Morgunblaðið - 22.02.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.02.2014, Blaðsíða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ Eldhúsið „Maturinn okkar er fyrst og fremst skemmtilegur og frum- legur og við erum dugleg að skipta út réttum á matseðlinum okkar. Það er hægt að kalla mat- inn klassískan í grunninn en með skemmtilegum áherslum, þótt hann sé fyrst og fremst úr fersku og góðu hráefni. Við er- um sífellt að endurskoða matseð- ilinn okkar og þróa stílinn, við viljum vera aðeins öðruvísi og einmitt þess vegna erum við ófeimin við að prófa eitthvað nýtt.“ Sérstaðan „Sérstaða okkar er staðsetningin og stemningin sem hér ríkir. Slippurinn er hér í forgrunni og þetta gamla hafnarsvæði er svo lifandi og skemmtilegt. Við erum með sérstakan hádegisseðil fyrir þá sem vilja skemmtilegan og hagstæðan valkost í hádeginu, stutt að koma fyrir þá sem vinna í miðbænum. Svo eru það vissu- lega kokteilarnir sem eru okkar aðalsmerki. Við leggjum mikið upp úr kokteilunum okkar og skiptum reglulega út kokteilseðl- inum, en þeir eru allir búnir til úr hráefnum sem við útbúum sjálf, hvort sem það er síróp, safar, bitterar eða önnur bragð- efni.“ Vinsælt á matseðlinum „Flatbökurnar okkar eru vinsæl- asti rétturinn en þær er að finna í þremur útgáfum. Fiskipannan og topplausi borgarinn koma þar á eftir. Þetta eru réttir sem hafa verið á seðlinum frá upphafi og njóta enn mikilla vinsælda. Þá má einnig nefna smokkfiskinn sem er alltaf vinsæll og nú nýjan vinsælan rétt sem samstendur af humri og nautakinn, algjörlega ómótstæðilegt. Við erum alltaf að prófa okur áfram, gera eitthvað skemmtilegt og við finnum alltaf góðar undirtektir hjá gestum okkar. Brunchinn okkar um helg- ar er einnig mjög vel sóttur en þar er að finna huggulegt og létt hlaðborð í anda Slippbarsins.“ Gestakokkurinn á Food & Fun „Við verðum með tvo eðalbar- þjóna hjá okkur, þá Jonas Brandenborg Andersen frá Dan- mörku og Bandaríkjamanninn Geoffrey Canilo. Báðir starfa þeir á vinsælum kokteilbörum í Kaupmannahöfn, en Kaupmanna- höfn er þekkt fyrir að vera fram- arlega í kokteilgerð. Þetta eru snillingar sem hafa unnið til margra verðlauna fyrir vinnu sína og mikill heiður fyrir Slippbarinn að fá þá í lið með okkur.“ jonagnar@mbl.is Slippbarinn Morgunblaðið/Kristinn Stemning Jóhannes Steinn Jóhannesson fer fyrir sínu fólki í eldhúsinu á Slippbarnum. Stemningin er skemmtileg og frumleg á Slipp- barnum, segir Jóhannes Steinn Jóhannesson. Lucifer 25 ml Brennivín 50% 25 ml krækiberjalíkjör 25 ml Aperol 25 ml Calvados 2 bsk Cherry heering-líkjör ½ bsk Absinth 1 dass appelsínubitter Hrærður og borinn fram í kældu kokkteilglasi, kóríander- lauf sem skraut Bsk = 5 ml barskeið Uppskrift að hætti hússins Morgunblaðið/Árni Sæberg Stællegur Kokteillinn Lucifer er girnilegur að sjá í glasi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dýrðardrykkur Ási barþjónn á Slippbarnum blandar kokteilinn Lucifer af list. Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is SENDUM Í FYRIRTÆKI OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-21 Á Krúsku færðu yndislegan og heilsusamlegan mat. Opið frá 11-21 alla virka daga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.