Morgunblaðið - 07.07.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Nú er annað rútufyrirtæki að fara
yfir sín mál og íhugar að leggja fram
kæru á hendur Strætó bs. vegna út-
boðs annarrar leiðar,“ segir Björn
Jón Bragason, framkvæmdastjóri
Félags hópferðaleyfishafa.
Fyrir helgi var greint frá því á
mbl.is að stjórn Félags hópferða-
leyfishafa ætlaði ekki að hvika frá
þeirri kröfu sinni að lögreglurann-
sókn færi fram á þeim akstri og reikn-
ingum sem lægju að baki umfram-
greiðslum í tveimur útboðum á
vegum Strætó bs. Í fréttatilkynningu
frá félaginu kom fram að annars veg-
ar væri um að ræða um 100 milljónir í
útboði Strætó bs. og Samtaka sveitar-
félaga á Suðurlandi og hins vegar um
700 milljóna umframgreiðslur í akstri
innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu.
Strætó bs. sendi frá sér tilkynningu í
kjölfarið þar sem „þessum dylgjum
og rógburði um að fyrirtækið hafi far-
ið fram úr samningum“ var vísað
heim til föðurhúsanna.
Björn Jón segir að samið hafi verið
við sama aðila og Félag hópferðaleyf-
ishafa óskaði eftir rannsókn á í þessu
máli.
Hættu við þátttöku í útboði
Um þessar mundir stendur yfir út-
boð Strætó bs. um akstur með fatlað
fólk á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir-
tækið Bílar og fólk hætti við þátttöku
í útboðinu og krafðist þess að útboð-
inu yrði frestað.
Kjartan Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Bíla og fólks, segir ýmislegt
skondið við útboð Strætó. „Aðili sem
fékk útboð árið 2010 sem við buðum í
líka er búinn að fá 700 milljónir um-
fram það sem útboðið sagði til um.
Sama er með Suðurland, við vorum
með tvö lægstu tilboðin þar, samt var
ekki samið við okkur. Það var samið
við þann sem var hæstbjóðandi, ég
veit ekki hvort það er tilviljun að það
er sá sami og Strætó er að semja við
viðstöðulaust. Við fórum í mál út af
því og í dómnum kom fram að þar
hefði ekki verið rétt staðið að málum,“
segir Kjartan.
Hann segir þá sem áttu þriðja
lægsta tilboðið á Suðurlandi ætla í
skaðabótamál við Strætó bs. vegna
málsins.
„Þeir voru með þriðja lægsta til-
boðið og það var ekki einu sinni talað
við þá,“ segir Kjartan.
Möguleg kæra á leiðinni
vegna útboðs Strætó bs.
Framkvæmdastjóri rútufyrirtækis er ósáttur við útboð
Hoffelli, nýju skipi Loðnuvinnslunnar hf. á
Fáskrúðsfirði, var fagnað í gær þegar því
var siglt inn í nýja heimahöfn frá Noregi,
þaðan sem það var keypt. Hoffelli, sem var
smíðað árið 1999, er ætlað að leysa eldra
skip útgerðarinnar af hólmi og segir Frið-
rik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Loðnuvinnslunnar hf., nýja skipið vera mik-
ið framfaraspor fyrir atvinnulíf bæjarins.
Hann segir Hoffell vera um 20% spar-
neytnara en eldra skip útgerðarinnar þrátt
fyrir að hafa um 50% meiri togkraft. Þá
segir hann að skipið geti lestað um 40%
meiru en eldra skip útgerðarinnar, um
1.650 tonnum. „Ekki skemmdi það fyrir að
Bergur Einarsson, skipstjóri á Hoffelli, átti
afmæli í gær þegar hann sigldi skipinu í
höfn og var það amma skipstjórans, Sig-
urbjörg Bergkvistsdóttir, sem gaf skipinu
nafn,“ segir Friðrik. Morgunblaðið/Albert Kemp
„Þetta er
mikið fram-
faraspor“
Fjölgun í skipaflota Fáskrúðsfirðinga þegar Hoffelli var siglt til heimahafnar í gær frá Noregi
Lögreglan á Húsavík rannsakar nú
eldsupptök í rútu, sem brann í
Ljósavatnsskarði í Suður-Þing-
eyjarsýslu í gær. Rútan hafði verið
á ferð í um klukkustund og var í
400-500 metra fjarlægð frá næstu
slökkvistöð þegar eldurinn kom
upp.
Bílstjóri rútunnar, Rúnar Ósk-
arsson, sagði í samtali við mbl.is í
gær að um væri að ræða „eitthvert
sambland olíu og rafmagns“. Lög-
regla telur líklegt að kviknað hafi í
út frá vélbúnaði.
Eldur kom upp í
rútu á ferð
Ljósmynd/Allan Haywood
Brunnin Rútan í Ljósavatnsskarði.
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Talsvert fleiri sóttu um leikskóla-
og grunnskólakennaranám í Há-
skólanum á Akureyri í vor en í
fyrra. Í Háskóla Íslands fjölgaði
umsóknum um leikskólakenn-
aranám, en umsóknum um grunn-
skólakennaranám fækkaði nokkuð.
