Morgunblaðið - 30.09.2014, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Margar tillögur eru af veitingum á
heimasíðu okkar. Einnig er hægt að
panta einstaka rétti eða eftir óskum.
Veislusalur okkar er bjartur og fallegur
salur á jarðhæð, gott aðgengi.
Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í
verði þegar erfidrykkja er í sal.
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is ·www.veislulist.is
Veitingar í erfidrykkjur
af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal
okkar, í aðra sali eða í heimahús.
Skútan
Íbúðaverð Fjölbýli hefur hækkað mikið.
● Vísbendingar eru um að ágætt jafn-
vægi ríki á fasteignamarkaði höf-
uðborgarsvæðisins miðað við ýmsa
mælikvarða, að mati Hagfræðideildar
Landsbankans. Þar má nefna lang-
tímaþróun raunverðs á húsnæði, sam-
hengi íbúðaverðs og kaupmáttar launa
og samband íbúðaverðs og bygging-
arkostnaðar.
Hagfræðideildin telur þetta jafnvægi
þó brothætt og að óvissa sé fram-
undan. Þar skipti miklu máli höfuðstóls-
lækkun verðtryggðra fasteignalána.
Aukning á framboði og eftirspurn mun
ýta undir spennu og verðhækkanir.
Brothætt jafnvægi
á fasteignamarkaði
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Eignaumsýslufélagið Klakki hefur
ekki getað greitt út laust fé til er-
lendra eigenda og kröfuhafa í sam-
ræmi við ákvæði nauðasamnings fé-
lagsins
undanfarin tvö
ár. Samtals nam
fjárhæðin á
þessu tímabili
12,4 milljörðum
króna í lok síð-
asta árs, að því
er fram kemur í
samstæðureikn-
ingi Klakka fyrir
árið 2013.
Eftir að gerðar
voru þýðingarmiklar breytingar að
frumkvæði Seðlabanka Íslands á
lögum um gjaldeyrismál þann 13.
mars árið 2012 voru undanþágur
frá fjármagnshöftum, sem höfðu
meðal annars gilt um greiðslur til
erlendra kröfuhafa Klakka, af-
numdar.
Óvíst um frekari greiðslur
Með breytingu á lögunum urðu
því allar greiðslur samningskrafna
samkvæmt nauðasamningi til er-
lendra kröfuhafa í krónum ólögleg-
ar. Klakka er að óbreyttu óheimilt
að inna af hendi frekari greiðslur til
erlendra kröfuhafa félagsins í sam-
ræmi við ákvæði nauðasamnings frá
2010 nema með sérstakri undan-
þágu Seðlabankans.
Í skýringum við ársreikning
Klakka er sérstaklega tekið fram
að ekki sé gerður greinarmunur á
því hvort félagið greiði til erlendra
aðila í krónum inn á reikning þeirra
í eigu íslenskrar fjármálastofnunar
hér á landi. Slík fjármagnsviðskipti
fara sömuleiðis gegn ákvæðum laga
um gjaldeyrismál sem bannar fjár-
magnshreyfingar á milli landa.
Magnús Scheving Thorsteinsson,
forstjóri Klakka, sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki vilja tjá sig
neitt frekar um málið til viðbótar
við það sem fram kæmi í ársreikn-
ingi félagsins.
Helstu eignir Klakka, áður Ex-
ista, eru 23% eignarhlutur í Vá-
tryggingafélagi Íslands (VÍS) og
fjármögnunarfyrirtækið Lýsing
sem er að fullu í eigu Klakka. Í apr-
íl 2013 seldi félagið 69% hlut í VÍS
fyrir ríflega fjórtán milljarða króna
og í júní síðastliðnum var 8% hlutur
einnig seldur.
Burlington stór kröfuhafi
Á meðal stærstu erlendra eig-
enda og kröfuhafa Klakka eru vog-
unarsjóðurinn Burlington Loan Ma-
nagement og Holt-Funding sem er
írskt félag í eigu Glitnis og heldur
utan um tiltekin lánasöfn í eigu
slitabúsins. Burlington Loan Ma-
nagement er í eigu bandaríska vog-
unarsjóðsins Davidson Kempner.
Sjóðir á vegum Davidson Kempner
eru sem kunnugt er langstærstu
einstöku kröfuhafar í bú Glitnis,
meðal þeirra stærstu í Kaupþingi,
eiga umtalsverðar kröfur á gamla
Landsbankann, auk þess eignarhlut
í Bakkavör.
Burlington er jafnframt langsam-
lega stærsti kröfuhafi Lýsingar eft-
ir að sjóðurinn endurfjármagnaði
erlendar skuldir félagsins í október
2013. Þá var gjaldeyrisskuld Peru,
dótturfélags Lýsingar, við þýska
stórbankann Deutsche Bank,
greidd upp með lántöku frá móð-
urfélaginu sem var fjármögnuð af
Burlington.
Stærstu innlendu eigendur og
kröfuhafar Klakka eru hins vegar
Arion banki og slitabú Kaupþings.
Fram kemur í ársreikningi
Klakka að félagið hafi þurft að setja
til hliðar ríflega 5 milljarða króna á
liðnu ári – sem bundnar banka-
innstæður (e. restricted cash) – en
það samsvarar þeirri fjárhæð sem
Klakka var óheimilt að greiða til er-
lendra kröfuhafa. Á árinu 2012 nam
upphæðin 7,2 milljörðum króna.
