Morgunblaðið - 16.07.2014, Page 22

Morgunblaðið - 16.07.2014, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 ✝ Hrefna Guð-mundsdóttir fæddist 16. október 1952 á Akranesi. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 5. júlí 2014. Foreldrar Hrefnu voru Guð- mundur Jónsson úr Reykjavík, fram- kvæmdastjóri Raf- teikningar, f. 2. júlí 1927, d. 7. júlí 1983, og Guðfinna Jóhann- esdóttir úr Hafnarfirði, f. 26. ágúst 1927. Systkini Hrefnu eru: 1) Jón Þór, f. 29. september 1947, börn hans eru tvö. 2) Alma Hanna, f. 8. janúar 1951, eig- inmaður hennar er Bragi Jens Sigurvinsson, þau eiga þrjú börn og átta barnabörn. Eftirlif- andi eiginmaður Hrefnu er Ein- ar Einarsson frá Blönduósi, framkvæmdastjóri Steinullar hf., f. 30. desember 1952. For- 3) Arndís María, f. 23. febrúar 1986, sambýlismaður Birgir Örn Strange, f. 13. ágúst 1988, sonur þeirra er Ari Hrafn, f. 6. mars 2014. Hrefna fæddist á Akra- nesi, yngst systkina sinna, og bjó þar fyrstu ár ævinnar. Síðar flutti hún með fjölskyldu sinni í Vesturbæ Reykjavíkur og gekk í Mela- og Hagaskóla. Hrefna fór 16 ára sem au pair til Chicago í Bandaríkjunum og dvaldi þar í eitt ár. Veturinn 1969-1970 gekk hún í Kvennaskólann á Blönduósi. Hrefna og Einar gift- ust hinn 18. júni 1977 og fluttust þau til Danmerkur sama ár og dvöldu þar í tvö ár meðan Einar nam tæknifræði. Þau fluttu aft- ur til Íslands árið 1979 og bjuggu þá í Hafnarfirði þar til þau fluttu á Sauðárkrók árið 1985. Á Sauðárkróki vann Hrefna lengst af hjá Pósti og síma og svo síðar Símanum. Hrefna tók þátt í ýmsum sjálf- boðastörfum sem tengdust skóla, íþróttum og tómstundum barna sinna og sat m.a. í stjórn skátafélagsins Eilífsbúa á Sauðárkróki í mörg ár. Útför Hrefnu fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 16. júlí 2014, og hefst athöfninn kl. 15. eldrar Einars eru Einar Þorláksson, f. 3. janúar 1927, og Arndís Þorvalds- dóttir, f. 27. janúar 1928, fyrrverandi kaupmenn i versl- uninni Vísi, þau eru búsett á Blönduósi. Systur Einars eru; 1) Margrét f. 31. desember 1953, eiginmaður hennar er Jón Sigurðsson, þau eiga 3 börn og 6 barnabörn. 2) Gróa María f. 6. júní 1962, eiginmaður hennar er Guðmundur Ragnar Kemp. Börn Hrefnu og Einars eru: 1) Lind, f. 11. október 1974, synir hennar eru a) Birkir Viðar, f. 19. júní 1991, b) Jón Bragi, f. 26. september 1996, og c) Viggó Einar, f. 1. september 2006. 2) Guðmundur Ingvi, f. 10. febrúar 1981, sambýliskona Guðrún Halldórsdóttir, f. 18. júní 1985. Komið er að kveðjustund. Elskuleg mágkona er kvödd eft- ir erfið veikindi. Alzheimer-sjúk- dómurinn ógurlegi hremmdi hana og lagði hana endanlega að velli 5. júlí síðastliðinn. Við Hrefna höfum átt samleið síðustu 40 ár um það bil og fyrir þau ár vil ég þakka af heilum hug. Betri mágkonu hefði ekki verið hægt að óska sér. Hrefna var mikil fjölskyldukona og þeg- ar hún og Einar bróðir fluttu á Sauðárkrók 1985 urðu tíðari samskipti við fjölskylduna á Blönduósi og þau samskipti voru öll á eina lund. Við eignuðumst börnin okkar á svipuðum tíma og því voru skírnar- og ferming- arveislur svona til skiptis hjá