Morgunblaðið - 16.07.2014, Qupperneq 27
Að vera framkvæmdastjóri
ReykjavíkurAkademíunnar er eins
og vera húsfreyja á stóru sveitaheim-
ili. Það er aldrei dauður punktur. Það
þarf að ganga í öll verk stór og smá.
Ég er með mjög góða samverkamenn
þar og samfélagið – samfélag fræði-
manna í sjálfstæðum rannsóknum –
er algerlega einstakt. Mér gefst lítill
tími til eigin rannsókna – á allt of
margar hálfskrifaðar greinar um
margvísleg efni tengd menningar-
stefnumótun, fornum og nýjum mat-
ar- og spillingarsögum og Hólavalla-
garði. Ég og Heimir erum með dellu
fyrir Hólavallagarði, erum með sam-
eiginlegar leiðsagnir um garðinn og
skoðum hann sem heild.“
Staðarhaldari suður með sjó
Sólveig var framkvæmdastjóri og
einn af handritshöfundum að sýning-
unni „Reykvíska eldhúsið – matur og
mannlíf í hundrað ár“ sem félagið
Matur – saga – menning setti upp í
samstarfi við Reykjavíkurborg og
ReykjavíkurAkademíuna árið 2008.
Hún var handritshöfundur ásamt
Þorsteini J., æskuvini hennar, að
heimildarmyndinni Iceland Food
Centre – fyrsta íslenska útrásin.
Sólveig mun standa í stússi suður
með sjó á afmælisdaginn. „Ég er
staðarhaldari á ákaflega merkilegum
stað, Sólveigarlundi í Hvalsneshverfi,
húsi og garði sem hún nafna mín og
fóstra kom sér upp af miklum mynd-
arskap. Húsið er hannað og teiknað
af frændunum Magnúsi Skúlasyni
arkitekt og bróður mínum Gunnari
Steingrími Ólafssyni verkfræðingi.
Við Heimir erum tekin til við að halda
við húsi, garði og hinum myndarlega
grjótvegg sem umlykur garðinn.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sólveigar er Heimir
Björn Janusarson, f. 24.8. 1962, um-
sjónarmaður Hólavallagarðs. For-
eldrar hans eru Janus Bragi Sigur-
björnsson, f. 15.12. 1931 og Katrín
Georgsdóttir, f. 1.9. 1932.
Systkini Sólveigar: Gunnar Stein-
grímur, f. 31.5. 1945, Elín Jóna, f.
11.9. 1946, Þórdís Hrefna, f. 28.5.
1948, Magnús Hákon, f. 15.5. 1950,
Ragnhildur, f. 6.1. 1955, d. 15.6. 2013,
og Örn Ólafsson, f. 21.3. 1958.
Börn Sólveigar og Heimis: Hall-
steinn Heimisson Waitkuwait, f. 2.8.
1983, stjúpsonur Sólveigar. Hann býr
í Þýskalandi og kona hans er Corne-
lia Waitkuwait og börn eru Lilja Sol-
ange og Svava Hermine; Þórhildur
Heimisdóttir, f. 26.4. 1989, bús. á Ís-
landi, og Ásgerður Heimisdóttir, f.
31.8. 1993, bús. í Danmörku.
Foreldrar Sólveigar voru Ólafur
Guðmundsson, f. 27.3. 1923, d. 6.6.
1981, birgðavörður hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur, og Björg
Magnea Magnúsdóttir, f. 18.12. 1921,
d. 10.7. 1980, ólaunaður fram-
kvæmdastjóri Fjölskyldumiðstöðv-
arinnar Laugateigi 12.
Úr frændgarði Sólveigar Ólafsdóttur
Sólveig
Ólafsdóttir
Guðrún Einardóttir
húsfreyja í Stóra-Nýjabæ í Krísuvík
Steingrímur Steingrímsson
bóndi í Stóra- Nýjabæ í Krísuvík
Guðrún Hansína Steingrímsdóttir
húsfreyja í Nýlendu
Magnús Bjarni Hákonarson
útvegsbóndi í Nýlendu við
Hvalsnes, Gull.
