Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný
hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift
aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum.
ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter
að fáþau ímörgumútfærslum.
næsta þéttbýli og fátt í umhverfinu
sem glepur. Hér hafa menn hvorki
aðgang að neti, útvarpi né sjónvarpi
og geta því einbeitt sér að því að ná
bata,“ segir Karl sem kom til starfa
hjá SÁÁ árið 2006. Hafði þá náð
tökum á eigin alkóhólisma en í
framhaldi af því aflaði hann sér
menntunar í áfengisráðgjöf. Hefur
frá því námi lauk starfað á ýmsum
póstum SÁÁ, en veitt starfseminni á
Staðarfelli forstöðu síðastliðin tvö
ár.
Samkvæmt almennum við-
miðum eru sjúkdómsstig alkóhól-
isma þrjú. Hið fyrsta er að ein-
staklingur er í neyslu sem er að
þróast til illviðráðalegs vandamáls,
á öðru stigi er neyslan stjórnlítil og
einstaklingurinn í félaglegum
vanda. Á þriðja stiginu er viðkom-
andi í öngstræti og getur ekki sinnt
skyldum sínum í daglegu lífi.
„Á Íslandi er vel staðið að með-
ferðarstarfi og inngripið getur kom-
ið fljótt. Það dugar samt ekki allt-
af,“ segir Karl sem áætlar að
þriðjungur Staðfellinga sé end-
urkomumenn, sem hafi verið áður
þar og á Vogi. Meðferð þeirra er
með sama hætti og þeirra sem koma
í fyrsta sinn, nema hvað þeir fá þétt-
ara utanumhald og eftirfylgd á
göngudeild í eitt ár að lokinni með-
ferð.
Góðir hlutir gerast
„Okkar skilaboð til þeirra
manna sem hingað eru að koma í
annað eða þriðja sinn eru samt al-
veg skýr: að endurkoma er aldrei
tapleikur. Sumt tekst í fyrstu lotu
en stundum þarf að reyna aftur.
Auðvitað er margt í svona vinnu
sem tekur á og snertir mann. Maður
þarf því líka að hugsa um eigin líðan
og eiga líf utan vinnunnar til að
brenna ekki upp. En sé það í lagi er
þetta starf – þar sem maður sér svo
marga góða hluti gerast – af-
skaplega gefandi,“ segir Karl S.
Gunnarsson að síðustu.
ufsa og ýsu. Fiskurinn er unninn í
frystihúsi fyrirtækisins í bænum eða
seldur ferskur úr landi.
Skipin eru aðeins tvo til þrjá daga
að veiðum í senn. Þau sigla heim þeg-
ar þau hafa fyllt sig. Þessi stutti tími
veldur því að fyrirtækið getur boðið
upp á ferskara og betra hráefni.
Og um leið leggur það lóð á vogar-
skálar betra fjölskyldulífs sjómanna
sinna.
Dregið hefur úr þýðingu veiðar-
færagerðarinnar vegna tækni-
framfara, en verkefnin hafa aðal-
lega falist í gerð botntrolla fyrir
fiskiskip á Grundarfirði og þjónustu
við rækjuveiðibáta á Breiðafjarðar-
svæðinu. gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Gunnar Kristjáns
Höfnin Skipafjöldinn ber vott um þýðingu útgerðar fyrir Grundarfjörð.
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.
„Það voru margir mjög ósáttir með
mig en það hefur jafnað sig vel. Það
er allt fallið í ljúfa löð,“ segir Páll
Margeir Sveinsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Snæfells. Hann var
þjálfari meistaraflokks liðsins þeg-
ar hann skráði sig í sögubækurnar
fyrir tveimur árum með 31-0-tapi
gegn Haukum í bikarkeppni KSÍ.
Tímabilið í heild reyndist liðinu
raunar erfitt því það tapaði öllum
fimmtán leikjum sínum í 3. deild
með markatöluna mínus 173. Páll
segir að það hafi verið vitað fyr-
irfram að leikurinn myndi reynast
liði sínu erfiður.
