Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
„Sjálfboðaliðar hafa gengið í hús
um allt land til styrktar innanlands-
starfi Rauða krossins en átakið
gekk ágætlega og þá sérstaklega
hjá deildum Rauða krossins á lands-
byggðinni,“ segir Björn Teitsson,
verkefnisstjóri upplýsinga- og
kynningarmála Rauða krossins á
Íslandi, en um var að ræða lands-
söfnunina „Göngum til góðs“ sem
hófst síðastliðinn fimmtudag og
lauk á miðnætti í gær.
„Göngufólk í Reykjavík var
nokkuð færra en áður. Hins vegar
stóð það sig mjög vel og skilaði vel í
hús,“ segir Björn og bendir á að ný-
breytnin í ár hafi verið rafrænn
söfnunarbaukur fyrir snjallsíma-
notendur. „Við vonumst til þess að
þessi tilraun gefi okkur góðan tón
til framtíðar.“
Rauði
krossinn
gekk í hús
Fjölmenntu á
landsbyggðinni
Morgunblaðið/Ómar
Styrkur Landssöfnun Rauða kross-
ins lauk á miðnætti í gær.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú í vikunni verður umferð hleypt á
nýjan legg milli Kópavogs- og Borg-
arholtsbrautar sem greiða á fyrir
umferð um vesturbæinn í Kópavogi.
Lagður hefur verið nýr vegur sem er
tenging frá austurenda Kópavogs-
brautar upp á Borgarholtsbraut,
nærri Hamraborg.
Með þessu er vænst að nokkuð
létti á þunganum sem er á vestur-
hluta Borgarholtsbrautar, þar sem
Sundlaug Kópavogs er, en umferð
þar hefur verið fólki nokkurt
áhyggjuefni. Sem fyrr verður áfram
tenging af Kópavogsbraut inn á
Hafnarfjarðarveg, þ.e. æðina til
suðurs.
Kostar 100 milljónir
„Nú er búið að malbika þarna á
Kópavogsbrautinni, en kantsteypa
og vinna við merkingar er eftir. Ég
vonast til að þetta verði klárt og
hægt að hleypa umferð þarna á,
kannski á þriðjudag eða miðvikudag.
Það voru allir sammála um að þetta
verkefni væri brýnt enda greiðir það
umferðina hér í gegnum vesturbæ-
inn,“ sagði Steingrímur Hauksson,
sviðsstjóri umhverfissviðs Kópa-
vogsbæjar.
Ákvörðun um þessar framkvæmd-
ir var tekin af bæjaryfirvöldum.
Gengið var að tilboði verktakafyrir-
tækisins Hálsafell hf. Kostnaður við
verkefnið verður röskar 100 milljón-
ir króna, og segir Steingrímur að
áætlanir um verð og verktíma standi
allar á pari.
Greiðir leið um vesturbæ
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Framkvæmdum er að ljúka og umferð mun ganga greiðar.
Kópavogs- og Borgarholtsbraut tengdar Opnað í vikunni
Árlegur for-
mannafundur
Starfsgreina-
sambandsins
(SGS) hefst á Ísa-
firði á morgun og
stendur fram á
miðvikudag. Þar
munu formenn og
varaformenn að-
ildarfélaganna
meðal annars
ræða um kjaramál en framundan eru
viðræður við vinnuveitendur um nýj-
an kjarasamning. Núverandi kjara-
samningur rennur út 28. febrúar.
Engu að síður verður undirbúningur
þeirra viðræðna ekki aðalmálið á for-
mannafundinum.
„Það verður rætt um kjaramálin
en það verður ekki það sem við leggj-
um mesta áherslu á. Við tókum
ákvörðun um það að aðildarfélögin
hefðu septembermánuð til þess að
fara í gegnum sérmál sín til að sjá
hvort það hafi orðið breyting á þeim
frá því í fyrra. Við ætlum að koma
saman um mánaðamótin aftur og þá
göngum við endanlega frá því,“ segir
Björn Snæbjörnsson, formaður SGS.
Formenn SGS
funda saman
á Ísafirði
Björn
Snæbjörnsson