Morgunblaðið - 30.09.2014, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Hefur glímt við andleg veikindi
2. Víðtæk leit við Óseyrarbrú
3. Drukknaði í Ölfusá
4. Tók myndir og lét lögregluna vita
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hjónin Steina og Woody Vasulka
eru meðal helstu frumkvöðla vídeó-
listar. Á 130 ára afmæli Listasafns Ís-
lands hinn 16. október opnar mennta-
málaráðherra svokallaða Vasulka-
stofu í safninu. Þar verður vistað
gagnasafn listamannanna en jafn-
framt er ætlunin að Vasulka-stofa
verði miðstöð rafmiðlalista á Íslandi.
Listasafnið, sem er eitt höfuðsafna
landsins, beinir þar með aukinni at-
hygli að varðveislu vídeólistar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgríms
Stofa með verkum
Steinu og Woodys
Kanadíska skáldið Angela Rawlings
heldur fyrirlestur í Ketilhúsinu í dag
kl. 17 undir yfirskriftinni Wild slumber
for industrial ecologists (Villtar
svefnfarir iðnaðarvistfræðinga).
Rawlings mun m.a. fjalla um sam-
nefnda sýningu sem nú stendur yfir í
Verksmiðjunni á Hjalteyri og er af-
rakstur af samstarfi myndlistar-
manna, rithöfunda og tónlistarmanna
sem dvalið hafa í alþjóðlegri gesta-
vinnustofu á Hjalteyri undanfarið.
Eitt umfjöllunarefni sýningarinnar
er iðnaðarvistfræði og rannsóknir á
flæði efnis og orku í iðnaðarkerfum.
„Iðnaðarvistfræðingar rannsaka þró-
un á sjálfbærum og lokuðum kerfum
þar sem úrgangur eins iðnaðar getur
verið auðlind annars,“ segir í tilkynn-
ingu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku
og er aðgangur ókeypis. Hann er
sá fyrsti í
röð fyr-
irlestra sem
haldnir
verða á
hverjum
þriðjudegi í
Ketilhúsinu
kl. 17 í vetur.
Villtar svefnfarir
iðnaðarvistfræðinga
Á miðvikudag Suðvestan og sunnan 15-23 m/s og skúrir eða rign-
ing en 10-15 m/s og úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til
10 stig. Á fimmtudag Hvöss suðlæg átt en norðlægari fyrir vestan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í sunnan 18-23 m/s vestast á land-
inu í dag, annars 10-18 m/s. Rigning en úrkomulítið norðaustantil.
Hiti víða 5 til 10 stig.
VEÐUR
„Ég var draghaltur alla vik-
una en við vorum búnir að
borga alla ferðina, og höfð-
um enga tryggingu, þannig
að við ákváðum að láta slag
standa. Ég varð svo smám
saman betri og ákvað að
lokum að prófa að keppa,“
segir júdókappinn Þor-
móður Árni Jónsson en
hann lét meiðsli ekki hindra
sig í að klifra upp um 30
sæti á heimslistanum. »1
Fór draghaltur
upp um 30 sæti
„Henrik Bödker hringdi í mig og
spurði hvernig mér litist á að koma
hingað. Ég skoðaði hvaða aðra mögu-
leika ég hafði og taldi þetta besta
kostinn. Þar spilaði ýmislegt inn í,
eins og til dæmis tækifærið til að
spila í Evrópukeppni,“ segir
Rolf Toft, framherji
Stjörnunnar, sem skoraði
sína fyrstu þrennu í
meistaraflokki í leiknum
gegn Fram í fyrradag.
