Morgunblaðið - 24.02.2014, Qupperneq 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
í Safnahúsinu eins og það var kall-
að um langt árabil á 20. öldinni, áð-
ur en þær fluttu í ýmis húsnæði
samhliða auknum umsvifum. Hér
koma stofnanirnar saman á ný í
nýju samhengi. Það er ævin-
týralegt að taka þátt í því verkefni
sem gæti verið fyrirmynd í öðrum
verkefnum þvert á mörk.
Húsið er nú lokað vegna endur-
skipulagningar og verður opnað á
komandi sumri einmitt þegar 70 ár
verða liðin frá lýðveldisstofnun. Í
húsinu verður glæsilegur veitinga-
staður sem við bindum vonir við
enda húsið í nágrenni við Þjóðleik-
húsið, Hörpu, söfnin í miðbænum
og mannlífið á því svæði. Þar verð-
ur áhugaverð safnbúð eins og í
Þjóðminjasafninu, fjölbreytt menn-
ingarstarfsemi, tónleikar og að-
staða til funda og kennslu.
Það má sjá fyrir sér að þarna
verði spennandi vettvangur list-
unnenda, nemenda á öllum aldri,
fræðimanna, listamanna, fjöl-
skyldna, gesta og annarra sem
munu njóta þeirrar upplifunar að
heimsækja eitt fegursta hús lands-
ins þar sem hvert herbergi mun
bjóða upp á ævintýralega sjónræna
upplifun. Við gerum ráð fyrir að
sýningin standi í að minnsta kosti
tvö ár og einnig er gert ráð fyrir
afmörkuðu rými fyrir tímabundnar
sýningar þar sem verður kafað
dýpra í ákveðna þætti. Áfram
verða menningarviðburðir í
lestrarsalnum og lögð er áhersla á
að prýða húsið þeim húsgögnum
sem tilheyra sögu þess, þar á með-
al lestrarborðunum sem margir
muna eftir. Markmiðið er að gera
húsið sem aðgengilegast fyrir alla,
opna faðm þess.“
Safn allra landsmanna
Þjóðminjasafnið fagnaði nýlega
150 ára afmæli og Margrét er
spurð hvernig henni þyki hafa tek-
ist til við að byggja upp safnið.
„Fyrir hönd samstarfsfólks míns
í safninu er ég stolt af þeim ár-
angri sem við höfum náð á liðnum
árum í uppbyggingu safnsins,“ seg-
ir hún. „Mér fannst góður tíma-
punktur að taka leyfi frá störfum
eftir 14 ára starf einmitt nú þegar
ákveðin tímamót eru í safninu að
liðnu afmælisári. Ný lög hafa tekið
gildi, og safnið er að takast á við
nýjar áskoranir sem háskólasafn.
Hafin er vinna við að bæta veru-
lega úr aðstæðum safnsins til varð-
veislu þjóðminja í öryggis-
geymslum sem mæta kröfum
samtíma okkar. Ég mun í nýju
starfi koma að þessum þáttum fyr-
ir hönd ráðuneytisins sem og öðr-
um málefnum á sviði málaflokks-
ins.
Þjóðminjasafnið stendur nú á
mjög sterkum grunni. Starf safns-
ins á sviði þjóðminjavörslu er afar
víðtækt og nær til alls landsins.
Það er höfuðsafn allra minjasafna á
landinu og hefur í sinni vörslu
söguleg hús á 44 stöðum um allt
land sem vel hefur gengið á liðnum
árum að endurgera með vönduðum
hætti. Þessi verkefni eru fjölbreytt
og afar mikilvæg í þágu íslensks
byggingararfs. Sum húsanna eru
kjarninn í safnastarfi hvers svæðis
og hefur samvinna við sveitarfélög
og aðila verið gefandi og mikils-
verð.“
Margrét tekur fram að á milli
Þjóðminjasafns og Háskóla Íslands
sé sterk brú en tvær sameiginlegar
stöður eru nú við stofnanirnar,
prófessorsstaða í fornleifafræði og
dósentsstaða í sagnfræði. „Innra
starf Þjóðminjasafnsins er vandað
og þar starfar afar fær hópur sér-
fræðinga sem endurspeglast í góð-
um árangri á sviði safnastarfs, fjöl-
breyttum sýningum og fræðslu
sem og vandaðri útgáfu,“ segir
Margrét.
