Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 14

Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Grunnskólabörn í Reykjavík stóðu sig verr í einföldum dæmum í stærð- fræðilæsi í PISA-rannsókninni 2012 en börn á landsbyggðinni og í OECD-löndunum. Engu að síður stóðu þau sig betur í að leysa úr dæmum með löngum texta í saman- burði við börn innan OECD. Eftir að niðurstöður PISA lágu fyrir var stofnaður starfshópur um aukinn árangur nemenda í grunn- skólum Reykjavíkurborgar. Í honum eiga sæti skólastjórnendur og fulltrúar frá skóla- og frístundasviði borgarinnar. Að sögn Auðar Árnýjar Stefánsdóttur, skrifstofustjóra grunnskólahluta sviðsins, er meðal markmiða hópsins að greina niður- stöðurnar, skoða árangur annarra þjóða, skilgreina hvaða árangri æskilegt sé að ná í könnunum sem þessari, hvaða aðgerðir geti stuðlað að betri árangri og setja fram að- gerðaáætlun um það. „Það sem hópurinn gerði í byrjun var að rýna í þessar tölur. Við vildum kanna hvort sú hugmynd að íslenskir nemendur væru ekki nógu vel læsir og ættu erfitt með að yfirfæra þekk- ingu ætti við rök að styðjast,“ segir Auður Árný. Kanni lesskilninginn betur Greining á þeim hluta rannsókn- arinnar sem lýtur að stærðfræðilæsi leiddi í ljós að á heildina litið voru reykvískir 10. bekkingar með betri útkomu en nemendur annars staðar á landinu og í OECD-löndunum. Styrkleiki reykvísku ungmenn- anna var að ráða við erfið verkefni, langa texta og verkefni þar sem formúlur og töflur komu fyrir. Þeir stóðu sig hins vegar verr en aðrir ís- lenskir nemendur og börn í OECD- löndunum þegar kom að mjög auð- veldum og stuttum þrautum, texta þar sem vísað var til námslegs sam- hengis og þar sem myndrit voru hluti af verkefninu. „Þetta kom okkur verulega á óvart því við höfðum ímyndað okkur að börn sem væru talin frekar „slök“ í lestri ættu að eiga auðvelt með ein- földustu dæmin og erfiðara með að leysa þau erfiðustu. Þetta sýnir okk- ur að það er eitthvað þarna sem við þurfum að skoða nánar,“ segir Auð- ur Árný. Námsmatsstofnun hefur því verið falið að greina niðurstöður rann- sóknarinnar frá 2009 þar sem megin- áherslan var á lesskilning til að sjá hvort þær haldist í hendur við niður- stöðurnar úr stærðfræðilæsinu áður en starfshópurinn heldur lengra. Almennt séð segir Auður Árný að sér lítist ekki illa á niðurstöður grunnskóla borgarinnar. Þannig séu til dæmis fimm efstu skólarnir á góðu róli. „Vissulega er þó margt sem við þurfum að skoða og það er það sem þessi hópur er að gera.“ Niðurstaðan kom verulega á óvart  Ósamræmi í frammistöðu nemenda í stærðfræði á PISA  Erfið og löng verkefni komu betur út en stutt og auðveld Morgunblaðið/Eyþór Könnun PISA-rannsóknin var gerð árið 2012 á meðal nemenda sem þá voru í 10. bekk grunnskóla. Þátttaka í henni var valfrjáls. Myndin er úr safni. Nýr bátur, Guðmundur Jensson SH 717, kom til Ólafsvíkur í sl. viku. Eig- andinn, útgerðarfélagið Guðmundur efh., hafði makaskipti við Blikaberg í Hafnarfirði. Lagði minni bát upp í og fékk í staðinn nýjan Guðmund Jens- son, sem áður hét Markús HF. Hinn nýi Guðmundur Jensson SH er 242 brúttótonn að stærð og var smíðaður í Noregi árið 1968. Aðalvél er Caterpillar og vélarafl 526 kW. Báturinn var á dögunum í slipp í Skipavík í Stykkishólmi, þar sem fram fóru ýmsar lagfæringar. Auk þess var settur upp straummælir og fjölgeislatæki komið þar fyrir. Skipið fer á makrílveiðar nú í byrjun júlí og síð- ar á dragnót. Skip- stjóri er Illugi Jónasson og útgerð- armaður er faðir hans, Jónas Gunnarsson. sbs@mbl.is Markús nú Guð- mundur Jensson  Nýr dragnótabátur kominn til Ólafsvíkur Morgunblaðið/Alfons Finnsson Fiskibátur Nýr Guðmundur Jensson SH siglir fánum prýddur til hafnar. Illugi Jónasson Mörg svæði í Reykjavík virðast illa hirt og hefur gras vaxið mjög hátt víðast hvar. Á umferðareyjum á Miklubraut er til að mynda mikið ill- gresi og gras orðið hátt. Sömu sögu má segja um grasbala víðs vegar í Grafarholti. Að sögn Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur, skrifstofustjóra reksturs og umhirðu í Reykjavíkur- borg, er þegar búið að slá nánast öll svæði einu sinni og hófst önnur um- ferð á slætti í gær. „Það er víða eins og við séum ekki búin að slá þrátt fyrir að vera búin að slá mun meira en á sama tíma í fyrra. Það er bara búið að rigna svo mikið að grasið sprettur hraðar upp,“ segir hún. Venjulega eru öll svæði að meðaltali slegin þrisvar sinnum yfir sumar- tímann en Guðjóna segir ekki mögu- leika á því að auka við þessar um- ferðir. „Við getum það ekki. Ekki með það fjármagn og þann mann- skap sem við höfum til ráðstöfunar eins og er.“ if@mbl.is Morgunblaðið/RAX Reykjavík Mikið er um illgresi og hátt gras víðs vegar um Grafarholt. Auka ekki við sláttinn í borginni  Ekki nægilegt fjármagn til staðar PISA-rannsóknin 2012 skiptist í þrjá hluta, lesskilning og stærðfræði- og náttúrufræði- læsi. Í stærðfræðilæsishlut- anum er geta nemenda til að setja fram, beita og túlka stærðfræði í margs konar sam- hengi könnuð. Þar eru aðstæður settar fram á stærðfræðilegan hátt, nemendurnir þurfa að beita stærðfræðilegum hugtökum, staðreyndum, aðferðum og rökfærslu auk þess sem þeir þurfa að túlka, beita og meta stærðfræðilegar niðurstöður. Túlka, beita og meta STÆRÐFRÆÐILÆSI Fjölskipaður Héraðsdómur Suður- lands hefur sýknað karlmann af nauðgun. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að fyrir hendi væri skynsamlegur vafi um að mað- urinn hefði með ofbeldi þröngvað 17 ára gamla stúlku til samræðis við sig í tjaldi á árinu 2012. Jafn- framt var bótakröfu hennar, sem hljóðaði upp á 2,5 milljónir króna, vísað frá dómi. Maðurinn neitaði strax staðfastlega sök og vísaði til þess að samræðið hefði verið með samþykki stúlkunnar. Þá liggur einnig fyrir að engir líkamlegir áverkar voru sýnilegir á stúlkunni. Skynsamlegur vafi í nauðgunarmáli Kjörnefnd á vegum sýslumannsins í Reykjavík hefur vísað frá kröfu um að nýafstaðnar kosningar til borg- arstjórnar verði gerðar ógildar og kosið upp á nýtt. Kærandi taldi að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarflokks í borg- inni, hefði ekki verið kjörgeng og krafðist því þess að kosningarnar yrðu endurteknar. Að auki taldi kærandi að annmarkar hefðu verið á talningu atkvæða á kosninganótt og við skipun yfirkjörstjórnar í Reykjavík. Hafnaði kjörnefnd því að ógilda bæri kosningarnar af þessum ástæðum. sgs@mbl.is Kröfu um ógildingu kosninganna hafnað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.