Morgunblaðið - 29.08.2014, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 29.08.2014, Qupperneq 12
FRÉTTASKÝRING Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is „Það er ósiðlegt að ryðjast inn á ritstjórn með peninga til þess eins að reka einhvern,“ segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, um átökin sem hafa verið um eignaraðild að fjölmiðlinum að undanförnu og leiddu meðal annars til þess að Þorsteinn Guðnason var settur af sem stjórn- arformaður. Reynir og aðrir starfsmenn DV hafa sakað Þorstein um að standa fyrir fjandsamlegri yf- irtöku á félaginu DV ehf., sem annast rekstur fjölmiðilsins. Efnt hefur verið til aðalfundar fé- lagsins klukkan þrjú í dag á Hótel Reykjavík Natura þar sem ný stjórn verður kjörin og Reynir gerir ráð fyrir að fá reisupassann. Björn Þorláksson, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, hef- ur afþakkað boð um ritstjórastöðuna. „Ítrekað komið til bjargar“ Þorsteinn var settur af sem stjórnarformað- ur þann 16. júlí sl. vegna óánægju annarra stjórnarmanna með hlutafjárkaup hans, en hann var sagður hafa setið báðum megin borðs- ins þegar hann seldi eigin félagi hlut í fjölmiðl- inum. Eftir þessa ákvörðun keypti félag í hans eigu hlut Lilju Skaftadóttur í DV, en hún var áður meðal stærstu eiganda. Félög tengd Þor- steini eiga því nú um þrjátíu prósenta hlut í fjöl- miðlinum. Þá hafa enn frekari hræringar verið á eignarhaldinu þar sem Björn Leifsson, eig- andi World Class, keypti 4,42 prósenta hlut í vikunni. Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður DV, hefur einnig bendlað Sigurð G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmann, sem m.a. gætir hagsmuna Björns Leifssonar og Þorsteins Guðnasonar, við yfirtökuna. Sigurður hefur tekið fyrir þetta og segist aðeins starfa fyrir þá sem hafi lánað DV og Reyni umtalsverða fjármuni á undan- förnum árum og nú sé komið að skuldadögum. Þorsteinn segir ásakanir um fjandsamlega yfirtöku vera ósannar. Hið rétta sé að félög í hans eigu hafi keypt hlutafé og lánað fjármagn til hlutafjárkaupa í DV til þess að treysta rekst- ur þess. „Hvernig sá sem ítrekað hefur komið fyrirtæki til bjargar, getur allt í einu orðið óvin- urinn undir rúminu, er sjálfstætt rannsóknar- efni. Aftur er eina skýringin, að Reynir hafi ekki gert sínum nánustu samstarfsmönnum rétta grein fyrir stöðu mála og sé nú í einhverri örvæntingu að reyna að skrifa söguna eftirá.“ segir hann í yfirlýsingu og bætir við að upphæð- irnar sem hann hafi komið með inn í fyrirtækið að beiðni Reynis hlaupi á tugum milljóna króna. „Auðvitað segja þeir þetta, en merkin sýna verkin og þetta fer allt fram í myrkri. Þeir eru klárlega að reyna að ná meirihluta og eru úti um allan hópinn að kaupa upp bréfin,“ segir Reynir um yfirlýsingu Þorsteins. „Ef það er löglegt og siðlegt segi ég nú bara verði þeim að góðu og ég mun lúta höfði og beygja mig fyrir þeim,“ segir hann. Segja sjálfstæði stefnt í hættu Reynir segir áskrifendur lagða á flótta og bendir á að tæplega hundrað manns hafi sagt upp áskrift sinni vegna málsins.„Ég hef sagt þeim að bíða og snúa ekki við okkur baki, en all- ir segja það sama; að breytingar á eignarhaldi þýði að þau vilji ekki kaupa blaðið,“ segir hann og bætir við að þegar menn séu spurðir nánar út í málið bendi þeir á að eignarhald Björns Leifssonar sé ástæðan. „Það er gríðarleg reiði í gangi vegna þess að þetta er svo augljóst. Þarna kemur inn hluthafi sem segir að ég sé stórhættulegur mannorðsmorðingi og vill að ég verði rekinn.