Óvíst er þó hversu margir muni
hefja nám í haust, það liggur ekki
fyrir fyrr en í ágúst. Nákvæm
kynjaskipting umsækjenda liggur
heldur ekki fyrir, en frá báðum
skólum fengust þær upplýsingar að
konur væru meginþorri umsækj-
enda.
Mikil fækkun varð í hópi um-
sækjenda um kennaranám eftir að
ný lög um menntun og ráðningu
kennara tóku gildi árið 2011. Í
breytingunni fólst m.a. að fimm ára
M.Ed.-nám þarf nú til að fá
kennsluréttindi í stað þriggja ára
B.Ed.-náms áður.
Nokkur munur er á skipulagi
námsins í skólunum tveimur, í Há-
skóla Íslands sækja umsækjendur
ýmist um nám í leikskóla- eða
grunnskólakennarafræðum. Í Há-
skólanum á Akureyri er aftur á
móti sótt um nám í kennarafræði og
síðan velja nemendur annaðhvort
grunnskóla- eða leikskólakenn-
arafræði eftir fyrsta námsárið. Í
báðum skólum er boðið upp á dip-
lómanám í leikskólafræðum og við
Háskólann á Akureyri er sérsniðið
60 eininga nám fyrir háskólamennt-
aða starfsmenn leikskóla.
Auglýstri innritun í Háskólann á
Akureyri lauk 5. júní og þá höfðu
skólanum borist 60 umsóknir í al-
mennt kennaranám, sem er sameig-
inlegt verðandi grunn- og leik-
skólakennurum. Í fyrra voru
umsækjendur 49 og því er aukn-
ingin 22,4%. Umsóknir um diplóm-
anám á leikskólabraut voru 40.
Samtals eru þetta því 100 umsókn-
ir, en þær voru 49 í fyrra. Þessu til
viðbótar hafa nokkrar umsóknir
bæst við, reyndar er enn tekið við
þeim að sögn Braga Guðmunds-
sonar, prófessors og formanns
kennaradeildar HA. „Þetta eru
næstum því allt konur,“ segir
Bragi, spurður um kynjaskiptingu
umsækjenda. Þannig hefur það ver-
ið lengi og það hefur lítið breyst.
„Karlmenn eru því miður afar
sjaldséðir í þessu námi.“ Spurður
um skýringar á þessari fjölgun seg-
ist Bragi ekki hafa á því haldbærar
skýringar. Nýir kjarasamningar
gætu haft eitthvað að segja.
25% fjölgun á milli ára
Samtals sóttu 247 um grunnnám í
grunnskóla- og leikskólakenn-
arafræðum við menntavísindasvið
Háskóla Íslands í vor. Um grunn-
skólakennaranámið sóttu 140, en
um það sóttu 164 í fyrra. 107 sóttu
um leikskólakennaranámið, en þar
voru umsækjendur 86 í fyrra.
Fjölgun í síðarnefnda náminu nem-
ur því tæpum 25% á milli ára. Jó-
hanna Einarsdóttir, forseti mennta-
vísindasviðs HÍ, segir þessa fjölgun
nemenda í leikskólakennaranámi
virkilega ánægjulega. Hún nefnir
tvær skýringar til sögunnar á þess-
ari fjölgun. „Við fórum í kynningar-
átakið Framtíðarstarfið, þar sem
við hjá HÍ og HA tókum höndum
saman við menntamálaráðuneytið,
Samband íslenskra sveitarfélaga og
Kennarasambandið. Það var mjög
vel heppnað, en markmiðið var að
sýna starfið í raunsæju ljósi.“
Mörgum finnst námið langt
Hin skýringin, sem Jóhanna
nefnir, er könnun sem gerð var
meðal ófaglærðs starfsfólks leik-
skólanna. „Þar spurðum við hvað
þyrfti til að fólk færi í leikskóla-
kennaranám. Niðurstöðurnar voru
að fólki fannst námið langt og þar
kom fram áhugi á styttri náms-
brautum. Við brugðumst við því og
þrepaskiptum náminu þannig að nú
er hægt að ljúka tveggja ára dip-
lómanámi og við það er hægt að
bæta ári til að fá B.Ed.-próf og síð-
an er hægt að fara í M.Ed.-námið.
Það má ekki gleyma því að þetta er
nám sem fólk fær alveg örugglega
starf við að námi loknu. Það er mik-
ils virði.“
Fleiri vilja nú verða leikskólakennarar
Jóhanna
Einarsdóttir
Bragi
Guðmundsson
Umsóknir í HÍ Umsóknir í HA
20112012 20122013 20132014
300
250
200
150
100
50
0
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
2011 2014
286
266
250 247
92
76
49
100
Umsóknir um leik- og grunnskólakennaranám
Fjölgun, eftir fækkun í mörg ár Karlmenn eru sjaldséðir í náminu Forseti Menntavísindasviðs
þakkar átaki og meira námsframboði Segir mikils virði að auðvelt sé að fá vinnu að námi loknu
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Alicante
frá aðeins kr.
12.900 Aðra leið, til eða frááfangastað, með sköttum.