Morgunblaðið - 07.07.2014, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI
SANYL ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
Neil Young stígur á svið í Laugar-
dalshöllinni í kvöld ásamt hljóm-
sveitinni Crazy Horse.
Young fæddist árið 1945 og á ferli
sínum hefur hann gefið út 34 sóló-
plötur og frá árinu 1968 er talið að
hann hafi selt 35 milljón plötur. Þá
er hann meðal áhrifamestu tónlistar-
manna heims samkvæmt tímaritinu
The Rolling Stone.
Ótalmargir tónlistarmenn af öll-
um kynslóðum síðan Young sló í
gegn eru yfirlýstir aðdáendur hans:
Pearl Jam tók upp plötu með hon-
um, Sonic Youth fór með honum á
tónleikaferðalag sem hafði mikil
áhrif á feril sveitarinnar, Thom
Yorke og félagar í Radiohead hafa
margoft spilað lög hans á tónleikum
og raunar eru líkindin með röddum
Yorkes og Youngs oft ansi mikil.
Meira að segja poppdívan Lady
Gaga hefur flutt lagið Out on the
weekend eftir Young.
Young er því gjarnan kallaður
„guðfaðir gruggsins“ (e. godfather
of grunge) og ekki að ósekju þar sem
þekktustu gruggsveitirnar voru
undir augljósum áhrifum af tónlist
Youngs sem brást við sjálfsmorðs-
bréfi Kurts Cobains með því að gefa
út plötuna Sleeps with angels og til-
einka hana Cobain.
Ljóst er að æskudraumur margra
rætist í kvöld þegar Young stígur á
svið. hallurmar@mbl.is
Neil Young treður upp í
Laugardalshöllinni í kvöld
Einn áhrifa-
mesti tónlistar-
maður allra tíma
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónleikar Neil Young og hljómsveitin Crazy Horse á æfingu fyrir tónleika
kvöldsins. Fyrsta platan sem hann vann með sveitinni kom út árið 1969.
Fjölmennu N1-móti KA fyrir 5.
flokk stráka í fótbolta lauk á Ak-
ureyri síðdegis á laugardag. Allt er
gott sem endar vel; þegar mótinu
lauk var veðrið skaplegt, sigurveg-
arar brostu breitt og flestir aðrir
a.m.k. út í annað munnvikið.
Hátt í 1.400 strákar tóku þátt í
mótinu, sem hófst á miðvikudaginn.
Eftir rjómablíðu á Akureyri undan-
farið hrelldi margumtöluð lægð
norðanmenn og gesti þeirra í vik-
unni, eins og aðra landsmenn.
Um hádegisbil á miðvikudag var
boðið upp á þrumur og eldingar en
stytt hafði upp þegar flautað var til
fyrstu leikja um miðjan dag. Aftur
seig á ógæfuhliðina daginn eftir og
á laugardagsmorgun var ástandið
verst því þá rigndi eins og hellt
væri úr fötu; ár og dagur er síðan
jafnmargir regndropar hafa orðið
samferða til Akureyrar. Aðstæður
voru orðnar erfiðar og vellir á KA-
svæðinu höfðu mjög látið á sjá. Frá
hádegi var því einungis leikið á ný-
legum gervigrasvelli.
Keppt var í nokkrum deildum á
mótinu og sigruðu lið Breiðabliks,
Njarðvíkur, Víkings frá Reykjavík,
KR og Fylkis. skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mýrarbolti Aðstæður voru erfiðar á laugardagsmorgun eftir steypiregn.
Vel heppnað mót
þrátt fyrir veðrið
Einbeiting Þessi ungi Haukamaður
var með hugann við verkefnið.
Vítaspyrnur Einstaka sinnum þurfti að grípa til vítakeppni eins og á HM.