Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
T 7/1
1200 wött
7 ltr. tankur
Gólfhaus
CV 48/2
Ryksuga með bursta
1200 wött
5,5 ltr. tankur
CV 38/2
Ryksuga með bursta
1150 wött
5,5 ltr. tankur Ryksugur
Fyrir heimilið og
vinnustaðinn
Margir aukahlutir
fáanlegir
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
T 10/1
1250 wött
10 ltr. tankur
Margir fylgihlutir
Gólfhaus
T 12/1
1300 wött
12 ltr. tankur
Sérlega hljóðlát
Margir fylgihlutir
Gólfhaus
Einhver af hinum fjölmörgufjármálaráðherrum, sem sátu
í umboði vinstriflokkanna á síðasta
kjörtímabili eða kannski þeir allir,
reyndu að þröngva auðkennis-
lyklum inn á menn, þeg-
ar þeir þurftu að
endurnýja greiðslu-
kortin sín.
Fáir voru ginn-keyptir fyrir
því að verða hengd-
ir í það band ráðu-
neytisins.
Ögmundur Jónasson, sem varðtvívegis ráðherra í síðustu rík-
isstjórn, kannast augljóslega við að
sú stjórn gafst upp við þetta ætl-
unarverk sitt. Hann segir:
Við ríkisstjórnarskiptin var þessiþráður tekinn upp að nýju og
nú tekur út yfir allan þjófabálk þeg-
ar ríkisstjórnin, hluti hennar eða
embættismenn, taka þá ákvörðun
að gera það að skilyrði fyrir skulda-
leiðréttingu að notast sé við rafræn
auðkenni bankanna …“ Og Ög-
mundur spyr:
Hver tók þessa ákvörðun og á
hvaða forsendum var það gert?“
Kannski verður fróðlegt aðheyra svarið við þessari
spurningu Ögmundar. En hið raun-
verulega inntak þess verður þó
þetta:
Það var að vísu skipt um ríkis-stjórn eftir kosningar. En emb-
ættismennirnir í fjármálaráðuneyt-
inu fara enn sínu fram, í anda
Steingríms og Indriða, rétt eins og
embættismennirnir í utanríkisráðu-
neytinu eru enn á leiðinni með Ís-
land inn í ESB.
Svipaða sögu er því miður aðsegja úr fleiri ráðuneytum.
Ögmundur
Jónasson
Rauður þráður
þjófabálks
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.9., kl. 18.00
Reykjavík 12 alskýjað
Bolungarvík 12 alskýjað
Akureyri 14 súld
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 21 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 21 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 20 skýjað
Berlín 25 léttskýjað
Vín 20 skýjað
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 24 heiðskírt
Chicago 24 léttskýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:31 20:21
ÍSAFJÖRÐUR 6:31 20:30
SIGLUFJÖRÐUR 6:14 20:14
DJÚPIVOGUR 5:59 19:51
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Líflegar umræður hafa verið á fund-
um Illuga Gunnarssonar, mennta- og
menningarmálaráðherra, sem nú er
á leið um landið að kynna hugmyndir
Hvítbókar um umbætur í menntun á
Íslandi. Ráðherrann fundaði með
skólastjórnendum, kennurum, for-
eldrum, sveitarstjórnarfólki og öðr-
um áhugasömum á Akureyri, Húsa-
vík, Siglufirði og Sauðárkróki um
helgina og var vel tekið í hugmyndir
ráðherrans um umbætur í skólakerf-
inu að hans sögn.
„Umræður á þessum fundum eru
alltaf líflegar og þeir eru mjög gagn-
legir fyrir mig vegna þess að þarna
fæ ég tækifæri til að heyra frá kenn-
urum og foreldrum hvernig við get-
um tekist á við t.d. ýmis vandamál
sem blasa við okkur í skólakerfinu.“
Ekkert sem viðkemur mennta-
kerfinu er undaskilið á fundum með
ráðherranum sem segir þó helst vera
rætt um það markmið að bæta læsi
og námsframvindu í framhaldsskól-
um. „Það er ekki ásættanlegt að 30
prósent drengja og 14 prósent
stúlkna uppfylli ekki lágmarksvið-
mið í lestri við lok grunnskólanáms
og við ræðum á þessum fundum
hvernig má bæta lesturinn og þá er
jafnframt mikilvægt að huga að
auknu samstarfi milli foreldra og
skóla. Þó að allt væri gert rétt í
skólakerfinu þurfa nemendur að æfa
sig heima og lesa sér til gagns utan
skólans.“
Ljúki námi á réttum tíma
Námsframvinda nemenda í fram-
haldsskólum getur ekki talist viðun-
andi meðan innan við helmingur
nemenda lýkur námi á tilskildum
tíma. Illugi segir bætta lestrarkunn-
áttu og námsárangur í framhalds-
skólum haldast í hendur.
„Við höfum sett það markmið að
hlutfall nemenda sem ljúka námi úr
framhaldsskóla á tilsettum tíma
hækki úr 44% og upp í 60% á næstu
árum. Þessu markmiði verði náð
m.a. með því að endurskipuleggja
námstíma og stytta nám til loka-
prófa. Lesskilningur og námsfram-
vinda helst líka í hendur og um leið
og við sjáum lesskilning nemenda
aukast má búast við því að náms-
framvindan verði betri,“ segir Illugi,
sem telur mikla sátt vera innan
skólakerfisins og samfélagsins um
að ná markmiðum Hvítbókarinnar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Menntamál Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnir
hugmyndir Hvítbókarinnar um umbætur í menntun á fundaherfð um landið.
Illugi ræðir um-
bætur í menntun
Áhersla á lesskilning og námstíma