Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
✝ Ragnar Gísla-son fæddist í
Reykjavík 24.
október 1951.
Hann lést á Land-
spítalanum 14.
febrúar 2014.
Foreldrar Ragn-
ars voru Sigríður
Jónsdóttir hús-
móðir, f. 22.12.
1925, d. 5.3. 1989,
og Gísli Einarsson
hæstaréttarlögmaður, f. 26.12.
1922, d. 25.1. 1992. Bræður
Ragnars eru Einar Gíslason, f.
29.4. 1946, grunnskólakennari.
Jón Otti Gíslason, f. 15.4. 1955,
lögregluvarðstjóri, d. 26.1.
2003. Samfeðra Gísli Þór Gísla-
son, f. 1.6. 1969, búsettur er-
lendis.
Ragnar kvæntist hinn 6.11.
1971 æskuást sinni, Ingibjörgu
Gunnarsdóttur, f. 11.3. 1951,
leikskólastjóra í Garðabæ. For-
eldrar Ingibjargar voru Gunn-
ar Bjarnason innheimtufulltrúi,
f. 10.10. 1913, d. 30.11. 1991,
og Elísabet Jónsdóttir hús-
móðir, f. 19.4. 1914 , d. 22.7.
2011. Ragnar og Ingibjörg
hófu búskap sinn í Hafnarfirði,
bjuggu þar til margra ára, en
fluttu síðan í Garðabæ og hafa
búið þar síðan.
Börn Ingibjargar og Ragn-
ars eru: 1) Gunnar Bjarni tón-
haustið 1971. Ragnar vann við
Öldutúnsskóla bæði í fullu
starfi og að hluta á árabilinu
1971-1981. Í nokkur ár vann
Ragnar að gerð námsefnis í
samfélagsfræði á vegum Skóla-
rannsóknadeildar Mennta-
málaráðuneytisins. Frá 1978-
1981 sat Ragnar í stjórn Ríkis-
útgáfu námsbóka. Frá
1981-1986 sat Ragnar í stjórn
Námsgagnastofnunar og starf-
aði jafnframt sem deildarstjóri
afgreiðslu- og söludeildar. Út-
gáfustjóri bókaforlagsins Vöku-
Helgafells frá 1986-1989. Kenn-
ari og fagstjóri í Garðaskóla í
Garðabæ 1989-1992. Skólastjóri
Foldaskóla í Reykjavík frá
1992-2002 og skólastjóri Garða-
skóla í Garðabæ frá 1992 til
ársloka 2013. Ragnar vann
óeigingjarnt starf í þágu for-
varna og gegndi formennsku í
Vímulausri æsku 1995-1996.
Ragnar gaf út þrjár ung-
lingabækur og var með bók í
smíðum sem tengdist hans
mikla áhuga á jarðfræði og
gosfræðum. Hann skrifaði einn-
ig fjöldann allan af greinum í
blöðin um skeið. Ragnar byrj-
aði snemma í hljómsveitum og
var m.a. í hljómsveitinni Trix
og síðar í hljómsveitinni Rand-
ver sem var stofnuð af kenn-
urum í Öldutúnsskóla og varð
svo skólastjóraband.
Útför Ragnars fer fram frá
Vídalínskirkju í dag, 24. febr-
úar 2014, og hefst athöfnin kl.
15.
listarmaður, bú-
settur í
Mosfellsbæ, f. 2.7.
1969. 2) Sigríður
Elísabet grunn-
skólakennari, bú-
sett í Hafnarfirði,
f. 21.4. 1974. Eig-
inmaður Sigríðar
er Jónatan Fjalar
Vilhjálmsson sjón-
varpstæknimaður,
f. 10.10. 1971.
Þeirra börn eru tvö, Ingibjörg
Elísa og Ragnar Otti. Barn Sig-
ríðar Elísabetar og Bjarna
Þórs Jóhannssonar er Gunnar
Þorgeir. 3) Ragnheiður Þórdís
íþróttakennari, búsett í Hafn-
arfirði, f. 15.8. 1977. Eigin-
maður Ragnheiðar er Úlfar
Linnet, verkfræðingur, f. 11.3.
1980. Börn Ragnheiðar og Úlf-
ars eru þrjú, Úlfheiður, Jónína
og Ari.
