Morgunblaðið - 22.02.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.02.2014, Qupperneq 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ REYKOFN 59.900 TILBOÐ Fyrir veitingastaðinn Fyrir bændagistinguna Fyrir veiðimanninn Fyrir heimilið Fyrir sumarhúsið Reykofninn er gaskynntur sem gerir þaðmögulegt að reykja við lægra hitastig Mismunandi reykspænir gefa fjölbreyttamöguleika fyrir bragðlaukana Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 www.grillbudin.is Eldhúsið „Dill restaurant er norrænn staður sem einblínir á að gera það besta úr því sem næst okkur er. Að mestu notum við íslenskt hráefni og gaml- ar hefðir sem við svo útfærum á ný- stárlegan hátt. Við leggjum líka mikið upp úr því að para matinn okkar með góðu víni, hver réttur á skilið sérstakt vín sérvalið af Gísla Jenssyni, vínþjóni staðarins.“ Sérstaðan „Ef það er eitthvað sem okkur finnst gaman þá er það að taka gamlar hefðir og búa til eitthvað nýtt. Að taka harðfisk, hangikjöt, reykta ýsu eða álíka gersemar sem staðist hafa tímans tönn og útbúa eitthvað nýstárlegt sem smellpassar inn á borð fínustu staða er í okkar huga unaður. Að geyma eitthvað sem síðan verður betra með aldr- inum er líka eitthvað sem gerir okk- ur glaða. Að salta, reykja, leggja í súr og þurrka gerir helling fyrir sálina og þess vegna gerum við töluvert af því. Nýjasta áhugamálið er svo að búa til hinar ýmsu mjólk- urafurðir frá grunni, það er góð skemmtun.“ Vinsælt á matseðlinum „Þeir sem hafa lifað hvað lengst eru til dæmis þessir: Saltbökuð rófa, rjómaostur, súrsæt DILL-olía og stökkt hirsi. Krem af brenndu smjöri, harðfiskur og SÖL. Súrmjólkurfroða. Rækjur, sellerí, epli og mysa. Stökkt brauð og repjuolía.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Hann heitir Mads Reflund og er frá veitingastaðnum Acme í NYC. Hann var einn af stofnendum NOMA í Kaupmannahöfn og átti síðan og rak eigin stað sem hét MR um árabil. Á Acme gerir hann mat undir áhrifum hins norræna eldhúss en með áherslu á það hráefni sem hægt er að finna sem næst staðnum hans í NYC.“ jonagnar@mbl.is Veitingastaðirnir á Food & Fun 2014 Dill Restaurant Staðbundið hráefni og nýnorræn matreiðsla eru einkennandi fyrir Dill, eins og Gunnar Karl Gíslason matreiðslumaður segir frá. Morgunblaðið/Golli Nýsköpun „Ef það er eitthvað sem okkur finnst gaman þá er það að taka gamlar hefðir og búa til eitthvað nýtt,“ segir Gunnar Karl Gíslason hjá Dill. V ið ætlum að halda okkar sí- vinsæla, og landsins stærsta, matarmarkað frumframleið- enda í Hörpu,“ segir Eirný. „Þetta verður í fjórða skiptið alls sem við höldum matarmarkaðinn, sem fer stækkandi í hvert skipti, og nú verður hann haldinn í annað skiptið í Hörpu. Þegar við héldum markaðinn fyrst fyrir utan versl- unina í Nóatúni vorum við með um tuttugu framleiðendur. Það þótti okkur töluvert enda var á þeim tíma ekki í fleiri framleiðendur að sækja. Síðan hefur þetta vaxið og dafnað. Annað árið voru þeir þrjátíu og þeg- ar við héldum jólamarkaðinn í des- ember síðastliðnum voru þeir tæp- lega fimmtíu. Við stefnum því á að fara yfir fimmtíu á markaðnum sem verður í næstu viku.“ Eirný bætir því við að sælkerar um borg og bý hafi tekið hressilega við sér í fram- haldinu enda hafi næstum 16.000 manns heimsótt jólamarkaðinn í Hörpu. Framboð og eftirspurn Eirný bendir á að markaðurinn sé ekki eingöngu vettvangur þar sem framleiðandinn getur stigið ákveðið skref til að koma vöru sinni á fram- færi og selja hana milliliðalaust til neytanda, heldur verður eftirspurn neytanda til þess að framleiðandinn fer að framleiðan nýjar tegundir af vörum. „Áhugi fólks á að kaupa hvers konar lostæti beint frá fram- leiðanda er slíkur. Á markaði sem þessum kemur neytandinn óskum sínum og hugmyndum á framfæri og fyrr en varir er bóndi sem hugsaði bara um einfalt lambakjöt farinn að bjóða upp á grafið ær-filè, svo dæmi sé tekið. Framboðið býr til aukna eftirspurn sem kallar á aukið fram- boð og þannig koll af kolli.