Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Súpur í Fylgifiskum
Við seljum þrjár gerðir af súpum; austurlenska fiskisúpu, kraftmikla fiskisúpu og rjómalagaða humarsúpu.
Súpurnar eru hitaðar upp að suðu þegar heim er komið. Fiskurinn er settur hrár á hvern súpudisk og
rjúkandi súpan sér um eldunina. Humarinn þarf að snöggsteikja áður en hann er settur í humarsúpuna.
Fiskisúpur 1.590 kr/ltr
Humarsúpa 2.900 kr/ltr
Fiskur og humar seldur sér
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30
Laugardaga frá 11.00-14.00 (Kópavogur)
Liðsmenn íslömsku öfgasamtak-
anna Boko Haram sölsuðu undir sig
fleiri bæi á landamærum Nígeríu
og Kamerún um helgina. Samtökin
ráða nú fjölda bæja í norðaustur-
hluta Nígeríu en markmið þeirra er
að koma á fót kalífadæmi þar.
Hermenn stjórnarhersins tóku til
fótanna undan árás hundraða upp-
reisnarmanna. Þá flúðu margir íbú-
ar bæjanna átökin þrátt fyrir að ísl-
amistarnir hafi hvatt þá til að vera
um kyrrt. „Þeir fullvissuðu okkur
um að þeir myndu ekki ráðast á
okkur en fólk forðaði sér, sum höf-
um við flúið því við óttumst að þeir
snúi byssum sínum að okkur þegar
þeir hafa yfirbugað hermennina,“
sagði vitni við AP-fréttastofuna.
Hvetja íbúana til að
vera um kyrrt
Íslamistar Boko Haram-liðar í mynd-
skeiði samtakanna frá því í ágúst.
NÍGERÍA
AFP
málum á borð við húsnæðismál og
skattalækkanir til auðugra.
Viðbrögð varaforsætisráðherra
Skotlands, Nicola Sturgeon, við
könnuninni virðast renna einhverj-
um stoðum undir kenningu Brown.
„Æ fleira fólk gerir sér nú grein
fyrir að já-atkvæði er eina tækifæri
Skotlands til að láta auð sinn nýtast
öllum sem búa hér betur, skapa fleiri
störf og verja grunnþjónustu […]
fyrir eyðileggjandi áhrifum einka-
væðingar [stjórnvalda í] Westmins-
ter,“ sagði hún.
Niðurstaða skoðunarkönnunarinn-
ar nú hefur vakið þá sem vilja halda í
samband Skota og Breta af værum
blundi, að sögn Allistairs Darlings, fv.
fjármálaráðherra Bretlands og leið-
toga nei-sinna. Hann segist enn viss
um að nei-ið verði ofan á í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni en niðurstaðan
ráðist ekki fyrr en í blálokin.
Sakar ríkisstjórnina um að
reyna að múta Skotum
Skotum lofað meira sjálfræði eftir könnun sem sýnir forskot sjálfstæðissinna
AFP
Fylgissveifla Sjálfstæðissinnum í Skotlandi hefur vaxið ásmegin undanfarnar vikur. Framan af virtust nei-sinnar
hafa nokkuð öruggan meirihluta en nú eru fylkingarnar nánast jafnar. Kosið verður um sjálfstæði 18. september.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Útlit er fyrir að mjótt verði á mun-
unum þegar Skotar greiða atkvæði
um sjálfstæði eftir tæpan hálfan
mánuð. Hingað til hefur meirihluti
þeirra verið á móti sjálfstæði þó að
já-hreyfingin hafi unnið á undanfar-
ið. Ný skoðanakönnun sem birt var
um helgina olli því titringi á meðal
þeirra sem styðja það að Skotland
verði áfram hluti af Bretlandi en hún
sýndi að naumur meirihluti styddi
sjálfstæði.
Könnunin er sú fyrsta sem mark
er á takandi þar sem meirihluti
mælist fyrir sjálfstæði en hún var
gerð fyrir The Sunday Times. Sam-
kvæmt henni myndi 51% Skota
greiða atkvæði með sjálfstæði en
49% gegn því þegar ekki var tekið
tillit til þeirra sem höfðu ekki gert
upp hug sinn. Enn voru 6% þátttak-
enda í könnuninni óákveðin.
George Osborne, fjármálaráð-
herra Bretlands, brást við tíðindun-
um með því að segja að tilkynnt yrði
um aukið sjálfræði Skotlands í
skatta og útgjaldamálum á næstu
dögum sem yrði framfylgt kjósi
Skotar að halda sig innan Bret-
lands.
