Morgunblaðið - 24.02.2014, Page 32
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 55. DAGUR ÁRSINS 2014
Amerísk-íslenska viðskiptaráðið
blæs til morgunverðarfundar á morg-
un, þriðjudag, kl. 8.15 í Hörpu. Yfir-
skriftin er Sagan á bak við velgengni
íslensku hljómsveitarinnar Of Mon-
sters and Men, með augum umboðs-
manns og framkvæmdastjóra
sveitarinnar. Útgangspunkturinn er
samhljómurinn í tónlist og við-
skiptum. Erindi flytja Hether Kolker,
umboðsmaður hljómsveitarinnar,
Sigtryggur Baldursson talar fyrir
hönd Útflutningsmiðstöðvar ís-
lenskrar tónlistar, Daddi Guðbergs-
son verður með tölu og María Rut
Reynisdóttir, umboðsmaður Ásgeirs
Trausta, tekur líka til máls. Tónlistin
er stór hluti skapandi greina sem
verða æ veigameiri þáttur í hagkerfi
Íslands, bæði beint og óbeint.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sagan af velgengni
Of Monsters and Men
Ellefta óháða Alþjóðlega kvik-
myndahátíðin í Reykjavík verður
haldin 25. september til 5. október.
Undirbúningur er kominn á fullt
skrið og Ítalía verður í fókus á RIFF
þetta árið. Ítölsk kvikmyndagerð
hefur verið í mikilli sókn undanfarið,
en Ítalía á einhverja glæsilegustu
kvikmyndasögu ver-
aldar. Nýrri
kvikmyndagerðar-
menn eins og
Paolo Sorrentino
þykja þessa dagana
slaga hátt upp í
gamla meistara á
borð við Fellini og
Rossellini.
Ítalía í fókus
á RIFF í haust
Ísland hafði ekki heppnina
með sér þegar dregið var í
undanriðla Evrópumóts
karla í knattspyrnu í Nice í
gær. „Það byrjaði enginn að
fagna,“ eins og Heimir Hall-
grímsson landsliðsþjálfari
orðaði það í samtali við
Morgunblaðið. Ísland fékk
Holland úr efsta styrk-
leikaflokki og var sömuleið-
is afar óheppið með lið úr 3.
flokki (Tyrklandi) og 6.
flokki (Kasakstan). »1
Enginn happa-
dráttur í Nice
Haukar urðu bikarmeistarar í kvenna-
flokki og Grindavík í karlaflokki þegar
Powerade-bikarkeppnin í körfuknatt-
leik var til lykta leidd á laugardaginn í
Laugardalshöll. Haukar skelltu efsta
liði Dominos-deildar kvenna, Snæ-
felli, í hörkuskemmtilegum úrslita-
leik. Grindavík lagði hins vegar ÍR í
leik sem aldrei varð eins spennandi
og vonir stóðu til. »2-4
Bikararnir fóru til Hafn-
arfjarðar og Grindavíkur
Hann neitar því ekki að á stundum
hafi verið mikið álag í starfinu.
„Maður var kannski á ferðinni á
nóttunni áður en maður steig í stól-
inn. Þetta endaði með því að ég varð
að benda fólki á að koma á viðtals-
tímum sem ég var með úti í kirkju, ef
ég sá að það var hægt að bíða með
úrlausn mála,“ segir Frank. Þá segir
hann að oft á tíðum hafi fólk verið
einmana og þurft félagsskap, hugg-
un og uppörvun. „Ég var gjarnan
beðinn um að koma vegna þess,“ seg-
ir Frank.
Á starfstíð sinni vann Frank mikið
að unglinga- og barnastarfi og starfi
eldri borgara. Alla jafna segist hann
hafa notað sumarfríin í að ferðast
með eldri borgurum safnaðarins.
