Morgunblaðið - 27.02.2014, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2014
10 Hvers virði er falleg skrifstofa?
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fljótlega eftir hið alræmda hrun
fóru viðskiptavinir að leggja ofur-
áherslu á verðið á skrifstofu-
húsgöngum. „Þetta leiddi t.d. til
þess að sala á rafmagnsdrifnum
hæðarstillanlegum skrifborðum
snarminnkaði,“ segir Eyjólfur Eyj-
ólfsson, framkvæmdastjóri Axis
húsgagna.
Hann segir að á undanförnum
2-3 árum hafi skrifstofuhús-
gagnamarkaðurinn tekið að örvast á
ný og kaupendur aftur farið að láta
eftir sér dýrari og fullkomnari lausn-
ir fyrir vinurýmið. „Í dag er áhersl-
an mun frekar á gæðin en að einblínt
sé á verðið. Það munar heldur ekki
svo miklu á að velja meiri gæði og
t.d. algengt að kosti um 70-80.000 kr.
aukalega að velja borð með raf-
magnsdrifinni hæðarstillingu. Það
sést vel hvað þessi munur er lítill
þegar við höfum í huga að yfir end-
ingartíma vinnustöðvarinnar er
skrifborðið væntanlega í notkun svo
skiptir þúsundum og jafnvel tugþús-
undum klukkustunda.“
Einbeiting og afköst
Að sögn Eyjólfs eru vinnuveitendur
í dag orðnir vel meðvitaðir um mik-
ilvægi vinnuvistfræði og þeir skilja
að það tekur sinn toll af líkamanum
að verja átta stunda vinnudegi við
illa stillt borð eða sitjandi í óþægi-
legum stól. „Fólk þarf líka að geta
staðið upp, teygt úr sér og breytt
um vinnustellingar yfir daginn ef
vel á að vera.“
Hann segir fjárfestingu í vönd-
uðum skrifborðshúsgögnum þannig
getað skilað sér með augljósum
hætti sem fleiri krónur í kassann hjá
fyrirtækinu. „Rétta vinnuaðstaðan
getur m.a. gert fólk einbeittara og
skarpara í hugsun. Slæm vinnuað-
staða getur aftur á móti haft slæm
áhrif á heilsu og t.d. magnað upp
verki og eymsl hjá þeim sem eiga við
stoðkerfisvandamál að stríða, sem
svo aftur getur leitt til fjarveru frá
vinnu vegna veikinda og læknismeð-
ferðar.“
En hvernig á að standa að val-
inu? Á innkaupastjórinn að ráða öllu,
eða eiga kannski starfsmenn að fá að
velja skrifstofuhúsgögnin sjálfir, þar
sem sérþarfir hvers og eins eru
teknar með í reikninginn? Eyjólfur
segir það rétt að fólk hafi bæði mis-
munandi óskir um vinnurýmið og
ólíkar hugmyndir um hvað henti því
best. Skynsamlegast sé þó að fara
ákveðinn milliveg. „Ég hef stundum
tekið eftir því að ef starfsmenn fá að
hafa of mikið að segja um innrétting-
arnar á eigin vinnustöð þá hættir
sumum þeirra til að vilja það allra-
besta og dýrasta bara vegna þess að
næsti maður bað um það líka. Ég hef
komið inn á vinnustaði þar sem ekk-
ert hefur verið til sparað og t.d.
vönduð rafmagnsdrifin skrifborð á
öllum vinnustöðvum en kannski ekki
nema einn eða tveir af hverjum tíu
sem raunverulega notfæra sér eig-
inleika borðsins,“ útskýrir Eyjólfur.
„Skynsamlegast er að sá sem tekur
ákvörðun um skrifstofuhúsgögnin
kynni sér vel þarfir starfsmanna og
fari yfir kröfur þeirra en hafi það um
leið hugfast að velja húsgögnin af
skynsemi og kaupa ekki lausnir sem
starfsmennirnir munu ekki nota.“
Aftur niður á jörðina
Fyrirtæki reyna oftast að skapa
ákveðna ímynd og andrúmsloft með
húsgögnunum og segir Eyjólfur að
þar hafi orðið mikil viðhorfsbreyt-
ing. „Í góðærinu þurfti allt að vera
dýrast og flottast, og helst þekkt
hönnunarvara sem allir þekktu og
sendi þau skilaboð að hjá fyrirtæk-
inu væri allt á flugi. Núna eftir hrun
er tónninn orðinn allt annar og
margir viðskiptavinir taka það skýrt
fram að þeir vilji að húsgögnin segi
þeim sem heimsækja fyrirtækið að
þar sé farið vel með peninga; hugað
að gæðum og endingu en um leið
ekki bruðlað með fjármuni.“
Barátan við kliðinn
Eina greinilegustu breytinguna í
húsgögnunum segir Eyjólfur vera í
efnisvalinu þar sem reynt er að
koma hljóðdempandi efnum fyrir
alls staðar þar sem það er hægt.
„Með opnum vinnurýmum varð klið-
ur og hávaði að miklu vandamáli og
hörð yfirborð á borð við gólf, glugga
og veggi gera ekki annað en end-
urkasta hljóðinu og magna það upp.
Í dag er reynt að nota hljóðísogs-
efni sem víðast og eitt besta dæmið
ar um er sófinn Einrúm sem við
kynntum á síðasta ári fyrstir ís-
lenskra framleiðenda. Hægt er að
setja sófann í mitt opið rými og
skapar hann þar hálfgerða skel sem
heldur burtu umhverfishljóðunum
fyrir þá sem i sófanum sitja. Ekki
nóg með það heldur eru hljóðísogs-
efni á öllum hliðum sófans svo hann
hjálpar til að bæta hljóðvistina í öllu
rýminu.“
Þarf að hlusta á óskir starfsfólksins
Starfsmenn hafa ólíkar þarfir og áherslur þegar kemur að því að ákveða hvernig vinnustöðvar eru innréttaðar Fyrirtækin vilja ekki lengur
láta berast of mikið á heldur láta húsgögnin gefa til kynna að vel sé farið með peninga Allt gert til að draga úr klið í opnu rýmunum
Morgunblaðið/Þórður
Þægindi „Með opnum vinnurýmum varð kliður og hávaði að miklu vandamáli og hart yfirborð á borð við gólf,
glugga og veggi gerir ekki annað en endurkasta hljóðinu og magna það upp. Í dag er reynt að nota hljóðísogsefni
sem víðast,“ segir Eyjólfur Eyjólfsson sem hér fær sér sæti í hljóðdempandi Einrúms-sófanum.
Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is
Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi
á búslóðum til flutnings milli landa,
landshluta eða innanbæjar
Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir
eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með
fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi.
Stofnað árið 1981
• 28/6 – 2/7 Laxá í Aðaldal
(veiðisvæði Laxárfélagsins)
• 21/7 – 29/7 Fljótaá, tveggja-þriggja daga holl
• 2/9 – 4/9 Fljótaá
• 27/6 – 30/6 Hofsá
• 12/8 – 15/8 Hofsá, ein eða tvær stangir
• 31/8 – 10/9 Hofsá
• 30/6 – 15/7 Selá í Vopnafirði, silungasvæðið,
þriggja daga holl.
Laxveiði
Veiðiklúbburinn Strengur &
Veiðiklúbbur Íslands
Skipholt 35
105 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Orri, orri@icy.is
Nokkur laus laxveiðileyfi
í sumar, m.a.