“ Meiðyrðamál Björns Leifssonar gegn rit- stjóra og útgefanda DV bíður nú meðferðar í dómskerfinu og segir Reynir að hann hljóti að vilja reka alla þá blaðamenn sem nefndir eru í stefnunni. Starfsmenn DV hafa þá einnig sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir þung- um áhyggjum vegna ófagra orða Björns um rit- stjórnarstefnu blaðsins. Þau gefi tilefni til að óttast að nýir hluthafar muni ekki virða rit- stjórnarlegt sjálfstæði blaðamanna. Ekki náðist í Björn Leifsson við vinnslu frétt- arinnar og vildi Þorsteinn Guðnason ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Fram kom í máli Reynis Traustasonar í Kastljósi í gær að Gísli Guðmundsson, sem kenndur er við Bifreiðar og landbúnaðarvélar, hefði bjargað félaginu frá gjaldþroti í gegnum félagið Umgjörð. Reynir hélt því einnig fram að Þorsteinn Guðmundsson hefði komið inn sem „aðstoðarmaður“ Gísla. Þegar Reynir spurði Sigurð G. Guðjónsson hvort honum væri kunn- ugt um eignarhaldið á Umgjörð, sagðist Sigurði ekki vera kunnugt um það. Síðar sagði Sigurður að hann færi með málefni Gísla Guðmundsson- ar sem hefði látið peninga inn í félagið og hann ynni einnig fyrir Þorstein. Slagurinn um eignarhald DV  Óvissuástand ríkir á DV og hluthafahópur er sakaður um að standa fyrir fjandsamlegri yfirtöku  Ný stjórn kosin í dag og ritstjóri gerir ráð fyrir að verða rekinn  Öðrum þegar verið boðin staðan Morgunblaðið/Sverrir DV Óvissuástand hefur ríkt á fréttastofu DV síðustu misseri en miklar deilur hafa verið í stjórn DV undanfarna mánuði sem leiddu til þess að stjórnarformaður félagsins var settur af. Reynir Traustason ritstjóri sakar hluthafahóp um fjandsamlega yfirtöku á blaðinu. Þorsteinn Guðnason Reynir Traustason Gísli Guðmundsson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2014 Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16 HREINAR LÍNUR Oslo skenkur kr. 159.800 Turtle Hægindastóll kr. 239.000 Yumi Borð 2 í setti kr. 28.700 Timeout Hægindastóll + skemill Kr. 379.900 Tilboðsverð kr. 315.000 House Doctor Loftljós kr. 24.900 Birni Þorlákssyni, rit- stjóra hjá Akureyri Vikublaði, var boðin ritstjórastaða á DV en afþakkaði. Þetta stað- festi hann í samtali við Morgunblaðið en vildi þó ekki segja hver hefði boðið honum stöðuna. Hann segir það vissulega vera heillandi að ritstýra dagblaði og segir samfélagslega ábyrgð hafa togað í sig, en aðstæður væru hins vegar erfiðar innan fjölmiðilsins þar sem stór orð hefðu fallið um eigendur og starfsmenn. Ástæðuna segir hann þó fyrst og fremst af persónulegum toga þar sem starfið hefði verið tímafrekt og hann vilji einbeita sér að uppeldi tveggja ungra barna sinna. BJÖRN ÞORLÁKSSON Björn Þorláksson Afþakkaði rit- stjórastöðu DV Hafrannsóknastofnun leggur til að áfram verði unnið að aðgerðum til verndar lúðustofninum og að reglu- gerð um bann við veiðum á lúðu verði í gildi þar til merki um verulegan bara í lúðustofninum við Ísland komi fram. Þetta kemur fram á vef at- vinnuvegaráðuneytisins en Hafrann- sóknastofnun hefur skilað grein- argerð um áhrif veiðibanns á lúðu, þar sem m.a. er fjallað um „út- breiðslu og líffræði lúðunnar, veiðar á henni, ástand stofnsins, vernd og viðreisn lúðu í Norður Atlantshafi, rannsóknir á afdrifum lúðu sem er sleppt o.fl.“ Beinar veiðar á lúðu voru bann- aðar frá og með 1. janúar 2012 en í fréttinni á vef ráðuneytisins kemur fram að Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, hyggist ekki endurskoða bannið og hvetji alla hlutaðeigandi til að taka virkan þátt í verndun lúð- unnar. Þá segir í lokakafla greinargerðar Hafrannsóknastofnunar að „upp- bygging lúðustofnsins sé langtíma- verkefni og ólíklegt sé að umtals- verður bati náist fyrr en eftir 5-10 ár. Vegna hægs vaxtar lúðunnar og þess hversu seint hún verður kynþroska komi árangur friðunar ekki í ljós fyrr en að mörgum árum liðnum“. Bannið áfram í gildi  Hafró skilar greinargerð um lúðuna Morgunblaðið/Ómar Engar veiðar Ráðherra hyggst ekki endurskoða veiðibann á lúðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.