„Bókaútgáfa hefur verið mikið
metnaðarmál og við í safninu höf-
um, stundum í samvinnu við aðra,
gefið út fjöldamargar bækur á liðn-
um árum sem hafa hlotið góðar við-
tökur. Þarna er um að ræða veg-
legar grunnbækur um þjóðminjar
sem og sýningarrit hvers konar.
Það hefur verið stefna safnsins
að með hverri sýningu komi út
vandað rit. Útgáfa rita safnsins er
ríkur þáttur í því að gera menning-
ararfinn og nýja þekkingu aðgengi-
lega fyrir alla, ekki síður en sýn-
ingar, viðburðir og rafrænt
aðgengi að safnkostinum.“
Morgunblaðið/Kristinn
»Menningararfurinnfelur í sér mikilvæg
tækifæri til vandaðrar
atvinnuuppbyggingar á
fjölmörgum sviðum.
Málaflokkurinn hefur
einnig mikið fram að
færa á öðrum sviðum,
svo sem menntastarfi,
handverki, ferðaþjón-
ustu og almennri menn-
ingarstarfsemi.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Lau 8/3 kl. 20:00 frums Mið 19/3 kl. 20:00 aukas Sun 30/3 kl. 20:00 10.k
Þri 11/3 kl. 20:00 aukas Fim 20/3 kl. 20:00 aukas Lau 5/4 kl. 20:00 aukas
Mið 12/3 kl. 20:00 2.k Fös 21/3 kl. 20:00 6.k Sun 6/4 kl. 20:00 11.k
Fim 13/3 kl. 20:00 3.k Lau 22/3 kl. 20:00 7.k Fös 11/4 kl. 20:00 12.k
Fös 14/3 kl. 20:00 aukas Sun 23/3 kl. 20:00 8.k Lau 12/4 kl. 20:00 13.k
Lau 15/3 kl. 20:00 4.k Fös 28/3 kl. 20:00 aukas Sun 13/4 kl. 20:00 14.k
Sun 16/3 kl. 20:00 5.k Lau 29/3 kl. 20:00 9.k Sun 27/4 kl. 20:00 15.k
Ótvíræður sigurvegari á merkustu leiklistarhátíðar Breta
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 28/2 kl. 20:00 lokas
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýir tímar, nýr Hamlet. Lokasýningar
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Lau 15/3 kl. 20:00
Mið 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 6/3 kl. 20:00 aukas Sun 16/3 kl. 20:00
Fim 27/2 kl. 20:00 aukas Fös 7/3 kl. 20:00 aukas Mið 19/3 kl. 20:00
Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k Fim 20/3 kl. 20:00
Lau 1/3 kl. 20:00 aukas Sun 9/3 kl. 20:00 21.k Fös 21/3 kl. 20:00
Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Fim 13/3 kl. 20:00 Lau 22/3 kl. 20:00
Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Fös 14/3 kl. 20:00 Sun 23/3 kl. 20:00
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Lau 1/3 kl. 20:00 Lau 8/3 kl. 20:00 aukas Fös 14/3 kl. 20:00 aukas
Sun 2/3 kl. 20:00 aukas Sun 9/3 kl. 20:00 aukas Lau 15/3 kl. 20:00 aukas
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Sun 23/3 kl. 20:00 Sun 30/3 kl. 20:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið)
Sun 2/3 kl. 20:00 5.k Sun 9/3 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur
Hamlet –★★★★ – SGV, Mbl
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ENGLAR ALHEIMSINS – ★★★★★
„Leikhús á öðru plani...fullkomin útfærsla á skáldsögunni.“ Fbl SÁS
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 1/3 kl. 19:30 75.sýn Mið 19/3 kl. 19:30 77.sýn Fim 27/3 kl. 19:30 Aukas.
Sun 2/3 kl. 19:30 76.sýn Sun 23/3 kl. 19:30 81.sýn Sun 30/3 kl. 19:30 lokas
Sun 9/3 kl. 19:30 78.sýn Mið 26/3 kl. 19:30 Aukas.
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013. Síðustu sýningar!
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Mið 26/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 8/3 kl. 19:30 Aukas. Sun 16/3 kl. 16:00 Aukas.
Fim 27/2 kl. 19:30 3.sýn Mið 12/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 11.sýn
Fös 28/2 kl. 19:30 4.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 12.sýn
Fim 6/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 13.sýn
Fös 7/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn
Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 28/2 kl. 19:30 Frums. Fös 14/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 29/3 kl. 19:30 13.sýn
Mið 5/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 15/3 kl. 19:30 8.sýn Fim 3/4 kl. 19:30 14.sýn
Fim 6/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 16/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 4/4 kl. 19:30 15.sýn
Fös 7/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 5/4 kl. 19:30 16.sýn
Lau 8/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 13/4 kl. 19:30 17.sýn
Mið 12/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 22/3 kl. 19:30 11.sýn
Fim 13/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 28/3 kl. 19:30 12.sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 26/2 kl. 20:00 25.sýn Fös 7/3 kl. 20:00 31.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 37.sýn
Fim 27/2 kl. 20:00 26.sýn Fös 7/3 kl. 22:30 32.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 38.sýn
Fös 28/2 kl. 20:00 27.sýn Fim 13/3 kl. 20:00 33.sýn Fös 21/3 kl. 22:30 39.sýn
Fös 28/2 kl. 22:30 28.sýn Fös 14/3 kl. 20:00 34.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 Aukas.
Mið 5/3 kl. 20:00 29.sýn Fös 14/3 kl. 22:30 35.sýn Lau 22/3 kl. 22:30 Aukas.
Fim 6/3 kl. 20:00 30.sýn Mið 19/3 kl. 20:00 36.sýn Mið 26/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 2/3 kl. 13:00 Sun 9/3 kl. 13:00 Lokas.
Síðustu sýningar.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 1/3 kl. 13:30 Lau 8/3 kl. 13:30 Lau 15/3 kl. 13:30
Lau 1/3 kl. 15:00 Lau 8/3 kl. 15:00 Lau 15/3 kl. 15:00
Það miklu betra að hitta Karíus og Baktus í leikhúsinu en að hafa þá í munninum.
Aladdín (Brúðuloftið)
Lau 22/3 kl. 13:00 16.sýn Lau 29/3 kl. 13:00 18.sýn Lau 5/4 kl. 13:00 20.sýn
Lau 22/3 kl. 16:00 17.sýn Lau 29/3 kl. 16:00 19.sýn Lau 5/4 kl. 16:00 21.sýn
1001 galdur - brúðuleiksýning fyrir 4ra til 94 ára. Allra síðustu sýningar.
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Trúðanámskeið (Aðalsalur)
Mán 10/3 kl. 18:00 Þri 11/3 kl. 18:00 Mið 12/3 kl. 18:00
Lúkas (Aðalsalur)
Þri 25/2 kl. 20:00 Aukasýning Mið 5/3 kl. 20:00 Aukasýning Sun 9/3 kl. 20:00 Aukasýning
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Stóru börnin (Aðalsalur)
Fim 20/3 kl. 20:00 Fös 21/3 kl. 20:00 Lau 22/3 kl. 20:00
AUKASÝNINGAR
Horn á höfði (Aðalsalur)
Sun 2/3 kl. 13:00 Sun 9/3 kl. 13:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Fim 27/2 kl. 20:00 Fim 13/3 kl. 20:00
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ástarsaga úr fjöllunum (Aðalsalur)
Lau 1/3 kl. 14:00
Fyrirgefðu ehf. (Aðalsalur)
Fös 28/2 kl. 20:00 Fös 14/3 kl. 20:00 Sun 30/3 kl. 20:00
Lau 8/3 kl. 20:00 Lau 15/3 kl. 20:00
Dansaðu fyrir mig (Aðalsalur)
Lau 1/3 kl. 20:00 Sun 2/3 kl. 20:00
Aukablað alla
þriðjudaga