Morgunblaðið - 16.07.2014, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Sonur minn og dóttir munu eyða deginum með mér og við för-um líklega út í náttúruna. Þau samþykkja það af því að ég áafmæli. Það er svo gott að vera í náttúrunni og endurnærast,
sérstaklega við sjóinn. Svo stendur til að baka myndarlega köku hér
heima,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir, sem er 43 ára í dag.
Sigurlaug er austan af landi en flutti í bæinn fyrir margt löngu.
Hún starfar sem hómópati og kennir heimspeki við Námsflokka
Reykjavíkur og hjá Fjölmennt. Felast námið og kennslan meðal ann-
ars í því að velta málum fyrir sér út frá ýmsum kenningum og sjá
hlutina frá nýju sjónarhorni, eins og öllum er nauðsynlegt í leik og
starfi. „Nemendur mínir eru gjarnan fólk sem er á einhvern hátt að
stokka upp tilveruna og það er gaman að kynnast viðhorfum þeirra
og skoðunum. Ég hugsa að ég læri ekki minna af þeim en þau hjá
mér,“ segir Sigurlaug, sem í sumar starfar með fötluðum á sambýl-
inu við Lækjarás í Reykjavík.
En aftur að upprunanum. Sigurlaug er fædd og uppalin austur í
Skriðdal, en þar og á nærliggjandi svæðum eru víðfeðmustu skógar
landsins. „Mér þykir vænt um sveitina og náttúruna, ég er hluti af
henni. En þrátt fyrir að hafa alist upp inni í landi laðast ég að hafinu
og geng gjarnan eða sit við sjávarsíðuna. Það er dáleiðandi að horfa
á öldurnar, og róandi,“ segir afmælisbarn dagsins. sbs@mbl.is
Sigurlaug Hreinsdóttir er 43 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heimspekingur „Það er svo gott að vera í náttúrunni og endurnær-
ast,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir, sveitastúlka austan úr Skriðdal.
Það er dáleiðandi
að horfa á öldurnar
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópavogur Sóley Sigurdís fæddist
10. september 2011 kl. 8.59. Hún vó
3.670 g og var 49,5 cm löng. Foreldrar
hennar eru Katrín Steinarsdóttir og
Sigurður Halldórsson.
Nýir borgarar
Kópavogur Sunna Sigríður fæddist
31. desember 2013 kl. 22.55. Hún vó
3.670 g og var 49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Katrín Steinarsdóttir og
Sigurður Halldórsson.
S
ólveig Ólafsdóttir fæddist
16. júlí 1964. „Ég er fædd
í hjónarúminu á Lauga-
teigi 12, yngst af sjö
systkinum. Ljósmóðirin
var Þórdís Ólafsdóttir, föðurömmu-
systir mín, sem hafði tekið á móti öll-
um börnum mömmu og var þá þegar
farin að taka á móti barnabörnunum.
Ég var alin upp á mikilli fjöl-
skyldumiðstöð þar sem stór-
fjölskyldan átti skjól og athvarf hjá
afar ráðagóðu fólki sem foreldrar
mínir voru. Það voru ótrúlega margir
sem misstu bakhjarla sína þegar þau
létust langt fyrir aldur fram.
Ég var ansi vegalaus, eiginlega
bara lítill stelpupönkari á Hlemmi
eftir að heimilið var leyst upp en með
dyggri aðstoð Veigu, móðursystur
minnar og fóstru, og Magga bróður
míns klóraði ég mig áfram í stúdents-
próf frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð og lenti eins og margir
jafnaldrar mínir í kennslu í grunn-
skóla úti á landi, á Akranesi. Þar
kynntist ég einum ljóshærðum
Skagamanni, Heimi Janusarsyni, og
erum við ennþá bestu vinir og
félagar.“
Starfsferillinn
„Ég vann hjá Strætó í öllum frí-
stundum eins og margir í minni fjöl-
skyldu þar til eftir stúdentinn. Þá fór
ég að vinna sem skjalahirðir hjá
Þjóðskjalasafni Íslands. Ég var einn-
ig matráðskona í veiðihúsinu í Langá
á Mýrum sumarið 1986 og greip í það
árin þar á eftir.
Eftir að hafa lokið prófi í sagnfræði
og bókmenntum frá Háskóla Íslands
tók við langt og skemmtilegt sam-
band mitt við ættfræðigagnagrunn-
inn Íslendingabók. Ég vann við að
búa til Íslendingabók í meira en átta
ár með góðu og skemmtilegu fólki.“
Sólveig lauk MA-prófi í menning-
arstjórnun snemma árs 2009 og jafn-
framt því námi sinnti hún verk-
efnastjórn í ýmsum menningar-
verkefnum.
„Eitt dásamlegasta verkefni mitt á
þessum árum var Prisma – diplóm-
anám í skapandi og gagnrýninni
hugsun – verkefni sem Listaháskól-
inn, Háskólinn á Bifröst og Reykja-
víkurAkademían stóðu að í kjölfar
hrunsins. Ég vann í einvala hópi und-
ir stjórn Hrundar Gunnsteinsdóttur
við að hrista rækilega upp í fólki í
nokkrar vikur í senn. Vinnan við
Prisma og nú síðustu ár mín sem
framkvæmdastjóri Reykjavík-
urAkademíunnar hafa sannfært mig
um nauðsyn þess að við sem þjóð
treystum undirstöður okkar með
skapandi og gagnrýninni hugsun,
orðum og æði.
Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri RA – 50 ára
Hjónin Sólveig og Heimir við heimatilbúinn matarþurrkara þar sem þau þurrka ávexti, sveppi, grös og kjöt.
Að halda í pönkið er
ein af lífsreglunum
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957