Morgunblaðið - 07.07.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.07.2014, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 ✝ Birna KristínBjörnsdóttir fæddist í Reykja- vík 24. apríl 1937. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 28. júní 2014. Foreldrar henn- ar voru Björn Sveinsson, f. 20.11. 1900 í Reykjavík, d. 23.10. 1983, og Ágústa Sveinbjörg Ingv- arsdóttir, f. 22.8. 1904 í Reykjavík, d. 1.10. 1994. Systkini Birnu eru Guðný Unnur, f. 1927, d. 1939, Guð- rún Inga, f. 1928, Guðmunda, f. 1931, d. 1933, Sveinn Berg- Brynjar, f. 1992. 2) Berglind, f. 4.7. 1968, d. 8.9. 1972. 3) Kristján Björn, f. 2.12. 1970, maki hans Guðfinna Gunn- arsdóttir, f. 1.6. 1970, og eiga þau fjögur börn, Aron Gauta, f. 1995, Ástrós, f. 2003, Björn Henry, f. 2005, og Gunnar Alfreð, f. 2011. 4) Ásmundur Guðni, f. 1.7. 1975, hans sonur er Björn Darri, f. 2006. Birna ólst upp á Brávalla- götu 48 í Reykjavík og var hluti af stórum systkinahópi. Birna og Haraldur giftust árið 1960 og bjuggu lengst af í Vesturbænum og síðar á Seltjarnarnesi. Síðustu æviár Birnu bjuggu þau í Ársölum í Kópavogi. Birna starfaði lengi vel á Borgarspítalanum og endaði starfsævina á Hót- el Loftleiðum. Birna verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 7. júlí 2014, kl. 13. mann, f. 1932, d. 1932, Þorvaldur Bergmann, f. 1936, d. 2011, Nonný Unnur, f. 1938, d. 2009, Guðný Ása, f. 1942, Sveinjón, f. 1943, Ásta Drop- laug, f. 1945. Eiginmaður Birnu var Har- aldur Alfreð Krist- jánsson, f. 2.11. 1934. Börn þeirra eru: 1) Kol- brún, f. 5.8. 1960, maki hennar Kristmundur Harðarson, f. 21.10. 1964, d. 12.12. 2009. Eiga þau þrjú börn, Berglindi, f. 1986, Birnu, f. 1988, og Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Elsku Bidda mín, guð veri með þér og þakka þér fyrir allt og allt. Þinn Haraldur Kristjánsson (Halli). Elsku besta mamma mín. Heimsins besta mamma. Heimsins besta amma. Hvar gerir maður nú án þín? Þú sem hefur verið mín stoð og stytta í gegnum öll mín ár. Alltaf gat ég leitað til þín með allt og alltaf varstu tilbúin að aðstoða mig eða leiðbeina. En þó varstu aldrei að beina mér í neina sérstaka átt heldur leyfðir mér að finna minn veg og fyrir það er ég þér æv- inlega þakklátur. Það hefur gert mig að mér. En ég kvíði þó engu því ég veit að þú ert og verður alltaf með mér. Með okkur. Ég kveð þig sátt- ur með frið í hjarta því ég veit að þú ert á betri stað. Loks með Berglindi þinni sem þú hefur beðið lengi eftir að fá að sjá og faðma. Síðustu mánuðir hafa verið okkur öll- um erfiðir og þá sérstaklega þér en þú hefur loks fengið hvíld, frið og ró. En ég er þakklátur fyrir síðustu mán- uði, hef verið þér nærri, og tímarnir með Birni Darra hafa verið ómetanlegir, fyrir okkur öll. Hann að sjálfsögðu saknar ömmu sinnar mikið, enda var hún í miklu uppá- haldi og þið voruð svo sam- rýmd. Ég verð víst að drífa í því að mastera pönnukökurn- ar þínar því Bjössa fannst þær heimsins bestu pönnsur og ekki ætla ég að neita hon- um um það enda honum hjart- anlega sammála. Við söknum þín gríðarlega mikið. En ég gæti setið hér og skrifað enda- laust en ég þarf þess ekki. Ég get átt mín samtöl