Morgunblaðið - 16.07.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Töluvert er um að óskað sé eftir að
breyta landnotkun jarða í Rangár-
þingi ytra úr landbúnaðarsvæði í frí-
stundasvæði fyrir sumarhús. Auglýs-
ing um ýmsar breytingar á aðal- og
deiliskipulagi í sveitarfélaginu var
birt í gær.
Að sögn Birgis Haraldssonar,
skipulags- og byggingarfulltrúa
Rangárþings ytra, hafa byggingar-
framkvæmdir haldist stöðugar.
„Það er alltaf eitthvað sem bætist
við. Ég veit ekki hvort það er hægt að
tala um aukningu á milli ára en það er
jafnt og þétt rennsli í byggingum,“
segir hann.
Algengt er að sumarhúsaeigendur
breyti og stækki hús sín um þessar
mundir en einnig færist í aukana að
þeir bæti við gesta- og aðstöðuhús-
um. „Það er bara til að geta tekið á
móti fjölskyldunni og eitthvað svo-
leiðis. Þar sem skilmálar skipulags
leyfa það þá er það gert,“ segir hann.
Greina breytingu
Í Rangárþingi eystra er byrjað að
bera á skorti á lóðum undir sumarhús
en batamerki eru í framkvæmdum og
uppbyggingu gistirýma, að mati Ant-
ons Kára Halldórssonar, byggingar-
og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins.
„Það hefur lítið verið undanfarin ár
um stór frístundasvæði en það er allt-
af eitt og eitt hús og svo er verið að
skipuleggja í kringum ferðaþjón-
ustuna. Það er orðinn skortur á sum-
arhúsalóðum. Þau svæði sem voru
búin til fyrir hrun eru mikið til orðin
full,“ segir hann.
Nú segir Anton hins vegar að
greina megi mikla breytingu. Upp-
byggingin sé mest tengd ferðaþjón-
ustu við erlenda ferðamenn en einnig
sé talsvert af sumarhúsum í bygg-
ingu.
„Sum hver voru stopp við hrunið
en eru að fara af stað aftur. Það er
heldur meiri kraftur í þessu,“ segir
hann.
Ekki mikil hreyfing
Í Bláskógabyggð er töluvert rými
fyrir frístundasvæði í gildandi skipu-
lagi en ekkert stórt er í gangi þar að
sögn Valtýs Valtýssonar sveitar-
stjóra. Ferðaþjónustufyrirtæki séu
hins vegar að bæta við sig gistirým-
um með þyngri ferðamannastraumi.
„Það halda alltaf áfram einhverjar
byggingar á skipulögðum svæðum en
það er ekki mikið í gangi í nýjum
skipulagsáætlunum. Það hægðist
heilmikið á við hrunið og hefur lítið
hreyfst,“ segir Valtýr.
Bætist við sumarbústaði
Margir óska eftir að breyta notkun úr landbúnaði í frístundasvæði á Suðurlandi
Framkvæmdir víða við sumarhús Ber á skorti á lóðum í Rangárþingi eystra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppbygging Á Hvolsvelli er einnig íbúðarhúsnæði á átta stöðum í byggingu.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Þær eru bara almennt séð góðar,“
svarar Guðrún Gauksdóttir, formað-
ur Æðarræktarfélags Íslands, spurð
um dúnheimtur æðarbænda í sumar.
„Einhvers staðar var blautt, bæði
fyrir sunnan og svo heyrði ég líka að
á Breiðafirðinum og fyrir austan
hefði verið svolítið blautt framan af.
Og það hefur alltaf áhrif. En svona
almennt er fólk bara ánægt,“ segir
hún.
Guðrún segir erfitt á þessum tíma
að bera árið saman við fyrri ár en
heildaryfirsýn fáist ekki fyrr en á
aðalfundi félagsins í ágúst. Hún seg-
ist alltént ekki hafa heyrt af neinum
umtalsverðum breytingum. „Stund-
um er óvenjulélegt eða óvenjugott á
einstaka bæjum en það er nú bara
tilfallandi. Maður fær þær fréttir á
aðalfundinum,“ segir hún.