Ragnar ólst upp í Reykjavík
á Bergstaðastræti 12b og sótti
Miðbæjarbarnaskólann frá
1958. Lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar.
Þaðan lá leið í Kennaraskóla
Íslands þar sem hann lauk
kennaraprófi vorið 1971. Ragn-
ar stundaði síðar framhalds-
menntun í stjórnun við Kenn-
araháskóla Íslands. Bráðungur
hóf hann störf sem kennari við
Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
Elsku hjartans Raggi minn,
ástvinur minn og allra besti vin-
ur. Frá því við vorum börn höf-
um við verið óaðskiljanleg og
ekki getað hvort án annars ver-
ið. Ást okkar og vinskapur var
algerlega fölskvalaus. Við vor-
um unglingar þegar við hófum
búskap. Ragnar var ekki nema
sautján ára gamall þegar við
eignuðumst Gunnar Bjarna og
síðar Siggu Lísu og Röggu Dís.
Hann var svo góður drengur og
ábyrgur að aldrei kom til greina
að leita á náðir annarra, hann
var fullfær um að sjá um sína
fjölskyldu. Börnin og barna-
börnin hefur hann elskað af öllu
hjarta og viljað hafa sem næst
sér til þess að gæta þeirra,
segja þeim sögur, kenna tónlist,
skemmta og fræða.
Við höfum átt margar
skemmtilegar og góðar stundir
saman, hjálpast að í hvívetna og
notið þess að vera með fjöl-
skyldu og vinum. Þegar við vor-
um fimmtán ára unnum við
sumarstörf. Raggi í málningar-
vinnu hjá afa sínum og ég í
sumardvalarheimili fyrir börn,
Glaumbæ, rétt sunnan við
Hafnarfjörð. Hvern dag tók
Raggi strætó í Hafnarfjörð, þar
sem hann geymdi hjólið sitt,
hjólaði til mín í Glaumbæ og tók
síðasta strætó heim. Þarna
tengdumst við tryggðarböndum
fyrir lífstíð. Lengi framan af í
okkar sambúð voru það litlir
hlutir sem glöddu, berjatúrar,
fjöruferðir og pikknik út í nátt-
úruna, dagsferðir sem ljóma
dýrðlega í minningunni. Ég var
áhyggjulaus, því Raggi hélt allt-
af utan um okkur fjölskyldu
sína og var alltaf leiðandi,
ákveðinn, sterkur og glaður.
Seinna fórum við að ferðast
saman. Við eigum skemmtilegar
minningar frá ferðum okkar,
bæði innanlands og utan. Frá
göngu- og hjólaferðum okkar
um landið og einnig frá Kaup-
mannahöfn og Manhattan, þar
sem börnin okkar bjuggu á
tímabili.
Nám okkar og störf hafa leg-
ið saman og höfum við aðstoðað
og styrkt hvort annað í störfum
okkar sem einnig hafa átt huga
okkar beggja. Raggi kenndi
mér svo margt, hann var mikill
íslenskumaður og ég held að
enginn í fjölskyldunni hafi kom-
ist hjá því að læra stafsetningu,
en ég lærði fyrst almennilega
stafsetningu af honum í gegnum
síma þegar við vorum fimmtán
ára gömul.
Árið 2007 fórum við í fram-
haldsnám, og bjuggum þá í
Kaupmannahöfn í þrettán mán-
uði og var það góður og gefandi
tími. Einnig vorum við saman í
Stokkhólmi í rúma þrjá mánuði
árið 2011 í veikindum Ragnars,
er hann fór í mergskipti á Kar-
ólínska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi. Þrátt fyrir veikindin nut-
um við þess að eiga nánar
stundir saman. Okkur þykir
báðum vænt um þessa borg og
urðum þeirrar gæfu aðnjótandi
að geta heimsótt Stokkhólm í
fjóra daga í desember sl. Við
vorum einnig staðráðin í að
heimsækja Kaupmannahöfn í
vor ef heilsa Ragnars hefði bor-
ið gæfu til.
Við fjölskyldan höfum þó
ekki átt hann ein, hann er fjöl-
hæfur maður sem hefur margt
að gefa enda lét hann víða að
sér kveða. Hann hafði brenn-
andi áhuga á störfum sínum og
elskaði vini sína og sýndi það í
verki með glaðværð, góðvild og
einstakri hjálpsemi. Tengdafor-
eldrum sínum var hann sem
besti sonur og var mikil elska
og virðing þeirra í millum.
Raggi elskaði foreldra sína,
bræður, ömmur og afa, sem öll
eru nú látin. Einar bróðir hans
er sá eini sem eftir lifir og syrg-
ir nú báða yngri bræður sína en
yngri bróðir þeirra, Jón Otti,
lést árið 2003.
Elsku Raggi minn, ég get
ekki án þín verið en ég veit að
þú ert nálægur og við gætum
hvort annars.