við þig hvar og hvenær sem er því ég veit þú ert hérna hjá mér. Hjá okk- ur. En það er huggun harmi gegn að ég veit að þú ert á góðum stað með öllum okkar nánustu sem fóru á undan. Við sjáumst svo á endanum aftur. Ég lofa þér að ég mun nýta tímann minn vel þangað til. Bless, mamma mín. Þangað til næst. Þinn Ásmundur (Ási). Elsku amma okkar, við skrifum þessa minningargrein með miklum trega og söknuði. Við erum ekki alveg tilbúin. Minningarnar eru óteljandi og við huggum okkur við þær á þessum erfiða tíma. Við vor- um alltaf svo velkomin heima hjá ykkur afa og við systkinin hikuðum ekki við að láta eins og heima hjá okkur (henda í eina grillaða samloku án þess að spyrja um leyfi og þess háttar). Við gátum setið hjá þér endalaust og spjallað um allt, hvort sem það var fótbolti, drama í Glæstum vonum eða eitthvað annað. Þú varst bara einhvern veginn með allt á hreinu. Þú sýndir okkur alltaf ómetanlegan stuðning í því sem við tókum okkur fyrir hendur og passaðir svo vel upp á okkur. Okkur langar að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Takk fyrir öll sunnudagslærin, lopapeysurn- ar, hafrakexin, pönnsurnar, heimsóknirnar, hláturinn, grátinn, hrósin, stuðninginn og allt hitt. Við elskum þig alltaf. Þín barnabörn, Berglind Ósk, Birna og Brynjar. Uppáhaldsmyndin mín í fjöl- skyldumyndasafninu á æsku- heimilinu var myndin af mömmu og Birnu móðursystur minni. Þær eru líklega í kring- um ellefu ára aldurinn á þess- ari fallegu mynd sem er tekin á ljósmyndastofu. Þær sitja á kollum, tvær samrýmdar syst- ur, snúa bökum saman og horfa brosandi framan í heim- inn. Þær eru dökkhærðar með liðað hár, vandlega greitt í slöngulokka í tilefni mynda- tökunnar. Þær eru eins og spegilmynd hvor af annarri, báðar í dökkgrænum ullarpils- um og hvítum stutterma blúss- um með breið laxableik arm- bönd rétt ofan við úlnliðinn. Þetta eru fríðar stúlkur, dökk- ar yfirlitum og svipsterkar, grannar og limalangar. Mamma er strax orðin hærri en Birna þótt hún væri rúm- lega árinu yngri enda var Birna heldur lægri í loftinu, alla tíð nett og soldið stelpuleg fannst mér. Hún átti það til að vera ströng eins og mamma og amma en alltaf fann maður mest fyrir hlýjunni og vissri viðkvæmni. Þær urðu svo samferða gegnum lífið systurnar og merkilega samstiga á köflum. Þær giftust báðar sjómönnum, áttu fyrstu börnin sín ungar og settust að í námunda við æsku- slóðir sínar í vesturbænum. Þær unnu líka saman á fleiri en einum vinnustað. Fyrst í fiski í Ísbirninum á unglings- árum. Síðan voru þær her- bergisþernur á Hótel Sögu tæplega þrítugar og báðar voru ritarar á slysadeild Borg- arspítalans árum saman. Við systurnar og Kolla dóttir Birnu vorum svo gjarnan í sumarvinnu á vinnustöðum Birna Kristín Björnsdóttir HINSTA KVEÐJA Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Blessuð sé minning þín, elsku mamma. Þín Kolbrún (Kolla). Okkar dýpstu ástarþakkir öll af hjarta færum þér. Fyrir allt sem okkur varstu, yndislega samleið hér. Drottinn launar, drottinn hefur dauðann sigrað, lífið skín. Hvar sem okkar liggja leiðir, lifir hjartkær minning þín. (Höf. ók.) Sofðu rótt, elsku amma Birna, og guð geymi