Morgunblaðið - 16.07.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 16.07.2014, Síða 18
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gerðar hafa verið tilraunirmeð að nota íssjá til aðfylgjast með vatnssöfnunundir sigkötlum í Mýrdals- jökli. Tilgangurinn með eftirlitinu er að geta séð þá staði þar sem vatn get- ur mögulega safnast fyrir undir jökl- inum og síðan valdið snöggu jökul- hlaupi. Talið er að meiriháttar vatnsuppsöfnun undir kötlum jökuls- ins muni sjást skýrt í íssjármæl- ingum. Rannsóknasjóður Vegagerð- arinnar og norræna öndvegis- verkefnið SVALi hafa styrkt verkefnið sem unnið er við Jarðvís- indastofnun Háskóla Íslands. Vitað er um að minnsta kosti 17 katla sem eru innan við eða við öskju- brún Kötlu í Mýrdalsjökli. Katlarnir eru sigdældir í yfirborði jökulsins. Þeir myndast vegna bráðnunar við jökulbotninn vegna jarðhita. Undir sumum safnast vatn sem hleypur síð- an út í jökulhlaupum. Íssjármæling- unum er ætlað að styðja við það yfir- borðseftirlit með jöklinum sem nú fer fram með mælingum úr flugvélum. Þá er yfirborðshæð jökulsins mæld með ratsjá og þannig fæst dýpt katl- anna. Íssjárverkefnið hófst í maí 2012 undir stjórn Eyjólfs Magnússonar, jarðeðlisfræðings. Íssjármæling- arnar sýna dýpi niður á endurkast við jökulbotn sem undir kötlunum getur bæði verið fast land eða efri mörk vatnsgeymis. Þessar mælingar eru tengdar við samtíma GPS-hæðar- mælingar og þannig má reikna út í hvað hæð endurköst greinast. Ef sömu mælilínur eru endurteknar er hæð endurkasta frá föstu landi óbreytt en vatnsborð undir kötlum hækkar eða lækkar eftir því hvort vatn hefur safnast fyrir eða runnið brott. Reynt að mæla tvisvar á ári Eyjólfur sagði að reynt hefði verið að gera íssjármælingarnar tvisvar á ári. Árið 2012 var mælt í maí og í nóvember. Þá sáust breytingar í tveimur kötlum sem túlkaðar voru sem minniháttar uppsöfnun vatns. Í fyrra var mælt í maí en haustmæl- ingin dróst fram í febrúar á þessu ári vegna tíðarfarsins. Aftur var mælt í maí í vor og er stefnt að íssjármæl- ingu næsta haust, að sögn Eyjólfs. „Það er verið að þróa þessa vökt- unaraðferð og kanna hvernig íssjáin nýtist. Við erum að reyna að sjá hvað er að gerast við jökulbotninn. Yfir- borðsmælingar eru ófullkomnar sem vöktunartæki að því leyti að vatns- söfnun undir kötlum getur átt sér stað án þess að þeir grynnki. Ef ís bráðnar beint undir katli sem sést á yfirborðinu ætti ketillinn frekar að dýpka en hitt, því eðlisþyngd íss er minni en vatns og vatnið tekur því minna rúmmál,“ sagði Eyjólfur. Þá geta katlar grynnst til dæmis vegna skafrennings. Íssjáin horfir fram hjá því. „Við sjáum breytingar í endur- kasti frá jökulbotninum. Þær geta bæði gefið til kynna vatnssöfnun og einnig sýnt að vatn hafi runnið úr kötlum. Við teljum okkur hafa séð slíka atburðarás við samanburð á þessum mælingum,“ sagði Eyjólfur. Lítið hlaup kom í Múlakvísl í síð- ustu viku og stóð stutt yfir. Stórt jök- ulhlaup varð í júlí 2011 og tók það af brúna yfir Múlakvísl. Íssjár- mælingarnar voru ekki byrjaðar fyrir stóra hlaupið 2011. Eyjólfur sagði að fyrirboði litla hlaupsins hefði ekki sést í íssjármælingunum í vor. Hann sagði að erfitt gæti verið að greina fyrirboða smárra hlaupa. „Við mæl- um bara tvisvar á ári. Þetta vatn hefði getað safnast frá því í maí,“ sagði Eyjólfur. Vatnssöfnun undir Mýrdalsjökli vöktuð Kort/Vegagerðin Mýrdalsjökull Á kortinu sést rauður ferill sem sýnir íssjármælingar 15. febrúar 2014. Katlarnir eru auðkenndir með bláum merkjum og númerum. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það vaktinokkra at-hygli árið 2012 þegar ný ís- lensk rannsókn á orsökum Alzheim- er-sjúkdómsins kom út á veg- um Íslenskrar erfðagreiningar og læknanna Jóns Snædals, Pálma V. Jónssonar og Sigur- björns Björnssonar, en þar var kannaður fágætur erfðabreyti- leiki sem ver þá sem hafa hann fyrir því að fá þennan hræði- lega sjúkdóm. Var rannsókn- inni á sínum tíma hampað sem einni mestu tímamótarannsókn sem gerð hefði verið á sjúk- dómnum, sem leggst þungt á milljónir manna, og veldur bæði sjúklingum og aðstandendum þeirra mikilli vanlíðan. Þess vegna fer mjög vel á því að bandarísku Alzheimers- samtökin, sem eru þau stærstu sinnar tegundar í heimi, hafi nú heiðrað Kára Stefánsson, for- stjóra Íslenskrar erfðagrein- ingar, á alþjóðaþingi sínu í Kaupmannahöfn. Hann varð í gær fyrsti viðtakandi verðlauna sem kennd eru við Inge Grundke-Iqbal, brautryðjanda í rannsóknum á Alzheimers- sjúkdóminum. Mikilvægi rannsóknarinnar sem verðlaunin voru veitt fyrir er ekki síst sú, sem Kári bendir á sjálfur í viðtali við mbl.is, að hún sýndi fram á það að mögu- legt væri að hanna lyf sem gætu komið í veg fyrir sjúkdóminn sjálf- an. Áður en tókst að sýna fram á þetta voru al- þjóðleg lyfjafyrir- tæki við það að missa móðinn við að þróa slík lyf vegna mikils kostnaðar og þeirrar óvissu sem talin var vera um mögu- legan árangur. Nú hafa lyfjafyrirtæki sett aukinn kraft í þessa lyfjaþróun og seint verður ofsagt hversu þýðingarmikil sú viðleitni er og mikilvægt að úr henni fáist já- kvæður árangur. Talið er að sjúkdómurinn hrjái um 5-7% fólks sem eru 65 ára eða eldri og hefur tíðni hans aukist mjög. Í ljósi þeirra breytinga sem nú eru að verða á aldursmynstri Vesturlanda eru líkurnar á því að tíðni sjúkdómsins muni aukast enn því miður háar. Talið er að í Bandaríkjunum einum muni sjúkdómurinn hrjá 13½ milljón manna um miðja þessa öld, en fjöldinn var rúmar fimm milljónir árið 2010 að því er segir í umfjöllun WSJ í gær. Ætla má að þróunin verði svip- uð hér á landi. Ljóst er því að gríðarlegir hagsmunir eru í húfi að vís- indamönnum og lyfjafyrir- tækjum takist að þróa lyf sem vinna gegn Alzheimer- sjúkdómnum og fátt yrði til að auka lífsgæði almennings meira en slík lyf. Kári Stefánsson heiðraður fyrir rann- sóknir á Alzheimer} Viðurkenning fyrir mikilvægt starf Í Bretlandi erhefð fyrir upp- stokkun í ríkis- stjórnum. Upp- stokkun hefur fleiri en einn tilgang. Forsætisráðherrann heldur samráðherrum sínum á tánum og almennir þingmenn sem þykjast eygja ráðherrastól eru hollari forystunni á meðan þeir eygja von. Forsætisráðherrann hefur ráðherraskipunina í sinni hendi. Allir ráðherrar sitja í náð hans. (Í samstarfsstjórn ræður leiðtogi hins flokksins sínum). Á Íslandi staðfesta þing- flokkar tillögur formanna. Upp- stokkun í aðdraganda kosn- ingaárs er oft fremur glugga- skreyting en vísbending um stefnubreytingu í tilteknum málaflokkum. Nýr utanríkisráðherra Breta er talinn efasemdamaður um Evrópusambandið. Ekki er þó líklegt að mannaskipti leiði til breytinga í þeim málaflokki. En í því efni bindur forsætisráð- herrann vonir við glugga- skreytinguna. Ef- ans menn um ESB í flokki hans, sem eru nærri því að sveifla atkvæði sínu á Far- age, formann flokks sjálfstæðissinna, myndu kannski hika við það eftir mannaskiptin. Cameron fjölgaði nú konum í ríkisstjórninni og fækkaði körl- um. Hann vonar að kjósendur úr röðum kvenna muni fremur kjósa flokkinn hans sjái þær fleiri kvenráðherra en áður. Kannski skiptir slík talning enn meira máli en málefnin sem ríkisstjórn stendur fyrir. Frú Thatcher fækkaði konum í sín- um ríkisstjórnum eftir því sem leið á valdatímann. Loks var svo komið að hún sat ein eftir með eintómum körlum. Ekki er lík- legt að karlkynskjósendur hægra megin við miðjuna hafi kosið Íhaldsflokkinn þá vegna karlaskarans í ríkisstjórninni. Þeir kusu hann örugglega vegna konunnar sem stjórnaði flokkn- um og ríkisstjórninni og kom bresku þjóðinni á skrið aftur. Uppstokkun í