Morgunblaðið - 24.02.2014, Síða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður er settur skrif-
stofustjóri nýrrar skrifstofu menn-
ingararfs í forsætisráðuneytinu.
Undir þá skrifstofu falla meðal
annars verkefni er snúa að vernd
menningararfsins, þjóðarverð-
mæta, húsa og mannvirkja og
menningartengdrar byggðar.
Skrifstofa menningararfs hefur
einnig umsjón með starfsemi
Minjastofnunar Íslands og Þjóð-
minjasafni Íslands. Margrét er í
ársleyfi frá Þjóðminjasafninu með-
an hún sinnir hinu nýja starfi.
,,Skrifstofan tók til starfa 1.
febrúar,“ segir Margrét. „Það vakti
áhuga minn að fá að stuðla að fag-
legri uppbyggingu á sviðum sem
varða menningararf og menningar-
minjar eins og málefni fornminja
og sögulegra húsa þar sem litið
verður til heildarsamhengis, sem
og um safnastarf á sviði þjóðminja-
vörslu, öryggi menningararfsins og
miðlun þekkingar í þágu sam-
félagsins. Á skrifstofunni verður
unnið að undirbúningi stefnu á
sviði menningarminja, verndun
menningararfs og höfð umsjón með
framkvæmd þar um. Á verksviði
skrifstofunnar eru einnig samskipti
við stofnanir, höfuðsöfn, sveitar-
félög, félagasamtök og einstaklinga
hér á landi og utanlands. Skrif-
stofan mótar verklag og gerir til-
lögur að aukinni áherslu á verndun
menningararfs.
Mér finnst spennandi að takast á
við nýjar áskoranir. Ég hef tekið
þátt í fornleifarannsóknum, stýrt
Árbæjarsafni og síðar Þjóðminja-
safninu frá því á 9. áratug síðustu
aldar. Þjóðminjavarsla og stjórnun
uppbyggingar á því sviði hefur ver-
ið viðfangsefnið á þessum tíma.
Ég hef einnig unnið að húsvernd
og málefnum heimsminja og tekið
þátt í háskólastarfi. Þessi reynsla
mun nýtast vel í ráðuneytinu þar
sem mikilvægt er að hafa sem
besta yfirsýn. Þar starfar gott fólk
sem ég hlakka til að starfa með.
Fyrstu verkefni fela í sér að fara
yfir sviðið og móta verklag og hefja
samvinnu við stofnanir og aðila.
Mér finnst afar mikilvægt að
hvetja til aukinnar samvinnu á
þessu sviði en kraftar eru oft á tíð-
um of dreifðir. Höfð verður góð
samvinna við menningarskrifstof-
una í mennta- og menningar-
málaráðuneytinu enda mikilvægt
að vinna í þágu málefnisins án þess
að láta mörk ráðuneyta og stofnana
hefta árangur.“
Mikilvæg tækifæri
Finnst þér starf í þágu menning-
ararfsins mikilvægt?
„Já, menningararfurinn er ekki
tómstundadútl heldur stór og mik-
ilvægur málaflokkur sem varðar
allar menningarminjar á Íslandi
sem okkur ber lögum samkvæmt
að skila óspilltum til komandi kyn-
slóða. Sú skylda hvílir á okkur að
stuðla að aukinni þekkingu á því
sviði með rannsóknum og starfsemi
og taka þátt í samfélagsuppbygg-
ingu og menntastarfi. Menningar-
arfurinn felur í sér mikilvæg tæki-
færi til vandaðrar
atvinnuuppbyggingar á fjölmörg-
um sviðum. Málaflokkurinn hefur
einnig mikið fram að færa á öðrum
sviðum, svo sem menntastarfi,
handverki, ferðaþjónustu og al-
mennri menningarstarfsemi.
Nýsköpun er mikilvæg á þessu
sviði og til þess fallin að undir-
strika þátt okkar í alþjóðlegu sam-
hengi. Þar hefur minjavarsla og
safnastarf mikilvægu hlutverki að
gegna. Þar er áhersla á fjölbreytni
mannlífsins, mannréttindi og
hvernig menningararfurinn hér er
hluti af arfi mannkyns. Ef við tök-
um Þjóðminjasafnið sem dæmi og
það sem það stendur fyrir þá er
þar lögð áhersla á þetta samhengi.
Torfhúsaarfurinn sem varðveittur
er á vegum safnsins er einstakur í
alþjóðlegu samhengi, afar þjóð-
legur, en einnig í samhengi heims-
minja. Sá arfur sem og annar er
okkar framlag til minja mannlífs í
heiminum.
Það er líka mikilvægt að huga að
samhengi innan safnastarfsins
sjálfs. Á vegum Þjóðminjasafnsins
og annarra fer fram söfnun og
vönduð skráning og fólk hefur að-
gang að þeim upplýsingum og get-
ur nýtt sér þær í þágu rannsókna,
nýsköpunar og nýrra hugmynda.“
Sjónræn upplifun
Unnið er að gerð nýrrar grunn-
sýningar í Þjóðmenningarhúsinu í
samræmi við nýjar áherslur Þjóð-
minjasafnsins en Þjóðmenningar-
húsið hefur verið sameinað safninu.
Spurð um þessa sýningu segir
Margrét: „Það er verð að stuðla að
samvinnu stofnana um sýningu um
íslenska listasögu og sjónrænan
menningararf þar sem saman
koma stofnanir sem heyra undir
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið og forsætisráðuneytið: Þjóð-
minjasafn, Listasafn Íslands, Nátt-
úruminjasafn Íslands, Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum, Landsbókasafn-Háskóla-
bókasafn og Þjóðskjalasafn. Þessar
stofnanir taka höndum saman um
að skapa í húsinu nýja sýningu
meðal annars á helstu þjóðar-
gersemum og listaverkum þjóðar-
innar sem varðveitt eru hjá öllum
þessum stofnunum.
Markús Þór Andrésson er sýn-
ingarstjóri sýningarinnar og leiðir
sýningarnefnd í umboði verkefnis-
stjórnar sem ég stýri fyrir hönd
forsætisráðuneytis. Þessi hópur
vinnur nú að því að móta sýn-
inguna, skoða safnkost stofnan-
anna og velja verk á sýninguna
sem verður í nafni allra viðkomandi
stofnana. Þetta er margslungið
verkefni og merkilegt fyrir þær
sakir að þarna vinna allar viðkom-
andi stofnanir saman að verkefni
sem verður í nafni þeirra allra.
Það er skemmtilegt til þess að
hugsa að þessar stofnanir störfuðu
Menningar-
arfurinn
er ekki tóm-
stundadútl
Margrét Hallgrímsdóttir er skrifstofu-
stjóri nýrrar skrifstofu menningararfs
„Það vakti áhuga minn að fá að stuðla að faglegri
uppbyggingu á sviðum sem varða menningararf og
menningarminjar,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir.
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
AF GARDÍNUEFNUM
Á ÚTSÖLU
OG ELDHÚSKÖPPUM
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
PÚÐAVER ÁTILBOÐI 2.000 KR
. STYKKIÐ
Borgið
2 fáið 3