Morgunblaðið - 01.07.2014, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2014
Ljóðaunnendur hafa ástæðu til
að kætast en í kvöld, nánar til-
tekið klukkan sex, stendur Hug-
rún Margrét fyrir ljóðakvöldi á
kaffi- og ölstofu Tjarnarbíós.
Þar getur hver sem er tekið
þátt í ljóðaflutningi, umræðum
eða einfaldlega hlýtt á aðra.
Markmiðið er að sögn Hug-
rúnar að skapa þægilegan vett-
vang fyrir listamenn, byrjendur
sem lengra komna, til að prófa
sig áfram og fá uppbyggilega
gagnrýni.
Þægilegt
ljóðakvöld
Lestur Flutt verða ljóð í kvöld klukkan sex á Kaffi- og ölstofu Tjarnarbíós.
Pressphotos.biz/Geirix
Verk Katrínar Sigurðardóttur
myndlistarkonu, „Foundation“ eða
„Undirstaða“ sem sýnt var í ís-
lenska skálanum
á síðasta Fen-
eyjatvíæringi, er
um þessar mund-
ir sýnt í Sculp-
ture Center í
New York. Í
millitíðinni var
verkið sett upp í
Listasafni
Reykjavíkur en
það var unnið
með þessa þrjá
sýningarstaði í huga.
„Undirstaða“ er grátt og hvítt
flísagólf á upphækkaðri undir-
stöðu, gert úr þúsundum hand-
gerðra flísa sem Katrín vann
ásamt aðstoðarfólki og mynda þær
mynstur í barokkstíl. Þrjár sýn-
ingar eru um þessar mundir í
SculptureCenter en sýning Katr-
ínar þeirra viðamest.
„Kunnuglegt land“
Gagnrýnandi The New York
Times, Karen Rosenberg, fjallaði
ítarlega um allar sýningarnar í
umfjöllun fyrir helgi og segir hún
Katrínu færa sig með þessu verki
dýpra inn í heim skreytlistar og
frá hvítum rýmisverkum eins og
því sem sýnt var í Metropolitan-
safninu árið 2010 og vakti þar um-
talsverða athygli. Í stað þess að
byggja draugaleg módel sem bygg-
ist á tilfallandi arkitektúr skapi
hún verk sem líti út fyrir að vera
„rétt“ í sögulegu samhengi, að
minnsta kosti í augum hins al-
menna áhorfanda, og byggist á
vinnu þjálfaðra handverksmanna.
Útkoman sé áhrifamikið samtal
verks sem vísar í 18. öldina við
rými hlaðinna veggja Sculpture-
Center. Hins vegar, segir rýnirinn,
kann gestum á sýninguna sem
ganga á verkinu finnast að þeir
gangi um kunnuglegt land og hún
vísar í verk eftir Rudolf Stingel
sem hefur teppalagt rými og vann
á svipaðan hátt í Feneyjum í fyrra.
Þá segir rýnirinn að verkið sé
frekar bitlaust, reyni um of að að-
lagast aðstæðum.
Verk íslenskra myndlistarmanna
hafa verið áberandi í söfnum í New
York undanfarið því um helgina
lauk í New Museum þar í borg sýn-
ingu á verkum Ragnars Kjart-
anssonar, „My, My Mother, My Fat-
her, and I!“, sem gagnrýnandi New
York Times hvatti myndlist-
aráhugamenn til að sjá áður en
lyki. efi@mbl.is
Undirstaða Gestir virða fyrir sér verk Katrínar á tvíæringnum í Feneyjum.
Samtal tveggja
tíma í „Undirstöðu“
N.Y. Times fjallar um verk Katrínar
Katrín
Sigurðardóttir
Bachs sem hann færði mér. Ég fór
s.s. að lesa þær og spila þessi verk
og uppgötvaði að þarna væri falinn
fjársjóður,“ segir Edda. Hún hafi
því ákveðið að taka upp disk með
fimm sonnettum, rondói og fant-
asíu eftir Bach. „Ég man að sumir
kollegar mínir spurðu af hverju ég
væri að spila þessa tónlist á Sta-
inway-flygil, það var púritanismi
gagnvart hljóðfærinu en sem betur
fer hefur þetta opnast núna og er
liðin tíð,“ segir Edda. Verkin hafi
verið samin á 18. öld, fyrir tíma
Stainway-flygla en séu nú oft leik-
in á nútímapíanó sem sé að hennar
mati gott mál. Edda segir að svo
virðist sem C.P.E. Bach hafi verið
enduruppgötvaður á þessu ári.
Líklega hafi 300 ára afmælið
hjálpað þar til og í Frakklandi hafi
dagskrár verið helgaðar tónskáld-
inu í útvarpi og tónleikaraðir.
„Mér finnst það mjög ánægjulegt
og það kemur mér á óvart. Það er
eins og fólk sé að uppgötva tónlist
sem það hefur ekki haft mörg
tækifæri til að hlusta á,“ segir
Edda.
Uppgötvun Edda segir að svo virðist sem C.P.E. Bach hafi verið endur-
uppgötvaður á þessu ári og þá líklega vegna 300 ára afmælisins.
Dagskrá Sumartónleika
Listasafns Sigurjóns má finna
á heimasíðu safnsins, lso.is.
Örvar vöðva, styrkir þá og lyftir.
Meðferðin tekur 30-45 mínútur.
HYDRADERMIE
LIFT
Andlitslyfting
án skurðaðgerðar!
Snyrtistofur sem bjóða Hydradermie Lift meðferð og Guinot vörur:
Snyrtistofan Gyðjan – s. 553 5044
Snyrtistofan Ágústa – s. 552 9070
Snyrtistofan Hrund – s. 554 4025
Snyrtistofan Ársól – s. 553 1262
Snyrtistofa Marínu – s. 896 0791
GK snyrtistofa – s. 534 3424
Snyrtistofan Garðatorgi – s. 565 9120
Dekurstofan – s. 568 0909
Guinot-MC stofan – s. 568 9916
Snyrtistofan Þema – s. 555 2215
Snyrtistúdíó Önnu Maríu – s. 577 3132
SG snyrtistofa – s. 891 6529
Landið:
Snyrtistofa Ólafar, Selfossi – s. 482 1616
Snyrtistofan Abaco, Akureyri – s. 462 3200
Snyrtistofan Lind, Akureyri – s. 462 1700
Snyrtistofa Guðrúnar, Akranesi – s. 845 2867
Snyrtistofan Sif, Sauðárkrókur – s. 453 6366
www.guinot.is
Höldum daginn hátíðlegan
með blómum