okkur. Alltaf var Hrefna boðin og búin til aðstoðar án þess að einu sinni þyrfti að nefna það, en hún var snillingur í að halda veislur, eins smekkvís og flink hún var, og hafði gaman af að hafa fallegt í kringum sig, enda var heimili þeirra Einars ein- staklega notalegt heim að sækja. Þá má ekki gleyma að nefna hversu natin hún var alltaf við mömmu og pabba og meðan fjöl- skyldan rak Verslunina Vísi á Blönduósi var Hrefna alltaf til tilbúin til að aðstoða ef á þurfti að halda. Skipti þá ekki máli hvort verið var að losa vörugám, skúra gólfin eða afgreiða í búð- inni, ekkert verk var í hennar augum svo ómerkilegt að hún gæti ekki unnið það. Þegar Jón var að spreyta sig með þátttöku í dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks var ekki til harðari stuðningsmaður en Hrefna. Hún bauð til veislu fyrir keppnina og sá svo um að hennar fólk mætti og kysi „rétt“. Það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja hana svona löngu fyrir aldur fram en ég get ekki sagt annað en takk fyrir samveruna, elsku Hrefna, og hittumst síðar kátar og hressar. Guð geymi þig og styðji og styrki Einar bróður og fjölskyld- una alla í þeirra miklu sorg og söknuði. Þín mágkona, Margrét Einarsdóttir (Magga). Góðir vinir eru eins og stjörn- ur, þú sérð þá ekki stöðugt en þeir eru alltaf til staðar. Þessi orð komu í huga minn við andlátsfregn Hrefnu, vin- konu minnar, sem kveður langt fyrir aldur fram. Okkar kynni urðu í gegnum Lindu dóttur mína. Þær Hrefna voru nágrannar, dætur þeirra Arndís María og Lilja Rún urðu æskuvinkonur sem hefur haldist æ síðan. Oft lá leið þeirra litlu til mín á Grundarstíginn og ég fékk ömmuhlutverk frá þeim báðum. Eftir að Linda og fjölskylda fóru í sveitina fjölgaði heimsóknum Hrefnu til mín og enginn var mér betri en hún, með sinn dill- andi hlátur og hlýju. Afmælis- daginn minn setti hún vel á minnið, á meðan það brast ekki og kom alltaf færandi hendi. Sá dagur hafði meira gildi hjá mér við hennar kynni. Á afmælisdag Hrefnu, 16. október, áttum við kvöldstund með þeim hjónum með kaffi og meðlæti. Ekki vant- aði myndarskapinn, allt lék í höndunum á Hrefnu og bar heimili þeirra hjóna þess ætíð merki. Fyrir nokkrum árum fór ég í mjaðmaraðgerð og á þeim tíma kom Hrefna daglega til mín, fór að versla og þreif húsið mitt. Alltaf til í að aðstoða mig. Fljótlega upp úr því fór að gæta heilsubrests hjá Hrefnu og óvægur sjúkdómur fór að gera vart við sig. Smá saman fór skammtímaminnið að gefa sig og fór hún þá gjarnan í ferðalag aftur til æskuáranna, sagði frá ömmu sinni og afa á Akranesi og var oft gaman að rifja upp þessa tíma og enginn hló sem Hrefna. Það var svo dapurlagt að fylgjast með því hvernig hún varð smám saman sem skuggi af sjálfri sér, þessi glæsilega kona. Á þessu erfiða tímabili áttum við margar stundir saman, hún kom af og til með Einari og dvaldi meðan hann var í vinnu og við Bjössi reyndum að veita henni félagsskap. Hrefna var á heimili sínu til 15. febrúar síðastliðins en fékk þá hjúkrunarpláss í Skógarbæ. Einar sá alla tíð alfarið um hana, það gat enginn betur gert og ég dáðist oft að hans hetju- skap. Hrefna mín, miklu veikinda- stríði er lokið þar sem heilsan var frá þér tekin. Ég trúi að nú sé málið og mátturinn kominn og þú hvílir í fangi föður þíns sem fór ungur og þú saknaðir mikið. Elsku Gulla mín, ég bið guð að styrkja þig við missi Hrefnu þinnar. Elsku Einar, Lind, Mummi og Arndís María og fjölskyldur. Hugheil samúð til ykkar og ósk um að ljós minninganna lýsi ykkur. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Lilja A. Ingimarsdóttir og fjölskylda. Hún Hrefna vinkona mín er dáin. Hver hefði getað ímyndað sér að það gerðist svo fljótt. Þó að þessi lævísi sjúkdómur tæki Hrefnu smám saman frá okkur og samverustundirnar yrðu öðruvísi hélt ég að við hefðum nógan tíma til að hittast og vera saman. En hlutirnir fara ekki alltaf eins og við viljum og það minnir okkur á að líta frekar á hvern dag sem einstakan og njóta hans. Ég kynntist Hrefnu þegar við fluttum í Raftahlíðina árið 1989. Dætur okkar urðu vinkonur, sem leiddi af sér vináttu milli okkar sem haldist hefur ætíð síðan. Það sem var svo einstakt við Hrefnu var að hún var alltaf til staðar gagnvart mér og minni fjölskyldu, alltaf boðin og búin að aðstoða mig með börnin, minnug á alla afmælisdaga og önnur tímamót í fjölskyldunni og hjá Hrefnu og fjölskyldu átti dóttir okkar alltaf sitt annað heimili. Við fluttum úr Raftahlíðinni í sveitina en ekki breytti það neinu hjá Hrefnu. Hún gaf sér alltaf tíma fyrir okkur, kom reglulega í heimsókn og var allt- af mætt þegar eitthvað stóð til hjá okkur, boðin og búin að að- stoða og gleðja. Alltaf jafn traust og umhyggjusöm. Það var okkur fjölskyldunni dýrmætt að fá að hafa Arndísi Maríu oft hjá okkur og nutu börnin mín þess. Var þá ým- islegt brallað hjá þeim og alltaf er jafn gaman að rifja það upp og þá er mikið hlegið. Ófáar voru ferðirnar sem þau Hrefna og Einar tóku Lilju Rún með sér þegar systkini hennar voru lítil og lítið um ferðalög hjá okkur fjölskyldunni. Hún var orðin kunnug flestum golfvöllum landsins og ógleymanleg er ferð- in til Florida með þeim. Lilja Rún var á þessum tíma frekar vatnshrædd en Hrefna fór þá í það verkefni að losa hana við sundhræðsluna í eitt skipti fyrir öll. Þannig var Hrefna, fór bara í verkefnin og þau voru leyst án málalenginga. Við Lilja Rún höfum verið að rifja ýmislegt upp síðustu daga og hefur því fylgt bæði gleði og tár. Þessar minningar eru okkur ákaflega dýrmætar. Þú varst ákveðin, nákvæm og flott kona sem hafði alla hluti á hreinu. Stundum þegar þú komst í heimsókn í Halldórsstaði á sauðburði eða álagstímum og heimilishaldið ekki alveg í föst- um skorðum, þá fannst mér okk- ar veröld ekki vera alveg sú sama. Þú varst vissulega ekki allra og barst ekki tilfinningar þínar á borð, en þeim sem kynn- ust þér reyndist þú einstök. Elsku Einar, Lind, Mummi og Arndís María, Gulla og fjöl- skyldur. Missir ykkar er mikill, en þið eigið góðar minningar um einstaka konu. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Linda Björnsdóttir og fjölskylda. Æskuvinkona mín, Hrefna, er látin. Hrefna var 11 ára þegar hún flutti á Seljaveginn og við Palla fórum strax að skoða nýju stelpuna. Það myndaðist þegar mikill vinskapur milli okkar þriggja og vorum við öllum stundum saman og lékum við okkur mikið í fjörunni við Ána- naust eða úti á Granda. Það voru mjög mörg börn í Vesturbænum á þessum árum og eignuðumst við vinkonurnar marga vini úr þeim hópi. Ég á svo margar minningar um þig, Hrefna mín, og ein af þeim fyrstu er af því þegar við fengum að tína til hráefni í köku hjá ömmu og töldum okkur ekki þurfa neina uppskrift, amma setti svo kökuna í ofninn fyrir okkur, og kom þá í ljós að við höfðum gleymt smjörlíkinu og var kakan dálítið hörð, en við vorum alsælar.Við vorum mikið fyrir útivist og ferðalög og stofn- uðum við ferðafélag. Guðmund- ur, pabbi þinn, var mjög dugleg- ur að keyra okkur, jafnvel á Laugarvatn, ef okkur datt það í hug, þar leigðum við okkur hesta, fórum í fjallgöngu og svömluðum á vindsængum á vatninu. Alltaf var nóg að gera hjá okkur og bárum við út blöðin áð- ur en við fórum í skólann á morgnana. Við unnum í öllum fríum í blómabúðunum hjá Þórði á Sæbóli á Vesturgötunni eða á Laugaveginum. Einnig áttum við vinkonunar samleið í vinnu hjá Sláturfélagi Suðurlands, fyrst í versluninni í Hafnar- stræti og svo í nokkur ár á skrif- stofunni hjá Auði á Grensásveg- inum. En svo skildu leiðir, þú fórst til Danmerkur með Einari þín- um sem þú elskaðir og dáðir og hefur reynst þér einstaklega vel, ekki síst í veikindum þínum, en ég flutti norður. Við vorum alltaf í sambandi, skrifuðumst á og eftir að þú fluttir heim aftur hittumst við reglulega og deildum gleði og sorg. Þú varst alltaf í góðu sam- bandi við vini þína og hélst ein- staklega vel utan um fjölskyldu þína og bjóst henni fallegt og gott heimili. Elsku Hrefna mín, ég er búin að sakna þín lengi. Um leið og ég þakka þér fyrir allar gleðistundirnar og sam- fylgdina í gegnum árin vil ég senda Einari, Lind, Guðmundi Ingva, Arndísi og öllum aðstand- endum samúðarkveðjur. Missir okkar er mikill, þú varst sannur vinur. Þín vinkona, Stefanía Karlsdóttir. Hrefna Guðmundsdóttir Fimmtudaginn 3. júlí hringdi sím- inn. Það var Jenný, bróðurdóttir mín, að láta mig vita að mamma hennar hefði kvatt í kvöld og það hefði verið mikill friður yfir henni. Hún hefði verið sótt eftir erfið veikindi og slys sem hún varð fyrir. Minningarnar koma upp í huga mér. Þegar ég sá mömmu hennar fyrst hefur hún verið 12 ára, það var í handavinnutíma í Laugarnesskólanum. Við vorum svo fáar stelpur í mínum bekk að við fengum að vera með eldri stelpunum í handavinnu. Ég vissi ekki hvað hún hét en bróðir hennar var með mér í bekk, Jóhann heitir hann. Svo liðu árin, þá sé ég Hauk, bróður minn, labba með ljóshærðri stelpu á Laugaveginum en ég þorði ekki að fara og heilsa. Svo kom hann með stúlkuna heim, hún kynnti sig og sagðist heita Bára Jakobsdóttir, þá sá ég að þetta var stúlkan úr handavinnutímanum. Svo fóru þau að búa, eign- uðust litla prinsessu sem heitir Jenný og byggðu sér fallega íbúð í Sólheimum 22. Þá kom önnur prinsessa sem heitir Ingibjörg. Ég passaði fyrir þau og þau fóru eitthvað – þær voru svo góðar og meðfærilegar. Svo fór ég