»2-3
Toft fékk hringingu
frá Henrik Bödker
„Maður er í þessu til að reyna að
komast til útlanda að spila. Ég fórn-
aði ýmsu í sumar til að æfa eins og
brjálæðingur. Það væri gaman að
reyna aftur fyrir sér í atvinnu-
mennskunni og ég veit að ÍR mun
ekki standa í vegi fyrir mér ef það
opnast einhverjar dyr um áramótin,“
segir Björgvin Þór Hólmgeirsson,
markahæsti leikmaður Olísdeildar
karla í handbolta. »4
ÍR myndi ekki standa
í vegi fyrir mér
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Heiðmörkin skilar gæðatimbri.
Áhuginn á því að nýta þessa afurð er
mikill, ekki síst meðal þeirra sem
hafa áhuga á nýstárlegri og fram-
andi hönnun. Þegar á að skapa eitt-
hvað skemmtilegt þykir hæfa að nota
íslenskan við,“ segir Helgi Gíslason,
framkvæmda-
stjóri Skóg-
ræktarfélags
Reykjavíkur.
Á athafnasvæði
félagsins við Ell-
iðavatn er nú ver-
ið að hefja timbur-
vinnslu og verið
að setja upp vélar
og tæki í því
skyni. Unnið
verður úr grisjunarviði, svo sem
greni og furu sem gróðursett var fyr-
ir 40 til 50 árum. Veruleikinn er sem
sagt sá að í Heiðmörk er auðlind í
timburframleiðslu – til viðbótar við að
þaðan kemur sá kaldi sopi sem öllu
máli skiptir, sjálft Gvendarbrunna-
vatnið.
Gengið á gilda stofna
„Síðasta árið höfum við grisjað sjö
hektara hér á svæðinu, til dæmis á
Elliðavatnsheiði og í Vífilsstaðahlíð.
Það hefur skilað okkur drjúgu af hrá-
efni. Þumalputtareglan er sú að hver
yfirferð í grisjun skili 50 rúmmetrum
af timbri á hektara og jafnvel meiru,“
útskýrir Helgi. Í gegnum tíðina segir
hann skógana í Heiðmörk hafa verið
grisjaða reglulega. Þannig hafi feng-
ist viður sem hafi farið í t.d. brenni
eða kurl. Nú sé hins vegar gengið að
gildum stofnum. Af þeim megi fá til
dæmis 1 x 6 og 2 x 4 tomma við.
„Menn þurfa að vanda mjög til
verka í timburvinnslu. Fyrst er trjá-
bolunum flett í gegn og fjalirnar
sniðnar til og þurrkaðar. Í tilraunum
hér hefur þurrkunin verið tveggja til
þriggja ára ferli hvar timbrið hefur
staðið í geymsluhúsi hér. Nú erum við
hins vegar að fá hingað sérstakan
þurrkgám, en þar inni verður 40 til 50
gráða hiti og blástur sem tekur rak-
ann úr timbrinu svo ferlið verður að-
eins vika til tíu dagar.“
Timbrið er eftirsótt
Ágætt verð fæst fyrir timbur úr ís-
lenskum skógum. Viðmiðið er að fyrir
hvern rúmmetra af fullunninni furu
eða greni fáist 120 þúsund krónur;
viður sem er eftirsóttur í til dæmis
veggklæðningar og til fínsmíði. Hafa
smiðir og hönnuðir talsvert verið í
sambandi við skógræktarmenn vegna
þessa. „Hér á Heiðmerkursvæðinu
eru víðfeðmir skógar sem við þurfum
að grisja á næstu árum. Slíkt mun
skila okkur drjúgu af timbri og áhug-
inn segir okkur að ekki verði neinum
vandkvæðum bundið að koma þessu í
verð.“
Ný auðlind í Heiðmörkinni
Timburvinnsla
hafin og skógur
skilar drjúgu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skógarhögg Johan Azizi með bjálka í stórviðarsög sem Heiðmerkurmenn fengu nýlega vegna timburvinnslu.
Viður Margt fellur til í skóginum, svo sem þessar skífur úr barrviði, en slík-
ar eru í vaxandi mæli notaðar til dæmis sem klæðningar á heila veggi.
Helgi Gíslason