Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.07.2014, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Veður sýnastválynd víða.Fréttir um dráp þriggja ísr- aelskra ungmenna eru dæmi um það, þótt ef til vill þyki það lítið dæmi, þegar til ann- arra atburða er horft. Á ald- arafmæli heimsstyrjaldarinnar fyrri hafa menn vara á sér. Til- ræði við tvær tignarpersónur í Sarajevó varð neistinn sem kom því ógnarbáli af stað. Fyrir fá- einum vikum höfðu margir helstu valdamenn á Vest- urlöndum uppi heitstrengingar um að rán Boko Haram- hryðjuverkasamtakanna á 300 ungum stúlkum í Nígeríu yrði alls ekki látið viðgangast. Skömmu áður höfðu sömu sam- tök líflátið 60 drengi á svipuðum slóðum. Ekkert hefur verið rætt um örlög stúlknanna að und- anförnu. Mun meira um fót- boltamann bitinn aftan vinstra. Mótmæli stóðu mánuðum saman vegna þess að hljóm- sveitarstúlkur í Moskvu voru dregnar fyrir dómara sakaðar um að hafa rofið kirkjufrið og hlutu fangelsisdóm í kjölfarið. Meira en 300 þúsund mann- eskjur eru taldar hafa týnt lífi í óöldinni í Sýrlandi. Bandaríkin og Bretland gáfu til kynna að þau hygðust skerast í leikinn, en ekkert varð úr þegar þingið í Lundúnum gerði forsætisráð- herra sinn afturreka með stríðsbeiðnina. Minna er fjallað um óöld Sýrlands en áður, því annað vont hefur stolið senunni. Ný öfgasamtök íslamista, ISIS, hafa síðustu mánuði lagt undir sig þriðjung Íraks, en höfðu áð- ur náð yfirráðum í norðaust- urhluta Sýrlands. Hermenn IS- IS hafa farið eins og logi yfir akur um sandana þar eystra og líflátið fjölda manna, auk þeirra sem fallið hafa í bardögum. Sjálfboðaliðar frá ríkjum Vestur-Evrópu, þ. á m. yfir 500 frá Bretlandi, eru taldir berjast undir merkjum ISIS. Menn ótt- ast mjög hvað gerast kunni þeg- ar stríðsþjálfaðir og heila- þvegnir borgarar þessara landa snúa heim aftur um landamæra- laus ríki álfunnar. Í Bandaríkjunum er deilt um hverjum megi kenna um svo óhugnanlega stöðu í Írak. Demókratar segja að undirrót þess hljóti að vera innrás Bandaríkjanna, Bretlands og fleiri ríkja vorið 2003. Repúblik- anar benda hins vegar á að á árinu 2009 hafi staðan í Írak verið orðin allgóð. Lýðræðis- legar kosningar voru tryggðar og vel virtist miða í mörgum efnum. Obama forseti hafði undirstrikað þessa stöðu í yf- irlýsingum sínum, en ekki síst í gjörðum sínum. Hann hafði kallað allan bandarískan her heim frá Írak og virt að vettugi til- lögur hershöfðingja sinna um að hafa um 20.000 manna herlið áfram í land- inu. Þessar deilandi fylkingar í Bandaríkjunum eru á hinn bóginn sammála um það, að Malaki, forsætisráðherra Íraks, beri mikla ábyrgð á ástandinu. Hann hafi alfarið haldið súnnítum frá áhrifum í stjórnkerfinu, minnihluta þjóð- arinnar, sem þó hafi ráðið nær öllu á dögum Saddams Huss- eins. Staðan á þessu eldfima svæði er ekki aðeins flókin og snúin. Hún er beinlínis á haus í mörg- um efnum. Bandaríkin hafa stutt uppreisnarmenn í Sýr- landi. Herskáasti hluti þeirra er nú að leggja undir sig stóran hluta Íraks. Assad, einvaldur Sýrlands, sendir herþotur til að gera árásir á þennan hóp í Írak. Bandaríkin hafa velt fyrir sér vikum og mánuðum saman hvort þau eigi að gera það. Helstu bandamenn Bandaríkj- anna í Írak eru um þessar mundir erkifjendur þeirra í Ír- an. Ýmsir óttast að áhrif Írans í Írak verði mikil, því Írak eigi hvergi annars staðar stuðning vísan. Sádi-Arabía, sem verið hefur helsti samherji Banda- ríkjanna á svæðinu, er grunuð um að veita ISIS fjárhagslegan stuðning. Obama forseti þykir hafa tap- að miklu trausti sem leiðtogi, jafnt heima fyrir sem utan lands. Hik og loðnar yfirlýs- ingar eru sögð einkenni hans. Þess vegna fari vondir menn, nær og fjær, sínu fram og gefi Bandaríkjunum langt nef. En hinu er heldur ekki hægt að neita að veruleg stríðsþreyta hrjáir bandarísku þjóðina eftir