Morgunblaðið - 30.09.2014, Qupperneq 4
Tölvuteikning/Sigurður Halldórsson hjá Glámu-Kím
CenterHotels Miðgarður Hér eru frumdrög að því hvernig viðbyggingin gæti litið út. Samkvæmt söluyfirliti sem Morgunblaðið hefur undir höndum var söluverð Rauðarárstígs 23 490 milljónir.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hótelkeðjan CenterHotels undirbýr
opnun nýs hótels á horni Laugaveg-
ar og Rauðarárstígs við Hlemm í
Reykjavík. Hótelið mun heita Mið-
garður og verður það sjötta í eigu
keðjunnar í miðborginni. Það verður
fjögurra stjörnu og herbergin um
150. Hótelið verður í endurhannaðri
byggingu á Rauðarárstíg 23 og í
nýrri viðbyggingu á lóðinni.
Rauði krossinn er nú með skrif-
stofur í húsinu en Arion banki var
þar áður með útibú á jarðhæð. Sunn-
an við bygginguna er lágreist bygg-
ing og garður. Þar verður byggð
nokkurra hæða viðbygging fyrir hót-
elið. Með því verður byggingarrétt-
urinn á lóðinni fullnýttur.
Gert er ráð fyrir að núverandi
skrifstofubygging verði hæsta bygg-
ingin á lóðinni. Hönnun hótelsins er
ekki lokið. Grófar útlínur viðbygg-
ingarinnar má sjá á frumdrögum
hér fyrir ofan. Aðalhönnuður verk-
efnisins er Sigurður Halldórsson hjá
Glámu-Kím.
Framkvæmdaaðili er Mannverk
sem á verkefnið ásamt Center-
Hotels, sem annast reksturinn.
Verkefnið er fjármagnað af Íslands-
banka. Húseignin Rauðarárstígur 23
var í eigu Arion banka og var gengið
frá kaupsamningum í ágúst.
Hluti herbergja í notkun 2015
Að sögn Kristófers Oliverssonar,
framkvæmdastjóra CenterHotels,
verða 40-50 herbergi tilbúin í júní
næsta sumar. Þau verða í skrif-
stofubyggingunni sem er nú í notk-
un. Töluverðar breytingar verða
gerðar á húsinu. „Eins og nafnið ber
með sér mun nýja hótelið sækja inn-
blástur í norræna goðafræði. Hönn-
unin er ekki komin langt. Það er bú-
ið að leggja inn hugmyndir um
breytingu á deiliskipulagi og er mál-
ið til umfjöllunar hjá skipulags-
yfirvöldum. Það er von okkar að hót-
elið muni styrkja verslun og
þjónustu á efri hluta Laugavegar.“
Norðan við fyrirhugað hótel er
bílastæði og segir Hjalti Gylfason,
forstjóri Mannverks, útlit fyrir að
það muni víkja.
„Núgildandi deiliskipulag gerir
ráð fyrir því að bílastæðið víki fyrir
einhvers konar opnu svæði og að hið
sögufræga hús Norðurpóllinn verði
fært þangað. Það er vilji okkar að
bílastæðið breytist í eitthvað áhuga-
verðara.“
Starfsmenn CenterHotels eru nú
um 120 og segir Kristófer að þeim
muni fjölga um 20 með nýja hót-
elinu. CenterHotels rekur nú hótelin
Skjaldbreið, Klöpp, Þingholt, Arnar-
hvol og Plaza í miðborginni. Auk fyr-
irhugaðs hótels við Hlemm er unnið
að fjölgun herbergja á Skjaldbreið,
úr 33 í 60. Þegar þeirri stækkun er
lokið og Miðgarður verður kominn í
fulla notkun verða alls 630 herbergi
hjá keðjunni í miðborginni. Rekstur
CenterHotels í miðborginni hófst
fyrir um 20 árum.
Fyrirtækið hefur verið í eigu
sömu fjölskyldu frá upphafi.
Þrír milljarðar í borgarhótel
Nýtt hótel við Hlemm bætist í keðju CenterHotels í Reykjavík Mun heita Hótel Miðgarður
Framkvæmdastjóri CenterHotels segir að horft verði til norrænnar goðafræði við hönnunina
Morgunblaðið/Þórður
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Hjalti Gylfason, forstjóri Mannverks, segir
nýja hótelið munu „hafa verulega jákvæð
áhrif á svæðið og tengja saman Laugaveg-
inn og alla þá miklu íbúðarbyggingu sem
nú stendur yfir, m.a. í Stakkholti og Ein-
holti“. „Það má segja að þetta sé punkt-
urinn yfir i-ið í því að teygja verslun og
þjónustu við Laugaveg og túrismann ofar.