Guð er með þér, elsku dreng-
urinn minn.
Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Elsku pabbi. Nú ertu farinn
frá okkur alltof fljótt. Þegar við
fengum fréttirnar af veikindum
þínum fyrir þremur árum varð
ég ósköp vonlítil. Svo varst þú
hinn mesti baráttujaxl og áttir
marga sigra á þínu ferðalagi í
heimi lækninganna. Ég var far-
in að lifa í voninni um að þú
yrðir mjög gamall maður og
myndir fylgja okkur lengur í
þessu lífi. Ég sakna þín svo
mikið og ég harma það að börn-
in mín skuli fái ekki að vaxa og
dafna með þér. Börnin mín
elska þig út af lífinu og er ég
þakklát fyrir að Ari fékk átta
mánuði með afa sínum. Ég mun
ávallt halda minningu þinni á
lofti og segja þeim sögur af
ykkur Tinna. Hver á nú að spila
á gítar og syngja með þeim? Ég
er þakklát fyrir okkar góðu
stundir, þegar við sungum sam-
an í bílnum á leiðinni af fim-
leikaæfingum, þegar þú sagðir
sögur, þegar við spiluðum í
ferðalögum og uppátækjanna
okkar eins og þegar ég hoppaði
upp á axlirnar á þér langt fram
eftir aldri. Ég veit að þú ert á
góðum stað og margar góðar
sálir taka á móti þér. Ég trúi að
það sé kátt á hjalla hjá ykkur
bræðrum núna. Takk fyrir að
vera til staðar alla tíð. Ég elska
þig, pabbi minn.
Ragnheiður Þórdís Ragn-
arsdóttir (Ragga Dís).
Elsku pabbi, þú ert farinn í
ljósið en eftir sitjum við og
sorgin er ólýsanleg. Þú hafðir
mikinn lífsvilja og barðist hetju-
lega við hvítblæðið alveg fram
til þess síðasta. Við eigum ekk-
ert ósagt pabbi og það er svo
gott. Þú veist að ég elskaði þig
og ég veit að þú elskaðir mig.
Þú varst mikill afi og stórt
skarð er því í hjarta Gunnars
Þorgeirs, Ingibjargar Elísu og
Ragnars Otta. En sú mikla
hlýja og áhugi sem þú sýndir
þeim mun aldrei gleymast og
þau munu varðveita minning-
arnar um þig og minnast þín
með gleði. Þú varst líka mikill
pabbi og streyma minningar
um huga mér eins og öll ferða-
lögin, stoppin í Nesti þar sem
við fengum okkur pylsu og
malt, ferðirnar okkar í Fjarð-
arkaup á föstudögum, hvað þú
varst duglegur að koma á allar
sýningar í fimleikunum með
vídeóvélina, allar skemmtilegu
sögurnar sem þú sagðir mér,
hvað þú hafðir fyrir því að
passa upp á mig á unglingsár-
unum, hvernig þú tókst frum-
burðinn minn upp á arma þér
þegar ég tók upp á því að
koma með barn 19 ára og hvað
þú hefur hjálpað mér mikið í
lífinu öllu. Ég mun sakna þín
mikið pabbi og ég lofa þér að
passa vel upp á mömmu.
Þín
Sigríður Elísabet
(Sigga Lísa).
Ég kveð tengdaföður minn
með söknuði. Hann reyndist
börnunum mínum góður afi,
okkur hjónunum sterk stoð og
mér góður félagi. Ragnar var
fjölfróður maður sem hafði
áhuga á flestum hlutum. Oft
sátum við og ræddum um
heima og geima. Fáir hafa
spurt mig jafnoft um orkumál
og ákaflega gaman var að
hlusta á Ragnar tjá sig um
hugðarefni sín svo sem tónlist,
jarðfræði og skólamál. Sýn
Ragnars sem skólastjóra vakti
áhuga minn. Mestan áhuga
hafði hann á því hvernig
byggja mætti upp nemendur
með því að kenna þeim að taka
ábyrgð á sjálfum sér. Undir-
strika frelsi og umræðu um
skynsamleg mörk frekar en að
leggja áherslu á boð og bönn.
Ég vona að mér muni takast að
ala börnin mín upp í þessum
anda. Mér er minnisstæð heim-
sókn til Ragnars og Ingibjarg-
ar skömmu eftir að hljómsveit-
in hans, Randver, hafði tekið
saman á ný. Það var mjög létt
yfir Ragnari þennan dag og
hann sagði mér hversu mikinn
kraft samvera með fjölskyldu
og vinum gæfi sér. Í veikindum
Ragnars varð það ljóst að
þangað sótti hann orkuna sem
gaf honum baráttuþrek til að
ná fjölda sigra og eiga margar
góðar stundir. Ég ætla mér að
sækja á sömu mið og Ragnar.
