Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 6. J Ú L Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 165. tölublað 102. árgangur
SKUGGABALDRAR
Á TÓNLISTAR-
HÁTÍÐ
VANN Á LEIKSKÓLA Í
SUÐUR-AFRÍKU
ÍSLENSKIR RAF-
TÓNLISTARMENN Á
FLAKKI UM LANDIÐ
VIGFÚS BLÆR 10 ÚTITÓNLEIKAR OG FLEIRA FLOTT 31DANSAÐ FRAM Á NÓTT 30
Skoska liðið Celtic hafði betur gegn Íslandsmeistur-
um KR í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evr-
ópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Úrslitin urðu 1:0 og
kom markið í Frostaskjólinu undir lok leiksins. Fjöl-
margir stuðningsmenn Celtic voru á leiknum og m.a.
Jóhannes Eðvaldsson, fyrrverandi leikmaður Celtic
og fyrirliði íslenska landsliðsins. Hann er á minni
myndinni með gömlum félögum sínum úr Val, þeim
Halldóri Einarssyni og Þorsteini Sívertsen frá vinstri
talið. Á þeirri stærri eru Anthony Stokes og Emil
Atlason, bróðursonur Jóhannesar. » Íþróttir
Sigurmark í lokin
Celtic vann KR í baráttuleik í Frostaskjólinu
Morgunblaðið/Eggert
Kjartan Kjartansson
Sigurður Bogi Sævarsson
Áfengisvandi er algengur á meðal eldri
sjúklinga sjúkrahúsa en hann er oft dulinn
þar sem læknar eru ekki nógu glöggir að
greina hann og sjúklingurinn sjálfur og að-
standendur hans
dylja hann oft eða
gera lítið úr hon-
um. „Þetta gerir
oft vandann erfið-
ari og viðbrögðin
verða þá kannski
ekki eins góð og
vera ætti,“ segir
Þórarinn Tyrfings-
son, yfirlæknir á
Vogi.
Fólk í aldurs-
hópnum 55 ára og
eldri sækir í aukn-
um mæli í meðferð
og telur Þórarinn
að það sé vegna
aukinnar drykkju þessa hóps. Sérstaklega
hafi konur á þessum aldri aukið áfengis-
neyslu sína frá því sem áður var.
Arna Guðmundsdóttir, sérfræðilæknir
við lyflækningasvið Landspítalans í Foss-
vogi, segir að þeir tímar hafi komið að rekja
hafi mátt helming innlagna sjúklinga á
deildina til áfengisneyslu.
„Sjúklingar eru kannski lagðir inn vegna
mjaðmabrots en sé málið krufið betur er
ástæðan hugsanlega sú að viðkomandi var
drukkinn þegar hann datt og brotnaði.“
Bæði Arna og Þórarinn lýsa efasemdum
um að frelsi í áfengisverslun verði aukið en
frumvarp um það verður lagt fyrir Alþingi í
haust. Þórarinn segir að aukin áfengis-
neysla muni leiða til aukins kostnaðar fyrir
skattborgara við það að grípa inn í alvarlegt
heilbrigðisástand fullorðins fólks. »6
Dulinn
áfengis-
vandi
Eldra fólk sækir
meira í meðferð
Meðferð
» Árið 1995 leit-
uðu 150 ein-
staklingar 55 ára
og eldri sér með-
ferðar á Vogi. Í
fyrra voru þeir
260.
» Það er fjölgun
um 73% á tæp-
um tuttugu ár-
um.
Dagur Brynjólfsson heldur úti
gróðurhúsi í Reykholti í Bisk-
upstungum, þar sem hann notar
vatn úr fiskabúrum til að búa til
köfnunarefni sem plöntur þurfa til
að vaxa. Hann ræktar meðal annars
litlar melónur og okrur, en hann
hóf að prófa sig áfram með sameldi
árið 2011. »4
Notar fiska til
að rækta plöntur
Útlendingastofnun hefur það sem
af er þessu ári fengið 71 umsókn
um hæli hér á landi. Það er nokkru
minna en á sama tíma á síðasta ári,
þegar 111 umsóknir höfðu borist.
