Morgunblaðið - 27.02.2014, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2014
9
DAGSKRÁ
12.30 Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á menntatorgi.
13.00 Setning. Margrét Kristmannsdóttir, varaformaður Samtaka atvinnulífsins.
13.10 Svo lengi lærir sem lifir. Dr. Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá Efnahags- og framfarastofnuninni OECD.
13.40 Frá handahófskenndri fræðslu til faglegrar fræðslustefnu. Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor.
14.05 Samspil fyrirtækja og menntakerfis. Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs.
Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á menntatorgi.
15.00 Mikilvægi iðn- og tæknimenntunar. Bolli Árnason, framkvæmdastjóri Meitils og GT Tækni.
15.25 Hvað vill unga fólkið og hvers vegna? Niðurstöður nýrrar rannsóknar meðal framhaldsskólanema. Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir.
16.00 Menntaverðlaun atvinnulífsins 2014. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhendir verðlaunin.
16.30 Ráðstefnulok.
Ráðstefnustjóri er Eggert B. Guðmundsson, forstjóri N1.
Vinsamlegast skráið þátttöku
á vef SA: www.sa.is
Mánudaginn 3. mars á Hilton Reykjavík Nordica kl. 13.00-16.30
Hvers virði er falleg skrifstofa?
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Þungu litirnir sem áður voru áber-
andi eru nánast dottnir út og í stað-
inn njóta ljósir litir aukinna vin-
sælda. Síðan er ekki óalgengt að
fyrirtæki séu ófeimin við að koma
kannski með einn skæran og glaðan
lit inn í skrifstofurýmið,“ segir Jó-
hannes Ingimarsson um tískuna í
skrifstofuhúsgögnum í dag.
Jóhannes er sölufulltrúi skrif-
stofudeildar hjá InnX innréttingum.
Hann segir mikinn mun geta verið á
því hvernig húsgögn verða fyrir val-
inu eftir því hvort verið er að inn-
rétta skrifstofu frá grunni eða bæta
við þau húsgögn sem fyrir eru, s.s.
ef þarf að stækka reksturinn og
fjölga starfsfólki. „Ef innréttað er
frá grunni er mikið beðið um hvítan
enda hlutlaus litur sem getur gengið
með flestu, en ef um er að ræða við-
bætur er viðaráferð ríkjandi, hvort
sem það er eik eða beyki.“
Eftirspurn handan við hornið
Að sögn Jóhannesar er salan á
skrifstofuhúsgögnum smám saman
að glæðast en um leið sé sam-
keppnin hörð. InnX selur einkum
dönsk skrifborð og þýska skrif-
borðsstóla og hafi það hjálpað til í
samkeppninni að krónan hefur eitt-
hvað styrkst gagnvart evru. „Sam-
keppnin er ákaflega hörð og þarf að
bjóða mjög hagstætt verð til að eiga
einhvern möguleika á að ná sölu,“
útskýrir hann en bætir við að mark-
aðurinn eigi enn mikið inni. Jóhann-
es bendir á að bera megi saman
verslun með skrifstofuhúsgögn og
sölu á nýjum bílum eftir hrun, að
mörg róleg ár sé til marks um upp-
safnaða þörf. „Ég held að handan
við hornið sé aukin eftirspurn, þó að
ég reikni alls ekki með að sölutöl-
urnar verði í bráð eins og þær voru
á árunum fyrir hrun. Mest er þörfin
sennilega hjá sveitarfélögunum og
ríkinu en þar er greinilega enn mik-
ið aðhald á meðan atvinnulífið er
smám saman að glæðast og tekið að
kaupa skrifstofuhúsgögn á ný. Á
endanum þarf að endurnýja og upp-
færa og ekki hægt að standa enda-
laust á bremsunni þegar kemur að
húsgögnunum á vinnustaðnum.“
Hugsað fyrir spjaldtölvunni
Framleiðendur skrifstofuhúsgagna
eru stöðugt að finna upp á nýj-
ungum til að gera húsgögnin bæði
þægilegri og fallegri. Jóhannes seg-
ir von á nýjum stól í búðina sem er
skemmtilegt dæmi um hvernig
hönnuðir skilja breyttar þarfir nýrr-
ar kynslóðar skrifstofufólks. „Fram-
leiðandinn Steelcase á heiðurinn að
skrifborðstólnum Gesture, sem er
þó enginn venjulegur skrifborðs-
stóll. Á meðan flestir eru orðnir van-
ir stólum þar sem stilla má bakið og
setuna á alla vegu þá fer Gesture
skrefinu lengra með stólörmum sem
færa má til á alla kanta,“ útskýrir
Jóhannes.
„Ástæðan fyrir þessu er að
skrifstofufólk í dag – og þá ekki síst
yngsta kynslóðin hjá fyrirtækjunum
– er ekki bara að skrifa á lykla-
borðið og horfa á stóran tölvuskjá
beint fyrir framan sig, heldur líka að
skoða upplýsingar á snjallsímanum
eða vinna með efni í spjaldtölvunni.
Þessi nýju tæki fá fólk til að vera í
allt öðrum stellingum við vinnuna og
það er eitthvað sem fyrri skrif-
stofustólar eru ekki endilega hann-
aðir fyrir.“
Tæknin er líka að verða þess
valdandi að stærð borðflatarins á
skrifborðum er að breytast. „Þegar
tölvuskjáirnir breyttust frá því að
vera stórir túbuskjáir yfir í að verða
nettir flatskjáir þurftu borðin ekki
lengur að vera svo djúp, og með ört
minnkandi skjalabunkum þurfti
ekki heldur jafnstóran vinnuflöt.
Skrifborðin hafa því verið að
minnka jafnt og þétt allt þar til á
síðustu árum að þau tóku að stækka
á ný,“ segir Jóhannes og reiknast til
að þegar skrifborðin voru hvað
smæst hafi mest selst af borðum
sem voru um 160 cm á breidd.
„Núna er meirihluti seldra
borða 180 cm á breidd og held ég að
aðalástæðan sé að mjög víða eru
starfsmenn með fleiri en einn tölvu-
skjá fyrir framan sig. Þegar skjáirn-
ir eru orðnir tveir, þrír eða jafnvel
fleiri þá þarf skrifborðið að vera
breiðara sem því nemur.“
Uppsöfnuð þörf fyrir ný húsgögn
Sala á skrifstofuhúsgögnum er smám saman að glæðast á ný Nýjar lausnir taka mið af t.d. mikilli notkun snjallsíma og spjaldtölva á
vinnustöðinni Ekki sama frelsið í litavali þegar verið er að bæta við húsgögnum og þegar verið er að innrétta allt nýtt frá grunni
Umhverfið „Núna er meirihluti seldra borða 180 sm á breidd og held ég að aðalástæðan sé að mjög víða eru starfs-
menn með fleiri en einn tölvuskjá fyrir framan sig,“ segir Jóhannes um þróunina upp á síðkastið.
Úthugsað Gesture-stóllinn hefur arma sem stillast á alla vegu og hentar vel
þeim sem nota snjalltæki. Stuðningurinn er allur á réttum stöðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg