Morgunblaðið - 29.08.2014, Side 12
FRÉTTASKÝRING
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
„Það er ósiðlegt að ryðjast inn á ritstjórn með
peninga til þess eins að reka einhvern,“ segir
Reynir Traustason, ritstjóri DV, um átökin sem
hafa verið um eignaraðild að fjölmiðlinum að
undanförnu og leiddu meðal annars til þess að
Þorsteinn Guðnason var settur af sem stjórn-
arformaður.
Reynir og aðrir starfsmenn DV hafa sakað
Þorstein um að standa fyrir fjandsamlegri yf-
irtöku á félaginu DV ehf., sem annast rekstur
fjölmiðilsins. Efnt hefur verið til aðalfundar fé-
lagsins klukkan þrjú í dag á Hótel Reykjavík
Natura þar sem ný stjórn verður kjörin og
Reynir gerir ráð fyrir að fá reisupassann. Björn
Þorláksson, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, hef-
ur afþakkað boð um ritstjórastöðuna.
„Ítrekað komið til bjargar“
Þorsteinn var settur af sem stjórnarformað-
ur þann 16. júlí sl. vegna óánægju annarra
stjórnarmanna með hlutafjárkaup hans, en
hann var sagður hafa setið báðum megin borðs-
ins þegar hann seldi eigin félagi hlut í fjölmiðl-
inum. Eftir þessa ákvörðun keypti félag í hans
eigu hlut Lilju Skaftadóttur í DV, en hún var
áður meðal stærstu eiganda. Félög tengd Þor-
steini eiga því nú um þrjátíu prósenta hlut í fjöl-
miðlinum. Þá hafa enn frekari hræringar verið
á eignarhaldinu þar sem Björn Leifsson, eig-
andi World Class, keypti 4,42 prósenta hlut í
vikunni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður DV,
hefur einnig bendlað Sigurð G. Guðjónsson,
hæstaréttarlögmann, sem m.a. gætir hagsmuna
Björns Leifssonar og Þorsteins Guðnasonar,
við yfirtökuna. Sigurður hefur tekið fyrir þetta
og segist aðeins starfa fyrir þá sem hafi lánað
DV og Reyni umtalsverða fjármuni á undan-
förnum árum og nú sé komið að skuldadögum.
Þorsteinn segir ásakanir um fjandsamlega
yfirtöku vera ósannar. Hið rétta sé að félög í
hans eigu hafi keypt hlutafé og lánað fjármagn
til hlutafjárkaupa í DV til þess að treysta rekst-
ur þess. „Hvernig sá sem ítrekað hefur komið
fyrirtæki til bjargar, getur allt í einu orðið óvin-
urinn undir rúminu, er sjálfstætt rannsóknar-
efni. Aftur er eina skýringin, að Reynir hafi
ekki gert sínum nánustu samstarfsmönnum
rétta grein fyrir stöðu mála og sé nú í einhverri
örvæntingu að reyna að skrifa söguna eftirá.“
segir hann í yfirlýsingu og bætir við að upphæð-
irnar sem hann hafi komið með inn í fyrirtækið
að beiðni Reynis hlaupi á tugum milljóna króna.
„Auðvitað segja þeir þetta, en merkin sýna
verkin og þetta fer allt fram í myrkri. Þeir eru
klárlega að reyna að ná meirihluta og eru úti
um allan hópinn að kaupa upp bréfin,“ segir
Reynir um yfirlýsingu Þorsteins. „Ef það er
löglegt og siðlegt segi ég nú bara verði þeim að
góðu og ég mun lúta höfði og beygja mig fyrir
þeim,“ segir hann.
Segja sjálfstæði stefnt í hættu
Reynir segir áskrifendur lagða á flótta og
bendir á að tæplega hundrað manns hafi sagt
upp áskrift sinni vegna málsins.„Ég hef sagt
þeim að bíða og snúa ekki við okkur baki, en all-
ir segja það sama; að breytingar á eignarhaldi
þýði að þau vilji ekki kaupa blaðið,“ segir hann
og bætir við að þegar menn séu spurðir nánar
út í málið bendi þeir á að eignarhald Björns
Leifssonar sé ástæðan. „Það er gríðarleg reiði í
gangi vegna þess að þetta er svo augljóst.
Þarna kemur inn hluthafi sem segir að ég sé
stórhættulegur mannorðsmorðingi og vill að ég
verði rekinn.“
Meiðyrðamál Björns Leifssonar gegn rit-
stjóra og útgefanda DV bíður nú meðferðar í
dómskerfinu og segir Reynir að hann hljóti að
vilja reka alla þá blaðamenn sem nefndir eru í
stefnunni. Starfsmenn DV hafa þá einnig sent
frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir þung-
um áhyggjum vegna ófagra orða Björns um rit-
stjórnarstefnu blaðsins. Þau gefi tilefni til að
óttast að nýir hluthafar muni ekki virða rit-
stjórnarlegt sjálfstæði blaðamanna.
Ekki náðist í Björn Leifsson við vinnslu frétt-
arinnar og vildi Þorsteinn Guðnason ekki tjá sig
um málið að svo stöddu.
Fram kom í máli Reynis Traustasonar í
Kastljósi í gær að Gísli Guðmundsson, sem
kenndur er við Bifreiðar og landbúnaðarvélar,
hefði bjargað félaginu frá gjaldþroti í gegnum
félagið Umgjörð. Reynir hélt því einnig fram að
Þorsteinn Guðmundsson hefði komið inn sem
„aðstoðarmaður“ Gísla. Þegar Reynir spurði
Sigurð G. Guðjónsson hvort honum væri kunn-
ugt um eignarhaldið á Umgjörð, sagðist Sigurði
ekki vera kunnugt um það. Síðar sagði Sigurður
að hann færi með málefni Gísla Guðmundsson-
ar sem hefði látið peninga inn í félagið og hann
ynni einnig fyrir Þorstein.
Slagurinn um eignarhald DV
Óvissuástand ríkir á DV og hluthafahópur er sakaður um að standa fyrir fjandsamlegri yfirtöku
Ný stjórn kosin í dag og ritstjóri gerir ráð fyrir að verða rekinn Öðrum þegar verið boðin staðan
Morgunblaðið/Sverrir
DV Óvissuástand hefur ríkt á fréttastofu DV síðustu misseri en miklar deilur hafa verið í stjórn
DV undanfarna mánuði sem leiddu til þess að stjórnarformaður félagsins var settur af. Reynir
Traustason ritstjóri sakar hluthafahóp um fjandsamlega yfirtöku á blaðinu.
Þorsteinn
Guðnason
Reynir
Traustason
Gísli
Guðmundsson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2014
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
HREINAR LÍNUR
Oslo
skenkur
kr. 159.800
Turtle
Hægindastóll
kr. 239.000
Yumi
Borð 2 í setti
kr. 28.700
Timeout
Hægindastóll + skemill
Kr. 379.900
Tilboðsverð kr. 315.000
House Doctor
Loftljós kr. 24.900
Birni Þorlákssyni, rit-
stjóra hjá Akureyri
Vikublaði, var boðin
ritstjórastaða á DV en
afþakkaði. Þetta stað-
festi hann í samtali við
Morgunblaðið en vildi
þó ekki segja hver
hefði boðið honum
stöðuna. Hann segir það vissulega vera
heillandi að ritstýra dagblaði og segir
samfélagslega ábyrgð hafa togað í sig,
en aðstæður væru hins vegar erfiðar
innan fjölmiðilsins þar sem stór orð
hefðu fallið um eigendur og starfsmenn.
Ástæðuna segir hann þó fyrst og
fremst af persónulegum toga þar sem
starfið hefði verið tímafrekt og hann
vilji einbeita sér að uppeldi tveggja
ungra barna sinna.
BJÖRN ÞORLÁKSSON
Björn Þorláksson
Afþakkaði rit-
stjórastöðu DV
Hafrannsóknastofnun leggur til að
áfram verði unnið að aðgerðum til
verndar lúðustofninum og að reglu-
gerð um bann við veiðum á lúðu verði
í gildi þar til merki um verulegan
bara í lúðustofninum við Ísland komi
fram. Þetta kemur fram á vef at-
vinnuvegaráðuneytisins en Hafrann-
sóknastofnun hefur skilað grein-
argerð um áhrif veiðibanns á lúðu,
þar sem m.a. er fjallað um „út-
breiðslu og líffræði lúðunnar, veiðar
á henni, ástand stofnsins, vernd og
viðreisn lúðu í Norður Atlantshafi,
rannsóknir á afdrifum lúðu sem er
sleppt o.fl.“
Beinar veiðar á lúðu voru bann-
aðar frá og með 1. janúar 2012 en í
fréttinni á vef ráðuneytisins kemur
fram að Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, hyggist ekki endurskoða
bannið og hvetji alla hlutaðeigandi til
að taka virkan þátt í verndun lúð-
unnar.
Þá segir í lokakafla greinargerðar
Hafrannsóknastofnunar að „upp-
bygging lúðustofnsins sé langtíma-
verkefni og ólíklegt sé að umtals-
verður bati náist fyrr en eftir 5-10 ár.
Vegna hægs vaxtar lúðunnar og þess
hversu seint hún verður kynþroska
komi árangur friðunar ekki í ljós fyrr
en að mörgum árum liðnum“.
Bannið áfram í gildi
Hafró skilar greinargerð um lúðuna
Morgunblaðið/Ómar
Engar veiðar Ráðherra hyggst ekki endurskoða veiðibann á lúðu.