Núna eru umsóknirnar hins vegar
frá helmingi fleiri ríkjum en í fyrra
og hefur ríkisfangið aldrei verið
fjölbreyttara, samkvæmt upplýs-
ingum frá Útlendingastofnun. »12
Hælisleitendur frá
fleiri ríkjum en áður
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísitala kaupmáttar launa hefur ver-
ið á stöðugri uppleið á árinu og hefur
hún hækkað mikið frá því að kaup-
máttur var minnstur árið 2010. Gildi
hennar í maí sl. hafði aðeins einu
sinni verið hærra í þessum mánuði á
öldinni, nefnilega árið 2007.
Arnar Ingi Jónsson, sérfræðingur
á hagfræðideild Landsbankans, seg-
ir þessa þróun sýna að kjarasamn-
ingar í vor hafi aukið kaupmáttinn.
„Verðbólgustigið hefur mikil áhrif
á kaupmátt launa. Verðbólgan hefur
verið mjög lítil að undanförnu. Það
hefur þau áhrif að allar launahækk-
anir í þjóðfélaginu skila sér í kaup-
mætti. Launin brenna ekki upp í
verðbólgu,“ segir Arnar Ingi.
Vinnustundum að fjölga
Þótt vísitalan hafi hækkað er
kaupmáttur ráðstöfunartekna ekki
jafn mikill og til dæmis árin 2007 og
2008 og er það m.a. vegna skatta-
hækkana og færri vinnustunda.
Eftirspurn eftir vinnuafli er nú að
aukast og vinnustundum að fjölga.
Vignir Jónsson, sérfræðingur hjá
fjármálafyrirtækinu Analytica, segir
að þrátt fyrir að kaupmáttur sé mik-
ill í sögulegu samhengi sé kaupmátt-
ur í erlendri mynt ekki endilega mik-
ill þar sem raungengi krónu er
ennþá sögulega lágt.
„Það kann að útskýra hvers vegna
Íslendingar telja sig hafa lítinn
kaupmátt erlendis,“ segir Vignir.
Kaupmáttur að styrkjast
Vísitala kaupmáttar launa er á uppleið Vísitalan í maí nálgaðist gildi frá 2007
Sérfræðingur telur þróunina í ár sýna að kjarasamningar hafi aukið kaupmátt
Hækkun á árinu
» Vístala kaupmáttar launa
stóð í 115,5 stigum í janúar sl.
en var 117 stig í maí.
» Hún var 111,7 stig í janúar
2013 og 113,8 stig í maí það ár.
» Hæsta gildi hennar á þess-
ari öld var náð í janúar 2008,
þá fór vísitalan í 120,2 stig.
MLaunafólk ber »4
Bandaríska iðnfyrirtækið Silicor
Materials tilkynnti formlega í gær
að fyrsta sólarkísilverksmiðja þess
af fullri stærð yrði staðsett á Grund-
artanga. Staðfest
er að Arionbanki
muni veita lán
fyrir byggingu
fyrsta hluta verk-
smiðjunnar og að
Landsvirkjun og
Orka náttúrunn-
ar, dótturfélag
Orkuveitu
Reykjavíkur,
muni sjá henni fyrir raforku.
Fyrirtækið áætlar að verksmiðjan
geti skapað allt að fjögur hundruð
full störf auk þess sem um hundrað
manns gætu unnið við byggingu
hennar. Verksmiðjan á að geta fram-
leitt allt að 19.000 tonn af sólarkísli á
ári, að því er kemur fram í tilkynn-
ingu fyrirtækisins.
Að sögn Davíðs Stefánssonar, ráð-
gjafa Silicor Materials hér, er gert
ráð fyrir að framkvæmdir við fyrsta
áfanga verksmiðjunnar hefjist strax
í haust. Stefnt sé að því að hún verði
komin í fullan rekstur sumarið 2017.
Innviðir á heimsmælikvarða
Í tilkynningunni sem Silicor Mat-
erials sendi frá sér segir Theresa
Jester, forstjóri fyrirtækisins, að
nokkrar ástæður hafi verið fyrir því
að Ísland hafi verið fremst á meðal
mögulegra staða fyrir verksmiðjuna.
„Fyrir utan að hafa innviði í fram-
leiðslu og flutningi á heims-
mælikvarða sér landið fyrir ódýrri
endurnýjanlegri orku sem gerir Sili-
cor kleift að framleiða eina raun-
verulega „græna“ kísilinn í heim-
inum,“ segir hún. kjartan@mbl.is
Silicor
staðfestir
verksmiðju
Byrjað í haust
Allt að 400 störf
Theresa Jester