Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9. Útskurður og félagsvist
kl. 13. Morgunleikfimin undir stjórn Þorbjargar og Elínar
byrjar mánudaginn 22. september.
Árskógar 4 Opin smíðastofa / útskurður 9-16. Opin handa-
vinna 9-16 m. leiðb.12.30. Boccia 9.30-10.30. Stafganga um
nágrennið 11-11.40. Innanhúspútt 14.15-16. Félagsvist
m/vinningum 13. Myndlist /Elsa 16.
Bólstaðarhlíð 43 Handavinna allan daginn. Leikfimi kl.
10.40. Kl. 13.00 söngustund við píanóið með Carl Möller.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsheimilið Gjábakki Handavinnuleiðbeinandi við kl.
9-17, stólaleikfimi kl. 9.15, boccia kl. 9.15, gler- og postu-
línsmálun kl. 9.30 og kl. 13, silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50,
lomber kl. 13, canasta kl. 13.15, jafnvægisþjálfun kl. 14, létt
hreyfing, kl. 15, línudans kl. 18, samvæmisdans kl. 19.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarnarnesi Ath. Vegna
óviðráðanlegra aðstæðna byrja námskeið í gleri, leir og
listasmiðju ekki fyrr en mánudaginn 15. september. Billjard í
Selinu kl. 10.00. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum
Skólabraut kl. 11.00. Handavinnusalurinn verður opinn í dag
mánudag og miðvikudag kl. 13.00 án leiðbeinanda. Vatnsleik-
fimi í sundlaug kl. 18.30.
Garðabær Vatnsleikfimi kl. 7.30, 8.15, 12.20 og 15.
Stólaleikfimi kl. 9.10, kvennaleikfimi kl. 10 og 11. Ath.
skráning hefur farið fram.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður m. leiðb.
kl. 9-16. Kóræfing kl. 14.30.
Hraunbær 105 Opin handavinna kl.9. Bænastund 9.30.
Jóga kl.10.10. matur kl.11.30. Opin fundur um félagsstarf
kl.13.
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl.8 - 16, mola-
sopi í boði til 10.30 og blöðin liggja frammi, morgunleikfimi
útvarpsins kl. 9.45, stafganga kl. 11, baðþjónusta fyrir hádegi,
hádegisverður kl. 11.30. Spilað bridge kl. 13, eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, glerskurður kl. 9,
morgunleikfimi kl. 9.45, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.30,
myndlistarnámskeið MZ hefst kl. 13, handavinna kl. 13,
félagsvist kl. 13.15. Nánar í s. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl.13.30 í Smáranum. Línudans
hópur I og III kl.17, framhaldshópur kl.18 í Boðanum. Uppl. í
síma 564-1490 og á www.glod.is
Norðurbrún 1. Morgunkaffi kl. 8.30. Morgunleikfimi kl. 9.45.
Morgunganga kl. 10. Bókmenntahópur kl. 11. Hádegisverður
kl. 11.30-12.30. Útskurður kl. 13.
Stangarhyl 4 Dansnámskeið kl. 17-21. Samkvæmisdansar,
línudansar, og gömlu dansarnir . Kennarar Lizy Steinsdóttir.
Matthildur Guðmundsdóttir og Jón Freyr Þórarinsson.
Föstudaginn 12. september kl. 13.30 verður opið hús hjá
félaginu í Stangarhyl 4, þar sem kynnt verður félagsstarf
vetrarins.
Vesturgata 7 Söngfuglarnir verða með sína fyrstu
kóræfingu eftir sumarleyfi fimmtud. 11. sept. kl. 13-14.30.
Kórstjóri Kristína K Szklenár. Nýir kórfélagar velkomnir.
Nánari upplýs. í síma 535-2740. Mánudagur: Setustofa / kaffi
kl. 09.00. Alm. handavinna ( án leiðb.) kl. 09.00.
Hádegisverður kl.11.30. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Atvinnuhúsnæði
Til leigu skrifstofuherbergi í 104
Rvk. Securitas- öryggiskerfi.
Tölvulagnir. Góð samnýting.
Uppl. í síma 896 9629.
Geymslur
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 899 9339
Sólbakki
Sumarhús
Rotþrær – vatnsgeymar
– lindarbrunnar
Rotþrær og siturlagnir.
Heildarlausnir – réttar lausnir.
Heitir pottar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 815 0150
GLERFILMUR
EINN ALVEG FRÁBÆR
Teg Enchanted - fæst í
D,DD,E,F,FF,G,GG skálum á
kr. 9.580,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.–föst. 10–18,
Laugardaga 10 - 14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Léttir og þægilegir dömuinniskór.
Stærðir: 36–42. Verð: 4.950.
Léttir og þægilegir dömuinniskór.
Stærðir: 36–42. Verð: 4.950.
Léttir og þægilegir dömuinniskór.
Stærðir: 36–42. Verð: 3.975.
Léttir og þægilegir dömuskór, breiðir
og vel opnir. Litir: svart og rautt.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 6.485.
Léttir og þægilegir dömuinniskór.
Stærðir: 36–42. Verð: 5.950.
Léttir og þægilegir dömuskór, breiðir
og vel opnir. Litir: svart og rautt.
Stærðir: 36–42. Verð: 7.875.
Góðir skór fyrir erfiða fætur. Stærðir:
36–42. Verð: 6.685.
Léttir og þægilegir dömuskór, breiðir
og vel opnir. Litir: svart og rautt.