Stefnan skemmir fyrir
Alex Salmond, forsætisráðherra
skosku heimastjórnarinnar, sagði
loforð Osborne vera „mútur“.
„Þetta eru aðgerðir settar fram í
óðagoti vegna þess að já-fylkingin er
að hafa sigur. Þeir eru að reyna að
múta okkur en það mun ekki koma
til með að virka því að þeir hafa eng-
an trúverðugleika eftir,“ sagði Sal-
mond í samtali við breska ríkisút-
varpið BBC.
Gordon Brown, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, kenndi
Íhaldsflokknum um hversu mjótt
væri á mununum. Nei-hreyfingin
ætti erfitt með að ná til Skota vegna
reiði þeirra út í stefnu stjórnvalda í
Skærur héldu áfram í Austur-
Úkraínu um helgina þrátt fyrir
vopnahlé sem fulltrúar stjórnvalda í
Kænugarði og uppreisnarmanna
undirrituðu á föstudag.
Seint á laugardag sögðu vitni að
uppreisnarmenn hefðu gert
sprengjuárás á eftirlitsstöð úkra-
ínskra stjórnvalda austan við borg-
ina Mariupol. Borgin hefur hingað
til verið á valdi úkraínskra stjórn-
valda. Einn óbreyttur borgari, kona
á fertugsaldri, er sögð hafa fallið í
árásinni. Þrír aðrir hafi særst.
Kenna hvorir öðrum um
Áður en vopnahléssamkomulagið
var undirritað höfðu uppreisnar-
menn nálgast flugvöllinn í Donetsk
og Mariupol. Í gær bárust fregnir af
átökum við flugvöllinn. Fréttamenn
breska ríkisútvarpsins BBC á flug-
vellinum sögðust hafa heyrt í
sprengjum bæði innan og utan flug-
vallarsvæðisins.
Starfsmenn Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu (ÖSE)
sögðu flestar sprengjurnar koma frá
úkraínskum hermönnum. Átökin við
flugvöllinn væru ekki næg til þess að
kippa stoðunum undan vopnahléinu.
Þrátt fyrir þetta sögðust bæði
fulltrúar stjórnvalda og uppreisnar-
manna hafa virt vopnahléið. Kenndu
þeir hvorir öðrum um að hafa rofið
það. kjartan@mbl.is
AFP
Eyðilegging Úkraínskir hermenn kanna ástand brunnins herbíls við Mariu-
pol eftir árás uppreisnarmanna á eftirlitsstöð aðfaranótt sunnudags.
Áfram einhver átök
þrátt fyrir vopnahlé
Jörðin hefur
hingað til verið
talin eini hnött-
urinn í sólkerfi
okkar með virk-
ar jarðfleka-
hreyfingar. Nú
telja vísinda-
menn mögulegt
að slíkar hreyf-
ingar sé að finna
á Evrópu, ís-
tungli Júpíters. Evrópa er aðeins
minni en tunglið okkar en yfirborð
þess er eitt það yngsta í sólkerfinu.
Á jörðinni skiptist jarðskorpan
upp í fleka sem fljóta ofan á möttl-
inum og hreyfast gagnvart hver
öðrum. Á Evrópu virðist stökkur,
hreyfanlegur ís mynda flekana og
flýtur hann ofan á hlýrri ís sem
myndar hringstreymi.
Grunur um fleka-
hreyfingar á Evrópu
Ístunglið Evrópa.
SÓLKERFIÐ
Ótrúlegt er hversu hratt hefur fjar-
að undir stuðningi við sam-
bandsríkið í Skotlandi, að sögn
Peters Kellner, framkvæmdastjóra
YouGov sem gerði skoðanakönn-
unina fyrir The Sunday Times. Nei-
sinnar virtust eiga sigurinn vísan
en forskot þeirra mældist lengi vel
um 58% á móti 42% já-sinna. Nú
munar aðeins tveimur prósentu-
stigum á þeim.
„Á síðustu fjórum vikum hefur
stuðningur við sambandríkið guf-
að upp á undraverðum hraða,“
segir Kellner.
Stuðningur
fólks undir fer-
tugu við sjálf-
stæði hefur
aukist úr 39% í
60% og á með-
al verka-
mannastéttar
hefur hann far-
ið úr 41% upp í
56%. Þá telja nú fleiri að Skotlandi
vegni betur sjálfstæðu en í sumar
og færri telja nú að það muni
hljóta skaða af því að segja skilið
við breska sambandsríkið.
Fjarar undan sambandsríkinu
SÉR EKKI Á MILLI HREYFINGANNA TVEGGJA
Mörk Englands og
Skotlands.