákað. Í flóknari verkum skrifaði Karl stundum sem undir- rödd sjálfstætt lag inni í tónverk- inu. Það mátti t.d. heyra í franska valsinum La Petit. Lifði sú undir- rödd ein sem sjálfstæður vals, sem talsvert var notaður víða um land. En Karl vasaðist í mörgu öðru á sama tíma. Hann stofnaði m.a. blásarasveit, stórsveit – með um 15 hljóðfæraleikurum, sem spilaði m.a. tónlist frá þriðja til fimmta áratug síðustu aldar, allt eftir út- setningum meistarans. Ég og mikill fjöldi fólks stend- ur í ævarandi þakkarskuld við meistarann Karl Jónatansson fyr- ir dýrmæta handleiðslu og kennslu á sviði tónlistar. Ég veit að margir mundu vilja taka undir með mér, þegar ég óska afmæl- isbarninu og fjölskyldu hans inni- lega til hamingju á þessum merku tímamótum. Björn Ólafur Hallgrímsson. Karl Jónatansson, níræður Umfangsmikil leit fór nýlega fram á Faxaflóa þegar Landhelgisgæsl- unni barst neyðarkall frá bát sem að því er virtist var að sökkva. Á þeim tíma er björgunarkallið barst var heræfing á veg- um Atlantshafs- bandalagsins, Iceland Air Meet, í fullum gangi. Á þriðja tug loftfara, þ. á m. orrustuþotur, björgunar- þyrlur og eldsneytisbirgðaflugvélar voru af þessu tilefni staðsettar í næsta nágrenni við hinn meinta slysstað. Á örskotsstundu voru tvær finnskar björgunarþyrlur ræstar af stað og sendar í björgunarleiðangur út á Faxa- flóa. Nú hefur komið í ljós að björgunar- kallið var gabb, ljótur og ósiðlegur hrekkur óprúttinna manna. Þó svo að björgunarkallið hafi verið falskt þá var leitin raunveruleg og vekur hún mikil- vægar spurningar um stefnu borg- arstjórnarmeirihlutans í björgunar- málum. Ekki er langt síðan núverandi borgarstjóri, Jón Gnarr, lýsti því op- inberlega yfir að stefnan væri sett á að gera Reykjavík að „herlausri borg“ fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Lagði hann jafnframt áherslu á að hann væri reiðubúinn til að berjast fyrir því að þessi stefnubreyting yrði að raunveruleika. Hvað á borgarstjórinn við þegar hann segist vilja gera Reykjavík að „herlausri borg“? Rúmlega hálf öld er síðan herlið hafði síðast fasta viðveru innan borgarmarkanna og því eina rökrétta stefnubreyt- ingin sem hægt er að lesa út úr þessum orðum borgarstjórans að hann vilji banna heimsóknir er- lendra hersveita með öllu. Slík stefnubreyting kann í fyrstu að hljóma smávægi- leg og hugsanlega jákvæð en þegar nánar er að gáð er auðséð að hún er háð alvarlegum vanköntum. Ef hersveitum banda- mannna okkar verður gert óheimilt að heimsækja höfuðborgina mun það vafalaust hafa alvarleg áhrif á ástand björgunarmála á höfuðborgarsvæðinu. Þegar neyðarkall berst vegna skip- skaða í Faxaflóa skiptir sköpum að hjálp berist sem fyrst. Það er því óneitanlega dýrmætt fyr- ir bæði viðkomandi skipverja sem og Landhelgisgæsluna að geta leitað eftir aðstoð til erlendra hersveita sem hér eru staddar í kurteisisheimsókn eða björgunaræfingum með skipum og loftförum, mönnuð af þaulreyndu björgunarfólki og útbúin nýjasta há- tæknibúnaði. Það er ábyrgðarhlutverk valdhafa að skoða stefnubreytingu út frá öllum hugsanlegum sjónarmiðum áður en ákvörðun er tekin. Það á vel við í þessu tilviki og vonandi nær borgarstjórnarmeirihlutinn áttum áður en tekin verður ákvörðun sem skerðir verulega öryggi borgarbúa til fram- búðar. Þó að herlaus Reykjavík hljómi kannski fallega verður að hafa í huga að það varnarsamstarf sem við eigum við vinaþjóðir okkar fjallar ekki síst um eftirlit og björgun. Herir ná- grannaríkjanna sinna þeim störfum sem björgunarsveitirnar sinna hér og því ábyrgðarleysi að taka ekki það mikilvæga öryggis- og varnaratriði með í reikninginn. Stórt skref í þá átt var stigið sl. fimmtudag þegar borgarráð samþykkti tillögu okkar sjálfstæðismanna um að borgarstjórn fagni þeim árangri sem Landhelgisgæslan hefur náð á undan- förnum árum við að efla samstarf sitt við björgunaraðila erlendra vinaþjóða og að borgarstjórn bjóði slíka