Morgunblaðið - 07.07.2014, Page 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014
4Viðhaldsfrítt yfirborð
4Dregur ekkert í sig
4Mjög slitsterkt
48, 12, 20 & 30mm þykkt
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
UTANHÚSKLÆÐNING ® BORÐPLÖTUR ® SÓLBEKKIR ® GÓLFEFNI
þolir 800°C hita og er frostþolið
Nýtt efni frá
BORÐPLÖTUR
Renndu við og skoðaðu úrvalið
Þátttakendur í hinni frægu San Fermin-
nautahlaupshátíð halda á loft rauðum klútum á
einu aðaltorgi Pamplona á Norður-Spáni til
marks um upphaf hátíðahaldanna. Hátíðin er
mikil veisla og gera þátttakendur vel við sig
með víni og góðum mat en þekktust er þó há-
tíðin fyrir nautahlaupið. Þá hlaupa þátttak-
endur undan hópi nauta sem sleppt er á
ákveðnum svæðum.
AFP
Allt að verða klárt fyrir San Fermin-hátíðina
Rautt og hvítt í nautahlaupi á Spáni
Lögreglan í Sví-
þjóð handtók í
gær karlmann
sem hafði hótað
að sprengja
sjálfan sig í loft
upp í bænum
Dingle í Bohus-
län í gær. Lög-
reglan rýmdi
stórt svæði og hafði mikinn við-
búnað á vettvangi. Hótanir
mannsins beindust ekki að nein-
um sérstökum en vegna kunnáttu
hans að búa til sprengjur var tal-
ið nauðsynlegt að fara að öllu
með gát.
Sprengjumaður
handtekinn
SVÍÞJÓÐ
Viljálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Lögreglan í Ísrael hefur handtekið
sex menn í tengslum við rannsókn á
morðið á sextán ára palestínskum
pilti í Jerúsalem sem framið var fyrir
rúmri viku. Mennirnir sex eru taldir
tilheyra hópi ísraelskra öfgamanna,
en talið er að morðið á palestínska
piltinum hafi verið framið í hefndar-
skyni vegna morða á þremur ísr-
aelskum unglingum um miðjan júní.
Yfirvöld í Palestínu hafa ekki hand-
tekið neinn vegna morðanna á ísr-
aelsku unglingunum.
Vilja vopnahlé við Ísrael
Morðin á unglingspiltunum fjór-
um hafa valdið mikilli togstreitu milli
Ísraels og Palestínu og brutust út
mótmæli í Jerúsalem eftir útför pal-
estínska piltsins, Mohammed Abu
Khadir. Luba Samri, talskona ísr-
aelsku lögreglunnar í borginni, segir
að kveikt hafi verið í dekkjum og
grjóti kastað að lögreglu. Alls slös-
uðust 13 lögreglumenn og 50 mót-
mælendur.
Hamas-samtökin hafa einnig stað-
ið fyrir eldflaugaárásum á íbúðar-
byggðir í Ísrael sem Ísraelar hafa
svarað með loftárásum á Gaza-
ströndina. Í kjölfarið óskuðu Hamas-
samtökin eftir vopnahlé og hafa lofað
að gera hlé á eldflaugaárásum sínum
hætti Ísrael loftárásum sínum á
Gaza.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, hefur biðlað til ráð-
herra sinna að gæta hófs í aðgerðum
sínum og tryggja að andrúmsloftið
milli Ísraels og Palestínu verði betra.
AFP
Mótmæli Lögreglumenn í Jerúsalem kljálst við mótmælendur en 13 lög-
reglumenn og 50 mótmælendur slösuðust eftir mótmælin í Jerúsalem.
Mótmæli í Jerúsalem
Spenna milli
Ísrael og Palsteínu
Úkraínski herinn lagði um helgina
undir sig borgina Slavíansk í aust-
urhluta Úkraínu. Aðskiln-
aðarsinnar, sem eru hliðhollir Rúss-
um, þurftu því að hörfa til
borgarinnar Donetsk en Slavíansk
var eitt helsta vígi aðskiln-
aðarsinna. Petro Porósjenkó, for-
seti Úkraínu, sagði að yfirtaka
úkraínskra hermanna á Slavíansk
markaði tímamót í átökum þeirra
við aðskilnaðarsinna. Forsetinn
segir þó fullnaðarsigur enn ekki
hafa unnist í batáttunni gegn að-
skilnaðarsinnum í austurhluta
landsins. Eftir sigur í forsetakosn-
ingum í vor sagði Porósjenkó það
mikilvægt að uppræta ástandið sem
ríkir í landinu sem fyrst og lofaði að
hafa hraðar hendur við verkið.
Úkraína mætti ekki breytast í Sóm-
alíu og ítrekaði hann að hryðju-
verkaógnir ætti að uppræta strax
en ekki eftir tvo til þrjá mánuði.
Aðskilnaðarsinnar hafa einnig
hörfað frá öðrum bæjum og svæð-
um nærri Slavíansk og hafa komið
saman í Donetsk þar sem þeir safna
kröftum og undirbúa sig undir frek-
ari átök við úkraínska herinn.
AFP
Hernaður Úkraínskir hermenn sóttu fram gegn aðskilnaðarsinnum við
borgina Slavíansk og náðu henni á sitt vald um helgina.
Herinn sækir fram
Úkraínski herinn lagði undir sig
borgina Slavíansk um helgina
Mannréttindalögfræðinginn Wa-
leed Abulkhair var í gær dæmdur í
15 ára fangelsi í Sádi-Arabíu fyrir
andóf og að hafa móðgað ráðamenn
þar í landi. Þar að auki verður
Abulkhair gert að greiða 6,2 millj-
ónir króna í sekt og má hann ekki
ferðast úr landi. Mannréttinda-
samtökin Amnesty International
hafa krafist þess að Abulkhair
verði látinn laus og segja dóminn
fyrst og fremst vera refsingu fyrir
baráttu hans fyrir mannréttindum.
SÁDI-ARABÍA
Mannréttindalög-
fræðingur í fangelsi