Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 17

Morgunblaðið - 07.07.2014, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Miðborgin Margir kvarta yfir því að erfitt sé að fá bílastæði í miðbæ Reykjavíkur en útlendingar hafa lausn við því og fjölmenna á skemmtiferðaskipum, sem alltaf er pláss fyrir. Ómar Margir þekkja dæmisöguna um frosk- inn sem ferjaði sporð- dreka á bakinu yfir ána þar sem grasið var grænna hinum megin. Hálfnaður yfir ána stakk sporðdrekinn froskinn og áður en eitrið náði yfirhöndinni spurði froskurinn af hverju sporðdrekinn hefði stungið. „Þú varst búinn að lofa mér að gera það ekki gegn fari yfir ána.“ Svar sporðdrekans er klassískt: „Ég stakk þig af því að það er eðli mitt.“ Með afstöðu ríkisstjórnar Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar til stöðu Íslands sem umsóknarríkis ESB mætti halda að dæmisagan um froskinn og sporðdrekann hefði ver- ið sérstaklega samin með Ísland í huga árið 2014. Ríkisstjórnin hegðar sér eins og froskur og syndir áfram með ESB-umsókn vinstristjórn- arinnar á bakinu. Flokks- og lands- fundarályktanir, stjórnarsáttmáli og fyrirheit um að halda landinu fyrir utan ESB virðist allt saman horfið. Engu er líkara en slá eigi Íslands- met Steingríms J. Sigfússonar í kosningasvikum og komast eigi í sögubækurnar fyrir að breyta sjálf- stæði þjóðarinnar í lítilfjörlegan sviga í sögu Íslands. Fólk, sem kennir sig við framsókn og sjálf- stæði, veitir fjármálahröppum og sósíalistum nútímans brautargengi við uppbyggingu nýs heimsveldis á meginlandinu, sem framfylgir sömu stefnu og þriðji International Leníns og bolsévíka frá 1919. En við hverju er að búast; froskar kunna ekki skil á mannamáli og kvaka bæði sjálf- stæði og framsókn á meðan sporð- drekinn reiðir broddinn til höggs. Fáir vinstrimenn hugsa sjálfstætt. Stöðug leit að foringjanum mikla veitir lífinu þann tilgang að deyja má fyrir það eitt að fá að hlýða skip- unum hans. Eins og þeir nánustu í innsta hring Hitlers dag- inn sem hann framdi sjálfsmorð. Á meðan stríðið er hilling morg- undagsins er kynt undir múgæsingu fyrir útópíu framtíðarinnar: paradís – Internationalen – þús- und ára ríkið. Máluð er mynd af ofgnótt matar og velmegunar, smjörið drýpur af hverju strái og hunang flæðir um engj- ar. En leiðin til fyr- irheitna landsins þreng- ist stöðugt og áður en á leiðarenda er komið hefur hunang breyst í blóð og smjörkúlur í sprengjur. Hvað hafa leiðtogar ESB gert sem gerir framtíð hins nýja heimsveldis meg- inlandsins svo frábrugðna öllum hin- um sem kostað hafa hundruð millj- óna manna lífið? Ekki verður aftur snúið með smíði heimsveldisins, sem miðar vel, þrátt fyrir allan klofninginn. Hluti ríkja Evrópusambandsins mun yfirgefa það og kjósa líf sjálfstæðra þjóða, annar hluti þess mun undirkasta sig heimsvaldastefnunni og verða hið sanna stórveldi. Fyrir stórveldið eru samningar ómerktir (einungis fjögur ríki af 28 fylgja Maastricht- samkomulaginu) og stjórnarskrár fjölmargra ríkja fótum troðnar til bjargar gjaldþrota óreiðumönnum. Lýðræðislega kjörnum fulltrúum er vikið frá og „eigin“ embættismenn settir við völd á meðan skuldir verð- bréfabraskara og fjárglæframanna eru færðar yfir á almenning. Mörg evruríkjanna eru rænd framtíð sinni og ástandið minnir illþyrmilega á kreppuna miklu. En hvað skiptir af- koma fjöldans máli þegar lifað er fyrir drauminn um fyrirheitna land- ið? Heimurinn hefur áður kynnst út- ópíum stórmenna á borð við Lenín, Stalín, Maó, Pol Pot og Hitler svo nokkur nöfn séu nefnd. Á vegferð sinni til hins nýja stór- veldis, sem ætlað er að skáka bæði Bandaríkjamönnum, Rússum og Kínverjum, skipta lögin ekki lengur neinu máli. Samningar stjórnmála- manna og auðjöfra hafa tekið við. Icesave í stað lögskyldu. Mafía í stað lýðræðislegs stjórnarfars. Rúss- neskt olígorkí í stað frjálsra við- skipta. Hnefinn