að búa og eign- aðist strák, þá var nú hama- gangur á hóli. Bára hringdi oft í mig og kom í heimsókn á kvöld- in þegar ég var ein, því minn maður var sjómaður. Við bök- uðum svo góðar kökur með kaffinu og vorum ekkert að hugsa um línurnar eins og unga fólkið í dag. Svo kom prinsessa númer 3, hún heitir Anna. Haukur og Bára byggðu raðhús í Loga- landinu og fluttu þangað, ég flutti í Keflavík. Við hittumst á Kleppsveginum, hjá foreldrum okkar Hauks, um jól, páska á hvítasunnu og í stórafmælum Bára Jakobsdóttir ✝ Bára Jakobs-dóttir fæddist 14. janúar 1936. Hún lést 3. júlí 2014. Bára var jarðsungin 14. júlí 2014. hjá frændfólki mínu, sem og í fermingum. Prins- essurnar giftu sig og það eru sko gullmolar sem þær eiga. Svo komu börn og barnabörn sem þær færðu for- eldrum sínum en leiðir Báru og Hauks skildi. Bára keypti sér fallega íbúð á Skólabraut, þar kunni hún vel við sig enda var þar góð þjónusta. En vegna veikinda fékk hún herbergi á Hrafnistu á Laugarásnum. Þar var svo fallegt og notalegt að ég er viss um að öllum hefur liðið vel hjá henni í heimsókn, það fannst mér. Hún var farin að föndra svo fallega hluti og ferðast um. Bára mætti í fermingarveislu hjá frænda mínum 24. apríl. Það voru allir svo ánægðir hvað hún var dugleg að mæta og leit vel út. Hún hringdi oft í mig og ég heimsótti hana á Hrafnistu. Ég þakka Báru fyrir þessi 59 ár sem við höfum átt saman og læt þetta fallega ljóð fylgja. Kom, vornótt og syng þitt barn í blund! Hve blítt þitt vögguljóð og hlý þín mund – ég þrái þig breið þú húmsins mjúku verndarvængi, væra nótt, yfir mig. Draumljúfa nótt, fær mér þinn frið, firr þú mig dagsins háreysti og klið, ó, kom þú fljótt! Elfur tímans áfram rennur, ennþá hjartasárið brennur, – skapanorn, ó, gef mér stundargrið! Kom ljúfa nótt, sigra sorg og harm, svæf mig við þinn barm, – svæf glaumsins klið og gef mér frið, góða nótt. (Jón frá Ljárskógum.) Ég sendi Jennýju, Ingi- björgu, Önnu, fjölskyldum þeirra, Hauki bróður og öllum hennar ástvinum innilegar sam- úðarkveðjur og bið Guð að styrkja þau. Megi kærleikurinn varpa ljósi á kærar minningar. Jóhanna (Hanna). ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN JÓNSSON, Veturliðastöðum, verður jarðsunginn frá Hálskirkju í Fnjóskadal laugardaginn 19. júlí kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtökin á Sjúkrahúsi Akureyrar. Þökkum innilega fyrir góða umönnun á hjarta- og blóðskilunardeild Landspítalans við Hringbraut. Guðríður H. Arnþórsdóttir, Kristín Anna Kristjánsdóttir, Sæmundur Jónsson, Hermann Helgi Kristjánsson,Gestheiður B. Þorvaldsdóttir, Hulda Björg Kristjánsdóttir, Brynjólfur Magnússon, Áslaug Kristjánsdóttir, Sigurður Skarphéðinsson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, GUNNHILDUR SVANA SIGURÐARDÓTTIR Brekkutanga 20, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum mánudaginn 14. júlí. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á kvennadeild Landspítalans. Pétur Kornelíusson, Sigurður Pétursson, Jennifer Pétursson, Haraldur Pétursson, Hrund Scheving og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.