“ Neytendavakning á heimsvísu Eirný bendir ennfremur á þá já- kvæðu þróun sem orðið hefur varð- andi aukningu þátttakenda í mark- aðnum. „Sá fjöldi endurspeglar þróunina hér heima, að sífellt fleiri eru að framleiða hvers konar kræs- ingar í því sjónarmiði að koma þeim milliliðalaust á framfæri við neyt- endur. Neytendavakning er svo mik- il úti um allan heim og þar færist af- urðasala með þessum hætti sífellt í vöxt. Bændamarkaðir og bein sala er alls staðar í sókn. Við erum því ekki að finna upp hjólið hér á Íslandi en eins og alltaf þá tökum við þetta með trompi þegar við komumst á bragðið. Umfjöllun í fjölmiðlum undanfarna mánuði og misseri um uppruna vöru og rekjanleika hennar hefur líka haft sitt að segja í þessum efnum.“ Eirný segir að þar liggi einmitt sjarminn við þennan stærsta mat- armarkað Íslands, fyrir utan góð- gætið sem á borðum er. „Hér getur neytandinn komið og hitt framleið- endurna augliti til auglits og fræðst um vöruna sem til sölu er. Framleið- andinn fær tækifæri til að standa stoltur og kynna vöruna sína.“ Fyrir báða aðila er því vettvangurinn mik- ilvægur bæði og skemmtilegur. Þátttökureglan er einföld Sem fyrr snýst markaðurinn um sölu á framleiðslu milliliðalaust til neyt- enda. Eirný útskýrir að reglan til að fá pláss inni á matarmarkaðnum sé afskaplega einföld: „Ef þú býrð það ekki til, þá færðu ekki að vera með. Þetta er bara það einfalt. Til að byrja með fékk ég beiðnir um þátttöku þar sem varan var dásamlegt franskt súkkulaði og annað í þeim dúr, en ég ákvað að marka þessa stefnu strax í upphafi, að matarmarkaðurinn ætti að snúast um innlenda frumfram- leiðslu. Viðtökur fólks við mat- armarkaðnum hingað til hafa líka réttlætt þessa nálgun, sé litið til að- sóknar og vinsælda. Það er líka svo gaman að sjá hvað það kemur fólki ánægjulega á óvart hvað íslenskir framleiðendur eru langt komnir og hvað allt er flott, framsetningin, vöruhönnunin og metnaðurinn, fyrir utan hvað vörurnar eru himneskar á bragðið.“ Veisla þrisvar á ári Matarmarkaðurinn er svo sann- arlega kominn á beinu brautina því hann verður haldinn þrisvar sinnum á ári héðan í frá. „Ég held að það sé passlegt svo framleiðendur geti byrgt sig upp af vörum fyrir hvern markað og átt svolítið til að selja þegar þar að kemur. Ef við ætluðum að halda hann oftar þyrftu framleið- endur að auka framleiðsluna og þá mögulega á kostnað gæðanna og það vill enginn þeirra gera. Gæðin eru aðal þessara vara og glórulaust að fórna þeim.“ Matarmarkaðurinn verður hald- inn samhliða Food & Fun dagana 1. og 2. mars, og svo aftur 30. og 31. ágúst, sem er helgin eftir Menning- arnótt, og loks verðum við með eins- konar haust-jólamarkað, um miðjan nóvember. Við ætlum sem sagt að færa jólamarkaðinn aðeins framar því það er staðreynd að margir kom- ast einfaldlega ekki í desember þeg- ar allir eru á haus.“ Og hver vill missa af öðru eins? jonagnar@mbl.is Magnaður matar- markaður í Hörpu Íslenskt hráefni er ætíð í öndvegi á Food & Fun og það sama verður svo sann- arlega uppi á teningnum á matarmarkaði sem haldinn verður í Hörpu um leið og hátíðin fer fram. Eirný Sigurðardóttir, jafnan kennd við ljúfmetisverslunina Búrið, segir frá rammíslensku hnossgæti sem þar verður á boðstólum. Morgunblaðið/Þórður Ljúfmeti „Það er svo gaman að sjá hvað það kemur fólki ánægjulega á óvart hvað íslenskir framleiðendur eru langt komnir og hvað allt er flott, framsetningin, vöruhönnunin og metnaðurinn, fyrir utan hvað vörurnar eru himneskar á bragðið.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.