Morgunblaðið - 24.02.2014, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
Kvikmyndirnar Málmhaus og Hross í oss skiptu Eddu-
verðlaununum árið 2014 bróðurlega á milli sín, en þau
voru veitt s.l laugardagskvöld. Málmhaus hlaut samtals
átta verðlaun, þar af þrenn af fjórum verðlaunum fyrir
bestan leik.
Hross í oss hlaut samtals sex verðlaun, þar á meðal
sem kvikmynd ársins. Benedikt Erlingsson var valinn
leikstjóri ársins ásamt því að eiga besta handritið. Ingv-
ar E. Sigurðsson hlaut tvær Eddur því hann var verð-
launaður fyrir bestan leik í aðalhlutverki í Hross í oss og
bestan leik í aukahlutverki í Málmhaus.
Sjónvarpsmaður ársins var Bogi Ágústsson. Skemmti-
þáttur ársins var Orðbragð, en Djöflaeyjan var valin
menningarþáttur ársins. Þess má geta að Brynja Þor-
geirsdóttir kom að stjórn beggja þátta.
Heiðursverðlaun hlaut Sigríður Margrét Vigfúsdóttir
fyrir yfir 20 ára þrotlaus störf í þágu íslenskra kvik-
mynda á erlendri grund. Í rökstuðningi fyrir valinu kom
fram að Sigríður Margrét væri konan á bak við tjöldin,
en hún hefur í áraraðir gegnt burðarhlutverki „í öllum
styrkumsóknum íslenskra kvikmynda í stærstu kvik-
myndasjóðum Evrópu. Það er að stórum hluta henni að
þakka að íslenskar kvikmyndir hafa á síðustu tveimur
áratugum náð þeim ótrúlega árangri að fá úthlutað um
tveimur milljörðum króna, þar af alls 175 milljónum
króna bara á síðasta ári.“ Hún tók nýverið við starfi hjá
Rannís sem sérfræðingur um kvikmyndamál fyrir nýja
evrópska kvikmyndaáætlun sem nefnist Creative Eur-
ope.
Eddan 2014
Heiður Dorrit afhenti heiðursverðlaunin sem Sigríður Margrét Vigfús-
dóttir hlaut, en Oddný Eva dóttir hennar tók við verðlaununum.
Morgunblaðið/Eggert
Þakkir Leikkona ársins í aðalhlutverki, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir í Málmhaus, heldur þakkarræðu.
Hross í oss var
kvikmynd ársins
Ánægð Brynja Þorgeirsdóttir tekur við verðlaunum fyrir frétta- og viðtalsþátt ársins, Djöflaeyjuna.
Stoltur faðir Erlingur Gíslason tók við verðlaunum fyr-
ir hönd sonar síns, Benedikts Erlingssonar, leikstjóra
ársins, með bestu mynd og besta handrit, Hross í oss.
Aðal og auka Nína Dögg tók við Edduverðlaunum fyrir hönd Ingvars E.
Sigurðssonar sem var valinn besti leikari í aðal- og aukahlutverki.
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og
Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði
Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Hafnarbúðin, Ísafirði
Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum
Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Skóbúðin, Keflavík
Axel Ó, Vestmannaeyjum