Lífið og dauðinn
Eðli málsins samkvæmt fylgir
starfi prestsins að velta fyrir sér
grunnspurningum tilverunnar um
líf, dauða og hamingju. Því hefur
Frank haldið áfram eftir að hann
hætti prestsstarfinu árið 2004. „Ég
hef aldrei haft það á tilfinningunni að
ég hafi hætt, því ég hef alla tíð verið
beðinn um að sinna ýmsum, persónu-
legum málum auk funda og guðs-
þjónusta,“ segir Frank sem les í
Biblíunni á hverjum degi.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Sr. Frank M. Halldórsson, sem var
sóknarprestur í Neskirkju í 40 ár,
flutti predikun fyrir söfnuðinn á átt-
ræðisafmælisdegi sínum í gær. Hann
segir að kirkjusókn hafi verið góð all-
an þann tíma sem hann sinnti starf-
inu. „Það var auðvitað margt sem
kom upp á. Það skiptust á skin og
skúrir,“ segir Frank. Hann segir að
fólk hafi leitað til hans á öllum tímum
sólarhrings og að mikið hafi verið að
gera alla tíð. „Það voru margs konar
erfiðleikar í sambandi við hjónabönd,
eins voru unglingavandamál oft á
borði hjá mér. Gjarnan voru ungling-
arnir að brjótast undan valdi foreldr-
anna, eins og gengur,“ segir Frank.
Starfið ekki alveg gagnslaust
Hann segir að stundum hafi starf
hans leitt til farsælla lausna. „Það
hefur komið fyrir að fólk hafi verið
búið að ganga frá hjónaskilnaði hjá
lögfræðingi. Svo talaði það við prest-
inn og hjónabandið hélt áfram. Það
finnst manni góður árangur. Ég veit
ekki betur en að þessi hjón séu gift
ennþá. Það veitir uppörvun að finna
það að starfið sé ekki alveg gagns-
laust,“ segir Frank.
Aldrei fundist hann hafa hætt
Sr. Frank predikaði á áttræðisafmælisdaginn Sinnir enn ýmsum störfum
Morgunblaðið/Ómar
Predikar Sr. Frank M. Halldórsson var sóknarprestur í Neskirkju í 40 ár.
Hann predikaði fyrir söfnuðinn á áttræðisafmælisdaginn í gær. Frank hætti
formlega í starfi fyrir 10 árum en hefur aldrei fundist hann hafa hætt.
Bíblíudagurinn var í gær og af því tilefni heimsótti vígslu-
biskupinn í Skálholti, hr. Kristján Valur Ingólfsson, Breið-
holtskirkju í Mjódd og tók þátt í báðum guðsþjónustum dags-
ins. Klukkan 11 var fjölskylduguðsþjónusta þar sem Kristján
flutti ávarp auk þess sem tvö börn voru
borin til skírnar.
Um kvöldið predikaði Kristján Valur
svo í Tómasarmessunni þar sem lögð er
mikil áhersla á fyrirbænarþjónustu og
virka þátttöku leikmanna. Fram-
kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi voru
Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin,
Samband íslenskra kristniboðsfélaga, Félag
guðfræðinema og hópur presta og djákna.
Vígslubiskup í Breiðholtskirkju
HR. KRISTJÁN VALUR TÓK ÞÁTT Í TVEIMUR GUÐSÞJÓNUSTUM
Kristján
Valur
Ingólfsson
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Tók hvaða dóp sem að var rétt
2. Alvarlega slasaður á gjörgæslu
3. Ertu í kynlífslausu sambandi?
4. Sjónvarpsstjarna fannst látin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á þriðjudag Norðaustan 8-13 m/s og lítilsháttar él, en bjartviðri á
Suður- og Vesturlandi. Heldur hvassara norðan- og austantil
Á miðvikudag og fimmtudag Allhvöss eða hvöss norðaustanátt.
Snjókoma eða slydda, en yfirleitt þurrt sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomulítið, hiti um og undir frost-
marki, en hiti allt að 5 stigum sunnantil á landinu yfir daginn.
VEÐURÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þegar Daniel Sturridge gekk í raðir
Liverpool í janúar í fyrra hafði hann
ekki spilað leik í hálfan annan mánuð.
Hann var orðinn algjör aukamaður
hjá Chelsea en núna, rúmu ári síðar,
er hann ein helsta ástæða þess að
Liverpool er enn í barátt-
unni við Chelsea
um Englands-
meistaratit-
ilinn. »6
Aukamaðurinn sem
orðinn er aðalmaður