Morgunblaðið - 22.02.2014, Qupperneq 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Alvaro Carrido er gestakokkur
okkar á Food & Fun 2014.
Bláskel,
tómatur, spönsk pylsa
Bleikja,
hægeldað eggaldin, rautt teseyði
Þorskhnakki,
kúfskelskjarni, ólífuþeytingur
Lambahryggvöðvi,
rjómaostur, söl
Melassi Sabayon,
appelsínukrap, súraldin jógúrt
Verð 7990/-
Alvaro Carrido var kosinn
“chef revelation 2010” í handbókinni
“Lo mejor de la gastronomia 2010.”
Veitingastaður hans “La Mina”
staðsettur í Baskahéraði Spánar,
og er m.a. handhafi Michelin
stjörnu, fékk einkunnina
8.5 af 10 í sama riti.
Alvaro var tilnefndur til hinna
virtu verðlauna “Chef Millesime”
árið 2011.
Við á Höfninni væntum mikils af
okkar manni fyrir okkar gesti og
hlökkum til samstarfsins.
Matseðill
Eldhúsið
„Við notumst eingöngu við topp hrá-
efni og vinnum allt frá grunni. Við
reynum að nota og styðjast við allt
sem er íslenskt.“
Sérstaðan
Ráðhúsinu. Við erum fyrsti veitinga-
staðurinn sem er opnaður í Ráðhús-
inu, og erum við ótrúlega stolt yfir
því að vera í þessu fallega húsi.
Einnig erum við með ótrúlegt útsýni
yfir Tjörnina. Við erum með inn-
réttað í íslenskum alþýðustíl og er-
um með gömul húsgögn sem hafa
sál. Við erum lítill veitingastaður
miðað við flesta staðina í dag.“
Vinsælt á matseðlinum
„Við höfum alltaf verið fræg fyrir
súkkulaðikökuna og að sjálfsögðu
kryddlegnu gellurnar okkar en þetta
eru réttir sem eru búnir að vera á
matseðlinum síðan 1986. Einnig er
langa með papriku og chilli-sósu
mjög vinsæll réttur hjá okkur.“
Gestakokkurinn á Food & Fun
„Hann heitir Chris Parson og hefur
gert garðinn frægan í Boston en
hann er búinn að eiga nokkra staði
þar og á og rekur einn stað þar núna
sem heitir Steel & Rye. Þar að auki
átti hann staði eins og Catch og Par-
son’s Table. Hann er mjög þekktur
fyrir matreiðslu á fiski og er algjör
snillingur á því sviði. Nýi staðurinn
hans er búinn að sanka að sér verð-
launum síðan hann var opnaður,
meðal annars sem „Best new res-
taurant“ í Boston.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Tjörnin „Við notumst eingöngu við topp hráefni og vinnum allt frá grunni. Við reynum að nota og styðjast við allt sem er íslenskt,“ segir Laufar Sigurður Ómarsson.
Veitingastaðirnir á Food & Fun 2014
Tjörnin
Veitingastaðurinn Tjörnin hefur verið opnaður í
Ráðhúsinu og þangað er von á spennandi og marg-
verðlaunuðum gestakokki, segir Laufar Sigurður
Ómarsson veitingamaður.
Rabarbara-Rúnar
(fyrir fjóra)
Rabarbara-panna cotta
1 blað matarlím (3,3 g)
280 ml rjómi
90 ml mjólk
¼ vanillustöng
45 g sykur
50 g rabarbara-purée
Aðferð
Matarlímsblað er sett í kalt vatn í
bleyti.
Rjómi, mjólk, sykur og vanillu-
stöng hitað að suðu.
Rabarbara-purée sett út í.
Matarlímsblað er tekið úr vatninu
og vatnið kreist úr því.
Matarlímsblaðið er svo hrært út í.
Þetta er sett í skál inn í ísskáp og
hrært í á mínútu fresti þar til bland-
an er farin að þykkna svolítið, þá er
henni hellt í form eða glös og látin
standa yfir nótt í kæli.
jonagnar@mbl.is
Uppskrift að hætti hússins
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðhúsið Eitt þekktasta hús og um leið kennileiti Reykjavíkur hýsir nú veitinga-
staðinn Tjörnina. Útsýnið yfir Tjörnina er gullfallegt, eins og gefur að skilja.