Björg Magnea Magnúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Gunnar Reynir Magnússon
endurskoðandi í Kópavogi
Steinunn Guðný
Magnúsdóttir
skrifstofumaður í
Reykjavík
Guðný Einardóttir
húsfreyja í Nýlendu
Hákon Tómasson
útvegsbóndi í Nýlendu
Helga Bjarnadóttir
húsfreyja á Vindási í Kjós
Ólafur Einarsson
bóndi á Vindási í Kjós
Jóna Ólafsdóttir
saumakona í Reykjavík
Dagný
Wessman
húsfreyja í
Reykjavík
Ólafur Guðmundsson
birgðavörður hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur
Guðmundur Jónsson
sjómaður og verkamaður í Reykjavík
Guðríður Guðmundsdóttir
húsfreyja á Þrándarstöðum
Jón Vigfúson
bóndi á Þrándarstöðum í Kjós
Ib Wessman
matreiðslumeistari,
bús. Í Noregi
Ragnar Wessman
matreiðslumeistari,
bús. Í Garðabæ
Wilhelm
Wessman
fv. yfirþjónn,
bús. í
Reykjavík
Róbert
Wessman
forstjóri
Alvogen
Magnús Skúlason
arkitekt í Reykjavík
Unnur Skúladóttir
fiskifr. í Reykjavík
Með ömmubarnið Sólveig og Lilja
og afinn Heimir í baksýn.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Hjálmar Vilhjálmsson fæddist16. júlí 1904 á Hánefs-stöðum við Seyðisfjörð.
Foreldrar hans voru Vilhjálmur út-
vegsbóndi á Hánefsstöðum Árnason
bónda á Hofi í Mjóafirði Vilhjálms-
sonar, og k.h. Björg Sigurðardóttir
bónda á Hánefsstöðum Stefáns-
sonar.
Hjálmar varð stúdent 1925 og út-
skrifaðist úr lögfræði frá HÍ 1929.
Hann hóf störf sama ár sem fulltrúi
hjá bæjarfógetanum á Seyðisfirði en
varð bæjarstjóri þar aðeins ári síðar.
Hann varð sýslumaður í Rangár-
vallasýslu 1936 og bæjarfógeti á
Seyðisfirði og sýslumaður í Norður-
Múlasýslu 1937. Hann varð skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu
1953 og ráðuneytisstjóri þar frá 1970
til 1973 þegar hann hætti að eigin
ósk.
Hjálmar var formaður Styrktar-
félags vangefinna frá stofnun félags-
ins 1958 til 1975. Hann gegndi jafn-
framt trúnaðarstörfum fyrir
Öryrkjabandalag Íslands frá stofn-
un þess 1961, var m.a. varaformaður
hússjóðs þess frá stofnun hans 1966
til 1986.
Hann var formaður í fjölmörgum
nefndum sem unnu að setningu eða
endurskoðun löggjafar á sviði al-
mannatrygginga, sveitarstjórnar-
málefna, húsnæðismála, orlofs,
vinnumála o.m.fl. Hann var kjörinn í
stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs
1956, þegar hann var stofnaður, og
jafnframt skipaður stjórnar-
formaður. Því embætti gegndi hann
til 1978. Auk þess gegndi Hjálmar
formennsku í stjórn Íslenskrar
endurtryggingar um langt árabil.
Auk fjölmargra greina liggur eftir
hann Seyðfirskir hernámsþættir,
1977.
Eiginkona Hjálmars var Gyðríður
Sigrún Helgadóttir húsfreyja, f.
20.12. 1902, d. 10.12. 1992. Foreldrar
hennar voru Helgi Magnússon, hús-
maður í Múlakoti og smiður á Fossi
á Síðu, og k.h. Gyðríður Sigurðar-
dóttir húskona, síðar húsfreyja í
Þykkvabæ í Landbroti og Reykja-
vík. Börn þeirra eru Björg, f. 1933,
Helgi, f. 1936, Vilhjálmur, f. 1938, og
Lárus, f. 1946.
Hjálmar lést 19. október 1991.
