Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Síða 33
16.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
blandan er orðin þykk. Setjið smjör á pönnu og steik-
ið afganginn af hvítlauknum. Bætið spínatinu saman
við. Blandið öllu vel og bætið vel af múskati saman
við.
Blandið kotasælu og parmesanosti í skál og kryddið
með hluta af kryddblöndunni.
Sjóðið lasanjaplöturnar í örstutta stund í vatni, bara
rétt til að fá þær til að mýkjast örlítið. Ein mínúta getur
verið fínn tími, en passið að ofsjóða þær ekki.
Smyrjið eldfast mót og byrjið að leggja lasanjaplöt-
urnar í botninn. Takið svo hluta af grillaða kúrbítnum
og dreifið ofan á. Blandið saman við kúrbít hluta af
bakaða ricottaostinum. Þar næst kemur nýtt lag af las-
anjaplötum og ofan á það blanda af spínatblöndunni og
tómötunum. Endurtakið frá byrjun. Endið á að hafa
kotasælublönduna efst, úðið ólífuolíu yfir, setjið salvíu-
blöð efst.
Látið inn í ofn í 40-45 mínútur eða þangað til rétt-
urinn er orðin gylltur að lit og kantarnir krauma. Látið
standa fimm mínútur áður en rétturinn er borinn
fram.
Fyrir 6-8
Handfylli af þurrkuðum villisveppum
1 tsk. kóríanderfræ
1 tsk. þurrkaður rauður chilipipar
2 tsk. oreganokrydd
1 kg kúrbítur, skrældur og skorinn í
ca. 2,5 cm þykka bita
ólífuolía
200 g ricottaostur
nokkur lauf ferskt marjoram
4 hvítlauksrif
2 laukar, fínhakkaðir
nokkrir rósmarínstilkar, smátt skornir
800 g niðursoðnir tómatar í bitum
50 g smjör
400 g babyspínat
múskat
200 g kotasæla
1 lúka niðurrifinn parmesanostur
2 pakkar lasanjablöð, helst fersk.
nokkur salvíublöð
Hitið ofninn í 200°C. Setjið sveppina í skál og hellið
sjóðandi vatni yfir þannig að rétt fljóti yfir. Setjið til
hliðar. Merjið kóríander, chili og oregano í mortéli.
Setjið kúrbítinn í eldfast mót og dreifið ólífuolíu yfir.
Hellið hluta af kryddblöndunni úr mortélinu saman
við. Blandið vel saman, dreifið jafnt í mótið og grillið í
45 mínútur eða þar til kúrbíturinn er orðinn mjúkur
og gylltur á köntunum. Setjið ricottaostinn á meðan í
lítið eldfast mót, úðið yfir ólífuolíu og kryddið. Dreif-
ið marjoramlaufunum yfir og grillið svo í ofninum
með kúrbítnum síðustu 15 mínúturnar. Takið bæði
formin þá út og setjið til hliðar. Lækkið ofninn í
200°C. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið helminginn
af hvítlauknum þar til hann er gylltur. Bætið lauk og
rósmarín saman við og látið malla í 10 mínútur, þar til
laukurinn er orðinn mjúkur. Hellið vatninu af svepp-
unum – en geymið vatnið – og skerið þá niður. Setjið
sveppina á pönnuna með lauknum og steikið í 2-3
mín. Setjið nú í tómatana, hluta af sveppavatninu og
hluta af kryddblöndunni saman við. Fáið suðuna upp,
lækkið þá hitann og látið malla í 15 mínútur þangað til
Kúrbítslasanja
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur
munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur
tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extraminnkar upptöku hitaeininga og dregur
það úr streitu í amstri hversdagsins.