Byggja upp sterka fjölskyldu,
hlúa að vináttunni og njóta
þess tíma sem okkur er gefinn.
Úlfar Linnet.
Ragnar Gíslason reyndist
mér afar góður tengdafaðir.
Það er ekki hægt að komast á
betri stað en að komast í vin-
áttu og í fjölskyldusamband við
Ragnar og hans fjölskyldu.
Ragnar var leiðtogi og það afar
gefandi og kærleiksríkur leið-
togi sem hafði að mínu mati
mikinn og djúpan skilning á því
hvernig koma skal fram við fólk
og öðlast traust þess og eilífa
vináttu. Ástarsaga Ingibjargar
og Ragnars er okkur innblástur
og ég tel það hafi fullkomnað
Ragnar að kynnast henni Ingi-
björgu og það líf sem þau sköp-
uðu sér saman kennir okkur
sem eftir sitjum að hlúa að vin-
áttu, virðingu, manngæsku og
ástinni sem þú hafðir svo mikið
af og það sást á hjónabandi
ykkar Ingibjargar. Lífskraftur
og útgeislun ykkar hjóna var
ávallt til staðar og það var ynd-
islegt að sjá samvinnu ykkar og
hjörtu slá í takt. Ragnar var af-
ar bóngóður og ráðagóður mað-
ur sem hægt er að sjá á barna-
börnunum hans og þau fræ sem
hann hefur sáð í hjarta þeirra
og okkar Siggu Lísu munum við
rækta og hlúa að eins vel og við
getum. Hlýjan á Efstalundi hjá
Ragnari og Ingibjörgu, hlátur-
inn og blíðan verður ávallt í
huga okkar og fáum við þér
aldrei nægilega þakkað fyrir
þær góðu stundir sem þú gafst
okkur. Þú reyndist mér afar vel
í mínum áföllum og hefur stutt
mig í öllu sem ég hef tekið mér
fyrir hendur, ég vona að geti
borgað þér það síðar. Ég á
minningar um þig Ragnar sem
rifjast upp á hverjum degi og
þar sem barnabörnin þín hafa
mikið lært af þér og líkjast þér
svo mikið þá mun ég njóta þess
sem þú hefur skapað í þeim og
hugsa hlýtt til þín. Nú fá aðrir
að njóta gleði þinnar, húmors-
ins og tónlistar þar sem þú ert
núna og ég veit að þú fylgist
með þegar Hekla gýs sem var
þér svo hugfólgin og vakir yfir
þínu fólki. Þú varst verndari
margra barna og unglinga hér í
þessu lífi og ég veit að þú vakir
yfir þeim um ókomna tíð.
Ragnars Gíslasonar verður
ávallt minnst sem besta afa sem
hægt er að hugsa sér og ég vil
bæta við besta tengdaföður líka.
Hvíl í friði okkar besti vinur,
þín er sárt saknað.
Jónatan Fjalar Vilhjálmsson.
Elsku afi, svo hlýr og góður.
Ingibjörg Elísa.
Ragnar Gíslason
Fleiri minningargreinar
um Ragnar Gíslason bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝
Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
RAGNHEIÐUR SVEINFRÍÐUR SÓLEY
ÁRNADÓTTIR
frá Bolungarvík,
Vesturgötu 28,
Reykjavík,
lést að morgni mánudagsins 17. febrúar á
hjartadeild Landspítalans við Hringbraut.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. febrúar
og hefst kl. 13.00.
Kristrún Árný Sigurðardóttir, Stefán Ragnar Einarsson,
Árni Jónsson Sigurðsson, Sjöfn Þórðardóttir,
Jón Sævar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín, mágkona okkar og móðursystir
mín,
HULDA SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR,
er látin. Útför hennar hefur farið fram.
Anna María Pálsdóttir, Sigfús J. Árnason,
Ágúst Atli Guðmundsson,
Atli Ágústsson.
✝ Halldór Val-geirsson fædd-
ist í Reykjavík 1.
desember 1937.
Hann andaðist á
Rauðakrosshótelinu
í Ármúla, 17. febr-
úar 2014.
Foreldrar hans
voru Valgeir Þ.
Guðlaugsson, f.
18.7. 1910, d. 26.12.