í stað dómstóla. Verðlausir spilapeningar í stað al- vörugjaldeyris. Evrópa er á þröskuldi rökkurrík- isins, þar sem allt getur gerst. Verð- ur vítisvél Þjóðverja endurræst und- ir yfirskini varna gegn ágangi Pútíns í austri og hermanna heilaga stríðsins í suðri? Dansað er við Breta á meðan keppendur eru valdir í stórskotaliðið. Evrópa hýsir ekki tvo Pútína, ekki Alvöru-Pútín og Jöncker-Pútín samtímis. Á meðan íbúar á meginlandi Evr- ópu eru að venjast stigmögnun of- beldis í eigin garði og peningabólu- menn fylkja sér í ófriðardilka til að berjast um yfirráð markaðssvæða nær og fjær með aðstoð rétttrúaðra, heilaþveginna sósíaldemókrata og vinstrimanna nútímans ferjar frosk- ur lítillar þjóðar í norðri sporðdrek- ann áfram á bakinu og trúir því, að sporðdrekinn sé í eðli sínu ekki sporðdreki. Öll sjálfstæðisbarátta Jóns Sig- urðssonar er að veði. Öll barátta Ís- lendinga fyrir myndun lýðveldisins er að veði. Allur árangur landhelg- isstríðanna er að veði. Árangur Ice- save-baráttunnar er að veði. Alþingi, forsetaembættið, stjórnarskráin og lýðræðið er að veði. Fjöregg þjóð- arinnar er að veði. Sjálfstæði og framsókn, hvað þýða nú þessi orð aftur? Eftir Gústaf Adolf Skúlason »Heimurinn hefur áður kynnst útópíum stór- menna á borð við Lenín, Stalín, Maó, Pol Pot og Hitler svo nokkur nöfn séu nefnd. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fyrrv. ritari Smáfyr- irtækjabandalags Evrópu. Eðli sporðdrekans Fréttir berast um að bandaríska versl- unarkeðjan COSTCO vilji hasla sér völl hér á landi. Vonandi verða þau tíðindi til þess að vitræn umræða skapist um mat- vörumarkaðinn á Ís- landi, samkeppni, hreinleika vöru, gæði íslenskra afurða og fleira. Lengi hafa ákveðin fyrirtæki á matvælamarkaði haft mark- aðsráðandi stöðu á Íslandi og ráða því miklu um vöruverð og vörugæði. Margoft hefur verið reynt að hafa áhrif á lyfjafyr- irtæki til lækkunar lyfjaverðs – en lítið hefur áunnist. Þá hefur olíufélögunum verið legið á hálsi fyrir samráð og fákeppni. Ef umræða um hugsanlega komu COSTCO hingað til lands verð- ur þess valdandi að við tökum til á þessum sviðum er það vel. Hins vegar óttast undirrituð sjúkdómahættu af óheftum inn- flutningi á hráu kjöti frá lönd- um sem við vitum að meðhöndla dýr með allt öðrum hætti en gert er hér á landi. Vitað er að þau eru sumstaðar sprautuð með lyfjum til að auka afurð- irnar, m.a. með hormónum. Dæmi um búfjársjúkdóma hræða. Heilbrigði matvara Langlífi okkar Íslendinga er talið ekki síst koma til af fæðu okkar og umhverfi, hreinleika og gæðum. Nýverið birtist það álit virtra erlendra sérfræðinga að við værum með einstakt heilsufæði fólgið í fiskinum, kjötinu og mjólkinni. Heilsufæði sem hefur áhrif á að við lifum leng- ur en flestar aðr- ar þjóðir. Meðan ég var matvöru- kaupmaður og varaformaður Kaupmanna- samtakanna lagð- ist ég eindregið gegn sölu áfengis í matvöruversl- unum. Ég er enn sömu skoðunar. Þá velti ég vöngum yfir hvaða áhrif lausasölulyf í almennum hillum stórmarkaða myndu hafa. Það er gott ef umræðan um komu verslunarrisans COSTCO til landsins verður til þess að við kryfjum til mergjar mat- vöru- og olíumarkaðinn, sem og áfengissölu í almennum mat- vöruverslunum. Sama gildir um lyfjamarkaðinn. Jafnframt er til bóta að hófstillt en opinská um- ræða fari fram um innflutning á hráu kjöti og hugsanlegar af- leiðingar þess. Mikilvægast er að við mótum sjálf heildstæða verslunarstefnu byggða á reynslu okkar en með vitneskju 21. aldar í farteskinu, en látum ekki aðra stjórna för. Eftir Sigrúnu Magnúsdóttur »Nýverið birtist það álit virtra er- lendra sérfræðinga að við værum með einstakt heilsufæði fólgið í fiskinum, kjöt- inu og mjólkinni. Sigrún Magnúsdóttir Höfundur er formaður þingflokks Framsóknarflokksins. COSTCO – Kostir og gallar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.