Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 152. tölublað 102. árgangur
ÆVINTÝRA-
ÓPERA Á
SIGLUFIRÐI
BOGFIMI HENTAR
FÖTLUÐUM VEL
20 HRAÐ-
SKREIÐUSTU
BÍLAR HEIMS
NÝR BOGFIMIVÖLLUR 10 BÍLARÞJÓÐLAGAHÁTÍÐ 30
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Forstöðumaður Náttúrufræðistofu
Suðurlands segir vart forsvaranlegt
að lundi verði veiddur nokkurs stað-
ar á landinu í ár. Talsvert sé reyndar
af lunda á norðanverðu landinu en
ástandið sé slæmt syðra, sérstaklega
í Vestmannaeyjum, og fyllsta
ástæða til að hafa áhyggjur af heild-
arstærð stofnsins. Bæjarráð Vest-
mannaeyja tekur ákvörðun eftir
helgi um hvort leyfa eigi lundaveiðar
þar í ár.
Undanfarna daga hefur Ingvar
Atli Sigurðsson, forstöðumaður
Náttúrustofu Suðurlands, farið um
landið og kannað ástand lunda-
stofnsins. Ingvar segir lundaveiðar í
Vestmannaeyjum ekki ráðlegar í ár.
„Okkur finnst það ekki forsvaran-
legt á meðan ástandið er eins og það
er. Hvað veiðar á landsvísu varðar
virðist lundinn vera í blússandi vexti
fyrir norðan,“ segir Ingvar. Hann
segir stærsta hluta stofnsins vera á
Suðurlandi. „Þegar ástandið er
slæmt þar er það slæmt á landsvísu.
Ef ekki verður veitt í Eyjum verður
meira álag á önnur svæði. Því finnst
mér ekki forsvaranlegt að veiða
neins staðar,“ segir Ingvar. „En það
gæti verið erfitt fyrir fólk fyrir norð-
an að samþykkja það.“
Sigurður Bjarnason í Grímsey
hefur sigið í björg og stundað lunda-
veiðar þar í áratugi. Hann segist
ekki sammála þessu mati. „Hér er
aukning á öllum fugli, ekki síst
lunda. Hér er krökkt af honum og ég
get ekki verið sammála því að það
eigi ekki að veiða hann hérna.“ »6
Segir lundaveiðar vart forsvaranlegar
Allt er krökkt af lunda fyrir norðan
Ákveða veiðar í Eyjum í næstu viku
Morgunblaðið/Eggert
Lundar á góðri stundu Skiptar skoðanir eru um hvort veiða eigi lunda í ár.
Bæjarráð Vestmannaeyja tekur ákvörðun um það í byrjun næstu viku.
Úrhellisrigning einkenndi höfuðborgarsvæðið
í gær þegar fyrstu ummerki nýrrar lægðar
gerðu vart við sig. Víða er spáð miklum vatna-
vöxtum í dag og á morgun, og er gert ráð fyr-
ir mikilli rigningu á landinu sunnan- og vest-
anverðu fram yfir miðnætti annað kvöld og er
óttast að flóðahætta muni skapast. Almanna-
varnadeild ríkislögreglustjóra og björg-
unarsveitir Landsbjargar eru í viðbragðs-
stöðu vegna veðursins. »2
Úrhellisrigningu og vonsku-
veðri spáð næstu daga
Morgunblaðið/Eggert
Vætusamur endir á júnímánuði
Ágúst Ingi Jónsson
Kristján H. Johannessen
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið að
áform ríkisstjórnarinnar um flutning á aðalskrifstofu
Fiskistofu fari nú inn í verkefnis-
stjórn. Mun m.a. starfsfólk Fiski-
stofu eiga aðild að því starfi.
„Næstu tvo mánuði munum við
kortleggja hvernig hægt verður að
framkvæma þetta með skynsömum
hætti fyrir bæði starfsfólk og stofn-
un,“ segir Sigurður Ingi og bendir á
að ekki sé verið að færa alla starf-
semi Fiskistofu af höfuðborgar-
svæðinu. Munu eftir fyrirhugaðar
breytingar allt að 20 starfa áfram í
starfsstöðinni fyrir sunnan. „Þannig að sú umræða að
verið sé að flytja heila stofnun með manni og mús er
auðvitað ekki rétt. Fyrst og fremst erum við að efla
starfsstöðina á Akureyri með því að flytja höfuðstöðv-
arnar þangað,“ segir Sigurður Ingi.
Fram hefur komið að vafi geti leikið á um lögmæti
flutnings stofnunarinnar. Komi í ljós að ekki sé heimild
fyrir fyrirhuguðum flutningi segir ráðherra næsta
skref vera að leita til Alþingis. „Leiki vafi á því, verður
að sjálfsögðu farið með málið fyrir Alþingi.“ »12
Farið yrði
með málið
í þingið
Fiskistofa ekki flutt með
manni og mús, segir ráðherra
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Reykvískir
nemendur stóðu
sig betur í lengri
og erfiðari verk-
efnum í stærð-
fræðilæsishluta
PISA-rannsókn-
arinnar 2012 en í
stuttum og auð-
veldum.
Af þessum sök-
um hefur starfs-
hópur borgarinnar, sem á að stuðla
að bættum árangri nemenda,
ákveðið að láta greina nánar út-
komu reykvískra nemenda í les-
skilningi. Að sögn Auðar Árnýjar
Stefánsdóttur, skrifstofustjóra
grunnskólahluta skóla- og frí-
stundasviðs Reykjavíkurborgar,
sem á sæti í starfshópnum, kom nið-
urstaðan verulega á óvart. Hóp-
urinn mun vinna að aðgerðaáætlun
um bættan námsárangur. »14
Betri í erfiðu dæm-
unum en þeim léttu
PISA Spurningar
vakna í prófum.
Norvík-samsteypan, sem er í eigu
Jóns Helga Guðmundssonar og fjöl-
skyldu, kom nýverið með tæpar 140
milljónir króna til landsins í gegn-
um fjárfestingarleið Seðlabanka Ís-
lands.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er fjármununum meðal
annars ætlað að skjóta sterkari
stoðum undir rekstur bygginga-
vöruverslunarinnar Byko, sem er í
eigu Norvíkur. Rekstur hennar hef-
ur gengið erfiðlega á undanförnum
árum, en hún tapaði 391 milljón
króna árið 2012. Guðmundur H.
Jónsson, fráfarandi forstjóri Byko,
segir hins vegar að markaðurinn sé
óðum að taka við sér. »16
Norvík með 140
milljónir til landsins
Byko Tap Byko var 391 milljón króna 2012.
Starfsmenn Fiskistofu mótmæla harðlega áform-
um ríkisstjórnarinnar um að flytja aðalskrifstofu
stofnunarinnar til Akureyrar. „Óhætt er að gagn-
rýna vinnubrögð stjórnvalda við þá aðferðafræði
leifturárásar sem beitt var við kynningu ákvörð-
unarinnar, sem birtist starfsmönnum eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Í kjölfarið upplifa margir í
senn vanlíðan og lítilsvirðingu við störf sín og fag-
þekkingu,“ segir m.a. í yfirlýsingu starfsfólks.
Upplifa lítilsvirðingu
MIKIL ÓÁNÆGJA STARFSFÓLKS FISKISTOFU