1989, og Hrefna
Sigurðardóttir, f. 2.6. 1916, d.
1.4. 1995. Systkini Halldórs eru
Elísabet Valgeirsdóttir, f. 29.9.
1940, Böðvar Valgeirsson, f.
6.2. 1942, Þórey Valgeirsdóttir,
f. 4.12. 1946, Ásta Dóra Val-
geirsdóttir, f. 6.10. 1949, Sig-
urður Guðni Valgeirsson, f.
22.5. 1954, Þuríður Rúrí Val-
Halldór Almar, f. 1999, og Alba
Máney, f. 2003, barnsmóðir er
Sigríður Ragna Birgisdóttir, f.
1974. 3) Haukur Hrafn, f. 5.11.
1972, maki Bjarney Oddrún Haf-
steinsdóttir, f. 13.1. 1975. Börn
þeirra eru: a) Daníel Ómar, f.
2002 b) Jón Arnar, f. 2004, fyrir á
Haukur Hrafn Selmu Dís, f.
1998, barnsmóðir er Guðrún
Berglind Gunnarsdóttir, f. 1972.
Erna átti fyrir börnin 1) Helga
Svavar, f. 31.3. 1955, maki Þor-
björg Guðnadóttir, f. 22.5. 1954.
Börn þeirra eru a) Íris Dögg, f.
1977, maki Kwaku Kuma Asare,
börn þeirra eru Nathan Doku
Helgi, f. 2006, og dóttir, f. 2014,
b) Birkir Freyr, f. 1987, sam-
býliskona, Gyða Sigrún Grön-
vold Sigurðardóttir, f. 25.8. 1992,
og c) Fjóla Björk, f. 1997. 2) Guð-
nýju Huldu, f. 21.10. 1960, maki
Sverrir Tryggvason, f. 12.7.
1959. Börn þeirra eru Karen
Ósk, f. 1998, og Aron Ingi, f.
1998.
Halldór lauk námi í Samvinnu-
skólanum árið 1955. Þaðan fór
hann í búfræðinám hjá Sten jord-
brukskole í Noregi á árinu 1956
og lauk því 1958. Hann starfaði
síðan hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga þar til hann hóf
nám í löggiltri endurskoðun
1969 sem hann lauk 1975. Eftir
að Halldór lauk námi, stofnaði
hann endurskoðunarskrifstofu
þar sem hann starfaði í mörg ár
sem löggiltur endurskoðandi.
Hann stofnaði síðar með eig-
inkonu sinni, Ernu Helgadóttir,
fyrirtækið Saumasporið sem
hann rak fram til síðasta dags.
Halldór verður jarðsunginn
frá Digraneskirkju í dag, 24.
febrúar 2014, og hefst athöfnin
klukkan 13.
geirsdóttir, f. 18.3.
1956.
Halldór giftist
11.11. 1967 Ernu
Helgadóttur, f. 16.7.
1933. Börn þeirra
eru: 1) Valgeir, f.
11.9. 1967, sam-
býliskona Karin
Gembert, f. 3.10.
1980, barn þeirra er
Leo, f. 2013. Fyrir á
Valgeir dæturnar
Kolbrúnu Ernu, f. 1986, og Stef-
aníu Kristínu, f. 1992, barns-
móðir er Ingibjörg Ólafsdóttir, f.
1966. 2) Halldór Arnar, f. 11.6.
1969, Börn hans eru a) Sara Ósk,
f. 1987, barnsmóðir er Hallfríður
Böðvarsdóttir, f. 1969, b) Guðjón
Örn, f. 1994, barnsmóðir er Sóley
B. Gunnarsdóttir, f. 1971. b)
Ég elska þig mjög mikið.
Við hittumst uppi í himnaríki
einhvern tímann. Það var gott
fyrir mig að þú varst afi minn.
Láttu fara vel um þig þarna
uppi.
Ég vona að þú njótir þess að
vera með konunni þinni.
Farðu vel með þig.
Kveðja,
Alba Máney.
Elsku afi.
Eftir að ég frétti að þú værir
dáinn hef ég hugsað mikið um
stundirnar sem við áttum sam-
an og það sem stendur upp úr
er það hvað það var alltaf gam-
an að tala við þig. Þú vissir allt.
Þú varst mjög áhugaverður
maður sem maður gat talað við
tímunum saman. Ég sakna þín
og þessara stunda. Ég er þakk-
látur fyrir að hafa átt þig fyrir
afa.
Þinn nafni,
Halldór Almar.
Halldór Valgeirsson
Fleiri minningargreinar
um Halldór Valgeirsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.