stórstríðin tvö í Írak og Afgan- istan, sem margt bendir til að endi þannig að ekkert hafi hafst upp úr því stórbrotna krafsi öllu. Obama á því ekki auðveldan leik. Þekkt sögupersóna Agöthu Christie sagði stundum, þegar flækjurnar í vefjum morðsög- unnar voru sem torleystastar: Þetta er svo yfirgengilega flók- ið að lausnin hlýtur að vera ein- föld. Söguhetjan hitti oft þann naglann á höfuðið. Ekki er víst að það lán sé yfir mönnum í veruleikanum. En því lengur sem leikstjórnarlaus og lánlaus veröldin snýst svona mun staðan versna fremur en hitt. Þá getur farið svo, að heimsins vísdómshausar taki allir í kór undir uppgjafartón séra Sigvalda: Það er kannski kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér. Eldglæringar á himni heimsmála eru óþægilega margar} Mikil ferð og enginn við stýrið 3. júlí 1984. Fjölskylda úr Hafnarfirðinum, hjón með tvær dætur, er á ferðalagi eftir þjóð- veginum norður í landi og fríið er framundan. Sól, sumar og glaðværð og leið lá um Skaga- fjörðinn; síðasta stopp er vegaskálinn í Varmahlíð. Svo kemur að blindhæð og allt breytist – um alla framtíð. Harður árekstur verður svo fjölskyldan slasast öll illa. Harðast úti verður heimilisfaðirinn, tæpra 38 ára hreystimenni, en hann slasast illa á höfði og verður fyrir framheilaskaða sem háir honum alvarlega allt til æviloka, 16. júní 2007. Undirritaður var á ferðalagi sömuleiðis með sinni fjölskyldu, en erlendis. Fyrir daga nets- ins bárust slík tíðindi ekki svo glatt út fyrir landsteinana en ég man enn skelfilegt slysið sem ég las um þegar ég fór yfir uppsöfnuð ein- tök Morgunblaðsins sem biðu heima þegar við komum aftur til Íslands. Rúmum tíu árum eftir þessa atburði lágu svo leiðir okkar saman, mín og yngri dótturinnar sem í slysinu lenti og í tæp tuttugu ár hafa þær verið samliggjandi. Þá heyrði ég betur af því sem gerst hafði, daginn örlagaríka í júlíbyrjun ’84. Tveir bílar óku nefnilega fram á slysið skömmu eftir áreksturinn en héldu að athuguðu máli sína leið. Þriðja bílnum sem bar að ók hins vegar vand- aður einstaklingur sem breytti sínum ferðaáætlunum til að geta aðstoðað fólk í lífshættu. Hafi hann eilíflegar þakkir fyrir gæsku sína – hinir skömm. Þetta rifjast upp fyrir okkur hjónum um þessar mundir, ekki bara af því að þrjátíu ár eru liðin frá slysinu sorglega sem setti líf lít- illar fjölskyldu alvarlega út af sporinu, heldur líka af því nýverið var um það fjallað í fréttum að ungur maður hefði orðið fyrir fólskulegri og tilefnislausri árás í Reykjavík, og fáum hugnaðist að rétta honum hjálparhönd í kjöl- farið. Fólk ýmist virti hann ekki viðlits og gekk hjá eða sneri við í snarhasti og forðaði sér. Gilti einu þó hann lægi blóðugur og í losti eftir árásina og gæti sér enga björg veitt. Hefur okkur semsagt ekki farið meira fram í manngæsku en svo – á þrjátíu árum? Jónatan Ljónshjarta viðhafði ákveðið orð um þá sem kusu að leggja ekki sitt af mörk- um í hinu stóra samhengi. Það á ágætlega við í þessu sambandi. Hamingjunni sé lof að ungi maðurinn sem ráðist var á ber ekki varanlegan skaða af, þó skiljanlega sé maður í áfalli í einhvern tíma í kjölfar slíks fólskuverks. En það vissu vegfarendur ekki þegar á reyndi. Fyrsta hjálp getur skipt sköpum, ekki síst þegar höfuðmeiðsl eru annars vegar, og þá geta jafnvel mín- útur ráðið úrslitum. Tengdafaðir minn heitinn var ekki svo heppinn. Hann átti við afleiðingar slyssins sem hann lenti í meðan hann lifði. Blindhæðin fyrir norðan var straujuð út eftir slysið. Vonandi fer eins um heigulshátt þeirra sem ekki vilja hjálpa. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Samverjar fyrr og nú STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ífyrra bjuggu 6,7% Íslend-inga við skort á efnislegumlífsgæðum, álíka margir og ár-in 2004–2007. Konur eru hlut- fallslega fleiri en karlar í þessum hópi og rúmur fjórðungur einstæðra for- eldra býr við slíkan skort. Menntun, aldur og atvinnustaða skiptir tals- verðu máli í þessu sambandi. Þetta er meðal þess sem kemur út í nýrri skýrslu Hagstofu Íslands. Þar kemur einnig fram að Ísland var með sjöttu lægstu tíðni skorts í Evr- ópu árið 2012. Níu þættir eru lagðir til grund- vallar skilgreiningunni á skorti á efnislegum lífsgæðum. Séu a.m.k. þrír þeirra til staðar telst viðkomandi búa við skort. Þessir þættir eru: van- skil lána, að hafa ekki efni á að fara í vikulangt frí með fjölskyldunni ár- lega, hafa ekki efni á kjöt-, fisk- eða grænmetismáltíð a.m.k. annan hvorn dag, að geta ekki mætt óvæntum út- gjöldum, að hafa hvorki efni á heima- né farsíma, hafa ekki efni á sjónvarpi, þvottavél eða bíl og að hafa ekki efni á að halda húsnæðinu nægilega heitu. Fylgni er á milli þessara mæl- inga og lágtekjumarka. Þó mælist tíðni skorts á efnislegum lífsgæðum lægri en tíðni lágtekjumarka. Það er m.a. skýrt með því að á hverjum tíma eru einhverjir tímabundið undir lág- tekjumörkum án þess að það hafi áhrif á lífskjör þeirra til lengri tíma. Færri fyrir hrun Hlutfall Íslendinga sem skortir efnisleg lífsgæði lækkaði úr 7,4% í 2,5% frá 2007 til 2008. Áhrif hrunsins komu síðan fram næstu tvö árin á eft- ir, þegar hlutfallið hækkaði upp í 6,8%. Þegar dreifingin er skoðuð sést að þessi skortur er hlutfallslega al- gengari meðal kvenna en karla, 7,5% og 5,9%. Aldur hefur einnig talsvert að segja, en tíðnin var lægst hjá ald- urshópnum 65 ára og eldri og hæst hjá fólki á aldrinum 25–34 ára. Í skýrslunni segir að það eigi sér þekktar skýringar; yngra fólk sé að fóta sig á vinnumarkaði, koma sér upp húsnæði og eignast börn. 25,2% einhleypra foreldra með börn búa við skort á efnislegum lífs- gæðum og er það algengasta fjöl- skyldugerðin sem býr við þessar að- stæður. Tíðnin hefur aukist talsvert hjá þessum hópi eftir hrun, hún var 10,2% árið 2008. Næst á eftir koma heimili einhleypra og barnlausra. Menntun skiptir máli Hátt hlutfall atvinnulausra og öryrkja skorti efnisleg lífsgæði árið 2013, eða 21,5% fyrrnefnda hópsins og 24,6% þess síðarnefnda. Menntun hefur talsvert að segja, en árið 2013 bjuggu 4,2% fólks með háskólapróf við skort, sam- anborið við 6,2% þeirra sem höfðu lokið framhaldsskólanámi eða starfs- menntun og 7,7% þeirra sem höfðu lokið grunnmenntun. Þessi munur á menntunarstigum hefur haldist frá árinu 2004. Þá var tíðnin nokkuð hærri í þéttbýli, 7,1%, en í dreifbýli, þar sem hún var 5,9%. Lífskjör Evrópubúa hafa verið könnuð á þennan hátt frá árinu 2004 og var það að frumkvæði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Um er að ræða úrtakskönnun þar sem gagna er aflað með viðtölum, auk upplýsinga úr skattskrá. Úrtakið hér á landi í fyrra var 4.407 heimili og var svarhlutfall 73,2%. Meiri skortur hjá ungum og einstæðum Skortur á efnislegum lífsgæðum á Íslandi árið 2013 eftir kyni, aldri, heimilisgerð og atvinnustöðu K on ur K ar la r 30 25 20 15 10 5 0 % Heimild: Hagstofa Íslands Meðaltal (allir) 6,7% 7,5% 5,9% 11,7% : 25,2% 5,6% 7,7% 6,2% 4,2% 4,1% 21,5% 7,4% 24,6%1% Ei ns tæ ði r fo re ld ra r 2 fu llo rð ni r, 3 bö rn eð a fl ei ri M eð gr un ns kó la pr óf M eð st ar fs -o g fr am ha ld ss kó la m en nt un M eð há sk ól am en nt un Íf ul lu st ar fi A tv in nu la us ir N ám sf ól k Ef ti rl au na þe ga r Ö ry rk ja r 1 fu llo rð in n, en gi n bö rn Algengt er að fátækt sé skil- greind sem tekjur undir tilteknu marki, oft er miðað við 60% af miðgildi ráðstöfunartekna. Í skýrslu Hagstofu segir að fá- tækt sé einnig oft skilgreind sem afstæð og snúist ekki ein- göngu um skort á lífsnauð- synjum, heldur um þær neyslu- venjur sem þykja eðlilegar í hverju samfélagi fyrir sig. Afstætt MÆLINGAR Á FÁTÆKT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.