Morgunblaðið - 30.09.2014, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2014
Verkið Gaukar segir fráfundum þeirra Tómasarog Gunnlaugs á hótelher-bergi á landsbyggðinni að
vetri til. Gunnlaugur, sem er eldri,
er kominn að vestan. Tómas hefur
ekið í um klukkustund frá Reykjavík
til að hitta hann. Ástæða fundarins
er að Gunnlaugur hyggst gefa frá
sér páfagauk sem Tómas hefur mik-
inn áhuga á að eignast og er kominn
til að skoða. Gunnlaugur er þó ekki
til í að láta hvern sem er fá páfa-
gaukinn og yfirheyrir því Tómas um
fjölskylduhagi og reynslu af dýra-
haldi.
Það teygist á samveru þeirra fé-
laga og páfagauksins og smátt og
smátt verðum við margs vísari um
þennan unga borgarbúa og eldri
landsbyggðarmann. Við komumst að
því að mennirnir eiga meira sameig-
inlegt en okkur hefði fyrirfram
grunað.
Sviðið er fyrrnefnt hótelherbergi.
Í miðju er tvíbreitt rúm. Á vinstri
hönd er inngangur en á þá hægri eru
dyr og klósett þar fyrir innan. Allt er
snyrtilegt og ópersónulegt eins og
við má búast. Lifandi páfagaukur er
í búri á kassa framarlega á sviðinu.
Áður en verkið hefst er varpað
skuggamynd yfir herbergið, mögu-
lega af skógi og undir murra hljóð
sem gætu verið úr sama skógi og
heimkynni páfagauka. Þegar verkið
er hafið lýsir kastari búr páfagauks-
ins þannig að sjá má skuggamynd af
honum á vegg hótelherbergisins.
Gunnlaugur, sem Jóhann Sigurð-
arson leikur, er nokkuð vel mótuð
persóna. Flestir kannast sjálfsagt
við svona týpu. Hann hefur horn í
síðu höfuðborgarbúa, er hrjúfur á
yfirborðinu en í raun besti kall sem
líður nokkuð vel við fábreyttar að-
stæður, borðar gamlan íslenskan
mat og þegir. Jóhann miðlar honum
mjög vel. Persóna Tómasar, sem
leikinn er af Hilmari Guðjónssyni,
verður ekki eins lifandi og skýr. Mér
fannst til dæmis ekki alveg sennilegt
að svona ungur og myndarlegur
maður væri að því er virtist alveg
búinn að gefa samband við hitt kynið
upp á bátinn.
Nokkuð vel tekst að undirbyggja
það hvernig teygist á samvistum
karlanna og að þeir fara að segja
hvor öðrum meira af eigin hag. Sam-
töl eru góð og á köflum fyndin, til
dæmis frásagnir af sparakstri sem
er áhugamál Gunnlaugs. Báðir segja
mennirnir líka skemmtilegar og
kostulegar sögur. Sambandið við
fyrrverandi sambýliskonur ber á
góma og þeir leika samtöl við þær.
Þar er lýst aðstæðum sem maður
kannast við og eru fyndnar.
Fundur mannanna og páfagauk-
urinn er mögulega hugsaður sem
dæmi um það hvað lífið getur verið
fáránlegt og óvænt og boðið upp á
skrýtnar uppákomur. Í verkinu er
einnig lýst kreppu tveggja karla sem
eiga ekki sérlega auðvelt með mild
og lauflétt samskipti, efni sem vissu-
lega er gott að tekið sé upp.
Ef láta á tvo menn ná saman með
sæmilega trúverðugum hætti verður
að gefa því sæmilegan tíma. Verkið
er rúmlega tveir tímar að lengd og
mér fannst það of löng samvera við
þessa tvo menn. Þó að þeir opnuðu
sig og segðu hvor öðrum eitthvað
nýtt þá var framvindan of hæg og
fyrirsjáanleg til þess að halda at-
hygli minni og áhuga. Það er hálf
erfitt að viðurkenna þetta því þarna
er þrátt fyrir allt verið að fjalla af
virðingu um vanda karlmanna – sem
auðvitað er lofsvert.
Samskipti „Í verkinu er einnig lýst kreppu tveggja karla sem eiga ekki sér-
lega auðvelt með mild og lauflétt samskipti,“ segir meðal annars í leikdómi.
