Morgunblaðið - 01.07.2014, Side 15
SVIÐSLJÓS
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Heildarfjöldi skráðra afbrota árið
2013 var 53.255, sem er 13,9% fækk-
un frá árinu áður, en 17% fækkun
þegar litið er til meðaltals fjölda
brota á árunum 2010 til 2012. Þetta
kemur fram í skýrslu sem embætti
Ríkislögreglustjóra hefur gefið út.
„Þetta er hinn opinberi veruleiki
brota en auðvitað vitum við að mörg
brot eru ekki kærð. Það er munur á
milli brotaflokka og fólk er t.a.m.
frekar tilbúið að kæra auðgunar-
brot en kynferðisbrot. Svo eru sum-
ir brotaflokkar háðir frumkvæði
lögreglunnar, eins og fíkniefnabrot
og ölvunarakstur,“ segir Helgi
Gunnlaugsson afbrotafræðingur.
Frá árinu 2012 til 2013 fækkaði
umferðarlagabrotum um 18% og
hegningarlagabrotum fækkaði um
3,9%. Sérrefsilagabrotum fjölgaði
um 1,8% en mest fækkun á
umferðarlagabrotum var á
hraðakstursbrotum, eða um 25,6%,
og munar þar mestu um fækkun á
hraðakstursbrotum sem skráð eru á
stafrænar hraðamyndavélar. Slík-
um brotum fækkaði um 30%, en
fækkunina á milli ára má meðal
annars útskýra með bilunum á vél-
um.
Mest hjá ungu fólki
Hegningarlagabrotum hefur
fækkað frá árinu 2009 og hafa þau
ekki verið færri frá því að samræmd
skráning lögreglu hófst árið 1999.
„Fækkun brota er þróun sem við
höfum séð erlendis. Við sáum þetta
fyrst í Bandaríkjunum og svo í Evr-
ópu og nú hefur þetta verið að ger-
ast á Íslandi undanfarin ár. Stærst-
ur hluti brota á sér stað hjá ungu
fólki á aldrinum 14-25 ára en hlut-
fall ungs fólks í samfélaginu fer
minnkandi. Eitt af því sem útskýrir
þessa þróun er því lýðfræðilegar
breytingar. Svo eru fleiri þættir,
eins og aukin meðvitund um brot,
viðbúnaður, aðgæsla og lífstíl-
sbreytingar hjá ungu fólki.“ Kyn-
ferðisbrotum fjölgaði hlutfallslega
langmest miðað við meðalfjölda
brota á árunum 2010 til 2012, um
107,9%, og um 99,2% frá árinu 2012.
Stór hluti þeirra brota sem skráð
voru á árinu 2013 áttu sér stað á
fyrri árum og stærra hlutfall en áð-
ur. Kynferðisbrotum fjölgaði í öll-
um undirflokkum en mest var fjölg-
unin á skráðum brotum tengdum
vændi eða um 609,5%, og má rekja
það til sérstaks átaks í málaflokkn-
um hjá lögreglunni á Suðurnesjum
og lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Einnig var mikil aukning í
stærstu undirflokkunum; kynferð-
isbrotum gegn börnum, um 88,9%,
og nauðgunum, um 55,2%. „Það er
ekkert víst að um raunaukningu
á kynferðisbrotum í samfélag-
inu sé að ræða. Það er hins veg-
ar klárt að fólk er að kæra í
auknum mæli. Það er vafalítið
umræðan í samfélaginu, vitund-
arvakning og skynjun fólks á
því hvað kynferðisbrot og
afleiðingar þeirra eru al-
varlegar sem skilar því,“
segir Helgi.
Skráðum afbrotum fækkar
Þróun sem hófst í Bandaríkjunum Munur á milli brotaflokka Hegningarlagabrot ekki færri frá því
að samræmd skráning lögreglu hófst árið 1999 Skráðum brotum tengdum vændi fjölgaði um 609,5%
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014
Ofbeldisbrot voru 1.188 árið
2013 en voru að meðaltali 1.132
árin 2010-2012. Eitt manndráp
var framið árið 2013 en tilraunir
til manndráps voru fimm. Það
eru jafn mörg manndráp og árið
2012 en þá voru tilraunirnar
sex. Fíkniefnabrotum fjölgaði
um 17,8% þegar miðað er við
þrjú síðastliðin ár og um 6,5%
þegar miðað er við árið 2012. Af
fíkniefnabrotum var hlutfalls-
lega mest aukning í sölu og
dreifingu fíkniefna eða 85,3%
miðað við síðastliðin þrjú ár en
55% frá árinu 2012.
Lögregla og embætti toll-
stjóra lögðu hald á 6.669
kannabisplöntur, rúm 32 kg af
maríjúana, 14.824 e-töflur, um
34 kg af amfetamíni og 81
g af metamfetamíni sem er
mikil aukning á öllum
efnum frá árinu 2012.
Lagt var hald á um 2,5 kg
af kókaíni sem er um
helmingi minna en
árið 2012.
Fíkniefnabrot-
um fjölgar
EITT MANNDRÁP FRAMIÐ
Helgi
Gunnlaugsson
Kring lunni • S ími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First™
Snjallara heyrnartæki
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu og prófaðu, það er engu líkt!
Heildarfjöldi brota árið 2013
Umferðarlagabrot fækkun um 18% frá 2012
*
Hegningalagabrot fækkun um 3,9% frá 2012
Sérrefsilagabrot fjölgun um 1,8% frá 2012
Hraðakstursbrot fækkun um 25,6% frá 2012
Auðgunarbrot fækkun um 21% frá 2012
Kynferðisbrot fjölgun um 99,2% frá 2012
Kynferðisbrotum gegn börnum fjölgun um 88,9% frá 2012
Nauðganir fjölgun um 55,2% frá 2012
Fíkniefnabrot fjölgun um 6,5% frá 2012
Sala og dreifing fíkniefna fjölgun um 55% frá 2012
Ofbeldisbrot voru 1.188 meðaltal 1.132 árin 2010-2012
Heimild: Ríkislögreglustjóri
Má rekja til sérstaks átaks í málaflokknum hjá lögreglunni
á Suðurnesjum og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Vændi fjölgun um 609,5% frá 2012*
Var 53.255 sem er 13,9% fækkun frá 2012
Morgunblaðið/Júlíus
Afbrot Samkvæmt skráningu rík-
islögreglustjóra fækkar afbrotum.