Merkir Íslendingar
Hjálmar
Vilhjálmsson
90 ára
Einar Gunnar Sigurðsson
Sigurrós R. Jónsdóttir
85 ára
Bryndís Sigurðardóttir
Guðjón Einarsson
Ragnar Sigurðsson
Svanhildur Magna
Sigfúsdóttir
80 ára
Auður Benediktsdóttir
Birna Björnsdóttir
75 ára
Brynjar Fransson
Halldór I. Elíasson
Jóhann Tryggvason
Sigurveig Jóhannsdóttir
Skúli Óskarsson
Sveinn Andrésson
70 ára
Brynjar Örn Bragason
Elín S. Sigurþórsdóttir
Erla Friðgeirsdóttir
Guðrún Jóhannsdóttir
Jón Valdimarsson
Sigríður Agnes Eyjólfsdóttir
Valdimar Bergstað
Valdís Erla Ármann
Valsteinn Jónsson
60 ára
Anna Arnardóttir
Guðbjörg Haraldsdóttir
Guðbjörg Ingólfsdóttir
Jóhanna D. Tómasdóttir
Júlía H. Gunnarsdóttir
Kristján E. Kjartansson
María Sif Sveinsdóttir
Ragnar Blöndal Birgisson
Ragna Steindórsdóttir
Sigríður Jóna Jónsdóttir
Stefán Kristinn Garðarsson
Valur Emilsson
Þorsteinn Ó. Ármannsson
50 ára
Áslaug Jónsdóttir
Guðbjörg R. Ásgeirsdóttir
Guðmundur H. Einarsson
Hanna Björg Hauksdóttir
Hildur Soffía Ámundadóttir
Hue Thi Tran
Inga Guðlaug Jónsdóttir
Ingibjörg Sigurbergsdóttir
Jóhann Hörður Sverrisson
Kristín Jóhanna
Mikaelsdóttir
Margrét U. Kjartansdóttir
Sigríður Elva Konráðsdóttir
Sigursteinn Tómasson
Svanur Helgi Einarsson
Þorsteinn Sverrisson
40 ára
Ágúst Þór Bjarnason
Ástríður Jónsdóttir
Guðjón Charles Benfield
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Guðmundur Jóhannsson
Kolbrún Dóra Kristinsdóttir
Linda Arnardóttir
Ólafur Reimar Valgarðsson
Snorri Pálmason
Steinar Þór Þorfinnsson
Þorgils Völundarson
30 ára
Arna Björk Valgeirsdóttir
Arnþór Magnússon
Egill Sigurðsson
Jóhanna Guðmundsdóttir
Jón Oddur Jónsson
Magnús Helgi Jónasson
María Rut Beck
Páll Þorvaldsson
Pétur Einarsson
Sigurbjörn G. Ragnarsson
Sigurður Ragnar Helgason
Sigurlaug Árnadóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Daggrós er Sand-
gerðingur og vinnur við
vopnaleit hjá Isavia á
Keflavíkurflugvelli.
Maki: Páll Hjörvar Bjarna-
son, f. 1977, tölvunar-
fræðingur.
Dóttir: Thelma Rún, f.
2012.
Foreldrar: Hjálmar
Georgsson, f. 1954, leið-
sögumaður, og Sigrún
Hjördís Haraldsdóttir, f.
1955, móttökuritari á
Landspítalanum.
Daggrós
Hjálmarsdóttir
30 ára Þuríður er
Garðbæingur og rekur
kaffihúsið Reykjavik
Roasters á Kárastíg.
Maki: Andri Þór Sturlu-
son, f. 1984, fangavörður.
Börn: Bríet Katla Ein-
arsdóttir, f. 2010, og Jörfi
Andrason, f. 2014.
Foreldrar: Sverrir Sal-
berg Magnússon, f. 1959,
prentsmiður hjá Svans-
prenti, og Svala Hrönn
Jónsdóttir, f. 1959, fram-
kvæmdastj. Svansprents.
Þuríður
Sverrisdóttir
30 ára Kristín býr í
Reykjavík og er við-
skiptastj. hjá Meniga.
Maki: Borgar Þór Ein-
arsson, f. 1975, lögmaður.
Börn: Anna Soffía, f.
2010, Patrekur Þór, f.
2012 og stjúpbörnin
Marselía Bríet, f. 1999,
Breki Þór, f. 1998 og Sig-
rún Líf, f. 1994.
Foreldrar: Halldór Ingi
Guðmundsson, f. 1948,
og Anna Þóra Einars-
dóttir, f. 1946.
Kristín Hrefna
Halldórsdóttir
Miðvikudagstilboð
– á völdum einnota
og margnota borðbúnaði
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 14
Komdu í verslun RVog sjáðu glæsilegtúrval af einnota ogmargnota borðbúnaði íflottum sumarlitum
Di
sk
ar
Se
rv
íe
ttu
r
G
lö
s
Hn
ífa
pö
r