þig. Kristján, Guðfinna, Aron Gauti, Ástrós, Björn Henry og Gunnar Alfreð. ✝ Pálína Hraun-dal var fædd á Lambalæk í Fljóts- hlíð 14. júlí 1918. Hún lést á elli- og hjúkranarheimilnu Grund 29. júní 2014. Hún var dóttir hjónanna Guðbjargar Gunn- arsdóttir, f. 2. nóvember 1888, d. 15. janúar 1973, og Sigurjóns Þórðarsonar, f. 22. ágúst 1891, d. 18. október 1971. Systkini hennar voru: Gunnar Þórarinn, f. 1914, d. 2003, Ingibjörg, f. 1916, d. 2001, Ingileif Þóra, f. 1917, d. 2003, Guðrún Ágústa, f. 1919, d. 2009, Sigurbjörg, f. 1921, d. 2009, Jónína Guðrún, f. 1923, d. 1966, Ólafur Gústaf, f. 1925, d. 1996, og Maríus, f. 1928, d. 1928. Hinn 24. apríl 1944 gift- ist Pálína Óskari Hraundal, f. 28. október 1915, d. 20. des- ember 2008. Óskar var sonur Sigurlaugar Guðmundsdóttur, ljósmóður, f. 23. febrúar 1885, d. 28. mars 1930, og Ásgeirs H.P. Hraundal, rithöfundar, f. 13. júní 1887, d. 5. maí 1965. Pálína og Óskar stofnuðu sitt fyrsta heimili að Lambalæk og síðar að Ásgarði í Hvolhreppi og byggðu þau svo hús sitt að Vallarbraut 12 á Hvolsvelli. 1973. c) Kristín, f. 27. nóv- ember 1974, börn hennar eru Þórunn Eydís og Lúðvík. d) Pálína Ósk, f. 8. mars 1982, maki Ísak Sigurjón Einarsson, f. 29. maí 1980, dóttir þeirra er Íris Antonía. 3) Sigurlaug Kristín, f. 28. júlí 1957, maki Tryggvi Jónasson, f. 22. mars 1951, börn þeirra eru: a) Jó- hanna, f. 28. apríl 1979, maki Albert Jóhannesson, f. 21. júlí 1978, dætur þeirra eru Guð- rún Pálína og Kristín Ósk. b) Óskar Hraundal, f. 4. sept- ember 1981, sambýliskona Sól- veig Katrín Jónsdóttir, f. 7. janúar 1975, synir þeirra eru Jón Gabríel og Mikael Hrafn. c) Tryggvi Kristmar, f. 14. nóvember 1987, maki Sif Haukdal Kjartansdóttir, f. 14. mars 1987. Fyrir átti Pálína soninn Þóri Yngva Snorrason, f. 14. ágúst 1940, maki Ragn- heiður Sigrún Pálsdóttir, f. 11. janúar 1945, sonur þeirra er Páll Ragnar, f. 25. janúar 1975, maki Brynja Rut Sigurð- ardóttir, f. 21. janúar 1976, börn þeirra eru Ágúst Þór, Helga Sigrún og Inga Mjöll. Pálína vann við saumaskap alltaf af og til en helgaði heimili sínu starfskrafta sína alla tíð og var sannkölluð hús- móðir. Útför Pálínu fer fram frá Gensáskirkju í dag, 7. júlí 2014, og hefst athöfnin kl. 11. Jarðsett verður í Gufu- neskirkjugarði. Til Reykjavíkur fluttu þau 1958 en frá árinu 1986 áttu þau sitt heim- ili að Hvassaleiti 56. Börn Pálínu og Óskars eru þrjú: 1) Sigrún Guð- björg, f. 21. sept- ember 1944, maki Björn Haf- steinsson, f. 6. maí 1948, d. 17. apríl 1999. Synir þeirra eru: a) Gunnar Þór, f. 29. júní 1963, d. 5. nóvember 2007, börn hans eru Elva Rut, sonur hennar er Elías Nökkvi, Stef- án Þór og Björn Anton. b) Jónas, f. 4. júní 1968, maki Berglind Helgadóttir, f. 10. október 1967, dætur þeirra eru Bergdís Rún, Kristjana Sif og Agnes Ylfa. c) Óskar Páll, f. 6. desember 1971, maki Sig- rún Helga Eiríksdóttir, f. 22. janúar 1971, synir þeirra Sig- urbjörn Andri og Bergþór Hrannar. 2) Lúðvík, f. 29. nóv- ember 1947, maki Þórunn Ingimarsdóttir, f. 6. janúar 1949. Þau skildu. Börn þeirra eru: a) Jónheiður Lína, f. 8. september 1967, maki Jóhann- es Freyr Baldursson, f. 1. mars 1964, börn þeirra eru Al- exander og Dóróthea. b) Bjarni Þór, f. 26. febrúar Amma mín og ein allra besta vinkona mín er dáin. Ég er svo sem búin að undirbúa mig fyrir þetta undanfarið þar sem hún var orðin ansi gömul. En ég held að það sé ekkert sem und- irbýr mann undir þessi tímamót þegar komið er að þeim. Við amma höfum alla tíð ver- ið nánar. Ég held ég hafi ekki verið mikið meira en tveggja ára þegar ég labbaði ein í fyrsta skipti yfir til hennar frá Stóra- gerði 10 yfir í Stóragerði 4. Síð- an þá hef ég verið meira og minna hjá henni að spjalla. Amma hefur alltaf verið trún- aðarvinur minn, ég hef getað leitað til hennar hvenær sem er, hvort sem mig vantaði ráðlegg- ingar vegna bræðra minna sem voru að angra mig, stráka- vandamála, meðgöngu eða lífs- ins almennt. Við gátum rætt allt. Stundirnar sem ég átti í Hvassaleitinu með ömmu og afa voru ómetanlegar. Mér leið stundum eins og við mamma værum einar í heiminum með þeim að spjalla um allt sem til var. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa kynnst ömmu jafnnáið og ég gerði, ég er ennþá þakk- látari fyrir það hvað hún og Al- bert kynntust vel. Hún tók hon- um strax opnum örmum, hló með mömmu að Prins Christian og sló á létta strengi með hon- um. Stelpurnar mínar tala mik- ið og oft um ömmu löngu Pálínu og ég er þakklátust fyrir það að þær skyldu kynnast henni og að hún skyldi hafa þau áhrif á þær sem hún gerði. Ég veit að amma er komin á betri stað, hún horfir núna á okkur með afa og þau munu vaka yfir okkur um ókomna tíð. Elsku amma, takk fyrir allt sem við áttum saman, ég og fólkið mitt munum alltaf geyma minningu okkar um þig. Ég kveð þig að sinni með laginu sem við sungum oft saman í eldhúsinu í Hvassaleitinu. Sjáumst seinna og syngjum aft- ur saman þá: Kvöldið er fagurt, sól er sest og sefur fugl á grein. Við skulum koma vina mín og vera saman ein. Ég þekki fagran lítinn lund, hjá læknum upp við foss. Þar sem að gróa gullin blóm, þú gefur heitan koss. Þú veist að öll mín innsta þrá er ástarkossinn þinn, héðan af aðeins yndi ég í örmum þínum finn. Ég leiði þig í lundinn minn, mín ljúfa, komdu nú. Jörðin þó eigi ótal blóm, mín eina rós ert þú. (Ingólfur Þorsteinsson) Þín Jóhanna (Hanna). Þá er hún amma Pálína farin frá okkur. Þar sem amma og afi Óskar voru alltaf búsett nærri heimili okkar urðu þau oftar en ekki þau sem fengu það verk- efni að passa okkur systkinin. Í stað þess að fara í dægradvöl eftir skóla fékk ég að hlaupa úr Hvassaleitisskóla niður í VR- húsið og fylgja ömmu og afa í þeirra daglegu erindum. Vana- lega var kíkt með afa í kjall- arann til að laga eitthvert ljós eða annað raftæki á meðan amma útbjó matarbita; brauð með osti og agúrku var ég van- ur að fá og oftar en ekki átti amma súkkulaðiköku í eftirrétt með sínu einstaka súkku- laðikremi. Alveg frá fæðingu höfum við amma verið miklir vinir. Það er til að mynda frá henni komið að alla tíð hafi ég verið þekktur undir nafninu Kibbi meðal vina og ættingja. Eftir að ég komst á tánings- árin var ég svo heppinn að fá alltaf að fylgja mömmu í kvöld- kaffi til ömmu og afa þar sem talað var um gömlu tímana og lífið í Fljótshlíðinni. Amma gat alltaf sagt skemmtilegar sögur um fólkið í kringum sig og lífið á Lambalæk, oft langt fram eft- ir kvöldi. Það er með miklum söknuði sem ég kveð þig, elsku amma. Þið afi Óskar voruð alla tíð fyr- ir mér sannar fyrirmyndir og miklir vinir. Ég vil ljúka þessari kveðju með stuttum textabút sem við sungum svo oft saman, og þú settir þín skemmtilegu einkenni á: „Ég lonníetturnar lét á nefið svo lesið gæti ég frá þér bréfið. Ég las það oft og leiddist aldrei því lifað gæti ég ei án þín.“ Þinn Tryggvi Kristmar Tryggvason (Kibbi). Elsku amma Pálína. Fyrstu minningar mínar um ykkur afa eru úr Stóragerði 4, en þar lék ég mér oft með afa að kubba sundlaug. Svo þurftum við að hætta því það var komið kaffi, oft var það skúffukakan fræga með aukasúkkulaði. Þá bjugg- um við Jóhanna, mamma og pabbi í næstu blokk fyrir ofan ykkur afa í Stóragerði 10, sem útskýrir hversu tíður gestur ég var. Þegar ég var fjögurra ára fluttum við fjölskyldan í Stóra- gerði 27 sem var langt í burtu á þeim tíma í mínum huga. Samt rofnuðu tengslin ekki, og há- punktur þess var í eitt skipti að ég tók þá ákvörðun að hlaupa á undan ykkur heim svo að ég þyrfti ekki að kveðja, en áttaði mig á því þegar ég kom á tröppurnar hjá ykkur að ég var á sokkunum einum svo ég ákvað að hlaupa aftur heim til mín að ná í skó. Það sem stend- ur upp úr í mínum huga við það er sú minning þegar ég tiplaði yfir hvítu strikin á gangbraut- inni sannfærður um að ef ég kæmi ekki við svörtu strikin væri allt í lagi að fara einn yfir umferðargötu, en áður en að gangbrautinni var komið mætti ég ykkur afa og fékk rólynd- isútskýringar um að maður færi ekki yfir umferðargötu nema í fylgd fullorðinna. Þann- ig er minningin; ef við Jóhanna stóra systir þurftum á fé- lagsskap að halda stóðuð þið afi okkur næst. Þar af leiðandi á ég mínar bestu æskuminn- ingar frá þeim tímum þegar við systkinin vorum hjá ykkur er foreldrar okkar voru erlend- is; þá lést þú ljós þitt skína. Þú munt alltaf eiga þinn stað í mínu hjarta. En þegar ég geri allar stundir okkar upp er mér kærast hversu vel þú kynntist báðum sonum mínum; Jóni Gabríel og Mikael Hrafni. Þið afi pössuðuð Jón oft þegar þið bjugguð í Hvassaleitinu og þar mynduðust sterk tengsl sem ég er þakklátur fyrir. Þótt þú hafir aldrei passað yngri son minn, hann Mikael Hrafn, sem verður fjögurra ára nú í júlí, þá fannst mér hann með sakleysi sínu ná fram öllum þeim kærleik sem þú veittir okkur öllum allt fram að síð- asta andardrætti með við- brögðum sínum þegar ég, tár- votur og brotinn, sagði honum að nú væri amma langa dáin og farin til himna til afa langa. Þá sagði Mikael hughreyst- andi: Amma langa er vinur minn. Þar hafði hann rétt fyrir sér, þú varst besta vinkona okkar allra og kærleikur þinn mun vera mér veganesti um ókomna tíð. Ég hitti þig síðast 15. júní sl., þá hlógum við saman, kitl- uðum hvort annað, strákana á víxl og gleymdum öll stað og stund í miklum gleðiham. Þá hefði ég ekki getað ímyndað mér það að ég sæti hér, rúm- um tveimur vikum síðar, með tárin niður á kinnar, að skrifa þér minningarbréf. Eftir kveðjustund okkar hefur setið í mér hæka sem ég orti við Pálína Hraundal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.