Morgunblaðið - 30.09.2014, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. S E P T E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 228. tölublað 102. árgangur
RAMMUR
JÖTNARÓMUR
Á ROKKJÖTNUM
NÝR
LÝÐHÁSKÓLI
UNGIR ÖKU-
MENN FÁ TÆKI-
FÆRI ERLENDIS
AUSTURLAND 12 BÍLAR 8 SÍÐURBÖBBI Í SKÁLMÖLD 30
Kerstin Langenberger upplifði orkuna og hitann frá glóandi
hrauninu úr eldgosinu í Holuhrauni á sama tíma og kljást
þurfti við kaldan vind og snjókomu sem barði á henni og ferða-
félögum hennar. „Andstæðurnar eru ótrúlegar við hraunið og
það er einstök upplifun að sjá snjóinn krauma af hrauninu en
um leið safnast upp við jaðra þess,“ segir Kerstin, sem kom
fyrst til Íslands frá Þýskalandi fyrir rúmum fjórtán árum til að
læra landnýtingarfræði. „Ég bjó á Íslandi í sex ár meðan ég var
hér í námi og hef frá árinu 2006 komið árlega til landsins til að
viðhalda íslenskunni og tengslum við landið. Þetta er í fyrsta
skiptið sem ég sé í eigin persónu eldgos og hraun og ég á varla
til orð til að lýsa andstæðunum í náttúrunni hérna.“ »9
Upplifði andstæður í landi íss og elds við Holuhraun
Ljósmynd/Kerstin Langenberger
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir eru hafnar við nýtt
150 herbergja hótel við Hlemm í
Reykjavík. Hluti hótelsins verður í
eldra skrifstofuhúsnæði, sem áður
hýsti m.a. útibú Arion banka, sem
verður endurnýjað. Hinn hlutinn
verður í viðbyggingu. Stefnt er að
því að hótelið verði komið í fullan
rekstur í júní 2016.
Hótelið verður það sjötta sem
rekið er undir merkjum Center-
Hotels. Með nýja hótelinu og
stækkun CenterHotels Skjald-
breiðar verður keðjan með alls 630
herbergi til útleigu fyrir ferða-
menn frá og með sumrinu 2016.
Kristófer Oliversson, fram-
kvæmdastjóri CenterHotels, segir
að 40-50 herbergi verði tilbúin í
Miðgarði í júní næsta sumar. Þau
verða í skrifstofubyggingunni sem
er nú þegar í notkun.
Framkvæmdaaðili er Mannverk,
sem á verkefnið ásamt Center-
Hotels, sem annast reksturinn.
Verkefnið er fjármagnað af Ís-
landsbanka. Að sögn Hjalta Gylfa-
sonar, eiganda Mannverks, kostar
uppbygging nýja hótelsins um þrjá
milljarða króna.
Hann segir framkvæmdina
munu fegra Hlemmssvæðið. Þar sé
tilvalið að gera torg og grænt
svæði.
„Á næstu fimm árum mun ásýnd
Hlemmssvæðisins gjörbreytast til
hins betra. Það er spennandi að sjá
hvað borgin ætlar að gera við
gamla Hlemm. Það felast gríðarleg
tækifæri í svæðinu; ein hugmyndin
væri að láta gamla Hlemm víkja
fyrir glæsilegu torgi sem kallast á
við Austurvöll.“
Við Hlemm er að rísa fjöldi hót-
ela. Fyrir utan hótel Miðgarð er í
byggingu 340 herbergja hótelturn í
eigu Fosshótela á Höfðatorgi.
Gegnt því hóteli mun önnur keðja
opna 100 herbergja hótel í Þórunn-
artúni og á Hverfisgötu 103 er ann-
að 100 herbergja hótel í byggingu.
Með Miðgarði eru þetta alls 690
herbergi sem munu bætast á
markaðinn á næstu tveimur árum,
meirihlutinn þegar næsta sumar.
Mikill fjöldi gistirýma
Við Hlemm er í rekstri eitt
stærsta hostel landsins, Hlemmur
Square, en þar eru 248 hostelrúm
og 18 hótelherbergi. Þá eru 32 her-
bergi á 4th Floor Hotel við Hlemm
og næsta sumar bætast 80 her-
bergi við þau 86 sem þegar eru á
Hótel Kletti, steinsnar frá Hlemmi.
Innan tveggja ára verða því sam-
tals um 900 hótelherbergi og 248
hostelrúm við Hlemm. Við þetta
bætist fjöldi íbúða sem leigðar eru
til ferðamanna, meðal annars hjá
Einholt Apartments í Einholti.
MÞrír milljarðar »4
Níu hundruð hótel-
herbergi við Hlemm
CenterHotels-keðjan opnar Hótel Miðgarð á næsta ári
Teikning/Gláma-Kím
Í hönnun CenterHotels Miðgarður.
Veitinga- og matarmarkaður með
sjávarafurðir verður opnaður í
Bakkaskemmu við Reykjavík-
urhöfn á næsta ári, gangi allt upp.
Stjórn Faxaflóahafna hefur sam-
þykkt að hefja viðræður við Ís-
lenska sjávarklasann um uppsetn-
ingu staðarins í samræmi við
tillögur sem klasinn hefur lagt
fram. Starfsemin mun ganga undir
nafninu „Reykjavík Seafood Hall“.
Þór Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Íslenska sjávarklasans, segir
að mikil gróska hafi verið í þróun
matvæla hérlendis og áhugi fyrir
fullvinnslu afurða, m.a. í tengslum
við sjávarútveginn. Nú sé rétti tím-
inn til að skapa varanlegan vett-
vang fyrir markaðssetningu og sölu
á þessum vörum. Starfsemin bygg-
ist þó á því að áfram verði alvöruút-
gerð starfrækt í Reykjavík. »6
Við höfnina Hús sjávarklasans.
Sjávarhöll
við höfnina
Matarmarkaður
í Bakkaskemmu
Skurðlæknar kjósa um verkfalls-
aðgerðir í þessari og næstu viku eft-
ir árangurslausan fund með samn-
inganefnd ríkisins hjá ríkissátta-
semjara í gærkvöldi, að sögn Helga
Kjartans Sigurðarsonar, formanns
Skurðlæknafélags Íslands. „Það er
búið að ýta okkur út í þvingunar-
aðgerðir en verkfall þýðir að skurð-
stofurekstur leggst niður. Það verða
engar skipulagðar aðgerðir, engar
krabbameinsaðgerðir, eingöngu
bráðatilvikum sinnt,“ segir Helgi,
sem telur verkfall vera nauðvörn
fyrir framtíð skurðlækninga á Ís-
landi. „Við verðum að gera eitthvað
til að fá fólk heim og halda því á
landinu. Meðalaldur skurðlækna er
of hár hérna.“
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra segir vonbrigði að samn-
ingar lækna skuli hafa verið lausir í
jafnlangan tíma. „Við verðum að
hafa þessi mál í lagi ef við ætlum að
keppa um þetta sérhæfða vinnuafl,“
segir Kristján, sem telur að taka
verði viðvaranir lækna um ástandið
alvarlega. Skurðlæknar hafa verið
samningslausir í níu mánuði.
vilhjalmur@mbl.is
Læknar
kjósa um
verkfall
Skurðstofurekstur
myndi leggjast niður