Morgunblaðið - 07.07.2014, Page 6

Morgunblaðið - 07.07.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta“ Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha, til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni. Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha. Kv. Áslaug og Benni 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins var kallað út á ní- unda tímanum í gærkvöld þegar eldur kom upp í húsnæði í Skeifunni 11 í Reykjavík. Stór reykjarmökkur sást langar leiðir, meðal annars frá Akranesi og Njarðvík. Mökkurinn var þykkur og kolsvartur og lá beint upp frá Skeifunni og örlítið til vest- urs; engu líkara var en um eldgos í miðri Skeifunni væri að ræða. Fólk streymdi á vettvang Töluverður fjöldi fólks lagði leið sína í Skeifuna til að fylgjast með eldhafinu og störfum slökkviliðsins og myndaðist því snemma þétt umferðarteppa í kringum svæðið. Mannfjöldinn var það mikill um tíma að það minnti frekar á útihátíð en vettvang stórbruna. Lögreglan átti í fullu fangi með að koma fólki frá og mátti heyra lögreglumenn hrópa á fólk að færa sig. Björg- unarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru því kallaðar út til að aðstoða lögreglu við lokanir og gæslu á svæðinu. Öryggissvæði var fljótlega stækkað og bílar fjarlægðir af bílastæðaplani Hagkaups og við Bílaleigu Akureyrar. Sigmar Gunnarsson var einn þeirra vegfarenda sem komu snemma að brunanum og sagði hann fólki á svæðinu hafa fjölgað nokkuð hratt á skömmum tíma. Þegar Sigmar kom sjálfur að var eldurinn að mestu bundinn við þann hluta hússins sem hýsir fatahreins- unina Fönn. „Um tíma virtist mér sem slökkviliðið væri að ná tökum á eldinum en svo leit út fyrir að það hefði misst þrýsting á vatninu og eldurinn breiddist hratt úr sér,“ sagði Sigmar. Slökkviliðið átti síðar eftir að leggja slöngur í brunahana allt í kring og Slökkvilið Keflavík- urflugvallar var kallað út til að að- stoða við slökkvistörf. Fjöldi fyrirtækja í hættu Ljóst er að mikið tjón hefur orðið af völdum brunans og segir Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans, sem rekur Griffil, að allt sé farið. Hann segir að fólk innan fyrirtækisins sé þegar farið að ráða ráðum sínum og að næst á döfinni sé að finna nýjan stað undir verslunina. Hann segir að starfsfólk sé í kapphlaupi við tím- ann til þess að geta hafið starfsemi að nýju fyrir skólavertíð næsta haust. „Ljóst er að við ætlum okkur að finna nýjan stað og halda áfram. Allt gengur út á það,“ segir Ingþór. Fjöldi annarra fyrirtækja er með aðstöðu á svæðinu og þrátt fyrir að þau hafi ekki orðið eldinum að bráð er ávallt hætta á reykskemmdum enda kom gífurlegur reykur af eld- hafinu. Hann virtist þó að mestu fara beint upp og örlítið til vesturs. Fastlega má því gera ráð fyrir því að tjón vegna bæði elds og reyks eigi eftir að verða töluvert. Ingþór segir þrátt fyrir allt að tjónið muni ekki valda rekstraraðilum Griffils miklu fjárhagslegu tjóni. „Ég tel að við séum ágætlega stödd með trygg- ingar. Við erum að skoða næstu skref varðandi þau mál.“ Eldurinn hafði ekki náð að læsa sig í verslun Víðis þegar blaðið fór í prentun, en verslunin er í austasta enda húsalengjunnar, nálægt fata- hreinsuninni Fönn. Morgunblaðið/Golli Stórbruni Á ellefta tímanum í gærkvöldi hafði dregið úr reyknum. Enn loguðu eldar og slökkviliðsmenn unnu hörð- um höndum að því að verja nærliggjandi hús. Aðstoð fékkst víða að, m.a. úr Árnessýslu og frá Suðurnesjum. Líkt og eldgos í Skeifunni  Stórbruni í gærkvöldi þegar eldur kom upp í húsnæði við Skeifuna 11  Verslunin Griffill brann til grunna Morgunblaðið/Styrmir Kári Við slökkvistörf Tilkynnt var um eldinn á níunda tímanum í gærkvöldi. Fljótlega varð ljóst að um stórbruna var að ræða sem gæti breiðst út. Morgunblaðið/Styrmir Kári Griffill brennur Einna mestur eldur var í Griffli. Framkvæmdastjóri Penn- ans, sem rekur verslunina, segir að þegar sé farið að leita nýs húsnæðis. Morgunblaðið/Styrmir Kári Mannfjöldi Mörg hundruð manns söfnuðust saman til að fylgjast með eldsvoðanum í gærkvöldi. Fólk var beðið um að halda sig fjarri vegna sprengihættu og til að lögregla og slökkvilið fengju starfsfrið við þetta erfiða verkefni. Skannaðu kóðann til að lesa fréttir og sjá myndskeið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.