ríkis- stjórn er valdatæki forsætisráðherrans} Breyting eða gluggaskreyting T ungutak endurspeglar aldarfar og viðhorf hvers tíma. Þekking fólks á einstaka málum verður meiri og mannréttindi og almenn virðing fyrir fólki eru almennt leiðarstef í þeirri eilífu baráttu hvers dags að skapa betra samfélag. Sjálfur vandist ég því að þeir sem stóðu eitthvað höllum færi í lífinu og höfðu ekki sömu möguleika og aðrir væru sagðir vangefnir, þroskaheftir og enn aðrir fatlaðir. Nú þykja þessi orð ekki lengur við hæfi. Talað er um fólk með þroskahömlun og fatlað fólk. Sannarlega er merking orðanna hin sama en mállýskan sem nú tíðkast er ekki jafn gildis- hlaðin og áður. Sá sem er á einhvern hátt fatl- aður getur verið hinn prýðilegasti þjóðfélags- þegn og lagt margt gott af mörkum. Þá þótti gott og gilt hér í eina tíð að kalla þeldökkt fólk negra en nú stappar slíkt nærri glæp. Krakkar sem missa orðið út úr sér eða gera á einhvern hátt lítið úr fólki sem er á einhvern hátt öðruvísi en hinir eru send til skólastjórans. Og auðvitað skiptir litarháttur fólks, upp- runi eða annað engu. Við erum öll jöfn. En dæmin hér að framan um negra, þroskahefta, fatlaða og svo fleiri orð eru vitnisburður um að þjóðfélagið er í gerjun, rétt eins og mjöður í kút, sem í eðli sínu er auðvitað hið besta mál. Á laugardögum er skylduverk kirkjuvarða að sópa upp hrísgrjón af tröppum guðshúsa, enda á grjónaregnið að boða kynsæld og taumlausa hamingju nýgiftra hjóna. Miðað við breytt viðhorf um jafnrétti kynjanna má ætla að brúðkaup, þessi mikla laugardagsgleði, sé nothæft orð. Að minnsta kosti er rétt að end- urmeta réttmæti notkunar þess. Til eru margar gamlar sögur, bæði sannar og lognar, um unga menn sem ætluðu að skapa sér framtíð og eignast afkomendur. Díluðu því við sér hærra setta og eldri menn og festu sér dætur þeirra. Bókstaflega keyptu sér brúði, eins og fé af fæti. Í fram- haldinu var svo haldin veisla með drykkju og dansi þar sem viðskiptum þessum var fagnað. Ætla má að í þessum hefðum liggi rætur orð- ins brúðkaup. Og keypt brúður er auðvitað ekkert annað en fangi ektamannsins. Í orð- færi þessu felst í raun kvenfyrirlitning. Orðin gifting og brúðkaup eru sambæri- legt. Bæði úr ensku og dönsku merkir gift í íslenskri þýðingu gjöf. Og hver er það þá sem þiggur og gefur, jú sennilega er faðirinn gefandinn og sveinninn ungi, brúðguminn, sá sem hnossið hreppir. Og munum þá máltækið um að sælla er að gefa en þiggja. Aftur er konan komin í einhvers konar prísund og „ung var ég gefin Njáli og hefi eg því heitið honum að eitt skyldi ganga yfir okkur bæði,“ sagði Bergþóra á Berg- þórshvoli, kona Njáls Þorgeirssonar, þegar Brennu- Flosi bauð henni að ganga úr brennunni eins og frá segir í Njálu. Ætli hjónavígsla sé því ekki besta orðið um sátt- mála milli tveggja elskenda – ef íslenskan á að fylgja breyttum viðhorfum um jafna stöðu allra þegna þjóð- félagsins. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Úrelt brúðkaup og giftingar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Íssjáin er ratsjá sem sendir raf- segulbylgjur í gegnum jökulinn. Bylgjurnar endurkastast frá jökulbotninum eða frá yfirborði vatns sem safnast hefur saman undir kötlunum. Jarðhiti er víða í Kötluöskjunni og hann bræðir jökulinn neðan frá. Þá myndast einskonar hvolf með vatni. Vélsleði dregur sendi- og móttökubúnað íssjárinnar ásamt loftnetum eftir jöklinum sem saman mynda um 50 m langa línu. Ekið er eftir fyrir- fram ákveðnum ferli á milli katlanna í jöklinum. GPS-tæki skráir staðsetningar sleðans. Íshellan er mis- þykk yfir kötl- unum eða allt frá 200 metra og upp undir 500 metra þykk. Horft í gegn- um jökulinn ÍSSJÁIN ER RAUNVERU- LEGA SÉRSTÖK RATSJÁ Eyjólfur Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.