aðila velkomna til Reykjavíkur. Margir furða sig eflaust á því að slíka tillögu hafi yfirhöfuð þurft að leggja fyrir borgarráð en við sjálfstæðismenn sáum okkur ekki annað fært í kjölfar fyrrnefndrar orðræðu borgarstjóra. Affarasælast fyrir borgarbúa sem og landsmenn alla væri þó að fá nýjan borgarstjórnarmeirihluta að kosn- ingum loknum. Meirihluta sem léti sig björgunar- og öryggismál borgarbúa meira varða Björgunarlaus borg? Eftir Hildi Sverrisdóttur » Þegar neyðarkall berst vegna skipskaða í Faxaflóa skiptir sköpum að hjálp berist sem fyrst. Hildur Sverrisdóttir Höfundur er borgarfulltrúi. Að gefnu tilefni mót- mæli ég undirrituð um- fjöllun þinni um Búmenn hsf. á fundinum þann 8. febrúar 2014 í Gullsmára með Félagi eldri borgara í Kópavogi og fulltrúa LEB. Það var vægast sagt aumkunarvert að hlusta á þig, Haukur, verja stjórn Búmanna hsf. vegna getuleysis þeirra að borga okkur eldri borgurum lögvarða kröfu sem búseturéttargjaldið er, þ.e.a.s. stendur sem trygging fyrir skilvísri greiðslu búsetugjalds, sbr. grein 4.4 í búsetu- samningi og 3 mgr. 9. laga nr. 66/2003 um húsnæðissamvinnufélög vegna fjárhagsvanda Búmanna hsf. Það eru fimm ár síðan kona nokkur, fædd 1929, veiktist og var flutt á hjúkrunarheimili en hún hafði borgað búseturétt til Búmanna hsf., en henn- ar lögvarða krafa er ógreidd, hún greiddi sem sagt tæpa milljón á mán- uði í leigu til Búmanna hsf. Hvernig er hægt að verja svona gjörning? Mál okkar eldri borgara sem fóru inn í félag Búmanna hsf. 2008 snýst um lög og brot á lögum gagnvart okkur, en ekki að þú, Haukur Ingibergsson, hafir svo mikið vit á húsnæðismálum eins og kom fram hjá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, formanni LEB. Að rétt- læta brot á lögum gagn- vart okkur eldri borgurum er ekkert annað en að samþykkja spillingu og óheiðarleg vinnubrögð af hálfu stjórnar Búmanna hsf. Ég ætla að minna þig á, Haukur Ingibergsson, sem varaformaður LEB, að lýðveldið Ísland er með stjórn- arskrá sem er í gildi og í 72. gr. stend- ur að eignarréttur sé friðhelgur. Eng- an má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagaheimild og komi fullt verð fyrir. Einnig hefur Ísland samþykkt og skrifað undir alþjóðasamninga. Lög samkvæmt Copenhagen Document frá 1990 (OSCE). Lög samkvæmt Rome Statute frá 1992(ICC), lög samkvæmt European Human Rights agreement (ECHR), lög samkvæmt UN agree- ment (UN), tilskipun ráðsins 93/13 EBE frá 5. apr. 1993 innleidd 2001 um óréttmæta skilmála í neytenda- samningum. Er ekki kominn tími til að hér sé farið að lögum frekar en að réttlæta þau lögbrot sem framin eru á þessu landi? Hvað viðkemur okkur eldri borgurum, þegar þeir eru blekktir með ólöglegum samningum, þarf svo sannarlega að sýna okkur allan þann stuðning sem hægt er, því sumt af þessu fólki hefur ekki heilsu til að verja sig og því síður fjármagn sem það kostar að fá aðstoð hjá lögfræð- ingum þessa lands. Það er kominn tími til að velja í stjórn LEB þá sem hafa hagsmuni allra eldri borgara þessa lands að leiðarljósi en ekki ein- hverja óútskýranlega hagsmuni sem vinna gegn okkur eldri borgurum. Virðingarfyllst. Opið bréf til Hauks Ingibergssonar Eftir Guðlaugu Gunnarsdóttur »Er ekki kominn tími til að hér sé farið að lögum frekar en að réttlæta þau lögbrot sem framin eru á þessu landi? Guðlaug Gunnarsdóttir Höfundur er eldri borgari í Kópavogi. Morgunblaðið birtir afmælis- og minningargreinar endur- gjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsend- ingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja við- eigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á ákveðnum degi þarf grein- in að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef hún á að birtast á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd greina er 3.000 slög. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Afmælis- og minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.