Þrátt fyrir ágætar heimtur hefur
vargurinn gert æðarbændum lífið
leitt, að sögn Guðrúnar. „Maður
heyrir mikið kvartað undan refnum
og mikil vandræði á mörgum stöð-
um. Svo er sílamávur og svæðis-
bundið hrafn,“ segir hún. Þá segist
hún hafa haft veður af því að mink
hafi fjölgað á a.m.k. einum stað en
stofninn hafi verið í niðursveiflu og
sums staðar verið unnið markvisst
að því að eyða honum.
Varp á um 400 jörðum
Útflutningstekjur af æðardúni
námu 612,6 milljónum króna í fyrra,
þegar 3,2 tonn af dúni voru flutt úr
landi, samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands. Eitthvert æðar-
varp er á alls um 400 jörðum á land-
inu en 80% alls dúns sem seldur er í
heiminum koma frá Íslandi.
Bændur fá í kringum 170 þúsund
krónur fyrir kílóið af æðardúni en
það samanstendur af um það bil 60
hreiðrum.
Dúnheimtur æðarbænda
almennt góðar í sumar
Æðardúnn Stærstur hluti dúnsins
er seldur til Japans og Þýskalands.
Vætutíðin ein-
hverjum erfið
Dúntekja Guðrún G. Þórarinsdóttir, Fróði, Þorvarður Snær og Kristján Sölvi við leit í Hvallátrum í sumar.
Ljósmynd/Kristján Þórðarson
Guðni Einarsson
Skúli Halldórsson
Veiðar á hreintörfum hófust í gær og
féllu fyrstu tarfarnir laust eftir mið-
nætti. Þeir voru veiddir við Teigar-
horn og í Sandfelli. Síðar um nóttina
voru veiddir tveir tarfar í Búlands-
tindi og einn í Hólmatindi. Þoka var
að stríða veiðimönnum á fjörðunum
eftir miðnættið en annars staðar
viðraði vel til veiða. Alls tilkynntu
fjórtán leiðsögumenn sig til veiða og
ætluðu þeir að fylgja samtals 24
veiðimönnum fyrsta sólarhring
hreindýraveiðanna.
Jóhann Guttormur Gunnarsson,
umsjónarmaður hreindýraveiða hjá
Umhverfisstofnun, segir að umsókn-
ir um veiðileyfi fyrir tímabilið í ár
hafi reynst vera fjölmargar. „Um-
sóknirnar voru um það bil þremur
eða fjórum sinnum fleiri en leyfin
sem veitt eru,“ segir Jóhann.
Leyft er að veiða 1.277 hreindýr á
þessu ári, 657 kýr og 620 tarfa, og er
það fjölgun um 48 dýr frá því í fyrra.
Veiðar á hreinkúm hefjast 1. ágúst
og lýkur veiðitímabilinu 15. septem-
ber. Umhverfisstofnun getur þó
lengt veiðitíma kúa til 20. september.
Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir
og miðast tarfaveiðarnar því við
tveggja vetra og eldri tarfa. Þá er
bannað að veiða hreinkálfa.
Veiðar á hrein-
törfum byrjaðar
Umsóknir margfalt fleiri en veitt leyfi
Ljósmynd/Friðrik Tryggvason
Á beit Hreindýrahjörð sést hér á
beit að vetrarlagi við Kárahnjúka.
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía GWalthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
„...Virkilega vönduð, lipur
og góð þjónusta“
Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha,
til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann
fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr
að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni.
Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst
og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha.
Kv. Áslaug og Benni
820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat
Ekki sækjast allir eftir því að
breyta landnotkun á land-
búnaðarsvæði í frístundasvæði
í Rangárþingi ytra, sumir fal-
ast eftir því að gera frí-
stundasvæði með sumarhúsi
aftur að landbúnaðarsvæði í
skipulagi.
„Það er ofboðslega mikið
um það að fólk sem hefur
keypt sér sumarhús og er búið
að vera hérna vilji bara setjast
hérna að,“ segir Birgir Har-
aldsson, skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi Rangárþings ytra.
Lög kveða á um að ekki
megi skrá lögheimili á frí-
stundasvæði. Því þarf að
breyta aðalskipulagi til að fólk
geti skráð sig til heimilis þar.
Birgir segir að þarna sé um
að ræða fólk sem byrjaði að
koma í sveitarfélagið í sumar-
hús sitt en býr þar nú allt árið
um kring.
Setjast
varanlega að
SKIPULAGSBREYTING