Morgunblaðið - 30.05.2014, Síða 14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2014
árum beið Samfylkingin mikinn
ósigur í höfuðborginni, fékk 19,1%
atkvæða en hafði fengið 26,9% árið
2006. Viðreisn flokksins, og ekki síð-
ur oddvitans, Dags B. Eggerts-
sonar, á kjörtímabilinu sem nú er að
ljúka, verður því að teljast mikið
pólitískt afrek. Kröfur um að Dagur
láti að sér kveða á landsmálavett-
vangi í næstu þingkosningum munu
aukast gangi kannanir eftir.
Sögulegur ósigur
Mikill ósigur blasir hins vegar við
Sjálfstæðisflokknum undir forystu
Ísfirðingsins Halldórs Halldórs-
sonar. Hefur fylgi flokksins minnk-
að jafnt og þétt eftir því sem nær
hefur dregið kosningum. Fyrir fjór-
um árum fékk Sjálfstæðisflokkurinn
33,6% atkvæða og fimm borgarfull-
trúa kjörna. Nú stefnir í fylgi í
kringum 20% og þrjá menn. Allt frá
stofnun flokksins fyrir um 85 árum,
árið 1929, hefur Reykjavík verið höf-
uðvígi hans. Fram á tíunda áratug
síðustu aldar stjórnaði hann borg-
inni einn og hafði stundum allt að
60% fylgi kjósenda. Viðbrigðin eru
því mikil.
Óvænt fylgisaukning
Á öldinni sem leið átti Framsókn-
arflokkurinn jafnan einn til tvo
borgarfulltrúa. En eftir samstarfið í
Reykjavíkurlistanum frá 1994 til
2006 átti flokkurinn erfiðara með að
skapa sér sérstöðu. Eini fulltrúi
flokksins náði að vísu oddastöðu í
borgarstjórn 2006 til 2010, en í kosn-
ingunum um vorið það ár fékk flokk-
urinn engan mann kjörinn. Kann-
anir í allan vetur hafa bent til þess
að framsóknarmenn yrðu áfram úti í
kuldanum. Óvænt atburðarás eftir
að oddviti flokksins dró sig í hlé fyr-
ir nokkrum vikum hefur hins vegar
skapað flokknum alveg nýja stöðu.
Benda kannanir nú til þess að hinn
nýi oddviti, Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir, nái kjöri. Hafa margir
viljað skýra óvænta fylgisaukningu
framboðsins með umdeildum um-
mælum Sveinbjargar um fyrirhug-
aða byggingu mosku múslima í
borginni. Flugvallarmálið, sem
flokkurinn setti á oddinn, hefur nán-
ast ekkert verið til umræðu í kosn-
ingabaráttunni.
Skortir trúverðugleika
Vinstri hreyfingin – grænt fram-
boð átti tvo fulltrúa í borgarstjórn
2006 til 2010. En síðan hefur veru-
Uppgjör og
endurmat
framundan
Stefnir í söguleg úrslit í Reykjavík
Ráða húsnæðismálin mestu?
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundurmbl.is
Kosið er til sveitarstjórna um land
allt á morgun. Að venju beinist at-
hyglin mjög að kosningunum í
Reykjavík. Allar kannanir benda til
þess að úrslitin verði söguleg, eink-
um fyrir Samfylkinguna og Sjálf-
stæðisflokkinn. Gangi það eftir
munu menn velta fyrir sér hvort
varanlegar breytingar séu að verða
á hinu pólitíska litrófi í höfuðborg-
inni. Tími uppgjörs og endurmats er
þá framundan.
Sigur Samfylkingarinnar
Allt útlit er fyrir stórsigur Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík. Í því
efni hníga allar skoðanakannanir að
undanförnu í sömu átt. Er líklegt að
flokkurinn fái sex borgarfulltrúa.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að
kannanir benda til þess að Samfylk-
ingin tapi fylgi nær alls staðar ann-
ars staðar á landinu. Einnig þegar
haft er í huga að fyrir aðeins fjórum
KOSNINGABARÁTTAN
STAÐAN Í REYKJAVÍK
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar, nýtur yf-
irburðastuðnings til að gegna emb-
ætti borgarstjóra á næsta kjör-
tímabili samkvæmt nýrri könnun
Félagsvísindastofnunar á fylgi við
borgarstjóraefni framboðslistanna
í Reykjavík. Hefur fylgi hans auk-
ist frá síðustu könnun, sem birt
var fyrir tíu dögum, og er nú
64,4%. Fylgið var 63% í síðustu
könnun.
Halldór Halldórsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, nýtur stuðn-
ings 17,7% í borgarstjóraembættið.
Það er aðeins minna fylgi en í síð-
ustu könnun þegar það var 19%.
Fylgi við S. Björn Blöndal, odd-
vita Bjartrar framtíðar, er 6,2% og
3,5% við Sóleyju Tómasdóttur,
oddvita Vinstri grænna.
Konur hrifnar af Degi
Sem fyrr nýtur Dagur nokkru
meiri stuðnings kvenna en karla.
Vilja 68% kvenna að hann verði
borgarstjóri.
Þegar afstaða yngstu kjósend-
anna, fólks á aldrinum 18 til 29
ára, er skoðuð er fylgi við Dag yf-
irgnæfandi eða 68%. Aðeins 11% í
þessum kjósendahópi vilja að Hall-
dór verði borgarstjóri.
Rúmlega 30% þátttakenda í
könnuninni höfðu ekki gert upp
hug sinn til borgarstjóraefna
flokkanna.
Mikið persónufylgi
Persónulegt fylgi Dags er langt-
um meira en fylgi Samfylking-
arinnar í Reykjavík en það hefur
þó einnig aukist verulega. Í könn-
un sem birt var hér í blaðinu í gær
var Samfylkingin með 37,3% fylgi
og hefur það aldrei verið meira.
Stefnir í stórsigur flokksins í borg-
arstjórnarkosningunum á morgun.
Eðlilega velta margir því fyrir
sér hver skýringin sé á miklum
Rúmlega 64%
vilja Dag sem
borgarstjóra
Um 18% nefna Halldór Halldórsson
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
nýja súrdeigsbrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.