Morgunblaðið - 27.02.2014, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2014
Hagnaður Regins hf á síðasta ári
nam 2.434 milljónum, en heild-
arrekstrartekjur félagsins voru
4.043 milljónir. Rekstrarhagnaður
fyrir matsbreytingar og afskriftir
nam 2.474 milljónum, en bókfært
virði fjárfestingaeigna nam í árslok
40.122 milljónum. Hækkaði virði
eigna um 2.250 milljónir á árinu.
Vaxtaberandi skuldir voru 24.837
milljónir í lok árs 2013 samanborið
við 19.297 milljónir í árslok 2012. Í
tilkynningu til Kauphallarinnar
kemur fram að eignasafn Regins
samanstandi af fullgerðu atvinnu-
húsnæði með háu útleiguhlutfalli og
traustum leigutökum.
Heildarfermetrafjöldi
192 þúsund
Í lok árs 2013 átti Reginn 45 fast-
eignir. Heildarfermetrafjöldi fast-
eignasafnsins var 192 þúsund í árs-
lok og þar af voru 172 þúsund
útleigjanlegir fermetrar. Útleigu-
hlutfall fasteignasafnsins er um
98% miðað við þær tekjur sem
100% útleiga gæfi. Stærstu eignir
Regins eru verslunarmiðstöðin
Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í
Grafarvogi.
Í febrúar 2013 var gerð breyting
á fjárfestingastefnu félagsins, lögð
var frekari áhersla á sterkt eigið fé
og skýra arðsemiskröfu. Í mark-
miðum félagsins er gert ráð fyrir
að eignasafn þess allt að tvöfaldist
á næstu fimm árum frá samþykkt
fjárfestingastefnu.
Frá hausti 2012 hefur verið unn-
ið að stækkun og styrkingu á
eignasafni félagsins. Á því tímabili
hafa verið gerðir samningar um
kaup á fimm minni fasteigna-
félögum og tveimur fasteignum.
Þessi kaup sem öll eru í samræmi
við fjárfestingastefnu félagsins,
styrkja tekjugrunn og bæta arð-
semi og afkomu, að því er fram
kemur í tilkynningu. Félögin sem
keypt voru eru: Stórhöfði ehf., Gos-
hóll ehf., Almenna byggingafélagið
ehf., Summit ehf. og VIST ehf. Auk
þess keypti félagið tvær stakar
eignir Ofanleiti 2 og Austurstræti
16.
Hagnaður Regins
var 2,4 milljarðar
Virði eigna félagsins
jókst um 2,2 milljarða
króna árið 2013
Morgunblaðið/Kristinn
Forstjórinn Helgi S. Gunnarsson,
forstjóri Regins, hringir bjöllunni.
Einnig til leigu:
Ármúli 3
104 Reykjavík
1.128 m2, skrifstofuhúsnæði
Ármúli 13
104 Reykjavík
367 m2, skrifstofuhúsnæði
með lokuðum bílakjallara
Hverafold 1-3
112 Reykjavík
387 m2, verslunarhúsnæði
Hamraborg 9
200 Kópavogur
370 m2, verslunar- og
skrifstofuhúsnæði
Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eiguArion banka.Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til umráða umhundrað þúsund fermetra af góðuhúsnæði.
Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri fyrirtækjum landsins. Landfestar ehf. Sími 422 1400,www.landfestar.is
Vandað, fullinnréttað húsnæði á góðum stað í höfuðborginni.
Um er að ræða tvær hæðir:
Jarðhæð: 444,5 m2 fullinnréttað rými sem áður hýsti MP
banka. Mikið er lagt í hönnun og frágang og rýmið er sérlega
glæsilegt. Húsnæðið skiptist í opin rými, fundarherbergi og
starfsmannaaðstöðu. Með rýminu fylgja 4 stæði í lokuðu
bílastæðahúsi.
2. hæð: 939 m2 fullinnréttað rými sem skiptist í fimm stór
opin rými, fundarherbergi, mötuneyti og setustofu. Sérstakur
dagsbirtu-ljósabúnaður (RGB) er í rýminu þar sem ljósmagni
er stýrt eftir birtustigi utandyra. Allar boð- og raflagnir eru
í hæsta gæðaflokki. Með húsnæðinu fylgja 20 bílastæði í
lokuðu bílastæðahúsi.
Tækifæri fyrir fyrirtæki sem leita
að húsnæði miðsvæðis í Reykjavík.
Glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði
Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Upplýsingar veitir:
Jón Grétar Jónsson
rekstrarstjóri
s. 442 1400 / 856 1413
jon@landfestar.is
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Frumkvöðlasjóður
Íslandsbanka auglýsir
eftir umsóknumum styrki
Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir
verkefni á sviði umhverfismála með
sérstakri áherslu á endurnýjanlega orku,
sjálfbæran sjávarútveg og verndun
hafsvæða. Markmið sjóðsins er að hvetja til
nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.
Heildarupphæð úthlutunar er allt að fimm
milljónum króna. Nánari upplýsingar um
sjóðinn og úthlutunarreglur hans má finna
á vef Íslandsbanka.
Umsóknum skal fylgja, eftir því sem við á:
· Greinargóð lýsing á verkefninu
· Verk- og tímaáætlun
· Ítarleg fjárhagsáætlun
· Upplýsingar um aðra fjármögnun verkefnis
· Ársreikningur
· Upplýsingar um eignarhald og rekstrarform
Úthlutunardagur er 2. apríl 2014
Sækja skal um á vef Íslandsbanka
til ogmeð 3. mars 2014.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
16
3
5