„Haukar höfðu ekki tapað leik í
þrjá mánuði og voru meðal annars
búnir að vinna KR og Fram,“ segir
Pall kíminn. Staðan var 13-0 í hálf-
leik og fleiri mörk bættust við í þeim
seinni. Eftir leik Brasilíumanna og
Þjóðverja á heimsmeistaramótinu í
sumar þar sem þeir síðarnefndu nið-
urlægðu heimamennina 7-1 varð
Páli hugsað til leiksins gegn Hauk-
um og bar saman leikskýrslurnar.
„Þjóðverjarnir náðu að skora
þarna fjögur mörk á sex mínútum á
sama hraða og Haukanir keyrðu á
okkur. Þetta var bara það sama og
þegar mest lét hjá Haukunum. Þjóð-
verjarnir hafa lagt upp með sama
hugarfarið og Haukarnir á móti
okkur,“ segir Páll sem hafði sér-
staka samúð með Brössunum.
Í sumar hefur liðið átt betra gengi
að fagna og endaði í 5. sæti í átta
liða riðli sínum í 4. deild þrátt fyrir
að stundum rændi makríllinn liðið
leikmönnum. „Þetta er alltaf sama
vesenið. Í síðustu umferð voru tveir
byrjunarliðsmenn bundnir í makríl
og einn á makrílbát. Það er erfitt að
vera í samkeppni við makrílinn en
þá fá bara aðrir séns,“ segir Páll.
kjartan@mbl.is
Í samkeppni við makrílinn um leikmennina
Hafa rétt úr kútnum eftir 31-0-tap
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfari Páll stýrir æfingu á spark-
vellinum í Stykkishólmi.
Matmóðir
alkanna
ÞÓRA STELLA STARFAÐI LENGI HJÁ SÁÁ Á STAÐARFELLI
„Strákarnir sem hér hafa dvalist
eru þakklátir, sem gerir starfið
ánægjulegt. Það hefur líka verið
reynt að ala þá vel á íslenskum
heimilismat,“ segir Þóra Stella
Guðjónsdóttir á Staðarfelli.
Starfsemi SÁÁ vestra hófst
haustið 1980 og tveimur árum
síðar tók Þóra að sér að matseld
á meðferðarstöðinni. Það starf
hafði hún með höndum allt til
ársins 2012.
Áfengismeðferð er stíf vinna
Þau Þóra og Sveinn Gestsson,
eiginmaður hennar, hafa lengi
búið á Staðarfelli. Staðurinn hef-
ur sess í sögunni og lungann úr
20. öldinni og allt fram til 1975
var þar starfræktur húsmæðra-
skóli. „Dalamenn vildu að hér
yrði einhver starfsemi áfram og
við vorum heppin að fá SÁÁ
hingað,“ segir Þóra sem hleypur
undir bagga og grípur í sitt
gamla starf þegar svo ber undir
og þarf. Margt þarf að gera á
stóru heimili.
„Boðskapurinn í meðferðarstarf-
inu er mannbætandi fyrir alla,
mikilvæg atriði eins og að til-
einka sér jákvæð viðhorf í lífinu
og mæta öllum áskorunum af
æðruleysi. Gefast ekki upp og
muna að þó að hlutirnir gangi
ekki upp þá kemur alltaf nýr
dagur. Allt er þetta annars
spurning um viðhorf og þjálfun;
það að vera í áfengismeðferð er
stíf vinna.“
Svipurinn breytist
Þegar litið er til baka segir Þóra
að eðlilega renni margt saman í
eitt í hugskoti sínu. „Jú, maður
man vissulega eftir sumum sem
hér hafa dvalist. Annars er það
nú svo að þegar fólk hættir
drykkju eða neyslu þá breytist
svipur þess, sumt virðist hrein-
lega yngjast upp um tíu ár að
sjá. Þetta hef ég séð svo oft,“
segir Þóra sem með sóma ber
þann titil að vera matmóðir ís-
lenskra alkóhólista.
Eldhúsið Þóra segir strákana þakkláta
sem hún eldar heimilismat ofan í.
I I 1
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðu vaxtarbroddu í atvinnu
lífinu u land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn bl.is.