Samtals eru því tæplega 12,4 millj-
arðar króna bókfærðir sem ógreidd
skammtímaskuld Klakka við er-
lenda kröfuhafa félagsins.
47 milljarða eignir Klakka
Hagnaður af starfsemi Klakka á
síðasta ári var um 8,5 milljarðar
króna. Tilgangur félagsins er þó
ekki að skila hagnaði af rekstri
heldur að umbreyta eignum í laust
fé og greiða til eigenda og kröfu-
hafa í samræmi við ákvæði nauða-
samnings. Heildareignir félagsins í
lok árs 2013 námu um 47 millj-
örðum króna. Nærri helmingur
þeirrar fjárhæðar er handbært
reiðufé. Stærstur hluti þess er aftur
á móti ekki laus til útgreiðslu til
kröfuhafa. Sem fyrr segir nema
bundnar bankainnstæður 12,4 millj-
örðum, vegna ógreiddrar skuldar
við erlenda kröfuhafa, en auk þess
eru ríflega 3,3 milljarðar króna veð-
settir stórum kröfuhafa Klakka.
Um mitt síðasta ár var lokið við
fjárhagslega endurskipulagningu
Skipta, móðurfélags Símans og
Mílu, en við það framseldi Klakki
alla hluti sína í Skiptum til óveð-
tryggðra kröfuhafa og varð því ekki
lengur hluthafi í félaginu.
Ekkert greitt til erlendra kröfuhafa
Morgunblaðið/Eggert
Hlutafjáreign Auk 23% eignarhlutar í VÍS á Klakki allan eignarhlutinn í fjármögnunarfyrirtækinu Lýsingu.
Eftir breytingar á lögum um gjaldeyrismál hafa erlendir kröfuhafar Klakka ekki fengið neinar
greiðslur í samræmi við ákvæði nauðasamnings Yfir 12 milljarðar króna á um tveggja ára tímabili
Magnús Scheving
Thorsteinsson
● Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust
2013 um 4,2% frá fyrra ári. Ráðstöf-
urnartekjur á mann hækkuðu um 3,2%
á milli ára en hins vegar lækkaði kaup-
máttur ráðstöfunartekna á mann um
0,7%, samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Ráðstöfunartekjur heimilanna skil-
greinast sem samtala launatekna,
eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs
rekstrarafgangs einstaklingsfyrirtækja
en að frádregnum eigna- og tilfærsluút-
gjöldum.
Kaupmáttur rýrnar
● Stjórn N1 hefur boðað til hlut-
hafafundar þriðjudaginn 21. október
þar sem lögð verður fyrir tillaga um
30% lækkun hlutafjár, sem tilkynnt
var í tengslum við hálfsársuppgjör
félagsins í lok ágúst.
Í tillögu stjórnar er lagt til að
hlutafé verði fært niður um tæplega
3.860 milljónir króna. Verður fjár-
hæðin greidd út til hluthafa hlut-
fallslega í samræmi við hlutafjár-
eign í dagslok 28. nóvember
næstkomandi, að því gefnu að lög-
boðnar forsendur fyrir útgreiðslunni
séu uppfylltar á þeim tíma. Við
þetta mun eiginfjárhlutfall N1 lækka
úr 51% í 43%.
N1 boðar hluthafafund
STUTTAR FRÉTTIR
!
"
!
#
$$#
$ $
"
# #"
!%!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
!!
##$
"#
!
$!#"
$$
#
#$
!%
!
!!
!%
$!"
$$%
$$
#
!
#%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Klakki hefur nú þegar greitt kröfu-
höfum félagsins samtals 38,5
milljarða króna í tengslum við
nauðasamninginn sem var sam-
þykktur árið 2010, að því er fram
kemur í samstæðureikningi Klakka
fyrir árið 2013. Á síðasta ári námu
greiðslur til kröfuhafa um 16,5
milljörðum króna.
Eftir að Klakki, sem þá hét Ex-
ista, fékk heimild með úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur til að
leita nauðasamninga við lán-
ardrottna sína í júlí 2010 voru
nauðasamningar félagsins sam-
þykktir með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða kröfuhafa þann 17.
október sama ár. Með nauðasamn-
ingnum fluttust yfirráð yfir félag-
inu og öll verðmæti til kröfuhafa.
Samkvæmt samningnum
breyttu lánardrottnar 10% af 239
milljarða króna kröfum sínum í
nýtt hlutafé í Klakka. Níutíu pró-
sentum var síðan breytt í kröfur
sem breytanlegar eru í hlutabréf í
félaginu að ákveðnum skilyrðum
uppfylltum. Endurgreiðslur til
kröfuhafa munu ráðast af lausa-
fjárstöðu félagsins hverju sinni og
bera ekki vexti. Ef ekki tekst að
greiða kröfuhöfum að fullu til baka
í árslok 2020 eða seinna – þó ekki
síðar en 31. desember 2030 –
verður fjárhæðum sem eru enn
ógreiddar breytt í hlutafé.
Hefur greitt 38,5 milljarða
KRÖFUHAFAR KLAKKA SAMÞYKKTU NAUÐASAMNINGA 2010