Morgunblaðið - 16.07.2014, Side 8

Morgunblaðið - 16.07.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 Val forystu ESB á Jean-ClaudeJuncker sem forseta fram- kvæmdastjórnarinnar var í gær staðfest af þingi sambandsins. Juncker hefur í aðdraganda valsins reynt að gera sem minnst úr því hversu eindreginn samrunasinni hann er, en í ræðu hans vegna kjörsins voru áherslurnar aðrar og fátt sem benti til að hann hefði áhuga á að mæta þeim efasemdum um samrunaferlið sem fram komu í nýlegum kosn- ingum.    Juncker sagðist vilja dýpra evru-svæði og ræddi um fjárlög fyr- ir svæðið og að það kæmi sterkar fram út á við.    Áherslan var almennt á aukinnsamruna aðildarríkjanna og að Evrópusambandið væri meira samstiga og sterkara gagnvart um- heiminum, meðal annars á hern- aðarsviðinu.    Þetta og fleira í ræðunni hljómarsjálfsagt vel í eyrum íslenskra aðildarsinna, enda vilja þeir færa fullveldi landsins til Brussel.    Ekki er þó víst að það semJuncker sagði um stækkun sambandsins hljómi jafn vel. Hann sagði að þær aðildarviðræður sem stæðu yfir myndu halda áfram en að engin frekari stækkun yrði á næstu fimm árum.    Því hefur verið lýst yfir að engaraðildarviðræður eigi sér nú stað á milli Íslands og ESB en land- ið hefur þrátt fyrir það enn stöðu umsóknarríkis. Eftir orð Junckers er sú staða orðin enn afkáralegri og vandræðalegri fyrir Ísland en fyrr. Jean-Claude Juncker Engin frekari stækkun áformuð STAKSTEINAR Veður víða um heim 15.7., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 11 skýjað Akureyri 17 skýjað Nuuk 4 þoka Þórshöfn 15 þoka Ósló 18 skýjað Kaupmannahöfn 21 skýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 18 léttskýjað Lúxemborg 22 léttskýjað Brussel 21 léttskýjað Dublin 20 skýjað Glasgow 17 léttskýjað London 26 heiðskírt París 23 heiðskírt Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 28 þrumuveður Moskva 28 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 36 léttskýjað Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 17 léttskýjað Montreal 21 skúrir New York 25 alskýjað Chicago 17 skýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:45 23:24 ÍSAFJÖRÐUR 3:12 24:06 SIGLUFJÖRÐUR 2:53 23:51 DJÚPIVOGUR 3:06 23:02 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands hækkaði um 4,9% að meðaltali 7. júlí vegna rannsóknargjalda og þjónustu sérfræðilækna. Ástæðan er samning- ur sem ríkið gerði við sérfræðilækna í desember í fyrra. „Hækkunin er fyrst og fremst til að mæta um- sömdum gjaldskrárhækkunum sérfræðilækna. Samningurinn hefur leitt af sér gjaldskrárhækk- anir. Þetta er spurning um að þær lendi ekki allar á ríkinu heldur taki sjúkratryggðir þátt í þeim,“ segir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Ís- lands. Áður hafði gjaldskrá stofn- unarinnar hækkað um áramót- in. Engu að síður segir Stein- grímur Ari að sjúklingar greiði minna nú en áður en samning- urinn við sérfræðilæknana var gerður. Á meðan enginn samn- ingur var til staðar var kostn- aðarhlutdeild sjúklinga miðuð við gjaldskrá sem Sjúkratryggingar ákváðu ein- hliða. Læknar innheimtu hins vegar gjöld sem voru umtalsvert hærri. Sá kostnaður lenti á sjúk- lingunum. Samningurinn leiddi hins vegar til þess að kostnaðarhlutdeild sjúkratryggðra lækkaði úr 42% í 33%. „Samningurinn fól í sér mikla bót. Þó að hann hafi leitt til hækkunar gekk hann að stærstum hluta út á að taka mið af raunverulegu verði og miða kostnaðarhlutdeildarreglurnar við það. Ég leyfi mér að fullyrða að hún sé nálægt þriðjungi núna og þar með sé kostnaðarhlutdeildin um níu prósentustigum minni en hún var fyrir ári, þrátt fyrir þessa hækkun,“ segir Steingrímur Ari. Borgi minna nú þrátt fyrir hækkunina  Samningur við sérfræðilækna leiddi til hækkunar á gjaldskrá Sjúkratrygginga Steingrímur Ari Arason Áþreifanleg vellíðan EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is 82 ÁRA EDDA Heildverslun Draumur um góða nótt Heildverslun með lín fyrir: • hótelið • gistiheimilið • bændagistinguna • veitingasalinn • heilsulindina • hjúkrunarheimilið • þvottahúsið • sérverslunina Gæði og glæsileiki Heildverslunin Edda hefur um áratuga skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni. Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt sem minni nota allt lín frá okkur. Bjóðum einnig upp á lífrænt lín. Í ljósi þess að kynjahalli hefur aukist vegna nýlegra veitinga prestsemb- ætta, hefur félagsfundur Félags prestvígðra kvenna ítrekað ályktun frá aðalfundi í vor þar sem bent var á alvarlegan kynjahalla í prestsemb- ættum kirkjunnar. Nýlega var skip- að í níu prestsembætti innan þjóð- kirkjunnar og í fimm tilvikum voru karlar valdir en í fjórum konur. En úr þessum níu embættum gengu hins vegar sjö konur og tveir karlar. Félagið minnir á „að þegar valið er í embætti prests sé ekki nóg að horfa til sóknarinnar einnar, heldur ber að taka mið af kynjahlutfalli inn- an kirkjunnar, þar með talið í pró- fastsdæminu og á samstarfssvæð- inu“. Fundurinn skorar á valnefndir, prófasta og biskup Íslands að tryggja að lögum og reglum við veit- ingar prestsembætta sé fylgt og að gæta samræmis í vinnubrögðum. Morgunblaðið/Ómar Prestar Gæta skal jafnréttis. Kynjahalli eykst í prests- embættum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.