Stærðir: 36–42. Verð: 6.485.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Til sölu Toyota Prius, Plug in
Rrafmagns og hybrid bíll, árg. 2012.
Mjög vel með farið eintak.
Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863-7656.
Nýr Chrysler Town & Country
Diesel Limited með leðri o.fl.
Eyðsla 7,9 lítr. í blönduðum akstri.
Eftirársbíll á lækkuðu verði.
Nývirði er 10,9 milljónir. Þennan
færðu á 8.380 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Bílaþjónusta
Bryngljáatilboð í september
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Linda
kjólaklæðskeri
- saumastofa
er í Mjóddinni
S: 662-3743
Saumastofa
• Viðgerðir
• Breytingar
• Saumaþjónusta
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Ný sending
af náttfatnaði
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjóddin s. 774-7377
hvatamanni að stofnun félagsins og
fyrsta formanni þess. Halldóra fylgdi
því félaginu frá litlu skrifborði við Bar-
ónsstíginn, á skrifstofu Dungals, til
vaxandi starfsemi í Suðurgötu og svo
til hins fjölbreytta starfs í Skógarhlíð-
inni. Á þessari löngu og farsælu veg-
ferð lagði hún drjúga hönd á plóg með
mörgum öðrum frumkvöðlum við að
byggja upp öflugt og fjölþætt starf
Krabbameinsfélagsins til hagsbóta
fyrir þjóðina. Samviskusemi, vand-
virkni og trúmennska einkenndu öll
störf Halldóru við margvísleg erindi
og hlutverk á vegum félagsins. Auk
þess að vaka yfir daglegum rekstri hér
heima tók Halldóra á árum áður þátt í
samstarfi norrænu krabbameinsfélag-
anna og miðlaði ýmsum nýjungum af
þeim vettvangi. Það er auður og gæfa
hvers félags að njóta starfskrafta
manneskju eins og Halldóru. Þegar
hún lét af störfum 1997 hafði hún
lengstan starfsaldur þeirra sem unnið
hafa hjá Krabbameinsfélaginu eða um
fjörutíu og sex ár. Eftir starfslok vann
hún síðan um tíma að því verkefni að
skrá sögu félagsins. Hún átti sæti í
heiðursráði Krabbameinsfélagsins og
mætti oft á ýmsar samkomur þess og
hélt tryggð við félagið og starfsfólk
þess. Halldóra var glæsileg, lagleg og
glaðlynd kona, ákveðin og dugleg til
allra verka. Hún var skemmtileg, fé-
lagslynd og jákvæð og lagði gott til
málanna. Hún sýndi mér velvild og
veitti mér stuðning þegar ég tók við
starfi forstjóra félagsins í hlutastarfi
1992 og lét málefni Krabbameins-
félagsins sig varða alla tíð. Halldóra
naut þess að ferðast um landið og er-
lendis, stundaði lengi göngur og skíða-
ferðir þar til gigtin hindraði slíkt. Allt-
af bar hún sig með reisn, var ungleg og
hress í bragði hvernig sem á stóð. Ég
sakna þess að eiga ekki von á því að
hitta hana aftur og sendi ástvinum
hennar innilegar samúðarkveðjur.
Gengin er góð kona, blessuð sé minn-
ing Halldóru Thoroddsen.
Guðrún Agnarsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Halldóru Thoroddsen bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
glímdi við afleiðingar þess. Þetta
reyndist of harðsótt glíma sem tap-
aðist hinn 28. ágúst sl.
Elsku tengdapabbi, ég kveð þig með
söknuði en fyrst og fremst þó með
virðingu. Far þú í friði og megi sál þín
öðlast ró og hvíld eilífðarinnar.
Þorsteinn.
Mig langar að segja frá honum ynd-
islega afa mínum í nokkrum orðum.
Hann var alltaf svo rosalega góður við
alla og dálítið mikið stríðinn og hafði
mjög gaman af því að stríða okkur
barnabörnunum. Hann var mjög mikið
fyrir sætindi og var gott að hafa ömmu
sér við hlið því hún var oft að baka svo
góðar kökur fyrir hann. Afa fannst
alltaf svo gott að halda í höndina á okk-
ur þegar við komum í heimsókn til
hans á hjúkrunarheimilið. Þegar
amma og afi áttu heima á Róðhóli var
alltaf svo gaman að fara í skemmuna
og niður í læk og tína ber og kíkja í
fjárhúsin með afa. Það var alltaf svo
gaman að vera með afa og ég á eftir að
sakna hans mjög mikið.
Blessuð sé minning þín, elsku afi.
Eygló Erna.
Mig langar að kveðja afa minn í
nokkrum orðum.
Það var alltaf mjög gaman að fara
til hans afa á elliheimilið, við fórum
stundum í leikherbergið og spiluðum
keilu og einhverja leiki, afa fannst allt-
af svo gaman í keilu. Og við tefldum og
spiluðum mikið áður en hann lamaðist.
Amma átti líka alltaf konfekt handa
okkur þegar ég kom til þeirra í Holta-
teiginn. Hann afi var alltaf mjög stríð-
inn og var oft að klípa í okkur þegar
við komum til hans. Það var alltaf
mjög gaman að fara með þeim á Róð-
hól og tálga og smíða alls konar dót.
Mér finnst mjög skrítið að geta ekki
farið á elliheimilið til hans núna og fá
að halda í höndina á honum. Hann afi
var mjög góðhjartaður og gat alltaf
glatt okkur systurnar. Hvíldu í friði
elsku besti afi.
Sunneva.