Morgunblaðið - 24.02.2014, Page 22

Morgunblaðið - 24.02.2014, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Búhyggindi borga sig. Mér finnst nauðsynlegt að búa vel aðmínu og leysa sjálfur úr þeim verkefnum sem upp koma ídagsins önn. Ég starfaði lengi sem smiður og þó að ég sé hættur því núna á ég samt alltaf hamarinn og sögina og gríp í þau tól ef þarf. Þá hef ég mikla ánægju af því að dunda mér úti í bílskúr og gera við traktora. Skiptilykill og skrúfjárn eru þarfaþing,“ segir Þröstur Jónssson, garðyrkjubóndi á Flúðum, sem er 56 ára í dag. Hvergi á landinu er grænmetisræktun stunduð í jafn stórum stíl og á Flúðum. „Foreldrar mínir voru ræktunarbændur og það kom að nokkru leyti af sjálfu sér að þetta yrði lifibrauð mitt,“ segir Þröstur. Þau Sigrún Pálsdóttir, eiginkona hans, sinntu ýmsum störfum fyrr á árum en sneru sér alfarið að garðyrkjunni fyrir um tíu árum. Einbeita sér að ræktun á káli, svo sem spergil-, rauð-, blóm-, hvít- og kínakáli svo eitthvað sé nefnt. „Ræktunin er vandaverk og maður þarf að kunna ákveðin vinnu- brögð. Kálhausarnir eru annars kröfuharðir og vilja vatn og sól. Við getum stýrt vökvun en ekki sólinni og í fyrra skein hún í aðeins tvær vikur. Því er öll uppskera síðasta sumars búin. Því er maður núna bara farinn að undirbúa næsta sumar og sáninguna sem hefst í apríl. Ætli afmælisdagurinn fari ekki í slík verkefni,“ segir Þröstur. sbs@mbl.is Þröstur Jónsson er 56 ára í dag Hreppamaður „Farinn að undirbúa sáninguna sem hefst í apríl,“ segir Þröstur Jónsson á Flúðum, hér með barnabarninu Emilíu Rún. Kröfuharðir kál- hausar á Flúðum Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Erna Magnea Elísa Jök- ulsdóttir (8 ára) var með söfnun í Glæsibæ. Alls söfnuðust 1..500 kr. sem Erna afhenti Rauða krossinum. Söfnun Reykjavík Irena Mar fæddist 15. júní kl. 2.25. Hún vó 2.938 g og var 46 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðrún Erla Ottósdóttir og Ottó Erling Kjart- ansson. Nýir borgarar Reykjavík Freyja Dís fæddist 20. júní kl. 20.03. Hún vó 3.925 g og var 53 cm löng. Móðir hennar er Dagmar Þórdís- ardóttir. É g er fædd og uppalin í Hafnarfirði með Húbbahól á baklóðinni og útsýni yfir höfnina. Var á leikskóla sem systurnar í Klaustrinu ráku, grunn- skólinn var Öldutúnsskóli og fram- haldsskólinn var Flensborg.“ Söngáhuginn kviknar „Í Öldutúnsskóla kviknaði söng- áhuginn og þörfin fyrir að vera á sviði. Með Kór Öldutúnsskóla komu tækifæri til þess að ferðast út um all- an heim og syngja á stórkostlegum stöðum með frábæru fólki. Kórnum var t.a.m. boðið til Kína stuttu eftir að landið var opnað fyrir ferðamenn. Flensborgarárin fóru að mestu leyti í félagslífið, söng og leiklist. Ég hóf að lokum nám við Söngskólann í Reykjavík og á svipuðum tíma bank- aði ástin að dyrum. Með kærasta upp á arminn, sönginn í hjartanu og leik- hlutverk hjá Leikfélagi Hafnar- Hanna Björk Guðjónsdóttir söngkona og söngkennari – 50 ára Tónleikar Við Björg dóttir mín, Agnar Már Magnússon og Maríus Sverrisson að flytja söngleikatónlist í Hafnarborg. Er á fullu í æfingum á óperunni Ragnheiði Á ljúfri stund „Það er ótrúlegt að við hjónin höfum verið gift í sextán ár.“ Gleraugu fyrir alla Frumkvöðull í hönnun glerja SJÓNARHÓLL Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is Þar sem gæðagleraugu kosta minna! Á verði fyrir alla - mikið úrval Komdu með sjónmælinguna með þér 2 fyri r1 * *Les eða göngugleraugu Sph+/-4 cyl -2 fylgja Glerin okkar koma frá BBGR Frakklandi, einum virtasta glerjaframleiðanda Evrópu Margskipt verðlaunagler frá 53.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.