Morgunblaðið - 27.02.2014, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2014
11
AWorld of Service
Við erum í hádegismat
Við bjóðumupp á hollan og
góðan hádegisverð alla virka
daga fyrir fjölbreyttan hóp
viðskiptavina.
Fjóra daga vikunnar bjóðum
við upp á tvo rétti, til að
mæta þörfum semflestra.
Skoðaðumatarmálin hjá
þér og vertu í samband við
veitingasvið ISS.
www.iss.is - sími 5 800 600.„Við leggjum metnað
í góðan og hollan
hádegisverð”
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Edda Rún Ragnarsdóttir innanhúss-
arkitekt segir stóru opnu rýmin sem
voru ríkjandi í góðærinu hafa vikið
fyrir smærri rýmum. „Opnu rýmin
eru þá kannski hugsuð fyrir 12-13
manns, og alls ekki fleiri en 15. Góður
sýnileiki og léttleiki er enn ráðandi
þáttur í hönnun skrifstofa og gler-
veggir notaðir til að skipta vinnu-
staðnum niður í opin rými og smærri
skrifstofur og fundarsali eða hálfopin
rými þar sem eru glerveggir en engar
lokanlegar dyr. Rýmið þarf að vera
þannig að starfsmaðurinn geti stýrt
sínu vinnuumhverfi og fært sig til eins
og þarf eftir því hvort hann vill vera í
miðri hringiðunni eða fá ró og næði.“
Edda rekur hönnunarstofuna
ERR Design (www.err.is) og sinnir
verkefnum fyrir bæði einstaklinga og
fyrirtæki.
Ein skýrasta breytingin á und-
anförnum árum segir Edda að hafi átt
sér stað í fundarherberginu. „Fundir
geta verið dýrir mælt í vinnustundum
og þvi skiptir miklu að fundirnir séu
ekki lengri en þeir þurfa að vera og öll
samskipti þar bæði greið og fumlaus.
Það nýjasta er að innrétta herbergi
fyrir standandi fundi. Þá er t.d. komið
fyrir háu hringborði en engum stól-
um, og tússtöflu þar sem rissa má upp
í fljótheitum útskýringar og verkefni.
Sumir nota meira að segja glervegg-
ina til að tússa á, sem getur gefið mjög
skemmtilegt yfirbragð,“ útskýrir
Edda.
Fundað í sófanum
Þar með er ekki allt upp talið hvað
snýr að þróuninni í fundarherberg-
inu. „Þó svo æskilegt væri að fundir
væru allir fáir og stuttir þá er það
raunin að vinnudagurinn hjá mörg-
um fer í eintóma fundasetu. Þá skipt-
ir máli að geta breytt vinnustöðunni
yfir daginn, rétt eins og við skrif-
borðið, og geta valið umhverfi sem
hentar sem best markmiði hvers
fundar. Við sjáum æ fleiri fyrirtæki
leysa þetta með því að innrétta sér-
stakt fundarsvæði með sófum. Þar er
hægt að ræða saman í meiri þæg-
indum og með afslappaðri hætti en
yfir fundarborðinu.“
Þessu tengt segir Edda víða
reynt að brjóta vinnurýmið upp með
svæðum fyrir leik og kátínu. „Þó ekk-
ert fyrirtæki hér á landi hafi gengið
jafnlangt í leikjavæðingunni og t.d.
Google er þekkt fyrir, þá er víða hægt
að finna eins og eitt snókerborð eða
píluspjald þar sem má taka stuttan
leik. Þessi rými nýtast vel fyrir stutta
og óformlega fundi á milli starfs-
manna, sem tækifæri fyrir starfs-
fólkið að kúpla sig út úr vinnunni eitt
augnablik og næra andann, eða ein-
faldlega til að gera vinnustaðinn að
skemmtilegri stað að vera á. Við erum
jú stóran hluta ævinnar í vinnunni og
skiptir máli að þar sé hægt að gera
eitthvað skemmtilegt af og til.“
Edda segir þessi óhefðbundnu
rými geta gegnt mikilvægu hlutverki
við að styrkja tengslin á milli starfs-
manna og eins leyfa þeim að hlaða
batteríin fjarri tölvuskjánum. „Ég veit
t.d. að á sumum arkitektastofum er
tekið frá svæði fyrir sófa og pullur þar
sem fólk getur sest og jafnvel lagst
niður og látið líða úr sér. Á þessum
þægilega stað, fjarri skrifborðinu, er
oft eins og skapandi hugsunin fari í
gang.“
Að sögn Eddu bar á því strax eftir hrunið að mjög heimilislegur og
hófsamlegur blær kom á margar skrifstofur. „Upplifunin var svipuð
og að koma heim til fólks, þar sem mátti sjá gömul og hlýleg hús-
gögn á skrifstofunni eða grófskorna viðardrumba á veggjum. Nú er
þessi tíska að víkja smám saman, þetta hreina og tæra aftur að
koma inn og leitast er við að gera vinnustaðinn svalan og fram-
úrstefnulegan.“
Hún segir líka fleiri fyrirtæki hafa lært að temja sér þá góðu
reglu að huga vel að ýmsum smáatriðum sem haft geta áhrif á við-
hald og notagildi. Að sögn Eddu er t.d. mjög æskilegt við hönnun
stærri skrifstofa að það ræstifyrirtæki sem sjá muni um þrifin fái
að koma að hönnunarferlinu. „Á hönnunarstigi er oft hægt að
koma auga á atriði sem torvelda ræstingu og finna lausnir sem
létta þrifin og geta þannig til lengri tíma lækkað rekstrarkostnað.“
Í ýktustu dæmum geta smáatriðin valdið miklum útgjöldum.
„Áhugavert dæmi um þetta er óperuhúsið í Kaupmannahöfn þar
sem allar hurðir eru háar og glæsilegar með rándýrum og vönd-
uðum hurðarhúnum. Nema hvað svo kom í ljós að skúringavagn-
arnir voru stöðugt að rekast í húnana svo þeir fóru að losna og
duttu hreinlega af, og allt annað en ódýrt að kaupa nýja húna í
staðinn fyrir þá skemmdu.“
Hreint og tært útlit
Standandi og liggjandi fundir
Fundarherbergið er að
taka miklum breytingum
Leikjasvæði hrista hóp-
inn saman og gera vinnu-
staðinn skemmtilegri
Notalegt Skrifstofurými hannað af Eddu Rún. Léttleikinn og sýnileikinn er
ráðandi en starfsmenn þurfa líka að geta fengið næði ef þeir þurfa.
Svæði Edda Rún Ragnarsdóttir
segir opnu rýmin hafa minnkað.
- með morgunkaffinu
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift