Morgunblaðið - 07.07.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.07.2014, Blaðsíða 23
forseti JC á árunum 1991-1992 og hefur leiðbeint á fjöldamörgum nám- skeiðum. Sigrún Inga er búin að vera sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum frá árinu 1991, byrjaði í Reykjavík, var í Vinalínunni þar og er heimsóknar- vinur í Eyjum. Hún sat í bæjarstjórn Vestmanna- eyja frá 1998-2002 og var m.a. forseti bæjarstjórnar þann tíma. Sigrún Inga er búin að vera í Kven- félaginu Líkn frá árinu 2000 og í Odd- fellow frá árinu 2001 og hefur verið formaður sóknarnefndar Landa- kirkju frá árinu 2011. „Þjálfunina í fé- lagsmálum fékk ég í JC, bæði í ræðu- mennsku og nefndarstörfum, og þetta skilar sér enn þann dag í dag.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar Ingu er Gunnar K. Gunnarsson, f. 21.2. 1950, forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans: Gunnar Kristinsson, f. 5.10. 1917, d. 21.10. 2004, verslunarmaður í Reykjavík, og María Tryggvadóttir, f. 17.11. 1917, d. 28.4. 2007, tann- smiður í Reykjavík. Börn Sigrúnar Ingu og Gunnars eru María Kristín Gunnarsdóttir, f. 28.8. 1974, ráðgjafi á vörumerkjasviði hjá Árnason Faktor, búsett í Reykja- vík. Maki: Atli Þór Þórsson versl- unarmaður. Barnabörn: Eydís Rún Arnardóttir, f. 3.7. 1998, Birta Líf Atladóttir, f. 14.3. 1998, og Sigrún Fjóla Atladóttir, f. 16.11. 2005; Gunn- ar Geir Gunnarsson, f. 18.8. 1976, framkvæmdastjóri hjá Samgöngu- stofu, búsettur í Reykjavík. Maki: Fríða Björk Arnardóttir skrifstofu- maður. Barnabörn: Kristinn Örn Gunnarsson, f. 26.9. 2004, og María Dís Gunnarsdóttir, f. 9.10. 2008; Inga Lilý Gunnarsdóttir, f. 7.9. 1977, lyfja- fræðingur og framkvæmdastjóri hjá Actavis, búsett í Tókýó, Japan. Maki: Hilmar Þórlindsson íþróttakennari. Barnabörn: Þórunn María Hilm- arsdóttir, f. 6.2. 2005 og Hanna Lilý Hilmarsdóttir, f. 22.5. 2008. Systkini Sigrúnar Ingu eru Guð- laugur Sigurgeirsson, f. 16.7. 1956, framkvæmdastjóri hjá Landsneti, búsettur í Garðabæ, og Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, f. 16.7. 1965, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Næringarstofu Háskóla Íslands, búsett á Seltjarnarnesi. Foreldrar Sigrúnar Ingu: Sigur- geir Jónasson, f. 19.9. 1934, ljósmynd- ari í Vestmannaeyjum, og Jakobína Guðlaugsdóttir, f. 30.3. 1936, d. 4.2. 2004, umboðsmaður Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum.Hjónin Stödd á Kanaríeyjum á 40 ára brúðkaupsafmælinu í mars sl. Úr frændgarði Sigrúnar Ingu Sigurgeirsdóttur Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir Ingibjörg Rannveig Mathiesen verslunarmaður í Eyjum Jón Hinriksson kaupfélagsstjóri í Eyjum Sigurlaug Jónsdóttir húsfreyja í Eyjum Hinrik Jónsson sýslumaður í Stykkishólmi Guðlaugur Gíslason fyrrv. bæjarstjóri í Eyjum og alþingismaður Jakobína Guðlaugsdóttir fyrrv. umboðsmaður Morgunblaðsins í Eyjum Þórunn Jakobína Hafliðadóttir húsfreyja í Hafnarfirði, Eyjum og Rvík Gísli Geirmundsson smiður og útgerðarmaður á Stafnesi og í Eyjum Guðrún Jónasdóttir húsfreyja í Rvík Ingvar Sveinsson steinsmiður í Rvík Guðrún Kristín Ingvarsdóttir húsfreyja í Eyjum Jónas Sigurðsson loftskeytamaður í Eyjum Stefanía Sigurðardóttir verslunarmaður á Akranesi Jónína Guðnadóttir leirlistakona í Hafnarfirði Sigurgeir Jónasson ljósmyndari í Eyjum Guðrún Jónasdóttir skrifstofumaður í Reykjavík Jónas Þór Steinarss. fyrrv. framkvæmda- stjóri Bílgreina- sambandsins Ingunn Jónasdóttir húsfreyja í Eyjum Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Eyjum ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2014 Katrín Thoroddsen, læknir ogalþingismaður, var fædd 7.júlí 1896 á Ísafirði. For- eldrar hennar voru Skúli ritstjóri og alþingismaður Thoroddsen, sonur Jóns sýslumanns og skálds Thor- oddsens, og kona hans, Theodóra Thoroddsen, dóttir Guðmundar pró- fasts og alþingismanns á Kvenna- brekku Einarssonar. Katrín lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík árið 1915 og læknaprófi við Háskóla Ís- lands 1921. Við framhaldsnám í sjúkrahúsum í Noregi og Þýzkalandi var hún á árunum 1921–1923 og fór síðar margar námsferðir til útlanda, einkum til að kynna sér heilsugæslu og heilsuvernd barna. Árin 1924- 1926 var hún héraðslæknir í Flateyjarhéraði, síðan starfandi læknir í Reykjavík, viðurkenndur sérfræðingur í barnasjúkdómum 1927, læknir ungbarnaverndar Líkn- ar, síðar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur 1927-1940, yfirlæknir þar 1940-1955 og loks yfirlæknir barnadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur 1955-1961. Katrín Thoroddsen tók sæti vara- þingmanns á Alþingi haustið 1945 en var síðan alþingismaður á árunum 1946-1949 fyrir Sósíalistaflokkinn. Hún sat í undirbúningsnefnd Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur frá 1946 og í undirbúningsnefnd Bæjar- spítala Reykjavíkur frá 1949, en lagði niður störf í þeirri nefnd. Hún var í bæjarstjórn Reykjavíkur 1950- 1954 og átti sæti í barnaverndar- nefnd um skeið. Katrín Thoroddsen helgaði ævi- starf sitt fyrst og fremst lækningum og líknarmálum. Þó að hún hafi ekki verið fyrsti kvenlæknirinn sem út- skrifaðist frá HÍ varð hún fyrst kvenna til að stunda læknisstörf í Reykjavík. Hún varð vinsæll læknir, fórnfús og ósérhlífin, umhyggjusöm börnum og öllum smælingjum og ótrauð í baráttu fyrir umbótum í heilbrigðis- og mannúðarmálum. Á Alþingi átti hún sæti í heilbrigðis- og félagsmálanefnd. Katrín var ógift og barnlaus. Hún lést 11. maí 1970. Merkir Íslendingar Katrín Thoroddsen 85 ára Elsa Jóhannesdóttir Guðmundur Jóhannsson Hrefna Björnsdóttir Hulda Haraldsdóttir Margrét Guðnadóttir Valborg Þorvaldsdóttir Þórdís Bergsdóttir Þröstur Sigtryggsson 80 ára Gerður Ólafsdóttir Halldóra Þórhallsdóttir Ingveldur Ásta Hjartardóttir Jóhanna M. Kristjánsdóttir Kolbrún Gunnlaugsdóttir Kristín Guðmundsdóttir Sif Edith S. Jóhannesdóttir Sigríður Elíasdóttir Sigríður Kristjánsdóttir Sigurjón Jónsson Sólveig Jónsdóttir Valdís Ingibjörg Jónsdóttir 75 ára Bjarni Snæbjörnsson Hallgrímur Guðmannsson Rúnar Sveinsson Sveinbjörn Gunnarsson 70 ára Elínborg Ásmundsdóttir Emil Ágústsson Halldóra Júlíusdóttir Hulda Gunnlaugsdóttir Ingunn Áskelsdóttir Marta Sigríður Bjarnadóttir Þorvaldur Guðnason 60 ára Eggert Þór Andrésson Erla Gunnarsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Katrín A. Magnúsdóttir Ólafía Bjarnadóttir Ólafur Stefán Þorbergsson Sabína Jónsdóttir Sigurður Gunnar Sveinsson Svandís Ósk Óskarsdóttir Þóra Guðný Gunnarsdóttir 50 ára Agnes Charlotte Kruger Anna Dóra Pálsdóttir Ása Þorkelsdóttir Baldvin Már Magnússon Esther Björk Tryggvadóttir Friðsteinn G. Stefánsson Haukur Sigurjónsson Katrín Guðjónsdóttir Lára V. Albertsdóttir Renata Starobrat-Wróbel Sunna Davíðsdóttir Valentina Kay Viðar Sigurjónsson Þorsteinn Þorsteinsson 40 ára Arnar Þór Jónsson Bergur Reynisson Brynjar Snær Kristjánsson Hekla Guðmundsdóttir Janis Niedra Kristín Ösp Jónsdóttir Kristján Ingi Hjörvarsson Kristján Örn Sævarsson Skarphéðinn J. Karlsson 30 ára Dalma Judit E. Kovacs Davíð Helgason Ernest Fedor Jolanta Renata Stefanko Jón Kristinsson Lárus Baldur Atlason Margrét Matthíasdóttir Penpidchaya Thaiprasert Sebastian Józef Zmarzly Sigurður Arent Jónsson Sigurður Finnbogason Simon Morelli Urszula Elzbieta Rogalska Valgeir Þorsteinsson Til hamingju með daginn 40 ára Linda býr á Akur- eyri og er áhugaljósmynd- ari. Maki: Guðni Konráðsson, f. 1971, kjötiðnaðarmaður hjá Kjarnafæði. Börn: Kolbrún María, f. 1990, Dagur Elí, f. 1995, Logi Steinn, f. 2006, Leon Máni, f. 2007, og stjúp- sonur Helgi Freyr, f. 1991. Foreldrar: Ólafur Haukur Óskarsson, f. 1951, og Hrefna Harðardóttir, f. 1954. Linda Ólafsdóttir 30 ára Tinna er Reykvík- ingur og hefur starfað sem ballettkennari en er í fæðingarorlofi. Maki: Guðjón Kristinn Ólafsson, f. 1978, nudd- ari og þjálfar frjálsar íþróttir. Sonur: Árni Kristinn, f. 2014. Foreldrar: Ágúst Einars- son, f. 1959, prestur í Svíþjóð, og Hanna Valdís Guðmundsdóttir, f. 1962, píanókennari í Reykjavík. Tinna Ágústsdóttir 40 ára Pálína er Kópa- vogsbúi en býr í Reykjavík og er grunnskólakennari í Foldaskóla í Grafarvogi. Maki: Brynjólfur Eyjólfs- son, f. 1972, markaðsstjóri hjá HB Granda. Börn: Eyjólfur Brynjar, f. 1997, Bjarki Dagur, f. 2001, Marías Bergsveinn, f. 2003, og Sandra Bassí, f. 2008. Foreldrar: Þorsteinn Christensen, f. 1951, og Finnborg Scheving, f. 1952. Pálína Þorsteinsdóttir Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Opið: 8 :00 - 18 :00 mánud .– fimm tud., 8:00 - 1 7:00 fö stud, bílalakk frá þýska fyrirtækinu Ekki bara fyrir fagmenn líka fyrir þig Eigum einnig sprautukönnur, réttingahamra, einnota hanska og pensla. HÁGÆÐA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.