Borgarleikhúsið
Gaukar bbmnn
Eftir Huldar Breiðfjörð. Leikstjóri: Jón
Páll Eyjólfsson. Leikmynd og búningar:
Brynja Björnsdóttir. Lýsing: Þórður Orri
Pétursson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Hljóð:
Baldvin Magnússon. Leikarar: Jóhann
Sigurðarson og Hilmar Guðjónsson.
Frumsýning á Nýja sviði Borgarleik-
hússins, föstudaginn 26. sept. 2014.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKLIST
Karlar í kreppu
Önnur plata ársins hjá Bedroom
Community, Theatrics eftir enska
tónlistarmanninn Puzzle Muteson,
kom út í gær. Theatrics er rökrétt
framhald af fyrstu plötu Muteson,
En Garde frá árinu 2011 og er óður
til þjóðlagatónlistar á sama tíma og
hún kannar leyndardóma hins raf-
ræna hljóðheims, skv. tilkynningu.
Meðal þeirra sem leggja Muteson
lið á plötunni eru Nico Muhly og
Valgeir Sigurðsson.
Rökrétt framhald
hjá Muteson
Ljósmynd/Costanza_Gianquinto
Saga Lögin 11 á Theatrics Puzzle Mute-
son segja áhrifamikla sögu með hverri
mínútu sem líður, skv. tilkynningu.
um unga lækni og
þegar gamall félagi,
kunnur listamaður,
slasast illa tekur frá-
sögnin nokkuð óvænta
stefnu en jafnframt
losnar um tök höfund-
arins á efninu. Umfjöll-
unarefnin eru mik-
ilvæg, til að mynda um
hlutverk lækna, hvað
sé að líkna, og muninn
á því að hafa stjórn á
lífi annarra og sínu eig-
in, en sagan tekur að
hlaupa út undan sér og
um tíma er reynt að koma of miklu
inn. Fulláberandi verður hvernig
byggja á upp net vísana og end-
urtekninga, og kúvendingar í lífi
Hér er teflt við dauðann ávöktum. Spennuþögnskákeinvígis í loftinu,rofin af og til af andvörp-
um öndunarvéla, hálfkæfðum ópum
frá stífluðum vökvadælum og hljóð-
deyfðu skrafi starfsfólksins.“ (8)
Í upphafi frumraunar Ara Jó-
hannessonar í skáldsöguskrifum,
Lífsmörk, stígur lesandinn beint inn
á gjörgæsludeild Landspítalans og
sagan grípur lesandann, enda er höf-
undurinn vel ritfær eins og glögg-
lega kom í ljós í ljóðabók hans,
Öskudögum (2007), en fyrir hana
hlaut Ari Bókmenntaverðlaun Tóm-
asar Guðmundssonar. Textinn er
ljóðrænn og frásögnin athyglisverð.
Lesandinn kynnist hinum vinnu-
sama svæfingalækni Sölva Odds-
syni, nokkrum vinnufélögum hans
og glímu þeirra við að halda lífi í
sjúklingunum en jafnframt í ást-
arsamböndum, því í ljós kemur að
samband Sölva og eiginkonu hans er
ekki sem best.
Í fyrsta hluta sögunnar er dregin
upp sannferðug lýsing á daglegu lífi
á íslensku sjúkrahúsi, og áhugavert
persónugallerí er kynnt til sög-
unnar, innan stofnunar og í fjöl-
skyldu Sölva. Álagið er mikið á hin-
persóna verða óþarf-
lega dramatískar. Um
tíma virðist frásögnin
ætla að verða saka-
málasaga, og er það
veikasti hluti verksins,
áður en hún er loks
tekin saman í lokin þar
sem söguhetjan fær
tækifæri til að koma
reglu á líf sitt.
Lífsmörk er áhuga-
verð saga, mjög læsi-
leg og ágæt frumraun
vel stílandi höfundar.
Sá hluti sem gerist inn-
an sjúkrastofnana er einkar vel
lukkaður og sýnir að höfundurinn,
sem er starfandi læknir, á fullt er-
indi á gjörgæsludeild orðanna.
Morgunblaðið/Golli
Læknasaga „Lífsmörk er áhugaverð saga, mjög læsileg og ágæt frumraun
vel stílandi höfundar,“ segir um skáldverk Ara Jóhannessonar.
Drama á gjörgæslunni
Skáldsaga
Lífsmörk bbbnn
Eftir Ara Jóhannesson.
Mál og menning, 2014, Kilja, 282 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
L
12
EQUALIZER Sýnd kl. 8 - 10:40
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
MAZE RUNNER Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
PÓSTURINN PÁLL 2D Sýnd kl. 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is