Morgunblaðið - 30.09.2014, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameinum hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum
og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum
bleikan bíl!
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, og
Ólafur M. Magnússon, fyrrverandi
eigandi Mjólku, hafa rætt saman
um ummæli Ólafs í DV þar sem
haft var eftir honum að Þórólfur
Gíslason, forstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga, hefði beitt sér gegn
því að Mjólka fengi bankalán hjá
Landsbankanum. Ásmundur segir
að bankalegar forsendur hafi ein-
göngu ráðið för við ákvörðun um
að hafna lánveitingu. Ólafur segist
ekki hafa ástæðu til þess að efast
um orð Ásmundar. Hann hafi hins
vegar fengið ábendingu innan úr
bankanum um að málin væru með
þeim hætti sem hann nefndi. „Það
er enginn ágreiningur um það
hvort það hafi verið bankaleg með-
ferð á málinu og hann trúir mér
alveg með það að engir utanað-
komandi aðilar hafi komið að
þessu. Það var einfaldlega ekki
unnið þannig að málum í Lands-
bankanum þegar ég var banka-
stjóri,“ segir Ásmundur.
„Ég hef enga ástæðu til þess að
efast um það sem Ásmundur segir.
Það er mikill léttir fyrir íslenskt
samfélag. Ég ætla ekki að láta
þetta snúast um einhver aukaatriði
en Guðni Ágústsson hafði frum-
kvæði að því að fjalla um mín mál
með opinberum hætti í býtinu á
Bylgjunni á föstudagsmorgun.
Guðni sat í ríkisstjórn í áratug
sem ráðherra. Í kjölfar þess
hrundi heilt efnahagskerfi. Mér
finnst hann vera að kasta steinum
úr glerhúsi því hrunið kom illa við
mín fyrirtæki,“ segir Ólafur.
Bankalegar forsendur hafi ráðið för
Ólafur efast ekki um orð Ásmundar
Ræddu saman um ummæli Ólafs
Ólafur M.
Magnússon
Ásmundur
Stefánsson
Jóni Arnari Baldurs brá heldur bet-
ur þegar hann hjólaði á vír sem bú-
ið var að strengja yfir brúna við
Elliðaárósa síðastliðinn laugardag.
Jón slasaðist nokkuð og þurfti að
sauma tíu spor í andlit hans og seg-
ist hann ætla að kæra atvikið. „Ég
mun leggja fram kæru hvort sem
sökudólgarnir finnast eða ekki.
Mér finnst það bara eðlilegt. Það er
ólíðandi fyrir fólk að geta átt það á
hættu að lenda í þessu,“ segir Jón,
sem segir hjálminn hafa bjargað
sér. „Ég lenti með höfuðið í jörðina
svo hjálmurinn bjargaði mér.“ Jón
segist ekki skilja hvað mönnum
gangi til að gera svona.
Hjólreiðamaðurinn
leggur fram kæru
Hundar eru ekki alltaf bestu vinir
mannsins og það sannaðist heldur
betur í gær því laust upp úr klukk-
an tvö barst lögreglunni tilkynning
um að stór hundur hefði ráðist á
konu við verslunarmiðstöð og fellt
hana. Konan var illa bitin á hand-
legg auk þess sem fatnaður hennar
skemmdist nokkuð við árásina.
Fólk sem varð vitni að atvikinu
kallaði til aðstoð og kom hunda-
eftirlitsmaður á staðinn til að fjar-
lægja hundinn. Ekki er vitað
hversu mikið konan slasaðist við
árásina en hún var flutt á slysadeild
til aðhlynningar.
Illa bitin á handlegg
eftir árás hunds
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úr-
skurðað tvo karlmenn í gæslu-
varðhald til 3. október. Mennirnir
hafa verið í haldi lögreglu frá því á
laugardag, en þeir eru sakaðir um
frelsissviptingu og líkamsárás. Eru
þeir taldir hafa haldið öðrum karl-
manni nauðugum í allt að sex klukkk-
ustundir á laugardag og veitt honum
mikla áverka í andliti.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
segir að málið sé í rannsókn og verið
sé að kortleggja atburðarásina. Ekki
fæst uppgefið hvert árásarmennirnir
fóru með manninn og með hvaða
hætti þeir veittu honum áverka. Árás-
armennirnir voru handteknir í Breið-
holti seinni partinn á laugardag en
vitað er að þeir hittu annan mann í
Fossvogi fyrir hádegi sama dag og
slepptu honum við miðborgina síð-
degis á laugardag. Maðurinn gerði
lögreglunni sjálfur viðvart og hafði þá
hlotið mikla áverka í andliti, en hann
er margbrotinn að sögn lögreglunnar.
Lögreglan segir mennina alla
þekkjast og þeir hafi allir komið við
sögu lögreglunnar áður. Þá er talið
víst að málið tengist einhvers konar
uppgjöri.
Frelsis-
svipting
og ofbeldi
Tveir menn úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald
Green Freezer, skipið sem strand-
aði á Fáskrúðsfirði fyrr í þessum
mánuði, liggur enn við bryggju í
firðinum. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvert skipið fer næst, hvenær
farmurinn verður tekinn úr skip-
inu og hvert farið verður með
farminn.
Skipið siglir ekki fyrir eigin vél-
arafli og er m.a. búið að taka
stýrið af því. Skipið þarf því að
fara í slipp en ekki hefur verið
ákveðið hvort það verði hér á
landi eða erlendis. Skipið var búið
að sækja afla í Vestmannaeyjum
og í Reykjavík og átti það eftir að
koma við í tveimur til þremur
höfnum á Austurlandi þegar það
strandaði.
Enn á Fáskrúðsfirði