Morgunblaðið - 07.07.2014, Síða 8

Morgunblaðið - 07.07.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Andríki skrifar í tilefni af „froðu“skýrslu Ríkiend- urskoðunar um sjálftöku í SÍ:    Muna menn ekkieftir hvernig ríkisendurskoðandi stóð að málum þegar þingnefnd fór þess á leit við stofnunina að hún gerði úttekt á út- reikningunum sem voru látnir réttlæta aðkomu ríkisins að Vaðlaheiðargöngum. Ríkisendurskoðandi neitaði að láta stofnun sína vinna erindið og bar því við það væri ekki á verksviði hennar og hann sjálfur væri vanhæfur til verksins vegna tengsla sinna við mág sinn, Kristján Möller fyrrverandi sam- gönguráðherra, sem sat í stjórn Vaðlaheiðarganga.    Skilningsleysi ríkisendurskoð-anda á stjórnsýslunni virtist með ólíkindum. Ef forsvarsmaður stofnunar er persónulega vanhæfur þá á auðvitað að setja annan til að vinna verkið. Stofnunin verður ekki vanhæf. Og ef forsvarsmaðurinn er persónulega vanhæfur þá má hann ekki sjálfur ákveða að verkið sé ekki á verksviði stofnunarinnar. Auðvitað átti að fá annan mann til að svara erindinu. Ríkisendurskoð- andi átti að óska eftir því við for- sætisnefnd alþingis að annar maður yrði settur ríkisendurskoðandi til að svara beiðni þingnefndarinnar. Þetta annaðhvort skildi ríkis- endurskoðandi ekki, eða treysti því að hvorki þingmenn né fréttamenn skildu.    Fréttamönnum datt ekki einusinni í hug að spyrja hvernig farið yrði að ef Kristján Möller yrði aftur samgönguráðherra. Hvort ríkisendurskoðun myndi þá ekki endurskoða samgönguráðuneytið, bara vegna þess að ríkisendurskoð- andi persónulega væri vanhæfur.“ Sveinn Arason Froðufordæmi STAKSTEINAR Már Guðmundsson Veður víða um heim 6.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 rigning Bolungarvík 6 rigning Akureyri 9 skýjað Nuuk 6 léttskýjað Þórshöfn 12 skúrir Ósló 22 heiðskírt Kaupmannahöfn 22 skýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 22 heiðskírt Lúxemborg 27 léttskýjað Brussel 13 skúrir Dublin 17 léttskýjað Glasgow 18 léttskýjað London 21 léttskýjað París 16 skýjað Amsterdam 17 skýjað Hamborg 27 léttskýjað Berlín 30 heiðskírt Vín 29 léttskýjað Moskva 25 skýjað Algarve 22 léttskýjað Madríd 26 heiðskírt Barcelona 25 léttskýjað Mallorca 27 heiðskírt Róm 27 heiðskírt Aþena 28 heiðskírt Winnipeg 22 léttskýjað Montreal 25 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 26 skýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:20 23:47 ÍSAFJÖRÐUR 2:29 24:48 SIGLUFJÖRÐUR 2:08 24:34 DJÚPIVOGUR 2:38 23:27 Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is Samkvæmt könnun sem gerð var af ADAC, systurfélag FÍB í Þýskalandi, var Thule Motion 800 valið besta ferðaboxið á markaðinum. Thule Motion 800 besta ferðaboxið Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Starfsmannafélag Kópavogsbæjar (SFK) hefur vísað kjaradeilu sinni við samninganefnd Sambands ís- lenskra sveitarfélaga til ríkissátta- semjara. Undirrita átti nýjan kjara- samning seinnipart fimmtudags en í fréttatilkynningu frá SFK segir að eftir að undirritunin átti sér stað hafi sviðsstjóri kjarasviðs Sam- bandsins upplýst að Kópavogsbær hefði farið fram á að eitt ákvæði í kjarasamningi SFK yrði ekki leng- ur í gildi á nýja samningstímanum. Þá lagði SFK fram bókun um að bæta inn í samninginn að ákvæði eldri samningins gilti áfram. Kópa- vogsbær varð ekki við því og vísaði þá SFK kjaradeilunni til ríkissátta- semjara. Umrætt ákvæði snýr að því að háskólamenntað fólk innan starfs- mannafélagsins eigi rétt á að vera launasett samkvæmt því fagfélagi sem það ella mundi tilheyra. Stjórn SFK lítur svo á að um sé að ræða framlengingu á eldri kjara- samningi og að umrætt ákvæði sé því í fullu gildi þar sem því hafi ekki sérstaklega verið sagt upp. Viðræður hefjast í ágúst eftir frí hjá ríkissáttasemjara. Kjarasamningi rift eftir undirritun Morgunblaðið/Þórður Ósætti Starfsmannafélag Kópa- vogsbæjar var búið að skrifa undir.  Starfsmannafélag Kópavogs vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Opið verður fyrir matarúthlutanir hjá Fjölskylduhjálp Íslands í allt sumar samkvæmt tilkynningu frá fé- laginu. „Við viljum koma því á fram- færi vegna margra fyr- irspurna að það er opið fyrir mat- arúthlutanir í allt sumar hjá Fjöl- skylduhjálp Ís- lands í Iðufelli í Breiðholti. Aðal- úthlutunardag- urinn í viku hverri er mið- vikudagur og er matarúthlutun frá kl. 13 til 16. Þá er- um við með neyðarmataraðstoð alla virka daga frá kl. 13 til 18,“ segir Ás- gerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. Hún seg- ir að tekið sé á móti matvörum alla virka daga í Iðufelli á milli 13 og 18. „Þegar fólk heldur að það sé lokað hjá okkur þá hefur það ekki komið upp í Breiðholt,“ segir Ásgerður en fyrr á þessu ári var greint frá því í Morgunblaðinu að FÍ hefði ekki enn ákveðið hvort grípa þyrfti til sum- arlokana. Margir einstaklingar nýta sér aðstoð FÍ og fengu um það bil 30 þúsund matargjafir frá FÍ árið 2012. ash@mbl.is Matar- úthlutun í sumar Ásgerður Jóna Flosadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.