Á næstu fimm árum mun ásýnd
Hlemmssvæðisins gjörbreytast til hins
betra. Það er spennandi að sjá hvað borg-
in ætlar að gera við gamla Hlemm. Það felast gríðarleg tækifæri í svæðinu;
ein hugmyndin væri að láta gamla Hlemm víkja fyrir glæsilegu torgi sem
kallast á við Austurvöll. Það gerir Hlemm að áhugaverðum áfangastað á
göngu um Reykjavík,“ segir Hjalti. Spurður hvort ekki sé fýsilegt að byggja
háhýsi þar sem Hlemmur er nú segist Hjalti þvert á móti telja að þarna sé
heppilegt að hafa opið grænt svæði. „Víða erlendis er hægt að ganga á milli
torga í miðborgum. Það þarf að vera eitthvað annað en háar byggingar. Það
er tímaskekkja að hafa biðstöð fyrir strætisvagna á þessum stað.“
Torg verði gert á Hlemmi
NORÐURPÓLLINN LÍKLEGA FLUTTUR Á HLEMM
Norðurpóllinn Áform eru um
að flytja þetta hús á Hlemm.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæðavottaðar
náttúrulegar
og organic
snyrtivörur
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Núllið svokallaða, neðanjarðar-
almenningssalerni í Bankastræti 0 í
miðborg Reykjavíkur, gæti öðlast
nýtt líf í nánustu framtíð. Nokkuð
er síðan bæði karla- og kvennasal-
ernum var lokað og verða þau ekki
opnuð aftur sem slík vegna þess að
þau uppfylla ekki þær kröfur sem
eru nú gerðar til almenningssal-
erna. Skrifstofa eigna- og atvinnu-
þróunar Reykjavíkurborgar kannar
nú möguleika á framtíðarnýtingu
Núllsins og er sýningarrými einn
þeirra möguleika sem nefndir hafa
verið.
Á fundi umhverfis- og skipulags-
ráðs í síðustu viku var tekið fyrir
erindi frá eignasjóði borgarinnar
þar sem spurt er hvort breyta megi
rýminu við Bankastræti, sem áður
hýsti náðhús kvenna, í sýningar-
gallerí. Þegar er búið að fá um-
sagnir frá skipulagsstjóra, Húsa-
friðunarnefnd og Minjastofnun
Íslands. Umhverfis- og skipulags-
ráð tók vel í hugmynd eignasjóðs
og lagði til að að uppfylltum öllum
skilyrðum yrði sótt um bygging-
arleyfi.
Kvennasalernið, sem er 37,5 fer-
metrar að stærð, er sunnanmegin í
Bankastræti en karlasalernið að
norðanverðu. Ekki stendur til að
tengja þau saman í einn sýning-
arsal en mikið af lögnum í götunni
kemur í veg fyrir það. Endanleg
ákvörðun um hvort rýminu verður
breytt og þá hvernig hefur ekki
verið tekin. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg er mik-
ið spurt um þessi rými. Ef þau fara
aftur í notkun verða þau auglýst.
Vilja að Núllið verði nýtt
Eignasjóður vill breyta kvennasalerninu í sýningargallerí
Morgunblaðið/Þórður
Bankastræti 0 Áður var þarna kvennasalerni en verður kannski sýningarsalur þegar fram líða stundir.
Um klukkan hálftíu í gærmorgun
barst lögreglu tilkynning um mann-
lausa bifreið á Óseyrarbrú. Við nán-
ari skoðun benti ýmislegt til að mað-
ur sem hafði verið í bifreiðinni hefði
fallið af brúnni í ána. Þegar í stað
voru björgunarsveitir í Árnessýslu
kallaðar út til leitar ásamt sveitum af
höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesj-
um.
Kafarar frá sérsveit ríkislögreglu-
stjóra, Slökkviliðinu á höfuðborgar-
svæðinu og björgunarsveitum voru
til taks á leitarsvæðinu, sem var
beggja vegna Ölfusáróss. Rúmlega
hundrað björgunarsveitarmenn tóku
þátt í leitinni sem bar árangur upp
úr eitt er maðurinn fannst látinn í
fjörunni á Óseyrartanga, um þrjú
hundruð metrum vestan við veit-
ingastaðinn Hafið bláa.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Selfossi voru skilyrði erfið
enda hvassviðri, rigning og sandfok.
Maður fannst látinn við
Óseyrarbrú í gærdag